Þjóðviljinn - 22.03.1956, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 22. marz 1956
Rússlandsfrétlir — Útvarpið og hernámsblöðin —
Þrjátíu og fimm í yfirliði — Fyrirspurn um vísilölur
mikið um orðalag eins og:
„talið er, sagt er, álitið er“.
Hverjir eru það, sem „álíta“
„telja“ og „segja“ fyrir ís-
lenzka ríkisútvarpið ? Er það
rétt, að þegar fréttastofu ísl.
útvarpsins þykir brezku frétt-
irnar ekki nógu álirifamiklar,
leiti hún til bandarískra á-
róðurs- og hasarblaða, til
þess að afla sér frétta? Mað-
,ur hlýtur að gera meiri kröf-
ur til Ríkisútvarpsins um á-
byrgan fréttaflutning heldur
en Morgunblaðsins og ann-
arra hernámsblaða." — Póst-
inum er að vísu ekki kunnugt
um, eftir hvaða leiðum frétta
stofa útvarpsins aflar sér
frétta, en það er fullkomlega
réttmætt að gera þær kröfur
til hennar, að hún beri a.m.k.
ekki á borð fyrir okkur hrein-
ræktaðar slúðursögur, eins og
frásögnina um 35 fulltríiana,
sem féilu í yfirlið. Þegar mað-
ur heyrir slíkar „fréttir“, er
ekki nema von, að hjá manni
vakni grunur um, að sumir
heimildarmenn fréttastofunn-
ar séu ekki allt of áreiðan-
legir. — Þá er hér fyrirspum
frá verkamanni um fram-
færsluvísitölu og kaupgjalds-
vísitölu. — „Það er sagt að
allar verðhækkanir séu hækk-
HLUSTANDI SKRIFAR: —
„Það kemur sjálfsagt engum
á óvart, þótt megnið af les-
máli hemámsblaðanna ís-
lenzku séu Rússlands-fréttir.
Þannig hefur það alltaf ver-
ið, þegar líða tekur að kosn-
ingnm hér heima. En þegar
Ríkisutvarpið tekur upp á því
að hella yfir háttvirta hlust-
endur fréttaflutningi, sem
vitnar um jafnvel enn lægia
vitsmunastig en fréttaflutn-
ingur Morgunblaðsins, þá
blöskrar manni fyrst for-
heimskunin. Einkum snúast
fréttir hernámsblaðanna og
útvarpsins um ræðu, sem
Krútstjoff á að hafa haldið á
flokksþingi rússneska Komm-
únistaflokksins. Og á laugar-
daginn fræddi útvarpio okkur
á því, að hvorki meira né
minna en 35 fulltrúar hefðu
fallið í yfirlið, þegar þeir
iheyrðu ummæli Krústjoffs um
Stalín! Og í erlendum frétt-
um útvarpsins s.l. mánudag
! var Staiín í öðru orðinu sak-
aður um að hafa verið óvið-
1 búinn að mæta árásai-herjum
Hitlers, en í hinu orðinu var
honum fyrst og fremst þakk-
að, að sigur vannst á herj-
1 um Þjóðverja. Þá er í frétt-
um útvarpsins (og blaðanna)
sliill u
fylgishnðÐÍ ®g einangnin
,4>
Svo óttas'legnir eru forkólf-
ar Sjálfstæðisflokksins við
koSningabandalag alþýðunnar
að þeir eru teknir að burðast
við að klína „bandalags“-heiti
á flokk sinn. Heldur Bjarni
Benediktsson enga ræðu í
seinni tíð svo að hann boði
ekki að „Sjálfstæðisflokkur-
inn þurfi að verða sterkasta
bandalagið í íslenzkum stjórn-
málum“. Þetta voru niður-
lagsorð ráðherrans í útvarps-
umræðunum frá alþingi fyrir
skömmu og sama endurtekur
sig á fulltrúaráðsfundi íhalds-
ins í fyrrakvöld þar sem
Bjarni flutti ómerkilega skæt-
ingsræðu um andstæðingana.
uðu kaupgjaldi.~að kenna, og
að hátt kaupgjald sé orsök
verðbólgunnar. Ef svo er,
hvemig stendur þá á því að
framfærsluvísitalan getur
hækkað án þess að kaup-
gjaldsvísitalan hækki fyrst?
