Þjóðviljinn - 07.02.1957, Side 11
Fimmtudagur 7. febrúar 1957 — ÞJÖÐVILJINN — (H
iinllkþáftnr
FYRIRHEITNA
LANDIÐ
Meifil Shiits
1. dagur
ÞaÖ er margt í iörum jarðar sem kemur geigerteljara
á hreyfingu. Jafnvel olíufyrirbrigöi í holrúmi milli salt-
laga djúpt undir yfirboröi jaröar getur haft veik áhrif
á geigerteljarann.
Stanton Laird var staddur í skrifstofu á átjándu hæð
Topex byggingarinnar 1 Cedar stræti í New York, þar
sem Topeka rannsóknarfélagiö h.f. hefur aösetur. Stant-
on vissi mætavel aö framlag hans, pegar hann rann-
sakaöi geislaverkanir við tilraunaboi anirnar viö Abu
Quaiyah, haföi sparað Topex mikla fjárupphæð. Land-
skjálftamælingarnar höfðu stytzt um margar vikur og
það hafði aftur gert það aö verkum aö raunvenileg
olíuframleiösla hófst þeim mun fyrr í þriðju borholu.
Hann hafði þegar útskýrt máliö fyrir herra Johnson í
langri skýrslu. Sveittum, hrjúfum hóndum haföi hann
skrifaö á ritvél í skýli sínu viö borturninn í arabísku
eyöimörkinni. í skýlinu höfðu auk hans verkamennim-
ir veriö til húsa, og meðan hann sat og skrifaði haföi
hann vitaö meö sjálfum sér, aö herra Johnson yrði of
önnum kafinn til aö kynna sér skýrsluna þegar hún
kæmist á leiöarenda. Stanton gat í bezta. lagi gert sér
vonir um aö herra Johnson fletti henni lauslega ög léti
sér nægja aö kynna sér niðurstööurnar vandlega. Og
þaö var einmitt þetta sem herra Johnson haföi gert, og
síðan haföi hann reyndar gleymt ollum smáatriðum.
Eftir var aðeins óljóst hugboö uin að Stanton Laird
væri duglegur ungur maöur, sem geroi meira en kvarta
undan hitanum, heldur sinnti starfi sinu.
Herra Johnson sagöi fátt meðan ungi maöurinn tal-
aði. Af þeirri einföldu ástæðu að hann var ekki viss í
sinni sök. Eins og allir olíuforstjórar kunni hann í stór-
um dráttum skil á borunartækni, en hann hafði aldrei
lært jaröfræöi. Fyrir fjörutíu árum haföi hann 'gengið
inn í olíufélagiö sem lífefnafræöingur en nú haföi hann
veriö í stjórn Topex í mörg ár og helmingurinn af efna-
fræöinni hafði síazt burt úr heila hvns. Það sem eftir
var var einnig hálfvegis gleymt. Þegar hann talaði við
unga menntamenn sem unnu undir stjórn hans, notaöi
hqnn sérstaka tækni, sem hann haföi þjálfaö með séi
smátt og smátt. Hann lét þá bara tala og lét sér nægja
aö halla sér aftur á bak í stólnum og hlusta. Ööru
hverju uppörvaði hann þá með því aö segja „já, ein-
mitt“, eða „þetta lætur skynsamlega í eyrum“, eöa þá
hann sagði: „Dr. Streeter var aö vinna viö þetta sama i
fyrrahaust; þér ættuö aö tala um þetta við hann.“
Á þennan hátt lét hann í þaö skina aö hann hefði
vit á því sem Stanton Laird var aö tala um, meðar
hann undir niöri myndaöi sér skoöanir á þessum ungs
manni og setti á sig mikilvægar uppiysingar, sem síö-
aiTneir yröu til aö ákveöa framtíð Stantons hjá Topex-
félaginu. Margra ára æfing hafði gert hann svo leikinr
í aö skjóta athugasemdum sínum iiin á réttum stöð-
um, að Stanton hélt í raun og veru aö hinar nákvæmu
tæknilegu útskýringar hans heföu haft hagstæð áhrii
á húsbóndann. Þaö var reyndar rétt hjá honum, en þc
ekki á þann hátt sem hann hélt. Tækni hafði ekki mikla
þýöingu fyrir herra Johnson, því aö hann skildi hana
ekki til fulls, en á hinn bóginn skipti það hann miklu
máli, á hvern hátt jarðfræöingurinn talaöi máli sínu
og hvernig afstaöa hans gagnvart fyriitækinu var.
