Þjóðviljinn - 20.11.1956, Qupperneq 5
Þriðjudagur 20. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Hö?JWngam.lkii mál á dagskrá 11
Sukarno hjá trúbrœSrum
Allsherjarþing Sameinuöu þjóöanna kom saman til
leglulegs ársþings þann 12. nóvember. Er þetta 11. alls-
lierjarþingiö, því fundir þeir, sem haldnir hafa veriö und-
anfariö á allsherjarþinginu í sambandi við' atburöina í
Ungverjalandi og vö Suez eru aukaþing.
Venjulega kemur allsherjar-
þingið saman í septembermán-
uði og situr framundir jól,
en að þessu sinni var þing-
setningu frestað þartil eftir að
forsetakosningar höfðu farið
fram í Bandaríkjunum. Það er
talið að þingstörfum verði ekki
lokið að þessu sinni fyrr en í
janúarmánuði.
71 mál á dagskrá
Þegar þetta er ritað eru 71
mál á bráðabirgðadagskrá alls-
herjarþingsins, en vel má vera
að þau verði fleiri áður en lýk-
ur, einkum vegna atburðanna,
sem gerzt hafa undanfarið.
Hér fer á eftir stutt yfirlit
um þau mál, sem fyrir alls-
herjarþinginu liggja og telja
verður markverðust:
Af þeim skýrslum, sem fyrir
þinginu liggja og það verður að
taka afstöðu til er t.d. skýrsla
efnahags- og félagsmálaráðs-
ins. Formaður ráðsins árið sem
leið var Hans Engen, fastafull-
trúi Norðmanna við Sameinuðu
þjóðirnar. Ambassador Engen
getur þess í skýrslu sinni, að
eitt af þýðingarmestu málum,
sem ráðið hafi haft til með-
ferðar árið sem leið fjalli um
hinar óheppilegu verðsveiflur á
nauðsynjum og hvernig megi
skapa jafnvægi á þessu sviði.
Engen getur þess einnig, að
ráðið hafi lagt áherzlu á að
ræða iðnaðarþróun í frumstæð-
um löndum og hvað hægt sé
að gera til þess að aðstoða
þessar þjóðir til framfara.
Nýir meðlimir
Einsog kunnugt er var 16 nýj-
um ríkjum veitt aðild að Sam-
einuðu þjóðunum í fyrravetur,
þannig að þátttökuríkin eru nú
76. Enn bættist við þá tölu á
þessu þingi. Það hefur þegar
veitt Súdan, Marokkó og Túnis
aðild að samtökunum. Auk þess
var skýrt frá því, er friðar-
samningarnir milli Sovétríkj-
anna og Japans voru undirrit-
aðir, að Sovétríkin myndu nú
ekki lengur leggjast gegn því,
að Japan gerðist aðili að Sam-
einuðu þjóðunum.
Aiikin fulltrúatala
ráðinu?
i oryggis-
Allsherjarþingið á m.a. að
kjósa þrjá nýja fulltrúa í
öryggisráðið í stað Belgíu,
Perú og Irans. Talið er víst,
að Svíþjóð verði kjörin í ráðið
í stað Belgíu. Norðmenn hafa
átt sæti í ráðinu (1949—1950)
og Danir (1953—1954). Einsog
kunnugt er eiga 11 þjóðir sæti
í öryggisráðinu, þaraf eru fimm
fastir fulltrúar (Bretland,
Bándaríkin, Frakkland, Kína og
Sovétríkin). Hinir 6 fulltr. ráðs
ins eru kjörnir til tveggja ára
í senn og má ekki endurkjósa
fulltrúa strax í ráðið.
Þá mun allsherjarþingið
kjósa 6 af 18 méðlimum efna-
hags- og félagsmáiaráðsins. En
m'éðal þeirra þjóða, sem ganga
úr ráðinu að þessu sinni, eru
Bretland, Sovétríkin og Noreg-
ur. Það er hinsvegar leyfilegt
að endurkjósa meðlimi til
ECOSOC, einsog ráðið er
venjulega riefnt í daglegu tali,
en það er skammstöfun fyrir
Eeonomic and Soeial Council.
Nokkur Suður-Ameríkuríki
munu leggja til, að sætum
öryggisráðinu verði fjölgað.
Byggja þau tillögu sína á því,
að meðlimum samtalcanna hafi
fjölgað svo mikið, að nauðsyn
beri til þess að ráðið sé fjöl-
mennara en það er nú. Til þess
að fjölga meðlimum ráðsins
þarf að breyta stofnskránni.
Kýpur og Alsínnálin fyrir
allslierjarþingið
Meðal þeirra stórpólitísku
deilumála, sem koma fyrir alls-
herjarþingið að þessu sinni eru
Kýpur og Alsírmálin.
Grikkland hefur krafizt þess
að allsherjarþingið taki Kýpur-
málið fyrir, en það hefur sem
kunnugt er ekki verið rætt enn-
þá innan Sameinuðu þjóðanna,
þótt kröfur um það hafi ver-
ið bornar fram ár eftir ár. Á
allsherjarþinginu 1954 var
samþykkt yfirlýsing þess efnis,
að allsherjarþingið sæi ekki á-
stæðu til, að svo stöddu, að
taka afstöðu til Kýpurdeilunn-
ar. Næsta ár krafðist Grikk-
land enn, að málið yrði tekið
fyrir, en þá var fellt með 28
atkvæðum gegn 22, að taka
málið á dagskrá.
Nú liggur fyrir krafa frá
Grikkjum á ný, en auk þess
hafa Bretar kært til þingsins
yfir þvi sem þeir kalla „aðstoð
Grikkja við hexmdarverkamenn
á Kýpur“.
