Þjóðviljinn - 20.11.1956, Side 11

Þjóðviljinn - 20.11.1956, Side 11
Þriðjudagur 20. nóvember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (H' 33. dagur og við urðum að stytta dvöl okkar um þrjá daga til þess að hafa ráð á að búa þar. Þannig misstum við tækifæri til að komast til annarra eyja .... skiljið þér? Hvaö gerðist svo? Ekki neitt fyrsta daginn. Við lág- um í fjörunni og horfðum út á. sjóínn. Við töluðum um fyrstu samverustundir okkar og hvernig við döns- uðum undir stjörnubjörtum himni, en aldrei í svona rómantísku umhverfi. Jæja, svo kom kvöld, og frúin fór í eina kvöldkjólinn, sem hún gat tekið með sér, og ég fór í beztu fötin, sem ég hef ekki komiö í síðast liðin tíu ár .... en mig vantaði hnappa í flibbann og lín- ingarnar, því að þeir lentu i dótinu, sem varð eftir. Eg varð að kaupa þá og þeir eru svei mér ekki gefnir i Honululu .... Loks vorum við uppábúin eins og við ætluðum til miö- degisverðar í Hvíta húsinu, eða eitthvað álíka, og við lögðum af stað niður í borðstofuna, þar sem ég var bú- inn að láta taka frá borð, og við ætluðum að. hafa það verulega ánægjulegt. En takið nú eftir .... Það lá marmarastigi úr forsalnum niður í borðstof- una. Frúin var í nýjum skóm, sem hún hafði keypt fyr- ir tuttugu og fimm dollara til að nota við nýja kjólinn sinn. Skórnir voru hælahærri en hún átti að venjast, svo að við vissum ekki fyrri til en hún tókst á loft og sveif í stórum boga niður á við, unz hún skall niður í harðar tröppurnar. Höggið kom á versta stað, og tíu mínútum seinna lá hún endilöng í rúminu í herberg- inu sínu. Læknirinn skoðaði hana og sagði, að hún hefði tognað í mjööminni. Þá var útséð um, að viö gætum farið á dansleik í þeirri ferð. Næstu tvo daga uröum við að láta okkur nægja að horfa á sólskinið gegnum glugga .... fyrir þrjátíu dollara á dag. En allt líður einhvern veginn. Og á þriöja degi gat hún staulazt niður að ströndinni aftur. Læknirinn sagði, að hún mundi hressast við aö vera úti í sólskininu. En sóiin var á öðru máli, og það mígrigndi í þrjá daga^ samfleytt. Munið þér eftir, hvernig 'regnið helltist úr loftinu í síöustu viku? Við urðum þess vegna að halda okkur inni við, og okkur var næst skapi að óska þess, aö við heíðum aldrei farið aö heiman. Við dunduöum við að skrifa á póstkort til að senda heim, og þar lýstum við öllum unaðssemdum þessara suörænu eyja.“ Howard Rice þóttist sjá eftirvæntingu 1 augum hans rétt sem snöggvast, en hún hvarf, og dálítið meinlegt bros lék um varir hans. ,,Eg skal segja yður kunningi, að fólkið sem maður hittir á ferðalögum, skapar visst andrúmsloft, ef svo mætti segja. Til dæmis hittum viö einn daginn hjón frá Minneapolis. Við skulum láta nöfnin liggja milli hluta. Þau voru bráðfjörug og á sífelldu iði allan daginn. En þau voru skrítnar skepnur. Þegar þau höfðu fengið sér tvo sjússa eitt kvöldið, varð allt vitlaust. Eiginmaðurinn varð alveg bálskotinn í konunni minni og konan hans leit á mig eins og ég væri sjálfur Clark Gable. Það varð úr þessu reglulegur maraþon-eltingaleikur, og konan mín gat ekki hlaupið sérlega hratt vegna tognuðu mjaðmarinnar. Og maður veit hreint ekki hvað lífiö er, fyrr en kona þessa náunga hefur elt mann kringum kókospálma hring eftir hring. Hreinustu brjálæðingar — það voru þau. Þá daga, sem eftir voru, urðum við aö læðast til og frá gistihúsinu, svo lítið bar á, til þess að rekast ekki á þessa vitleysinga. Síðustu tvo dagana var sólskin, og auövitaö uröum við að fæi’a okkur þaö 1 nyt. Þaö var ófært að koma heim frá Hawaii-eyjum án þess að vera sólbrenndur. Viö mökuöum okkur þess vegna í sólarolíu og lögðumst endilöng í sandinn, alveg eins og á myndunum í ferða- t uglýsingunum. Niðurstaöan varð sú, að frúin hefur