Þjóðviljinn - 29.06.1956, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 29.06.1956, Blaðsíða 10
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 29. júní 1956 Bragi Ásgeirsson iistmálari hefur fengið ágæta dóma í HafnarblöÓum Bragi Ásgeirsson hélt sjálfstæða málverkasýningu 1 Kaupmannahöfn dagana 12.—25. maí s.l. Aðsókn að sýn- ingunni var mjög góð allan tímann, og 7 myndir seldust. Bragi Ásgeirsson hélt fyrstu sýningu sína hér í Reykja- vík í fyrra. Hér fara á eftir dómar um sýninguna, sem birtust í aðal- blöðum Kaupmannahafnar: Maria Marcus skrifar í In- formation 17. maí: „Islenzki listmálarinn Bragi Ásgeirsson, sem heldur sýningu um þessar mundir hjá Erling Haghfelt, fæst ekki við einhliða form- túlkun, heldur tjáir hann sig bæði á myndrænan og nær al- gerlega á óhlutrænan hátt. I mörgum verkum hans, m. a. í 3 tréstungumyndum, birtist okk- ur fyrst og fremst hinn mikil- hæfi og gáfaði listamaður, en annars staðar verður vart beinnar innlifunar. Sérstaklega á það við um hin óhlutrænu til- brigði um landslag og tónræn viðfangsefni. Bragi er nefnilega óhræddur við sterka liti og kann um leið að fara með þá. Þess vegna tekst honum, jafn- vel þar sem viðfangsefnin eru hvað óhlutrænust, að forðast alla fábreytni, og í hinni stóru mynd „Tilbrigði um hafið 1“ Urelt kosninga- fyrirkomulag Framhald af 6. síðu. þótt það tækist ekki nema í öðru hverju kjördæmi, væri í- ihaldið komið upp í 27—28 þingmenn — hreinan meiri- 'hluta — með því að beita sömu aðferðum og Hræðslubanda- lagið beifti nú. Þarna er því sannarlega ekki um neitt einkabrask Hræðslubandalags- ins að ræða; íhaldið hefur enn- þá meiri möguleika á að hag- nýta sér veilur kosningalag- anna, af þeirri einföldu ástæðu að það hefur meira kjörfylgi en Hræðslubandalagsflokk- arnir. ^ Breytingar óhjá- kvæmilegar Allt eru þetta mjög alvar- legar staðreyndir, og menn í öllum flokkum hljóta að sjá að við svo búið má ekki standa lengur. Kosningalöggjöfin er beinlínis að kippa fótunum undan frjálsri skoðanamynd- un, þingræði og lýðræði á ts- landi. í stað þess að flokkarnir berjist fyrir því að vinna skoð- unum sínum fylgi á jafnréttis- grundvelli og dómur kjósenda sé úrslitaorðið, er nú keppzt við að hugsa upp brellur og hrekkjabrögð til þess að stela þingmönnum, þvert gegn vilja kjósenda. Slíkar aðstæður eitra stjórnmálalífið á tslandi og gera það að fullkomnum skrípaleik, og við svo búið má ekki lengur standa. Á því kjör- tímabili sem nú er hafið verð- ur að gera þær breytingar á kosningafyrirkomulaginu sem binda endi á slík bellibrögð og tryggja það að kjósendur sjálfir taki ákvörðun um það hvernig meirihluta er háttað á þingi og hvernig unnt er að mynda stjórn í landinu. túlkar hann þau áhrif, sem hann hefur orðið fyrir af blik- andi, skínandi hafi. Hin ríku blæbrigði og hin lifandi lita- gleði eru beztu eiginleikar hans. Sigurd Schultz, forstjóri Thorvaldsenssafnsins, skrifar grein um Braga Ásgeirsson og sýningu hans í Dagens Nyhed- er 25. maí undir fyrirsögninni: „Ungur, íslenzkur