Þjóðviljinn - 14.11.1956, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 14. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Líkin Mgu í hrðnnum á götunum ~
Grátandi born leituðu í rústunum
Sœnskur sjónarvotfur lýir ástandinu i Port Said eftir
loftárásir og innrás Breta og Frakka
Stjórnir Bretlands og Frakklands kalla hernað sinn í Egyptalandi „lögregluaögerðir“.
Myndin sýnir hvernig flugvélasprengjur og fallbyssukúlur „lögreglunnar“ hafa leikið
íbúðarhverfi innborinna manna í Port Said.
— Ég taldi yfir 2000
lík ó'breyttra, egypzkra
borgaxa á götimum í Port
Said á göngu um borgina
skömmu eftir að vopna-
viðskiptum var hætt.
Þannig farast sænska
blaðamanninum Per Olaf
Anderson orð' í viðtali við
United Press.
Anderson skrifar og tekur
myndir fyrir Vecko-Journalen,
útbreiddasta vikurit Svíþjóðar.
Blaðið sendi hann til Egyptá-
lands þegar þar • dró til tíð-
inda.
Varnarlaus borg.
Ibúar Port Said, 250.000
talsins, voru algerlega varnar-
lausir gegn sprengjukasti
brezkra og franskra flugvéla
og skothríð úr fallbyssum
brezkra og franskra herskipa,
eegir þessi sænski blaðamaður
ennfremur. Áður en sjálf inn-
rásin hófst dundi látlaus
sprengju- og kúlnahríð á íbúð-
arhverfum borgarinnar.
Lágu þar sem þeir féllu.
— Lákin lágu í hrönnum á
götumim, þar sem fólkið hafði
verið brytjað niður með vél-
byssuskothríð innrásarhhersins
eða orðið fyrir sprengjum flug-
vélanna sem undirbjuggu inn-
rásina.
teita foreldra siniia.
Grátandi börn á ýmsum
aldri reikuðu um göturnar
og leituðu foreldra sinna,
segir Anderson ennfremur.
Heita má að lieil hverfi séu
í rústum svo að þar standi
ekki steinn yfir steini.
Þessi sænski blaðamaður
bendir á að í Port Said voru
ekki til nein loftvarnabyrgi,
svo að borgarbúar áttu þess
engan kost að leita skjóls sem
gagn væri í við sprengjuhríð-
inni sem Bretar og Frakkar
létu dynja á þeim úr lofti og
af sjó.
Neita að vinna fyrir inn-
rásarherinn.
Herstjórn Breta og Frakka í
Port Said reyndi að ráða í sína
þjónustu verkamenn til að
vinna að því að hreinsa höfn-
ina svo að hún 5-rði nothæf
fyrir birgðaskip og herflutn-
ingaskip innrásarhersins. 1
fyrstu gáfu nokkrir verkamenn
sig fram, en þeim fækkaði
skjótt og brátt var svo komið
að enginn varð eftir. Hafa ó-
breyttir borgarar í Port Said
bundizt samtökum um að halda
uppi óvopnaðri andstöðu gegn
innrásarmönnunum með því að
hafna allri samvinnu og sam-
neyti við þá.
Sjúkrahúsin yfirfull.
Fréttaritari United Press í
Port Said skýrir frá því að
sjúkrahúsin þar séu yfirfull af
særðum mönnum, í kirkjugörð-
um liggja líkin í hrúgum,
vegna þess að ekki hefur enn
unnizt tími til að greftra alla
sem féllu.
Brezka herstjórnin heldur
því fram að ekki hafi fallið
nema 100 óbreyttir borgarar í
Port Said, en sú tala nær engri
átt, segir fi'éttaritarinn.
Ibúðarhverfi araba í borg-
inni er að lieita má rústir ein-
ar og óttazt er að fjöldi líka
sé grafinn þar undir braki
hriiiiiuna liúsa.
Tóku birgðir Breta.
Þegar árás Breta og Frakka
á Egyptaland hófst handtók
egypzki herinn þá 600 tækni-
menntaða menn sem Bretar
höfðu samkvæmt samningi
heimild til að hafa á Súeseiði
að líta eftir hernaðarmann-
virkjum og hergagnabirgðum
þar. Birgðirnar voru gífurlegar,
því að til skamms tíma hafð-
ist 70.000 manna brezkt lið við
á Súeseiði og herstöðin þar var
sú mesta sem nokkurt ríki
hafði á landi annars. Um leið
og eftirlitsmennirnir voru
handteknir lögðu Egyptar
hald á allar birgðirnar. Segir
egypzka stjórnin, að þær geri ,
margfalt meira en að bæta
tjónið á hergögnum og eignum
sem hlotizt hefur af árás Bret-
lands, Frakklands og Israels á
Egyptaland.
