Þjóðviljinn - 07.02.1957, Síða 10
ÍO) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 7. febrúar 1957
Ræða Hannibals Valdimarss.
hækkanir á ýmsum vörum
vegna aðgerða stjórnarinnar í
efnahagsmálum? Jú, vissulega
verður ekki hjá því komizt.
Enginn getur tekið á þriðja
hundrað milljóna án þess að
það segi til sín emhvers staðar
í verðlaginu. En þær hækkan-
ír, sem hér á eftir koma, munu
falla inn í vísitöluna, því að
vísitölufestingin gilti aðeins til
seinustu áramóta. Það er þá
iíka staðfast áform ríkisstjórn-
arinnar, að gera allt sem í
hennar valdi stendur til að
draga úr verðhækkunum. Það
getur t. d. ekki farið fram hjá
mönnum, að strax daginn eftir
að lögin um innflutningssjóð
voru sett, auglýsti innflutnings-
skrifstofan iækkun á heildsöul-
álagningu á fjölda vara, sem
nam um 30—70 prósent.
Heildsöluálagning á rúg-
mjöli, hveiti, . haframjöli,
sigtinrjöli, fóðurmjöli, fóður-
korni, molasykri, kartöflu-
mjöli, hrísmjöli, hrísgrjónum,
baunum, sagógrjónuin og
sagómjöli, lækkaði t. d. sam-
kv. þessari tilkynningu um
30 prósent. Á þurrkuðum á-
vöxtum lækkaði heildsöluá-
lagningin um 70%. Á hafra-
mjöii, hrísgrjónum og baun-
um í pökkum um 60%. Á öll-
um öðrum nýlenduvörum um
ca 67%. Heildsöluálagning á
lérefti, sirsi, flóneli og tvist-
taui lækkaði um 50%. Á karl-
mannafataefnum, frakkaefn-
um, dragtaefnum, liúsgagnaá-
klæði, gólfdreglum, gólftepp-
um, prjónagarni o. fl. um 50
—60%. Frakkar, kápur, blúss-
ur og unglingafatnaður uni
60%. Gúmmístígvél og skó-
fatnaður um 60%. Leir- og
glervörur um 50%. Önnur
búsáhöld, borðbúnaður, hand-
verkfæri, burstavörur o. fl.
um 50%. Og lieildsöluálagn-
ing af rafmagnsvörum lækk-
aði um 65 prósent.
Þetta voru fyrstu aðgerðim-
ar til viðnáms hækkandi verð-
lagi. Nú er unnið af kappi að
því að koma á almennum verð-
lagsákvæðum, og smásöluá-
lagningin verður endurskoðuð
á sama hátt og heildsöluálagn-
ingin. Landinu verður skipt
í allmörg afmörkuð verðlags-
svæði. Verðgæzlumaður verður
skipaður fyrir hvert svæði, og
öll verkalýðsfélög landsins eru
beðin að kjósa fulltrúa sem
vaki yfir verðlagsmálunum á
sínu félagssvæði, og hafi síðan
náið samstarf við verðgæzlu-
mann svæðisins og við verð-
lagsstjóra, ef ástæða þykir til.
Þannig höfum við hugsað okk-
ur að búast til varnar í þess-
um málum.
Tröllasögur þær, sem ihalds-
blöðin ástunda nú daglega að
breiða út um yfirvofandi verð-
hækkanir, eru sem betur fer
staðlausir stafir. Sumpart eru
þær blátt áfram liugsaðar sem
sölubrellur til þess að skapa
kaupæð' og reyna að koma út
gömlum birgðum lélegra vara.
Á þeim sögum er því hæfilegt
mark takandi. En því getur í-
haldið ekki beðið eftir raun-
veruleikanum? Óttast það
kannski að stjórninni kunni að
takast að halda dýrtíðinni að
mestu í skefjum, þrátt fyrir
. syndagjöldin, sem greiða varð
vegna íhaldsstjórnarfarsins. Al-
þýpa landsins mun a. m. k. ekki
tryllast af grýlusögum íhalds-
ins í verðlagsmálum. Hún mun
bíða raunveruleikans og verða
framvegis sem hingað til
traustur bandamaður ríkis-
stjórnarinnar í baráttunni gegn '
dýrtíð og verðbólgu. Það vita
alþýðustéttirnar vel, að góður
árangur í þessum málum er
þeirra mesta hagsmunamál og
jafnframt hin bezta þjónusta
við atvinnulífið eins og nú er
háttað málum.