kraftur“. undirfyrirsögn hljóðar svo: „Listmálari, sem gefur mikil fyrirheit og sýnir bæði styrk og fágun“. Greinin hljóðar svo: „En hvað þeir eru í rauninni sterkir hinir ungu íslendingar. Það má sk-ynja feiknlegan sjóð af ónotuðu afli að baki þeim, jarðveg, sem aldrei hefur verið yrktur. Þetta flýgur manni strax í hug, þegar maður lítur í sýn- ingarglugga Erlings Haghfelts í Breiðgötu, en sá er munurinn á Braga Ásgeirssyni, sem þar sýnir verk sín, og mörgum öðrum íslendingum, að þetta afl er ekki hrjúfur kraftur villimennskunnar, heldur fág- aður styrkur, sem lýtur list- rænni stjórn, og ber listgáfum hans glöggt vitni. Bragi er eitt af hinum mest hrífandi dæmum um ungan og ört vaxandi hæfileikamann, sem við höfum lengi séð í þessari borg, þar sem við erum farin að sakna einhvers, er hafi safa og vaxtarmagn. Hann er aðeins 25 ára. Áf sýningunni að dæma er hann á miðri leið frá hvöss- um skörpum stíl, sem mann langar til að kalla „sögustíl“, yfir til óhlutrænnar túlkunar í litrænni hrynjandi. Hin myndrænu verk hans eru þó enn áhrifamest. Á borði undir gleri liggur t.d. stein- prentun í svörtu og hvítu af naktri fyrirmynd, séðri frá hlið. Stórkostleg mynd, sem veldur óróa, en veitir þó um leið fróun vegna áhrifa hins mikla, áþreifanlega forms og listræns styrks svarts og hvíts. Þetta er í rauninni merkilegur samruni listrænna eiginleika, sem í eðli sínu eru alls óskyld- ir. En það er greinilegt, að Braga er það eðlilegt að hverfa yfir í óhlutræna myndbyggingu, sérstaklega í málverkunum. Hann nær áhrifum með hreyf- ingum línanna, sem ganga í föstu hljóðfalli um krákustíga eða líða í furðumyndum frá einni hlið myndarinnar til ann- arrar á hinum breiðu mynd- flötum, um leið og þær binda heildarflöt myndarinnar í net sterkra og áhrifaríkra megin- þráða. Þær líða frá einum lit- áhrifum til annarra. I mynd, sem nefnist „Tónsveiflur", ligg- ur leiðin frá dökkleitum há- rauðum lit til ljósleits, rauð- guls, frá mildum laufgrænum lit til hárauðs og hvíts og end-. ar efst í samhljómi svarts og dökkblás nætursorta. Tónfall línanna er upphaf myndarinnar, en litáhrifin hin föstu tök, sem skoðandinn er gripinn. Þessi aðferð getur ver- ið næsta einföld. En hve hlut- irnir liggja þó ljóst fyrir þess- um manni. — Hin listræna hugsun hans er jafntær og kristalskær fjallalind. Sá litastigi, sem við skynjum, er skapaður af sjálfstæðum, tilfinninganæmum listamanni. Það er þess vegna, sem hann hrífur mann. Þarna eru mynd- ir, sem sýna slík blæbrigði og svo brögðótta litameðferð, að þær getur sá einn skapað, sem lifað hefur í íslenzku loftslagi. Bragi Ásgeirsson Og þarna eru einmitt myndir, sem sýna það með ljósi og ljóma litanna, að málarinn hef- ur verið á Italíu. í sannleika sagt: Það er óhætt að treysta Braga Ás- geirssyni. Ég hef sjaldan séð jafn tilvalið dæmi um listmál- ara, sem ég persónulega vildi halda fram“. Kai Flor skrifar í Berlingske Tidende 17. maí undir fyrir- sögninni: „Islenzkur liæfileika- maður“. „Hinn ungi, íslenzki listmálari Bragi Ásgeirsson, sem nú heldur sýningu