þriöju gráðu brunasár á herðunum, og bakið á mér er eins og eldur. Við megum þakka fyrir, ef nokkurt skinn verður eftir á okkur, þegar viö komum heim. Of ef viö komumst þangað nokkurn tíma, verð ég aö fá lán í bankanum til aö geta borgað matarreikninginn fyrir næstá mánuð .... “ Ed Joseph andvarpaöi djúpt. Hann hristi höfuðið há- tíðlega og fór svo aö skellihlæja. . „Ef þér ei'uö áhyggjufullur ennþá, herra minn, skal ég fúslega ljá yður handklæðið mitt“. Howai’d sneri sér fi’á andartak til að gæta að Lydiu, konu sinni. Hún var enn aö horfa út um gluggann, þó að það væri nú orðiö svo dimmt úti fyrir, .aö engin ieið var að sjá neitt. Hann brosti ósjálfrátt og sneri sér aftur að Ed Joseph. „Mér datt í hug“, sagði hann hljóölega, „hvort þér og frúin væruð kannski til í að fá ykkur sjúss meö mér? Þér getiö fengiö handklæðið yðar aftur, hr. Joseph“. 9 Christobal Trader, gamall rygöaöur flutningadallur, sem sigldi undir Panamafána, klauf öldur Kyrrahafsins á austui’leiö. Skipið gekk aöeins tíu hnúta, og ógn- þrungnar öldurnar, er veltust á hlið þess frá noi’ðri, rugguðu því óþyrmilega. í dimmunni var erfitt að gera sér grein fyrir, hve veltingurinn var mikill, og það voru ekki svo fá skipti sem Manuel Aboitiz, annar loftskeyta- maður, bölvaöi sér upp á, aö nú mundi dallinum hvolfa og allt fara til helvítis. Manuel sat í loftskeytaklefanum og spyrnti fótunum í þilið og hvíldi með bakið upp við gamla senditækið sitt. Meö því eina móti gat hann komið í veg fyrir, að hann ylti þvert yfir herbergiö, þegar skipið tók hliö- arföll. Hann lokaði augunum og bölvaði örlögum sín- um — lét sig dreyma um þá tíma, þegar hann var fyrsta flokks loftskeytamaður í bandaríska flotanum. Þaö var meira að segja á flugvélaskipi. En nú var þaö allt um garð gengið. Það eina, sem eftir var, var kunn- áttan, og jafnvel hún var nú gagnslaus eöa aö mestu gleymd. Aðeins eitt tæki átti hann enn — móttöku- tæki fyrir flugvélar; þaö haföi hann sjálfur smíðað, og ekkert heimagert tæki hafði reynzt betur. Yfirmaöur Manuels, aðalloftskeytamaðurinn á Cristo- bal Trader, hafði horn í síðu þessa móttökutækis, og eitt sinn er hann var drukkinn og ofsareiöur greip hann það og ætlaði að kasta því útbyrðis. Hann hefði ekki átt að reyna það. Manuel gekk næstum því af honurn dauöum. Honum þótti vænt um hátíönitækið sitt og sagði það öllum, er heyra vildu, að þaö væri það eina, sem hefði foröað. honum frá að veröa brjálaður á margra mánaða ferðum yfir hafiö. Gegnum tækið gat hann hlustaö á flugvélar á leið yfir Kyrrahaf, og liefði Brunahœtta í eldhúsum Það er mjög sárt að brenna sig á gufu eða heitu vatni, og vert að varast það af fremsta megni og þó að það sé hinsveg- ar sjaldgæft, að af því hljótist banaslys, getur það valdið ljót- um örum. Svo segir í British Medieal Journal, og í því sambandi ber það fram gagnrýni á fyrir- komulagi í eldhúsum. Nú er siður að hafa eldavélina þann- ig setta, að auðvelt sé að kom- ast að henni á þrjá vegu. Þetta auðveldar starf húsmóðurinnar en eykur hins vegar hættuna á að krakkarnir nái i handföng á pottum og pönnum og helli of- an á sig. Það er hættuminnst að láta eldavélina standa upp við vegg og eldhúsborðin nema við hana báðum megin, en sjá ætíð svo til, að sköftin á pönnum og pottum snúi upp, svo litlu kríl- in nái ekki í þau. Ekki verður þessu móti mælt, og þetta sýnir, hve vandasamt er að gera eldhús þannig úr garði að brunahættan sé sem minnst. Hafið tekatlana af þeirri gerð, sem liættuminnst er. Það er enskur læknir sem gefur þessi ráð, en að öðru leyti segja þeir að teketillinn sé börnum hættulegastur af öllu sem í eldhúsinu er, og ótrúlega mörg slys hljótist af því að börnin hella ofan á sig úr te- katlinum. Þó að ekki sé