Þjóðviljinn - 07.02.1957, Qupperneq 5
Fimmtudagur 7; febrúar: 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5
250 þúsund ASsírhýar hafa
Japanar óttast afJieiðingar af
Frakkar hafa aSeins áft eitf svar við
öllum kröfum þeirra um frelsi: ofbeldi
„Stríðið í Alsír kostar Frakkland 1,5 milljarð
iranka á hverjum degi, (um 70 milljónir íslenzkra
króna). í landi okkar eru meira en 600 þúsund
iranskir hermenn og sveitir úr her Atlanzbandalags-
ins í Vestur-Þýzkalandi hafa jafnvel verið sendar
gegn frelsisliðum okkar. Auk þess lokar nær allur
iranski flotinn ströndum Alsír og meginhluti franska
ílughersins tekur sem stendur þátt í bardögum gegn
hersveitum okkar."
Á þessa leið mæltist einum;
f ulltrúa þjóðfrelsishreyfingar
Serkja í Alsír, Abderrahaman
Haley, í viðtali sem hann átti
við blaðamenn í Kaupmanna-
höfn skömmu fyrir helgina.
Hann var þá á leið frá Sviss
til New York sem fulltrúi
í nefnd þeirri sem leggur kröf-
ur Serkja fyrir SÞ, en umræð-
ur um Alsírmálið hófust á alls-
herjarþinginu á mánudaginn.
Landarán Frakka.
Haley rakti fyrir blaðamönn-
uniun sögu hinnar frönsku ný-
lendukúgunar, allt frá því að
þeir lögðu undir sig landið 1830
til þessa dags.
Afleiðing nýlendustjórnarinn-'
ar hefur orðið sú að Frakkar
hafa hrakið hina serlcnesku
frumbyggja landsins af öllu
bezta gróðurlandi í Alsír. 2.700.
000 hektarar frjósömustu hér-
aða landsins eru í eign franskra
manna, en eyðimörkin nær ein
skilin eftir handa Serkjum.
Frakkar hafa aldrei viljað
fallast á að veita Serkjum jafn-
rétti í stjórnmálum, enda þótt
þeir séu 10 milljónir talsins, en
hinir frönsku landnemar aðeins
800.000.
250,000 Serkir drepnir
Haley lagði áherzlu á að
Serkir hefðu um langt skeið
reynt að vinna frelsi sitt með
friðsamlegu móti og samning-
um við Frakka. Því var svarað
með handtökum allra sem
leyfðu sér að ininnast á sjálf-
stæði landsins. Þetta var á-
stæða þess að þjóðfrelsishreyf-
ing Serkja hóf uppreisn sína
gegn hinni frönsku nýlendu-
stjói-n 1. nóvember 1954.
Haley sagði að Frakkar hefðu
beitt öllum brögðum til að
iuela niður frelsislireyfingu
þjéðarinnar og á síðustu tveim
ManorániS í Pól-
laedi óupplýst
Bogdan Piasecki, 16 ára
gamall piltur, sem rænt var í
Póllandi fyrir um hálfum mán-
uði, er enn ekki kominn fram.
Ræningjamir hafa krafizt 4.000
bandarískra dollara og 100.000
pólskra zloty í lausnargjald.
Piiturinn er sonur kunns Pól-
verja, Boleslaw Piasecki, for-
manns kaþólskra samtaka.
Gomulka, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, hefur heitið
föður piltsins að allt verði gert
til að hafa upp á syni hans.
árum hefðu 250.000 serkneskir
Alsírbúar verið drepnir og tug-
þúsundir verið fangeisaðir.
En andspyma fólksins hefði
ekki verið brotin á bak aftur.
Það hefði allsherjarverkfallið í
vikunni sem leið sýnt bezt. Hin;
frönsk stjómarvöld höfðu að-
eins eitt svar við verkfallinu,
ofbeldi. Lokaðar verzlanir voru
brotnar upp og vopnuð lögregla
flutti verkamenn nauðuga á
vinnustaði.
Kröfur Alsírbúa.
Haley gerði grein fyrir þeim
kröfum sem Alsírbúar leggja
fyrir allsherjarþing SÞ. Hann
sagði að ljóst væri að Frökk-
um væri um megn að finna
réttláta lausn á deilumálinu og
það yrði ekki leyst án aðstoðar
SÞ. Kröfur þjóðfrelsishreyfing-
arinnar væru þessar:
1. Viðurkennt sé að Alsír-
búar séu þjóð, sem hafi kröfu
til sjálfsákvörðunarréttar.
2. Allir Alsírbúar verði jafn-
réttháir gagnvart lögunum,
hver sem uppruni þeirra er.
3. Alsír verði viðurkennt sem
fullvalda lýðveldi, sem stjórnað
sé samkvæmt þjóðarviljanum.