í Kaup- mannahöfn og nýlega hlaut styrk blaðsins, stundaði upp- haflega nám við listaakademíið okkar, og var kennari hans þá Kræsten Iversen. Síðan nam hann í Osló hjá Jean Heiberg, listmálara, og hefur farið kynn- isferðir víða um Evrópu. Nú orðið málar Bragi óhlut- ræn olíumálverk. Styrkur hans í þeim er tilfinning hans fyrir samleik myndflatanna og bar- áttu hinna ljósu og dökku, köldu og heitu lita þeirra inn- byrðis, afmörkun með dökkum- útlínum, öllum beinum með skörpum hornum og brötum. Það má oft sjá, að á bak við hin óhlutrænu málverk hans liggur mjög mikil vinna, enda stundum byggð upp af hinni stökustu nákvæmni af myndum, flötum og deplum eins og t.d. í hinum tveim málverkum, sem hann kallar „Kvöld“ og „Sólar- lag á Piazza di Spagna“. Held- ur hefði maður kosið, að mynd- irnar hefðu verið án þessara nafna, þar sem þau gefa tilefni til óþarfa vangaveltna út af hinum tveim helmingum, öðr- um í rauðum, en hinum í dökk- bláum tón. Nöfn eins og „Óhlut- ræn samstilling" og „Myndræn atriði“ eru betur tilfundin. í myndinni „Tónasveiflur" skap- ar hann form með grönnum, Hið kínverska œvintýri oq Þórhallur Vilmundarson Þetta kínverska ævintýri bírti Þórhallur Vilmundarson í Frjálsri þjóð nokkrum vikum fyrir kosningar. Skömmu síðar kom hann því einnig á fram- færi i Morgunblaðinu. Og á Kosninganóttina kotn í l.ios hvers vegna Þórliallur hafði þvílíka ofurást á hinu kín- verska ævintýri; hann liafði sjálfur átt þá stórkostlegu hug- sjón að feta í fótspor böðuls- ins Vang Lúns — og honum hafði tekizt það. Með stefnu sinni hafði hann hálsliöggvið Þjóðvarnarflokkinn, en flokk- urinn vissi það ekki fyrr en Þórhallur sagði á kosninganótt- ina með heiðríku brosi og af óviðjafnanlegri kurteisi: „Ger- ið svo vel að hneigjá yður, herra minn.“ Á rikisstjórnarárum annars keisara Mingættarinnar var uppi í Kinaveldi böðull að nafni Vang Lún. Hann var meistari í handverki sínu, og frægð hans barst til endi- marka keisaradæmisins. Aftök- ur voru tiðar í þá daga, og var ekki ótítt, að fimmtán eða tuttugu væru hálshöggnir í eitt og sama sinn. Sá var háttur Vang Lúns að standa ástúðlega brosandi neðan við höggpallinn með bjúgt sverðið fyrir aftan bak; hann sönglaði gleðilag, og á snöggu augabragði fauk höfuðið af hinum dauðadæmda, um leið og hann bjóst til að stíga upp á höggpallinn. Þessi Vang Lún átti sér stór- fenglega hugsjón, sem hann hafði ekki hátt um, og það tók hann fimmtán ár að gera hana að veruleika. Hugsjón hans var sú að láta sér takast að háls- höggva mann með svo leiftur- snöggu höggi, að í samræmi við tregðulögmálið sæti höfuð hins hálshöggna eftir sem áður ó- hreyft á strjúpanum, á sama hátt og diskur situr eftir á borði, ef borðdúknum er kippt riógu snöggt undan honum. Vang Lún lifði h.ina miklu stund ævi sinnar á sjötugasta og áttunda aldursári sínu. Þann dag átti hann að greiða sextán skjólstæðingum för til feðra sinna úr skuggadölum þessarar jarðvistar. Að venju stóð hann neðan við höggpall- inn, og ellefu krúnurökuð höfuð höfðu þegar fokið og oltið