Þjóðviljinn - 09.10.1956, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 9. október 1956 ----------------------------------------------------------------------<r
Grein Björns
Framhald af 7. siðu
Um sjöunda atriðið fer
eins og hin fyrri að það
á sér litla stoð í veruleikan-
um. Það voru tiltölulega mjög
fáir, sem komu á kjörstað og
ekki fengu að kjósa, og flest-
um, er svo var ástatt um, var
ekið þangað af smölum Sjálf-
stæðisflokksins. En allt þetta
fólk skildi það vel að það átti
ekki við neinn að sakast
nema sjálft sig, að hafa ekki
þrátt fyrir ítrekaðar áminn-
ingar aflað sér fullra félags-
réttinda, og kom þessvegna
fram með fyllstu kurteisi að
undanteknum einum manni,
sem raunar var ekki og hefur
aldrei verið meðlimur Iðju,
heldur er fastur starfsmaður
hjá Reykjavíkurbæ. Um þau
nöfn, sem bætt var inn á
kjörskrá ríkti enginn ágrein-
ingur, þau voru öll tekin inn
með fullu samþykki umboðs-
manns B-listans.
Eg hefi hér að framan
sýnt fram á hversu gjörsam-
jega öll skrif Morgunblaðsins
um Iðjukosningarnar eru til-
efnislaus, að þessar kosning-
ar fóru í einu og öllu fram í
samræmi við lög félagsins og
þá reglugerð er Alþýðusam-
öandið hefur sett um kosn-
ingar sem þessar. Enda lýsti
annar maðurinn á B-listanum.
því yfir að lokinn talningu j
atkvæða, að kosningarnar
hefðu í alla staði farið fram;
að lögum og með hinni mestu
prúðmennsku.
Hvernig stendur þá á þess-
•tim bægslagangi Morgun-
blaðsins ? Skýringin er ein-
faldlega sú að vegna þess að
i Iðju er mikið af ungu og ó-
félagsreyndu fólki, taldi
Morgunblaðsliðið að félagið
mundi ekki standast sameig-
inlegsf árás Sjálfstæðisflokks-
íns og atvinnurekenda, mundi
verða þeim auðtekið herfang.
En þessar fyrirætlanir
strönduðu á stéttarþroska
iðnverkafólksins sem eftir-
minnilega hratt þessari árás.
Það eru því vonbrigðin yfir
misheppnuðu óþokkaverki,
sem sök eiga á þessum froðu-
fellandi skrifum Morgun-
blaðsins.
Hinu vil ég svo ekki trúa
fyrr en ég tek á, að skrif
sem þessi verði ekki til þess
að opna augun á einhverju
fþrét'tir
Framhald af 9. síðu.
Þróttarliðið átti bezta leik sinn
á sumrinu. Það gerði margar
góðar tilraunir til þess að leika
saman og skapa sér tækifæri.
Leikni þeirra er enn ábótavant,
en þeir bættu það upp með því
að berjast. Bill var bezti maður
liðsins. Jón Ásgeirsson kom á
óvart með góðum leik sem
Jf' vinstri framvörður.
Alexander í markinu átti iíka
góðan leik, og má segja að með
komu hans í markið hafi liðið
í heild vaxið. Hinn ungi mið-
herji, Jón Magnússon, er gott
efni, en enn ekki nógu hreyf-
anlegur.
Baldur Þórðarson má gæta sín
að skemma ekki leik sinn með
því að láta skapið hlaupa með
sig í gönur.
Dómari var Guðbjörn Jónsson.
Áhorfendur voru um 700.
Bjamasonar
af því fólki sem í góðri trú
lét blekkjast til að ljá B-
listanum fylgi sitt. Það hlýt-
ur öllum að vera það ljóst
að svona hatramar pólitískar
deilur í einu verkalýðsfélagi
verða ekki til að styrkja það
né gera það hæfara til að
gegna sínu hlutverki. Upp-
lognar sakargiftir af því tagi
sem bornar hafa verið á for-
ystu Iðju eru ekki fram born-
ar af unnendum verkalýðs-
samtakanna heldur af fjénd-
um þeirra, í þeim tilgangi
einum að veikja þau og gera
þau máttvana í hagsmuna-
baráttunni. Þetta atriði vildi
ég biðja Iðjufélaga að hug-
leiða.
Björn Bjarnason.
Ms. Dronning
Alexondrine
fer frá Kaupmannahöfn 12.
október til Færeyja og Reykja-
víkur. Flutningur óskast til-
kynntur skrifstofu Sameinaða í
Kaupmannahöfn. Frá Reykja-
vík fer skipið 20. október um
Grænland til Kaupmannahafn-
ar og tekur flutning þangað.
