Þjóðviljinn - 22.03.1956, Síða 6
— ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudágur 22. marz 1956
ÞlÓÐVILIINH
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alpýðu — Sósíalistaflokkurinn
Öflug fylking vinstri manna
FvAÐ er þegar ljóst af fyrstu
* undirtektum að sá kosn-
ingaflokkur vinstri manna
sem stofnaður verður að frum-
kvæði stjómar Alþýðusam-
bandsins verður mjög öflug-
ur. Tíðinaunum um stofnun
hans er tekið með fögnuði af
íslenzkri alþýðu en afturhald-
ið er óttaslegið og veit varla
sitt rjúkandi ráð. Verkalýðsfé-
lag Borgamess hefur lýst yfir
stuðningi við hið nýja kosn-
ingabandalag. Fjölmennur
fundur Fulltrúaráðs verka-
lýðsféiaganna í Reykjavík hef-
ur með miklum meirihluta at-
kvæða skorað á verkalýðinn í
höfuðstaðnum og alla alþýðu
að fylkja sér um kosningasam-
tökin og gera alþingiskosn-
ingarnar í sumar að árangurs-
ríkum áfanga í kjarabaráttu
íslenzkrar verkalýðsstéttar.
Sömu afstöðu tók fjölsóttur
fundur fulltrúaráðs og stjóma
verkaiýðsfélaganna á Akur-
evri, sem einnig var sóttur af
stjórnum verkalýðsfélaganna
við Fviafjörð, og haldinn var
í fyrrakvöld. Þá hefur stjórn
Alþjiðnsambands Norðurlands
einróma fagnað ákvörðuninni
um kosningaba.ndalag alþýð-
unnar og heitið bvi fyllsta
stuðningi.
4 UK þessara fyrstu og at-
hyglisverðu undirtekta
verkalýðssamtakanna hefur
vinstri armur Alþýðuflokksins,
sem skipulagður er í Mál-
fundafélagi jafnaðarm.anna,
samþvkkt með yfirgnæfandi
meiríhluta að gerast aðili að
kosningabandalaginu. Er þar
með staðfest að sá. hluti AI-
þýðuflokksins sem styðst m'ð
verkalýðsstéttina og samt.ök
hennar og vill vinna að raun-
hæfri viostristefnu f stjórn-
málum landsins tekur virkan
og öflugan þátt í kosninga-
bandalagi alþvðunnar. Hægri
menn Albýðuflokksins standa
uppi einir og yfirgefnir í
band'>Iagsbraski sínu við Ey-
stein .Tónsson og hægri öf!
Framsóknar. Munu það verða
miki! vonbrigði þeim Fram-
sóknp.rT'önnum sem sættu sig
við afstöðu flokksþingsins á
Tgrundvelli þeirrar yfirlýsing-
ar forkólfanna að allur Al-
þýðuflokkurinn fylgdi með í
kaupskarmum við hægri klík-
una. Þessir menn siá nú að
þeir hafa verið blekktir og
þeim gefnar alrangar unplýs-
ingar og bví ekki ólíklest að
þeir hugsi forkólfum flokks-
in.s þegiandi þörfina fvrir svo
óheiðariegar starfsaðferðir.
1?YRIR því eru þvi sterk rök
-*• og vaxandi líkur að hin
nýiu kosningasamtök alþýð-
unnar hljóti umtalsverðan
stuðning vinstri sinnaðra
manna langt út fvrir raðir
verkalvðshreyfingarinnar. Sósí
alistaflokksins og vinstri
Æirms Alþýðuflokksins. Vinstri
anenn landsins munu al-
onenn fvlkja sér um sam-
tökin. hvar sem þeir hafa áð-
ur staðið í flokki eða fylkingu
stjóramálaátítkanna. Kosn-
ingabandalag vinstri manna
eru einu samtökin í komandi
kosningum sem öll alþýða og
vinstri öfl í landinu geta ó-
skipt fylkt sér um með fyrir-
sjáanlegum og stórfelldum ár-
angri. Þessi samtök verða
máttugt vald í íslenzkum
stjórnmálum að kosningum
loknum og því aflmeiri sem
fleiri vinstri kjósendur skilja
nú vitjunartíma sinn og mik-
ilvægi þess að skipa sér fast
um þau þegar í upphafi. Þau
eru hið nýja afl í íslenzkri
stjórnmálabaráttu, og eini
vettvangurinn sem er þess
umkominn að sameina megin-
hluta verkalýðsstéttarinnar og
öll heilbrigð vinstri öfl þjóð-
arinnar um þau verkefni sem
leysa þarf á sviði efnahags-
málanna.
ÞETTA skilja andstæðingar
alþýðunnar mæta vel.