4. Mynduð verði bráðabirgða-1
stjórn með samkomulagi við
þjóðfrelsishreyfingu Alsír.
5. Allir Alsírbúar skulu hafa
sama og jafnan rétt við beinar
kosningar til stjórnlagaþings.
Ríkisstjórn sem það þing felur
völdin skal síðar semja um
samband Alsír við franska lýð-
veldið.
vetnissprengingu Breta í vor
Japanska stjórnln hefur mótmælt vetnissprengjutil-
raun Breta á Kyrrahafi sem gera á í vor, og hefur áður
verið sagt frá þeim mótmælum hér í blaðinu. Mótmælin
eru studd ýmsum veigamiklum rökum.
Hafstraumar og vindar ber-
ast beint frá fyrirhuguðum
sprengingarstað á Jólaey til
Japans, um 5000 km leið. Jap-
anar halda fram að tilraunirn-
ar muni stofna heilsu þeirra
1 voða, skaða fiskimenn og
skemma uppskeru.
FramleiSslan óx
um 11%
Iðnaðarframleiðslan í Sov-
étríkjunum óx um 11% á
síðasta ári og var það held-
ur meiri aukning en gert
hafði verið ráð fyrir í áætl- 1
uninni fyrir það ár. Þessi
aukning er meiri en öll ár-
Ieg iðnaðarframleiðsla Rúss-
lands fyrir októberbylting-
una.
Samtök japanskra túnfiski-
manna telja að þeir muni verða
fyrir um 100 milljón króna
tjóni, ef skip þeirra verða úti-
lokuð frá hættusvæðinu á
Kyrrahafi meðan á tilraunun-
um stendur. Margir þeirra eru
þegar teknir að sækja á önnur
mið í Indlandshafi.
Talsmaður japanskra útvegs-
manna segir að búast megi við
miklu fjárhagstjóni af spreng-
ingunum vegna lækkaðs fisk-
verðs og skemmda á afla vegna
geislaverkunar.
Hann hefur skýrt frá því, að
eftir vetnistilraunir Bandaríkja-
manna á Bikini árið 1954 hafi
heilbrigðismálaráðuneyti . Jap-
ans látið henda um 500 lestum
af geislavirkum fiski.
Mikið úrfelli.
Samband japanskra stúdenta
hefur einnig sent Macmillan,
forsætisráðherra Bretlands,
skeyti og krafizt þess að hætt
verði við tilraunirnar.
Dr. Yosho Hiyama, sem starf-
ar við Tokioháskóla og rann-
sakaði á sínum tíma áhrif Bik-
inisprenginganna, hefur sagt
að ef sprengingarnar verði við
sjávarmál muni þær áreiðan-
lega eitra hafstraumana, en
geislavirkt úrfelli muni verða
afleiðing sprenginga hátt í
lofti.
Gúmískóféstimöur
í f§Mbreyttu úrvali
Fyrir karla, kveníólk og börn
H E C T 0 R, Laugaveg 11
SKÓBÚBIN. Spítalastíg 10
Þetta er ekki ný.tegund af rakspegli, heldur mikilvœgur
spegill í „turnkíkinum“ sem notaöur verður við athug-
anir á fyrirbœrum á sólinni.
Stjörnufræðingar búa sig undir
alþjoðajarðeðlisfræðiárið
Um allan heim búa stjörnu-
fræðingar og aðrir vísinda-
menn sig af kappi undir hið
alþjóðlega jarðeðlisfi’æðiár, sem
hefjast á í júlí í sumar.
Sternbergstofnunin í Sovét-
ríkjunum er ein þeirra fjöl-
mörgu stjörnuathuganastöðva
sem tekur þátt í visindarann-
sóknum sem eru þær víðtæk-
ustu sem nokkru sinni hafa
verið gerðar á alþjóðlegum
grundvelli. Höfuðverkefni henn-
ar verður að rannsaka snún-
ing jarðarinnar um sjálfa sig,
en hún mun auk þess taka þátt
í mörgum rannsóknum. í því
skyni hefur verið byggður svo-
nefndur „turnkíkir" og verður
hann notaður við rannsóknir á
ýmsum fyrirbærum á sólinni,
m.a. á sólblettunum, og sam-
bandinu milli þeirra og fyrir-
bæra í gufuhvolfi jarðar, út-
varpstruflana og veðrabrigða
Stofnunin mun einnig senda
út ýmsa leiðangra til rann-
sókna bæði á landi og sjó.
Málmhvelfingin opnast og hinn mikli kíkir, einn sá
stœrsti í heiminum af þessari gerð, er stilltur. Athugana-
stöðin er uppi á fjallstindi og stjörnufrœðingarnir verða
pví að vera vel búnir; vettlingana verða þeir þó að taka
af sér.