SkipaafgielSsIa
Jes Zims@n
Erlendur Ó. Pétursson.
TIL
LIGGUB LEIÐIN
Norska bókasýningin
Framhald af 6. síðu.
litlu hvort hann nær landi eða
ekki.
Á sýningunni eru margar
bækur sem sérstakur unaður er
að virða fyrir sér. Nefndar
skulu í viðbót Norge várt land,
Norges billedkunst, og síðast
en ekki sízt ritgerða- og greina-
safn stórmálarans Christian
Krogh: Kampen for tilværelsen,
prýtt fjölmörgum teikningum
hans og myndum — einhver
míkilfenglegasta bók sem sézt
hefur. Það er mjög athyglis-
vert hve bókaspjöldin undir
kápunum, eru oft fagurlega
gerð á norskum bókum; þar
eru myndir sem standa löngu
eftir að hlífðarkápan er farin
allrar veraidar veg. Það mun
heldur ekki koma fyrir í Nor-
egi, sem stundum hendir okkur
Islendinga, að prenta heildarút-
gáfu á verkum eins og sama
höfundar með margvíslegu
ietri, eða á misþykkum fæti; né
heldur að hafa síðara bindi
verks í öðru broti en hið fyrra.
Og mættu íslenzkir bókagerðar-
menn, ekki síður en ýmsir aðr-
ir, draga nokkurn lærdóm af
þessari sýningu.
Norska bókasýningin héfur
verið fjölsótt, og við erum
þakklátir fyrir hana. Söguleg
tengsl íslendinga og Norð-
manna eru með þeim hætti að
engin norsk sending gæti orð-
ið okkur hugleiknari en bæk-
ur. — B.B.
* ' nrBREIÐIÐ * *
* hJÓDVILJANN * >
SKlPAttTCeRÐ
RIKISINS
Herðubreið
fer austur um land til Bakka-
fjarðar 12. þ.m. Vörumóttaka
til: Hornafjarðar — Djúpavogs
—Breiðdalsvíkur — Stöðvar-
fjarðar —- Borgarfjarðar —
Vopnafjarðar og Bakkafjarðar
I dag. — Farmiðar seldir á
fimmtudaginn.
i PuS lít'klM
? P i| ' ; \
verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum, hér í
bænum, miðvikudaginn 10. okt. n.k. kl. 1.30 e.h., eftir
kröfu Guðlaugs Einarssonar hdl. o.fl. Seld verða alls
konar húsgögn og vörur, barnaleikföng o.fl., rafiampar
og tæki m.a. úr þb. Málmiðjunnar h.f.
Þá verða og seld hjólsög, píanó, skólaborð og stól-
ar.
Ennfremur verða seldir tveir víxlar eftir kröfu Ge-
orgs Gunnarssonar útg. af Guðmundi H. Þórðarsyni og
samþykktir áf Guðjóni Ólafssyni og Snorra Gunnarssýni
f.h. Skermagerðarinnar Iðju h.f., að fjárhæð kr. 6.200,00
og kr. 8.000,00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
sem auglýst var í 67., 68. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1956 á v/s Braga R.E. 250, eign Haligríms Odds-
sonar o.fl. fer fram eftir kröfu Landsbánka íslands
vegna Stofnlánadeildar sjávarútvegsins við skipið, þar
sem það liggur við Ægisgarð, hér í bænum, mánudag-
inn 15. október 1956, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Samkvæmt kröfu veðdeildar Landsbanka íslands o.fl.
verður húseignin. nr. 20 við Borgarholtsbraut í Kópa-
vogi, eign þrotabús Snorra Jónssonar, seld á nauðung-
aruppboði, sem haldið verður á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 10. þ.m. kl. 15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
sem auglýst var í 67., 68. og 71. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1956 á v/s Áslaugu R.E. 32, eign Hallgríms
Oddssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka Islands
vegna Stofnlánadeildar sjávarútvegsins og Skuldaskila-
sjóðs útvegsmanna við skipið, þar sem það liggur við
Grandagarð hér í bænum, mánudaginn 15. októbcr 1956,
kl. 2 síðdegis. m
Borgarfógetinn í Reykjavík
Auglýsið í Þjóðviij amira
Dömu
Karla
Telpua
Drengja
★
Hjólin eru með ljósaíækjum, bögglabera og pumpu.
Búsáhaldadeild
Skólavörðustíg 23.