^ Þeira væri hollt að
líta í eigin barm.
En hvernig er það? Langar
ekki hv. hlustendur til að fá
að heyra um úrræði íhaldsins í
dýrtíðar- og efnahagsmálum?
Og hvernig stendur á þvi, að
hvorugur málsvari íhaldsins í
þessum umræðum hefur gert
nokkar minnstu grein fyrir
þeim bjargráðum? Það er væg-
ast sagt aum frammistaða, sem
áreiðanlega verður tekið eftir
í þessum umræðum.
Formælendur Sjálfstæðis-
flokksins hafa í kvöld verið
að fárast yfir tekjuöflun ríkis-
stjórnarinnar til þess að fyrir-
byggja stöðvun atvinnulífsins.
En ég spyr, væri þeim ekki
sjálfum holt að líta í eigin
barm og minnast þess, að í
fyrra hækkuðu íhaldsstjórn-
endur Reykjavíkurbæjar út-
svörin um 47 millj. króna upp
í 165 milljónir. Og núna rétt
fyrir jólin tilkynntu þeir og á-
kváðu, að útsvörin skyldu nú
í ár verða 200 milljónir. Það
var þeirra jólagjöf. Veit þó
enginn, að það sé vegna nokk-
urs annars heldur en aukinna
rekstursútgjalda við bæjar-
báknið.
Frýjuorð Sjálfstæðismanna
út af frestun uppsagnar á her-
verndarsamningnum læt ég
mér í léttu rúmi liggja. Al-
þýðubandalagið taldi aðstæður
ekki heppilegar eins og á stóð
í nóvembermánuði til þess að
taka upp . samninga um brott-
för hersins.. Við kusum því
heldur að fresta samningnum
fyrst um. sinn., Hitt er skiljan-
legt, að hernámsflokkur eins
og Sjálfstæðisflokkurinn vilji
helzt velja til slíkra samninga
sem óhagstæðastan tima fyr-
ir íslendinga. Varanlegt her-
nám er þeirra áhugamál, og er
engu líkara en að þeir sjálf-
ir líti á sig sem umboðsmenn
fyrir kaupmenn dauðans og
hervaldssinnana í heiminum.
Endurskoðun verður áreiðan-
lega tekin upp, þegar aðstæður
batna, og ekki er annað vitað
en að stjórnin sé öll sammála
urn að ganga fast eftir því lof-
orði, að hér skuli ekki vera
her á friðartímum,
Ríkisstjórn Ólafs Thors vann
það afrek að kaupa engan tog-
ara til landsins á s.l. átta ár-
um, en kaupa inn a. m. k. 5
þús. bíla á sama tíma. Slík
stjórn fékk auðvitað hvergi lán
erlendis. Nú hafa verið á-
kveðin kaup sex allstórra vél-
skipa og 15 togara, en dregið
verður aftur úr innflutningi
bíla. Verið er að afla lánsfjár
til framhaldsvirkjunar Sogsins,
og lokið verður byggingu orku-
veranna á Austfjörðum og
Vestfjörðum um næstu áramót.
Skemmtigarðarinn
TfVOLÍ
tekur til starfa um miðjan maí. — Ákveðið hefur
verið, að leigja út tæki þau, sem fyrir eru í garð-
inum, svo og sælgætissölu þar. Þeir, sem áhuga
kynnu að hafa á þessu, sendi nöfn sín í pósthólf
368. Jafnframt geta þeir, sem kynnu að vilja koma
fyrir og reka ný tæki í garðinum eða aðra
skemmtistarfsemi, sent nöfn sín í pósthólf 368,
fyrir 20. febrúar.
AUGLYSING
Irá Kaupfélagi Skaftfellinga, Vík,
um áætlunarferðir sérleyfisbifreiða, á leiðinni
Reykjavík til Víkur. — Frá 1. febr. til 10. maí
1957 verður ferðum hagað þannig;
Frá Reykjavík: Þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
ardaga kl. 10 f.h.