Fulltrúar frá 15 löndum í
Asíu og Afríku, hin svonefnda
Asíu—Afríku sveit, hefur kraf-
izt, þess, að Alsírmálið verði
tekið á dagskrá allsherjarþings-
ins, einnig ad þessu sinni. Seg-
iry í kröfunni, að þjóðirnar í
Asíu og Afríku hafi fallizt á
það, að fresta umræðum um
Alsír á allsherjarþinginu í fyrra
í þeirri von, ,,að Fi’akkar sýndu
í verki, að þeir vildu koma til
móts við Alsírmenn og veita
þeim frelsi. En nú sé það ljóst,
að ekki sé því að fagna, held-
ur hafi ástandið versnað held-
ur en hitt“. — Það sé því
ekki lengur hægt að komast hjá
því, að Sameinuðu þjóðirnar
taki málið fyrir.
Fjárhagsáætlun
Allsherjarþingið gengur frá
f járhagsáætlun fýrir Sameinuðu
þjóðirnar. Að þessu sinni eru
gjöld stofnunarinnar áætluð
48.150.700 dollarar. Þar af
leggja þátttökuríkin fram
46.104.640 dollara, en 2.146.000
eru tekjur, sem Sameinuðu
þjóðirnar hafa sjálfar af bóka-
útgáfu, frímerkjaútgáfu o.s.frv.
Vilja ekki
missa gálgann
Bi-ezka stjórnin hefur á-
kveðið að virða að vettugi
yfirlýstan vilja neðri deildar
þingsins að nema dauðarefs-
ingu úr lögum. Afnántið
sti’andaði á andstöðu
lávarðadeildarinnar.
í gær kom til umræðu
stjórnarfrumvarp, þar sem
lagt er til að dauðarefsing
liggi áfram við morði með
skotvopnum eða sprengiefn-
um, morði sem innbrotsþjóf-
ur frfemur, morði á lögreglu-
þjóni eða fangaverði o.s.frV.
Sidney Silverman, sem hafði
fomstu í baráttuxmi fyrir
afnámi dauðarefsingarinnar,
komst svo að orði að frum-
varp ríkisstjórnarinnar væri
óskapnaður.
Þegar Sukarno, forseti Indónesíu, var í opinberri heim-
sókn í Sovétríkjunum á dögunum gerði hann sér far um
að hitta sem flesta múhameðstrúarmenn, trúbrœður sína,
en peir skipta tugum milljóna í Sovétríkjunum. Fjöl-
mennastir eru peir í Asiulýðveldunum en eiga einnig ítök
víða annarssta&ar, svo sem í höfuðborginni Moskva, en
pessi mynd af Sukarno (annar frá hœgri) var tekin í
bœnahúsi múhameðstrúarmanna par í borg.
Bandaríkjastjórn neitar um olíu
fyrst um sinn
Framhald af 1. síðu.
Evrópu að svo stöddu kynni að
vekja reiði Nassers, forseta
Egyptalands, og torvelda þar
með hlutverk SÞ í Egyptalandi.
Haft er eftir sendimönnum
Vestur-Evi’ópuríkja í Washing-
Baráfta gegn
augnveiki
Sumsstaðar í Indlandi er hin
hryllilega augnveiki trakoma
svo útbreidd, að 70% allra
skólabarna hafa veikina. Nú
hefur alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin (WHO) í samvinnu við
indversku yfirvöldin ákveðið að
hefja herferð gegn þessum
sjúkdómi.
Búferli á heimskaufsisnum
Einn sovézki vísindaleiðangurinn sem hefst við á ísnum á Norður-íshafinu varð að
flytja búferlum í skyndi um daginn pegar sprunga tók að opnast í jakanum sem
bækistöðvar leiðangursins voru reistar á. Með hjálp beltadráttarvéla gekk flutning-
urinn fljótt og slysalaust, c *j
ton, að ljóst sé að Bandaríkja-
stjóm ætli að hafa olíuskortinn
að vogarstöng og lyfta með
honum herjum Breta og Frakka
út úr Egyptalandi.
Sannanir liggja fyrir.
I New York Times var full-
yrt í gær að bandaríska utan-
ríkisráðuneytið hefði nú undir
höndum óyggjandi sönnunar-
gögn, sem tækju af allan vafa
um að árásin á Egyptaland
hefði verið samantekin ráð
stjórna Bretlands, Frakklands
og ísraels. Þar kæmi í Ijós að
farið hefði verið að undii’búa á-
rásina í ágústlok og lokaá-
kvörðun hefði verið tekin um
miðjan október.
Kanadamenn óvelkomnir.
Hammarskjöld, framkvæmda-
stjóri SÞ, kom til New York í
gær úr för sinni til Egypta-
lands. Haft er eftir samstarfs-
mönnum hans að Nasser for-
seti hafi verið harður í horn af»
taka. Hafi hann hreyft mótbár-
um við því að Kanadamenntf
verði í alþjóðlega löggæzlulið-
inu, sem Sþ senda til Egypta-
lands. Svo mikið er víst að í
gær var för Kanadamannanna
frestað um óákveðinn thna.
SÉIdarflofmn
er kyrr
1 Færeyjum er borin tií
baka fregn brezkra togara-
manna um að sovézki síldar-
flötinn, sem hafzt hefur vi&
síðustu árin á norðanverðu At-
j ' lanzliafi, hafi allt í einu haldiS
heim á leið þegar hæst stóðic
bardagar í Egyptalandi og
Ungvei’jalandi. Þetta er til-
hæfulaust, segja Færeyingar.
Sovézki síldarflotinn er þar
svo skammt undan landi aS
ljósin á skipunum sjást á
hverju kvöldi frá Þórshöfn.