jafn- mikill siður að drekka te hér og í Englandi, er vert að gæta vel að því, þá ér velja skal te- ketil, að hann sé sem hættu- minnstur að gerð. Hinir iágu, víðu, sem algengastir eru, eru mjög hættulegir, því þeim er hættara við að velta um koll, og það eru einmitt þeir, sem flestum slysum valda. Enskir læknar mæla með tekatli, sem stendur _ á stórri, kringlóttri plötu og er hærri og grennri en venjulegast er. Það er einnig áríðandi, að lokið sitji vel fast, og þurfa að vera á þvi tveir hakar, svo það geti ekki dottið af þegar hellt er úr ka.tlinum. Þessi gerð af lokum er algeng á veitingahúsum, en þau sjást sjaldan i heimahúsum. Ihaldið Framhald af 1. síðu um láta herinn víkja úr Iahdi á morgun cða næstu daga. : J>á mundi ég ckki vilja láta háim gera það. Svo alvarlegum augura lít ég á ástandið eins og það er nú. Eg.álit að nú sé slíkt hættu- ástand að varnarlið sé íslandi nauðsyn." Morgunblaðið er svo himinlif- andi vfir þessum orðum. sem það hefur eftir Guðmundi f. Guðmundssyni, að það segir í Reykjavikurbrófi í fyrradag:„Eí’ Guðmundi I. Guðmundssyni væri einum falið matið á þessu aí liálfu íslendinga, mundu margir telja málinu sæmilega borgið. Gallinn er sá að hér eiga fleiri hlut að en Guðmundur einn.“ ^ Steína íslendinga. ■Þjóðviljinn telur sig ekki hafa aðstöðu til að skýra ummælí þessara tveggja þingmanna, sem Morgunblaðið birtir með slíkri velþóknun, eða ræða hvernig þau komi saman og heim við ský- lausa og óbreytta stefnu AIþingi9 og rikisstjórnar. Hins vegar vill blaðið vekja athygli allra her- námsandstæðinga á þvi hverjar vonir Sjálfstæðisflokkurinn gerir sér um að geta heft sókn íslend- inga gegn hernáminu og við livað þær vonir eru bundnar. Og jafnframt b'er að minnast þeirirar staðreyndaf að hvorki Alþingi né ríkisstjórn hafa breytt afstöðu sinni, þeirri afstöðu sem verður stefna íslendinga í þeim samn- ingum sem nú eru að hefjast við Bandaríkin, Gonmlka Framhald af 1. síðu. um samsetningu og dvalarstaði liðsins, sem á engan hátt má hlutast til um pólsk málefni. Sovézkt lið í Póllandi má ekki fara úr stöðvum sínum nema með samþykki pólskra st,jói*n- arvalda og það skal lúta pólskum lögum. 1.400.000 tonn af korni Sovétstjórnin fellst á að strika út skuldir sem hún á inni hjá Pólverjum og veitir þeim 700 milljóna rúblna lán til kaupa á vélum og hráefnum í Sovétríkj- unum. Þar að auki veita Sovét- ríkin Póllandi 1.400.000 tonn af korni að láni á næsta ári. Fréttamenn í Varsjá segja að þar ríki mikil ánægja með ár- angurinn af för Gomulka og fé- laga hans til Moskva. Krúsjoff stórorður I veizlu í pólska sendiráðinu í Moskva í fyrrakvöld hélt Krúsjoff, framkvæmdastjóri Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, ræðu og gengu sendiherr- ar Vesturveldanna út undir ræðu hans. Er það i annað skipti á einum sólarhring senr slíkt kemur fyrir. Krúsjoff kvað Vest- urveldin róa að því öllum árum að koma Sovétríkjunum og vina- ríkjum þeirra fyrir kattarnef en það skyldi aldrei takast. „Við munum standa yfir höfuðsvörð- um ykkar“, sagði hann. PJO%9wlErllMPI ÚtBefandl: Samelnlngarflokkur alþýSu — Sósiallatoflokkurinn. — RltstlOrar: Masnus KJartanssoo " (áb.ir.SlBurSur QuSmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón BJarnason. — BlaSamenn: Ásmundur si«ur- jónsson. Bjarnl Benedlktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Maenús Torfi Ólafsson. — óuglýslngastjórl: Jónstelnn Haraldsson. — Ritstiórn, afgreiSsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustíg 19, — Sími 7500 (3 linur). — Askrlftarverð kr. 25 á mánuSl í Reykjavik og nágrennl; kr. 22 aanarsstaSar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm'Sln «>]68vUJans h.f.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.