Aðstaða Nassers sterkari
en áður. “i
Fyrirlesari í brezka útvarp-
inu í fyrradag játaði að Nasser
hefði sýnt mikla leikni í við-
brögðum við árásinni á Eg-
yptaland. Honum hefði tekizt
að bjarga næstum öllum her
sínum ósködduðum úr gildru.
Hann gæti sannað þjóð sinni
með viðbrögðum Sameinuðu
þjóðanna að hún hefði nær ein-
huga almenningsálit heimsins á
sínu bandi. Tilboðin frá Sovét-
ríkjunum, Kína, Indónesíu og
víðar um sjálfboðaliða hefðu
sannfært Egj’pta um að ekki
yrði látið standa við samúðar-
yfirlýsingar einar ef aftur
skærist í odda.
Brezki fyrirlesarinn var mjög
gramur yfir þessum gangi mála
og spáði því að Bandaríkja-
stjórn myndi eiga eftir að iðra
þess að hún skyldi hafa staðið
með Sovétríkjunum í Egypta-
landsmálinu gegn helztu banda-
mönnum sínum.
Fréttamenn í löndunum við
Miðjarðarhafsbotn eru flestir
þeirrar skoðunur að aðstaða
Nassers Egyptalandsforseta
heima fyrir og í hópi Araba-
ríkjanna sé nú sterkari en.
nokkru sinni fyrr. Árás Breta,
Frakka og ísraelsmanna á Eg-
yptaland hafi þjappað Araba-
ríkjunum saman undir for-
ustu Nassers. Meira að segja
stjórn Iraks, sem lengi reyndi
að ná forustunni meðal araba
úr höndum Nassers með lið-
sinni Breta, hefur svo gott
sem sagt upp herbandalags-
samningi sínum við Bretland
og lýst yfir fullum stuðningi
við Egypta. Ekki er þó talið
að um nein sinnaskipti sé að
ræða hjá Nuri el Said, forsæt-
isráðherra í Bagdad, heldur
geri hann sér ljóst að valda-
dagar hans væru taldir ef hann
léti undir höfuð leggjast að
veita Egyptum.
FILT PILS
TWEED PILS
SVÖRT PILS
GRÁ PILS
Hafnarstræti 5.
SÖLUSKATTIIR
Dráttarvextir falla á söluskatt og framleiðslusjóðs-
gjald fyrir 3. ársfjórðung 1956, sem féllu í gjalddaga
15. okt. s.l., svo og viðbótarsöluskatt fyrir árið 1955,
hafi gjöld þessi ekki verið gi’eidd í síðasta lagi 15. þ.m.
Að þeim tíma liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá skilað
gjöldunum.
Reykjavík, 12. nóvember 1956.
Tollsijéraskrifstofan,
Arnarhvoli.
Tilkynning frá Bæjar-
síma Reykjavíkur um
símapantanir
Þeir, sem sótt hafa um síma í Reykjavík (inn að
Elliðaárvogi) og í Kópavogi, geta fengið staðfestingu á
þvi, að umsókn þeirra hafi verið tekin til greina, enda’
greiði þeir samtímis hluta af stofngjaldi, kr. 900. Mun
framkvæmdum á lögnum til þeirra þá verða hraðað svo
sem unnt er ,og gert ráð fyrir -að sími þeirra komist
í samband í júlímánuði 1957. Þeir, sem ekki afla sér
slíkrar staðfestingar nú, eiga á hættu að dráttur verði
á afgreiðslu umsóknar þeirra, og að nöfn þeirra komist
ekki í næstu símaskrá.
Starfsmenn bæjarsímans verða í Góðtemplarahúsinu
(uppi) í Reykjavík dagana 15. til 21. nóv. hvern virkan
dag kl. 1000 til 1800, en laugardag kl. 1000 til 1500,
til þess að staðfesta umsóknir og taka við fj’rirfram-
greiðslu stofngjalds.
Þeim, sem þegar hafa greitt stofngjald fyrir millisam-
band milli húsa, ber ekki að greiða ofannefnt gjald, en
eru vinsamlega beðnir að mæta á sama stað til endur-
nýjunar á símapöntunum sínum.
Reykjavík, 14. nóv. 1956
IIRMMMMMIMMMWRIIH!!