Og í öðru lagi: Hvernig stend-
ur á þeim verðhækkunum,
sem nýlega urðu á öllum
mjólkui’vörum; (mjólk, rjóma,
skyri, osti) ? — Pósturinn
mælist til þess, að einhver,
sem betur er að sér en hann
í vísitölufræðunum, svari
þessum fyrirspurnum skil-
merkilega hér í blaðinu.
Undir söng ráðherrans um
„bandalagið“ Sjálfstæðisflokk-
inn taka svo bæði floltks-
blöðin, Morgunblaðið og Vísir.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
aídrei verið neitt banda’ag og
vérður það sízt af öllu að
þessu sinni. Aídrei hefur ein-
angrun þessa ófyrirleitna yf-
irstéttarflokks verið jafn al-
gjör og nú, aldrei jafn aug-
Ijós og almennur flótti brost-
ið í lið hans. Kosningasmalar
hans og „hverfisstjórar“ flytja
nú forkólfunum þær fréttir
hver úr sínu „umdæmi“ að
fólk sem alltaf hefur stutt
flokkmn í kosningum snúi nú
við honum baki í stóruni stíl.
Orsakanna er að leita til
verka rikisstjórnarinnar og
óhvikullar varðstöðu íhaldsins
. jt* v.
um gróðahagsmuni auðfélaga
og milliliða.
Við þessar fregnir eru
íhaldsforingjarnir gripnir mik-
illi skelfingu. Sjá þeir fram á
stórkostlegt fylgishrun og
álirifaleysi flokksins. Og ekki
bætir það úr skák eða eykur
bjartsýni foringjanna að jafn-
vel hægri menn Framsóknar
og Alþýðuflokksins telja það
helzt vænlegt til að fram-
lengja pólitíska lífdaga sina
að sverja af sér allt hugsan-
legt samneyti við Sjálfstæðis-
flokkinn eftir kosningar. Ber
ju að taka slíbar
z'nrpr mátuiega alvar*
■ en þær sýna þó greini-
lega matið á vinsældum Sjálf-
stæðisflokksins og hve von-
laust allir flokkar telja það
sér til gengis að gefa það til
kynna að unnt sé að starfa
með honum að þjóðmálum.
Það eru því allar horfur á
að Sjálfstæðisflokkurinn verði
í emi ríkara mæli en áður
„bandalag“ fámermrar auð-
mannaklíku sem almemiingur
yfirgefur og enginn viil kann-
ast við sem samstarfshæfan
að fenginni dýrri reynslu.
Hreystiyrði Bjarna Benedikts-
sonar um „sterkásta banda-
lagið“ breyta þessu ekki hve
oft sem þau eru endurtekin
til huggunar honum sjálfum
og þeim lagsbræðmm hans
sem sjá nú fram á. alvarlegt
fylgislirun og pólitíska ein-
angrun.
Austurþýzkir bílar á
íslenzkum markaði?
Flugferð í kaupbæti
Samdrátturinn I bílaiðnaðin-
um, sem gert hefur vart við
sig í flestum vesturlöndum,
hefur verið tilfinnanlegur í
Bretlandi og eru ekki horfur
frosthörkunum þar á dögunum.
Tilgangurinn var aðallega sá
að reyna hvemig plastið þylai
mikinn kulda. Frostið komst.
niður í -f-50 stig — en ég leyfi
mér að fullyrða, segir Göter-
ström verkfræðingur, að vagn-
inn reyndist framar öllum von-
um okkar. Plastið reyndist
mjög haldgoít og það varð ekki
fyrir minnstu skemmdum, enda
þótt við færum upp á hreyfils-
húsið og hoppuðum á því.
Vegna hálkunnar urðum við
fyrir árekstri, enda þótt vagn-
inn hggi mjög vel á vegi. Það
kom dæld í yfirbygginguna, en
þið getið rétt ímyndað ykkur
furðu okkar, þegar við sáum
að dældin hvarf samstundis
aftur og engin merki sáust um
hana. Ekki einu sinni lakkið
skemmdist. Er hægt að heimta
meira?
