Þjóðviljinn - 14.11.1956, Blaðsíða 4
%) — ÞJÓÐVTLJINN — Miðvikudagur 14. nóvember 1956
Kvikmyiidir á Spám
Verk ieikstfórans J. á. Bardem vekja
athygli víðsvegar um heim
Fyrir fjórum til fimm
árum vakti spænsk
mynd mikla athygli á
kvikmyndahátíðum víðs-
\ægar um heim. Myndin
nefndist Velkominn hr.
Marshall og fjallaði eins
og nafnið gæti bent til
um Spán og Spánverja
á tímum Marshalláætl-
unarinnar bandarísku.
Þessi mynd var í raun-
inni fyrsta verulega lífs-
markið sem menn utan
Spánar gátu greint með
spænskri kvikmynda-
gerð frá því svartnætti
Frankó-fasismans skall
yfir landið.
Síðan þetta gerðist
hefur hróður spænska
kvikmyndagerðarmanns-
ins, leikstjórans J. A.
Bardem, farið víða, þó
langflestir lesendur
þessa þáttar hafi vafa-
laust ekki heyrt hans
getið fyrr.
J. A. Bardem hefur nú
Martine Carol sem
Madame du Barry
mun
bráðlega hefja sýn-
A usturbæjarbíó
* & hpfip
ingar á franskri kvik-
mynd um Madame du
Barry, ástmey Lúðvíks
konungs XV. Handritið
að myndinni hefurHenri
Jeanson samið en aðal-
hlutverkið leikur hin
fagra Martine Carol.
sent frá sér fjórar kvik-
myndir:
Hin liamingjusömu
(1952).
Leikarar (1953) —
mynd sem fjallar um
faranddleikara og fjöl-
listáménn, einkum um
hinar dapurlegu hliðar
lífs þeirra.
Gleðilega páska (’54).
Hjólreiðamaður bíður
bana (1955).
* Umferðaslys, Iijú-
skapardrama og
stéttapólitík.
Það er síðastnefnda
kvikmyndin, sem varpað
hefur mestum ljóma á
nafn J. A. Bardem, ekki
hvað sízt eftir að hún
var sýnd á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes í
Frakklandi í fyrra við
mikið lof gagnrýnenda,
án þess hún hefði þó
verið send til sjálfrar
samkeppninnar. Af
skrifum franskra blaða
og tímarita um mynd-
ina má ráða nokkuð efni
hennar og gerð.
Söguþráður myndar-
innar er í stuttu máli
þessi:
María José er gift
ríkum verksmiðjueig-
anda í Madrid. Hún
hittir fyrri elskhuga
sinn, Juan, o g gerist
ástmær hans að nýju,
en leiðir Maríu og Juan
hafði skilið í borgara-
Hér í blaðinu hefur áður verið skýrt stuttlega frá kvikmynd, sem fullgerð var fyrir tveim árum
í Austur-Þýzkalandi og fjallar um hinn fræga þýzka verkalýðsleiðtoga Ernst Tluilmann. Myndin er
tekin í litum og þykir áhrifamikil og vel gerð. Myndin hér að ofan er af einu atriði úr kvikmynd-
inni: sveitir fasista hafa lagt til atlögu við verkamennina.
stríðinu. Kvöld eift að
loknu einu hinna leyni-
legu stefnumóta þeirra
ekur hún á hjólreiða-
mann og hindrar Juan í
að koma honum til
hjálpar — hún óttast
að leynisamband þeirra
komist upp fái lögregl-
an málið til meðferðar.
Siðar sjá þau í blöðun-
um að hjólreiðamaður-
inn hefur látizt af vöid-
um áverkanna er hann
hlaut við slysið. Sam-
vizkan segir brátt til
sín og fellir skugga á
samband els|íhuganna.
Þegar Juan ákveður
loks að gefa sig fram
við lögregluna, ekur
María bíl sínum á hann
og hann bíður bana.
Hún lætur þó líf sitt
andartaki síðar, er hún
reynir að forðast á-
rekstur við hjólreiða-
mann.