Frá Vík; Miðvikudaga og föstudaga kl. 10
f.h. og sunnudaga kl. 1 e.h.
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Bifrtiðastöð íslands,
í Vík hjá Kaupfélagi Skaftfellinga.
Sj'ál/túsancU
Söliiturninn við Arnarhól
Kaupfélag Skaftfellinga.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., og 104. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1956 og 1. tbl. 1957 á húseigninni
Hvammsgeröi 5, hér í bænum, taiin eign Kristins j
Helgasonar, fer fram eftir kröfu Árna Guðjóns- :
sonar hdl., á eigninni sjálfii þriðjudaginn 13.
febrúar 1957 kl. 3.30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík:
Nauðungaruppboð
■
■
sem auglýst var í 102.,og 104. tbl. Lögbirtinga- :
blaðsins 1956 og 1. tbl. 1957, á bíóhúsi viö Mela-
veg, talin eign Trípolíbíós, fer fram eftir kröfu
bæjargjaldkerans í Reykjavík á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 14. febrúar 1957 kl. 2.30 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík. j
... . !
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■••
------------------------'J-WIX.
Byggingu sementsverksmiðj-
unnar verður að sjálfsögðt
hraðað.
•jkr Ekkert vinnuafl
aflögu til hernaðar-
frarakvæmda.
Þessar og ótalmargar fram-
kvæmdir kalla á meira vinnu-
afl en við höfum yfir að ráða.
Á togurum okkar er enn sem
fyrr mikið af færeyskum sjó-
mönnum. Landbúnaðurinn ræð-
ur nú til sín erlent vinnuafl í
vaxandi mæli, og nú er í fyrsta
sinn flutt inn erlent kvenfólk
til vinnu í hraðfrystihúsum.
Af þessu er bert, að við höf-
um ekkert vinnuafl aflögu til
hernaðarframkvæmda.
Atvinnuleysi þarf því enginn
að kvíða, og stóraukin þjóðar-
framleiðsla mun tryggja vinnu-
stéttunum bætt lífskjör, ef okk-
ur aðeins tekst að hamla gegn
vaxandi dýrtíð.
í samræmi við upphafsorð
stjórnarsáttmálans, voru efna-
liagsmálin nú leyst í fyrsta
sinn í íslenzkri stjórnmála-
sögu í nánu samstarfi við sam-
tök verklýðs, launþega, bænda,
útgerðarmanna, eigendur fisk-
iðjuvera og annarra framleið-
enda, og þetta tókst með þeim
ágætum, að það má teljast
víst, að svipuðum vinnubrögð-
um verði fylgt í næstu fram-
tíð. En þá skeður einmitt það
furðulega, þegar sýnt var, að
engrin stöðvun yrði á atvinnu-
vegunum og rekstursgrundvöll-
ur útgerðarinnar tryggður, þá
missti íhaldsliðið alla stjórn á
sér hér á Alþingi, bar fram
dulbúna vantrauststillögu á
ríkisstjórnina. Slíkt er ómerk
stjónnarandstaða og mdsvitur
eins og ljóslega hefur nú orðið
bert í þessum umræðum. Sjálf-
stæðisflokkinn langar sannar-
lega ekki í kosningar í vor.
Hann er hræddur og hefur
uppi mannalæti.
Aukin þægindi fyrir þá,
sem hafa
GERVITENNUR
Þægileg leið til að koma í veg
fyrir lausa gervigóma er að
nota DENTOFIX, sem er bætt
tegund af dufti til að dreifa á
gómana, þannig að þeir sitji
betur i munni. Efnið er sýru-
laust og orsakar ekkert óbragð
eða límkennd, en kemur í veg
fyrir andremmu.
KAUPEÐ DENTOFIX IDAG.
Einkaumboð:
Remedia h.f., Reykjavík.
HEKLA
austur um land í hringferð hinn
11. þ.m. — Tekið á móti flutn-
ingi til Fáskrúðsfjarðar, Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar, Kópa-
skers og Húsavíkur árdegis í
dag. — Farseðlar seldir árdeg-
is á laugardag. —
Skipaútgerð ríkisins.
■
I
!
MUNIÐ
Kaffisöluna í Hafnar-
stræti 16.