Hreyflinum er snúið 180
gráður og það hefur í för með
sér að meiri þungi en ella hvíl-
ir á framhjólunum. Þetta ger-
ir um leið að verkum, að orku-
nýtingin verður betri, þar sem
P70 hefur drif á framhjölum.
Vagninn er 900 kg, afköstin 22
hö, hámarkshraði 100 km/klst.
Hér mun P 70 sennilega kosta
um 38.000 kr. og virðist það
vera mjög vægt verð.
á að brezki bílaiðnaðurinn nái
aftur þeim hluta heimsmark-
aðarins sem hann hefur misst
í hendur þýzkum, frönskum og
ítölskum keppinautum. í fyrra
seldust fleiri þýzlðr bílar á
markaðmum í Bandaríkjunum
en brezkir og hafði það ekki
komið fyrir áður eftir stríðið.
Við þetta ólán Breta bætist
það að bandarísku verksmiðj-
unum í Bretlandi, Ford og
Vauxhall, hefur gengið miklu
betur en hinum albrezku fyrir-
tækjum og hafa bandarísku fé-
lögin jafnvel getað aukið fram-
leiðslu sína á sama tima og
hin brezku hafa orðið að stór-
minnka framleiðsluna.
Myndirnar sem þessu fylgja
gefa nokkra hugmynd um það
ástand sem af þessum vand-
ræðum hefur leitt. Á þeirri
efri sést sægur af óseldum
bílum fyrir utan Hillman- verk-
smiðjurnar. Fyrir ári síðan
voru allir Hillman-bílar seldir
áður en smíði þeirra var lok-
ið. Hin myndin er tekin i
bílaverzlun einni í Birming-
ham, sem býður ókeypis fiiig-
ferð til Parísar hverjum þeim
sem kaupir vagn. Þessi sölu-
aðferð er hermd eftir Banda-
ríkjamönnum, þar eru þess
dæmi að mönnum séu boðnir
ísskápar eða þvottavélar í
kaupbæti með nýjum bílum.
Hér var í síðasta þætti sagt
frá tíu ódýrustu vögnunum á
hinni miklu bílasýningu sem
haldin var í Kaupmannahöfn.
Það var athyglisvert að af þess-
tim tíu vögnum voru sex þýzk-
ir, þrír úr hvorum landshluta.
Austurþýzku vagnarnir vöktu
sérstaka athygli, ekki sízt
fyrir þá sök að þeir voru af
algerlega nýjum og að sumu
ýmsura góðum kostum búinn.
Hreyfillinn er þriggja strokka,
vatnskældur tvígengishreyfill,
900 rúmsm. Afköstin eru 36 hö
við 4000 snún./mín. Vagninn
vegur 970 kg og hámarkshraði
130 km/klst. Mesti kostur
Wartburgs mun þó vera hið
tiltölulega væga verð, ætlað er
að hann muni kosta hér um
65.000 kr.
leyti nýstárlegum gerðum, sem
ekki höfðu áður sézt á bíla-
sýningum vestan tjalds. Sagt var
anokkuð frá þessum vögnum,
en þar sem telja má líklegt, að
ekki líði á löngu áður en þeir
verða fáanlegir hér, skal enn
um þá rætt, eða réttara sagt
tvo þeirra.
Þessir tveir vagnar eru Wart-
burg (Ifa F 9) og plastbíllinn
P 70 (IFA F 8). í síðasta þætti
birtum við mynd af P 70, en
þessu fylgir mynd af Wart-
Jjurg. Það er fallegur bíll og
Plastbíllinn P 70, er bæði
minni og hreyfillinn aflminni,
en verðið er einnig miklu
lægra. Yfirbyggingin er sem
sagt úr plasti sem fest er á
stálgrind. Plastið þykir gefast
mjög vel og miklu betur en
menn hefðu talið. Einn af verk-
fræðingum sænsku bifreiða-
verzlunarinnar Biiágarnas In-
kopscentral, Göterström, skýrir
frá því í viðtali við sænskt
blað, að hann hafi farið með
P 70 í 5000 km reynsluferð um
nyrztu héruð Bvíþjóðar í mestu