Þess vegna eru hin háværustu
öskur bafin í Morgunblaðinu,
Vísi, Alþýðublaðinu og Tíman-
um. öskurkór afturhalds er
öllum stefnt að kosningasam-
tökum alþýðunnar af því að
þau eru það afl sem líklegt
er til að sameina vinstri menn
í öllum flokkum og færa mál-
stað íslenzks alþýðufólks mik-
ilvægan sigur og stórbætta að-
stöðu i stjómmáiunum. Mál-
flutningur þessara blaða minn-
ir mest á hávaðasöm blekk-
ingaskrif þeirra í mikilvæg-
ustu kjaraátökum milli verka-
fólks og atvinnurekenda. Er
það næg og skýr sönnun þess
að alþýðan er á réttri leið með
myndun þess bandalags sem
nú er í sköpun og sem aftur-
haldið óttast meira en allt
annað.
Aiunt Mutskipti
AL.ÞÝÐUBLAÐIÐ lýsir því
nú daglega yfir hvílíkt
lán það sé fyrir hægri klíku
Alþýðuflokksins að fá að
ganga til kosninga í samfé-
lagi við Eysteinsklíkuna í
Framsókn. Óbreyttum Alþýðu-
flokksmönnum sýnist þetta
hins vegar mikill neyðarkost-
ur, eftir að Framsókn hefur
gerzt meðábyrg íhaldinu um
skattaálögurnar miklu og
önnur óþurftarverk í garð al-
þýðu og situr sem fastast í
ríkisstjóminni þrátt fyrir
samþykkt flokksþingsins um
samvinnuslit! Munu fáir verða
til að öfunda Harald Guð-
mundsson og félaga hans af
því hlutskipti sem Alþýðublað-
ið dásamar mest. Hitt er svo
spuming hvort hægri menn
eiga nokkurt annað val eins og
högum þeirra er háttað. öll
viðleitni þeirra miðast nú við
það eitt að afstýra algjörri
tortímingu. Kann það að vera
skýringin á barnslegri gleði
Alþýðublaðsins.
Kort úr „Der Spiegel“, til skýringgr á greinargerö blaðsins um pýðingu landánna um-
hverfis Norður-íshafið í eldfaugastyrjöld.
*
Island og eldflaugastríð
Þótt friðvænlegar horfi nú í
heiminum en fyrir nokkr-
um árum, er öðru nær en víg-
búnaðarkapphlaupið hafi verið
stöðvað. Síðan Vesturveldin
hlupu frá tillögum sínum um
afvopnun jafnskjótt og sovét-
stjórnin féllst á þær hafa við-
ræður um það mál legið niðri
að mestu þangað til á mánudag-
inn að undimefnd afvopnunar-
nefndar SÞ kom saman á fúnd
í London. En vopnasmiðir og
höfundar hemaðaráætlana hafa
ekki verið aðgerðarlausir. Hér
í blaðinu var fyrir skömmu
Skýrt frá upplýsingum sem
birzt hafa í Bandaríkjunum
um árangur vísindamanna og
tæknisérfræðinga í Bandaríkj-
unum og Sovétríkjunum í smíði
langdrægra eldflauga, sem bor-
ið geta kjamorkusprengju af
eldri gerð eða vetnissprepgju
meginlandanna milli á hálftíma.
Hafa bandarískir stjórnmála-
menn og vísindamenn deilt á
bandaríska landvarnaráðuneyt-
ið fyrir að það hafi látið það
viðgangast að Sovétríkin kæm-
ust framúr Bandaríkjunum
í smíði langdrægra, sjálfstýr-
andi eldflauga.
TTeraaðarsérfræðingarnir sem
semja hernaðaráætlanir í
samræmi við breyttar aðstæð-
ur, þar á meðal breyttan
vopnabúnað, láta af skiljanleg-
um'ástæðum litt til sín heyra
á opinberum vettvangi. Einn er
þó sá staður þar sem hernaðar-
sérfræðingamir eru eins marg-
ir og mý á mykjuskán en eiga
þess enn sem komið er lítinn
kost að láta ljós sitt skína
annarsstaðar en í opinberum
umræðum. í blöðum i Vestur-
Þýzkalandi ber mikið á grein-
um 'eftir hermenntaða menn.
Ein slík um hin nýju viðhorf,
sem langdrægu eldflaugarnar
hafa skapað, birtist í útbreiddu
fréttatímariti, Der Spiegel, 18.
janúar í vetur. Þar kemur fs-
land og nærliggjandi lönd mjög
við sögu og höfundur kemst
að þeirri niðurstöðu, að ef til
þess komi að Bandaríkin og
Sovétríkin heyi styrjöld með
langdrægum eldflaugum muni
ísland verði í miðri eldlínunni.