niður í duftið. Meistara- höggin brugðust honum ekki, en næsta högg var sigurhögg- ið. Þegar tólfti maðurinn hóf að stíga upp á höggpallinn, leiftraði sverðið, flaug ósýni- lega gegnum svírann, en höfuð mannsins sat kyrrt, og hann hélt áfram upp þrepin, eins og ekkert hefði í skorizt, Þeg- ar hann var kominn alla leið Framhald á 7. síðu. Kjaramál norrænna bæjarstarfs- manna rædd á fundi í Reykjavík í gærmorgun lauk hér í Reykjavík fundi fulltrúa bæjarstarfsmannasamtaka á Norðurlöndum; þau sam- tök eru 22 ára gömul, en fsland gerðist aðili að þeim fyrir 6 árum, og var þetta fyrsti fundurinn sem hér er haldinn. Á fundinum voru fyrst og fremst rædd kjaramál bæjar- starfsmanna, og var gerð samþ. þess efnis að bæjarstarfsmenn skuii hafa rétt til að heyja verk- föll, og berjast á sama hátt fyr- ir rétti sínum, eftir því sem henta þykir á hverjum stað og tíma. Allmikiis ósamræmis gæt- starfsmanna á Norðurlöndum; ir í launagreiðslum til bæjar- og það er meginhlutverk samb. þeirra að sjá um að kjör þeirra fylgist með hinum almennu framförum í þjóðfélaginu. Á þessum fundi var einnig rætt um að bæjarstarfsmenn skyldu öðlast samningsrétt um kaup og kjör, en þann rétt hafa bæjar- starfsmenn hér á landi. skýrt afmörkuðum, lóðréttum línum, sem mynda eins og litla grind um mismunandi, fer- hyrnda litfleti, sem bæði gefa myndinni dýpt á vissan hátt eða eins og strengir gæfu til kynna tónsveiflur. Myndin „Morgunn í Flórens“ upp um háa, granna myndfleti — þar sem skollahárin á Pic- asso skjótast fram, eins og einnig í fleiri myndum — bend- ir ekki á neitt sérstakt, en aft- ur á móti er í myndinni „Nótt við ströndina" eitthvert nætur- ljóð, þar sem lítill, hvítur þri- hyrningur gæti táknað segl. Teikningarnar og tréstungu- myndirnar eru greinilega mynd- ræn list, t.d. tréstungumyndin í litum af konu með stóra könnu, en sú mynd var á nor- rænu sýningunni í Róm í fyrra. Sjálfsmynd hans og konuhöf- uð í rauðum lit sýna öryggi, sem vitnar um hæfileika hins unga listamanns. Hann er enn áhrifagjarn frá morgum hliðum nútímalistar, t.d. í hinum tveim stóru konumyndum í svörtu og hvítu, en hæfileikar hans, dugn- aður, öryggi og ástundun munu ryðja honum braut langt á réttri leið“. Helge Ernst í Social-Demo- kraten 19. maí: „Maður skyldi ekki búast við neinni átthaga- list á sýningu Braga Ásgeirs- sonar, þvert á móti, stíll hans er alþjóðlegur, og fyrirmynd- irnar einnig fyrst og fremst sóttar til ítalíu. Með fyrir» myndum er hér átt við inn- blástur, því að meiri hluti mynda Braga eru óhlutrænar, jafnvel þegar hann skírir þær „Morgun í Flórens" eða „Sólar- lag á Piazza di Spagna". Mað- ur þykist þekkja brot af hús« um, sól, bogahvelfingum e.þ.u.l, en hann meðhöndlar þau frjáls- lega og byggir hlutina upp a£ flatarmálsmyndum, oft teikn- uðum með grönnum línum á marglitum grunni. Það er eitt- hvað mjög tónrænt við túlkun hans, enda kallar hann rétti- lega eina af myndunum „Tóna- för“ og aðra „Tónasveiflur". — Framhald á 11. síðu ,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.