1 tímaritinu Cahiers
du Cinéma eru aðalkost-
ir myndarinnar taldir
fólgnir í því að hún lýsi
ákveðnum hópi manna
innan spænsku borgara-
stéttarinnar og þá eink-
um síngirni þeirra.
Sagt er að J. A. Bard-
em hafi orðið fyrir á-
hrifum frá ýmsum beztu
kvikmyndagei’ðarmönn-
um heims, t. d. Italan-
um Visconti og Banda-
ríkjamanninum Orson
Welles. Þó eru persónu-
leg einkenni Bardem tal-
in skýr og svipmót
myndarinnar þykirmjög
einkennandi fyrir Spán
og spænska list. Margir
hrósa Bardem fyrir hina
hárbeittu þjóðfélagslegu
ádeilu, sem fram kemur
í myndinni, og fyrir að
honum hafi tekizt að
sneiða hjá notkun dular-
fullra hugtaka um „ör-
lagavaldinn“ o.þ.u.l. sem
Mareel Carné, svo ein-
hver sé nefndur, er
kunnur fyrir.
Ljóst er af þessu að
Bardem er einn þeirra
kvikmyndagerðarmanna
nú á dögum sem háfa
eitthvað að segja sam-
tíð sinni — og jafn-
framt einn þeirra sem
bera virðingu fyrir kvik-
myndalistinni.
3BITT óhugnanlegasta dæmi um
yfirdrepsskapinn og hræsnina,
sem ýmis samtök Sjálfstæð-
ismanna' hafa orðið ber að
síðustu dagana, er auglýsiiig
um samkomu sem ungir Sjálf-
stæðismenn efndu til að Hellu
á laugardagskvöldið. Auglýs-
ing þessi var lesin í útvarp á
fimmtudag og síðan aftur á
föstudag, og þá, að ég held,
lítið eitt breytt. Samkvæmt
auglýsingu (á fimmtudag)
átti dagskrá samkomunnar að
vera á þessa Ieið: 1) Ræða,
Gunnar Thoroddsen talar um
„frelsisbaráttuna austan járn-
tjalds," (en þar mun einkum
hafa verið átt við hina
hryggilegu atburði í Ung-
verjalandi), 2) Gamanvísur
(ég man því miður ekki nafn
söngvarans); 3) Dans, (og
var dansinn auglýstur með
sama orðalagi og tíðkazt hef-
ur hjá útvarpinu síðan í ráð-
herratíð Björns Ölafssonar).
Þótt ég hafi að vísu hvorki
heyrt né séð ræðu borgar-
stjórans, þá þarf ekki nema-
rétt í meðallagi fjörugt
ímyndunarafl til að gera sér
í hugarlund inntak hennar.
Þar hefur framferði Rússa
án efa verið fordæmt kröft-
uglega, og samkomugestir
hvattir til að votta ungversku
þjóðinni samúð sína. Og héfur
ungt Sjálfstæðisfólk í Rang-
árvallasýslu vafalaust klapp-
að innilega að ræðulokum,
enda mikið tilhlökkunarefni
framundan: sem sé gaman-
vísur og dans. Gamanvísurnar
hafa vonandi vakið samúðar-
Dans á eítir, stjórnin — Hræsnisfull viðbrögð
Sjálfstæðisflokksins — Ifstaða kirkjunnar til
heimsmálanna
ríkan lilátur í brjóstum unga
Sjálfstæðisfólksins, og dans-
inn verið stíginn af innilegri
hluttekningu og samúð með
frelsisbaráttu undirokaðra
þjóða; og það hefur áreiðan-
lega verið frekar vegna skorts
á hugkvæmni en samúð, ef
formaður félags ungra Sjálf-
stæðismanna á Rangárvöllum
hefur ekki gengið tígulega
upp á senuna um miðnættis-
leytið, og fyrirskipað með
hátíðlegri alvöru fimm mín-
útna hlé á dansinum í samúð-
arskyni við Ungverja. Verð-
ur ekki annað sagt en fjöl-
breyttra og sérkennilegra
viðbragða gæti í túlkun ungra
sem aldraðra Sjálfstæðis-
manna á samúð sinni, þegar
hún loksins vaknaði, og von-
andi berast ungversku þjóð-