17yrst rekur Der Spiegel þær
upplýsingar, sem fram
hafa komið um eldflaugakapp-
hlaupið. Þær séu á þá leið, að
Bandaríkin hafi til umráða
langdrægari fjarstýrð flug-
skeyti, en Sovétríkin séu
mun lengra komin í smíði
sjálfstýrandi flugskeyta. Menn
kunni að ætla að þetta
komi í sama stað niður, en það
sé öðru nær. Fjarstýrðu skeyt-
in sS miklu auðveldara að
villa af braut sinni, vegna þess
að þáu eru háð útvarpssam-
bandi við stjórntækin. Varnir
við sjálfstýrandi skeytum eru
engar kunnar enn sem komið
Érlend
tíðindi
er og margir vísindamenn telja
litlar líkur á að þær finnist
sem að gagni komi, Der Spiegel
heldur því fram að sjálfstýrandi
skeyti sem dragi 6000 kíló-
metra séu nú þegar tilbúin til
notkunar í Sqvétríkjunum og
verði það á yfirstandandi ári í
Bandaríkjunum. Það hafi í för
með sér byltingu í hemaðar-
kenningum og hernaðaráætlun-
um engu minni.en þá sem varð
þegar* kjarnorku- og síðar
vetnissprengjurnar komu til
sögunnar.
Hingað til hafa það verið
baráttumöguleikar landhers
og flota, og síðustu árin lang-
drægra sprengjuflugvéla, sem
hafa ráðið því hver svæði á
hnettínum eru mikilvægust frá
hernaðársjónármiði, segir Der
Spiegel. Nú er öld eldflauga-
hernaðarins að hefjast, og þá
breytist lega þessara svæða.
Þessi nýju vopn hafa það í för
með sér að dómi blaðsins, að
ísland, Grænland og Svalbarði
verða þeir blettir á hnettinum
sem einna mesta hernaðarþýð-
ingu hafa. Bandaríkjamenn
hafa nú flugstöðvar bæði á ís-
landi og í Thule á Norður-
Grænlandi. Frá íslandi og
Thule væri hægt að skjóta flug-
skeytum sem: draga 6000 km
á næstum öll Sóvétríkin. Der
Spiegel telur að herstjórn Sov-
étríkjanna myndi telja það þýð-
ingarmesta verkefni sitt í styrj-
öld að gera innrás í Jsland og
Grænland og taka um leið
Svalbarða. Tækist það væri
hægt að hindra eldflaugaskot-
hríð þaðan á Sovétríkin og auk
þess að ná til alls austur- og
miðhluta Bandaríkjanna nreð
eldflaugum frá íslandi. i
Þessi breyttu viðhorf hafa það
í för með sér, segir
Der Spiegel enn, að hernaðar-
þýðing meginhluta Vestur-Ev-
rópu verður diverfandi lítil móts
við það sem áður var. Fullyrð-
ir blaðið, að þetta hafi komið
glöggt í ljós á siðasta fundi A-
bandalagsráðsins í París fjrrir
áramótin. Þar með sé úr sög-
unni það pólitíska Irúaratriði,
sem verið hafi undirstaða
bandalagsins: að í styrjöld yrði.
eitt yfir þjóðir Vestur-Evrópu
og Bandaríkjanna., að ganga.
Það sé nú komið á, daginn að
Sovétríkin geti náð til Banda-
ríkjanna án þess, að leggja
undir sig Vestur-Evrópu. Reg-
instórveldin geti háð styrjöld
án þess að Vestur-Evrópa þurfi
að dragast inn í hana, og það
er því að dómi Der Spiegel
mjög freistandi fyrir ríkin í
Vestur-Evrópu að smokka fram
af sér skuldbindingum A-
bandalagssáttmálans. ,
TTér skal enginn dómúr iagð-
** ur á þessar bollaleggingar
Der Spiegel, en það er rit sem
töluvert mark er tekið á. Þær
undirstrika enn einu sinni, að
gereyðingarhætta vofir yfir ís-
lendingum flestum þjóðum
fremur ef til styrjaldar kemur
og stríðsaðili hefur hér her-
stöð. íslendingum er því lífs-
nauðsyn að leggja sitt litla
lóð á vogarskál þeirra ríkja
sem leitast við að berá sáttar-
orð milli manna og draga úr
viðsjám, og hafa þegar náð
verulegum árangri. : íslendingar
eiga allra þjóða sizt heima í
slagtogi stórveldis, sem stjóm-
að er af mönnum sem lýst hafa
yfir opinberlega að þeir temji
sér og telji hina æðstu list
að vega salt á fremstu nöf
k j arnorkustyr j aldar.
M.T.Ó,