inni sem fyrst fréttir af hin-
um huggunarríka gaman-
vísnasöng og hluttekningar-
fullum dansi Sjálfstæðisfólks-
ins á Rangárvöllum. Ef nokk-
ur hlutur í veröldinni verð-
skuldar fyrirlitningu alls heið-
arlegs fólks, þá eru það
hræsnisfull skrípalæti á borð
við fyrrnefnda samkomu og
aðrar athafnir Sjálfstæðis-
manna undanfarna daga. —
I Þjóðviljanum á sunnudaginn
eru birtar athugasemdir frá
hr. Ásmundi Guðmundssyni
biskupi, undir fyrirsögninni:
Biðjum fyrir öllum kúguðum
og lirjáðum. Er þar um að
ræða svör biskups við spurn-
ingum, sem blaðið lagði fyrir
hann daginn áður, og segir
svo á einum stað: „Að sjálf-
sögðu fordæmum vér og fyrir-
lítum ofbeldis- og hermdar- j
verkin á Ungverjum, — og :
j’firleitt öll ofbeldisverk, hvar j
sem framin eru ........“ Eg ;
vil spyrja: Hafa kirkjunnar ■
þjónar á íslandi „bréf upp á •
það“ frá höfundi kristindóms- \
ins, hvaða þjóðir séu þess !
verðugar að njóta fyrirbæna j
þeirra sérstaklega, og hverjar j
skuli láta sér nægja hið 5
venjulega, hefðbunðna og inn- :
takslausa orðagjálfur þeirra? :
Leggur Kristur einhversstað- ;
ar bann við því að fordæma ■
opinberlega ofbeldisverk, sem ■
framin eru af Bretum, Frökk- ”
um eða Bandaríkjamönnum ?
Er hlutdrægni í garð þjóða
og einstaklinga e. t. v. einn
af hornsteinum kristindóms-
ins? Ef svo er, þá hef ég
lært minn kristindóm jafnvel
enn þá veir en ég hugði. Á
öðrum stað í athugasemdum
biskups segir svo: „Hlýtur sá
íslendingur að hafa sótt lé-
lega kirkju sína, sem telur að
hún láti sér liggja í léttu
rúmi ofbeldis- og grimmdar-
verk, hverjir sem fremja og
hvar sem framin eru .........“
Þarna er ég á öðru máli. Eg
held, að hver sá íslendingur,
sem telur sig hafa h^yrt prest
sinn fordæma af stólnum of-
beldisverk, stríðsæsingar, ný-
lendukúgun, á undanförnum
árum, hafi dottað helzt til
fast undir ræðunni. Islenzku
prestarnir hafa sannarlega
ekki sýnt neinn skörungsskap
í þessu efni fremur en öðrum.
Ræður þeirra hafa verið sama
utangarnamollan upp aftur og
aftur, eins og þeir töluðu frá
allt öðrum heimi en þeim, sem
við lifum í. Og ég hygg, að
kirkjusóknin sé yfirleitt ná-
kvæmlega í réttu hlutfalli við
tómahljóðið í boðskap prest-
anna. Það hvarflar ekki að
mér að efast um einlægán og
góðan vilja hr. biskupsins til
að vinna að sættum og friði
„með öllum mönnum og þjóð-
um,“ ég þekki af persónu-
legri viðkynningu valmennsku
hans, einstaka mannást, og
bjartsýna og glaða trú á sig-
ur hins góða í mönnunum.
En þeim mun sárara finnst
mér, að hann skuli ekki hafa
fundið hvöt hjá sér til að
taka skýlausari afstöðu til
þeirra atburða, sem undanfar-
ið liafa verið að gerast úti í
heimi.
Langholtsbúar og nágrenni
Opna á fimmtudagiim vetzlun
á Langholtsvegi 19,
með' ungbarnafatnað, nærfatnað alls-
konar á börn og fullorðna,
vinnuskyrtur, sokka, húfur, dömupeysur,
kvensloppa, léreft/ damask, flúnel,
gardínuefni o. m. fl.
Smávörur í miklu úrvali.
Friðheii Friðbertsson
Auglýsið í Þ|óðvil|annm