Loks leit herra Johnson á klukkuna. Tíu mínútur yfir
tólf. Hann batt endi á samtaliö og sagði: „Ættum við
ekki aö fá okkur eitthvaö aö boröa. Á hvaöa gistihúsi
búið þér?“
„Eg kom töskum mínum fyrir í geymslu," svaraöi
ungi maðurinn. „Vinur minn hefur íbúö í Peter Cooper
Village. Eg hringi til hans seinna og spyr hvort hann
geti hýst mig.“
„Komuð þér ekki í gær?“
Stanton hristi höfuöiö. „Okkur seinkaði um tuttugu
tíma í Lissabon. Þeir uröu að skipta um hreyfil i flug-
vélinni."
Herra Johnson virti unga jaröfræöinginn fyrir sér.
Laird vai’ fölleitur, ungur maöur meö ljóst, stuttklippt
hár og litlausa vanga. Þriggja ára dvöl í Arabiu haföi
gefiö honum gileitan hörundslit, en hann var ekki
beinlínis útitekinn.' Hann virtist fullorönari og öruggari
fasi en síðast er hann sat í þessum sama stól. En hann
var ekki beinlínis hraustlegur. Ef Iil vill var hann
þreyttur.
„Hvenær lentuö þér?“
„Um áttaleytiö,“ svaraði ungi maöurinn. „Eg fór í
steypibaö á flugvellinum og ók svo beiht til borgarimiar
a eftir.“
„Gátuö þér sofið nokkuö í vélinni?"
„Ekki mikiö.“
Hen-a Johnson þrýsti á hnapp utaná skrifborð'inu og
þegar ung grönn og snyrtileg stúlka birtist, sagði hann:
..Sharon, hringdu í klúbbinn og segðu aö ég komi með
gest í hádegisverö. Borð handa tveimur. Við komum
þangaö eftir andartak.“
Stanton Laird skotraöi augunum á einkaritarann.
Það'fór ekki framhjá forstjóranum. Þrjú ái i Arabíu
voru sjálfsagt erfiö ungum manni.
Þegar stúlkan var farin sagði herra Johnson: „Er
heilsan í sæmilegu lagi?“
„Já, ágætu. Manni er óhætt ef maöur fylgir reglun-
um. En ég er feginn aö vera kominn frá Arabíu áöur
en mestu hitamir byrja.“
Forstjórinn kinkaöi kolli. „Þrjú sumur eru alveg nóg.“
Júlísólin skein gegnum sóltjöldin. „YÖur f-innst víst
ekki sérlegá heitt héma.“
Ungi maöurinn brosti. „Það er rakc hérna miöaö við
Arabíu. Eg myndi ekki kæra mig um að vinna hérna
heilt sumar.“
„ÞaÖ verðum viö allir aö gera, ef heppnin er með
okkur,“ sagöi herra Johnson. „Og eí heppnin er ekki
meö okkur fáum við benzínstöð til aö stjórna. Og reynd-
ar er margt verra en þaö. Mér dettur þaö oft í hug þeg-
ai' ég ek frá Norwalk í ágúst, þegar hitinn er yfir
fjörutíu stig.“ Hann reis á fætur. „Við skulum koma og
fá okkur aö borða. Hvaö eigið þér langt leyfi inni? Tíu
vikur?“
Nælonpelsar i stóriim stíl
Minningarsjoður
Jón Þorlákssonar
Sjóður þessi var stofnaður
með 50 þús. kr. höfuðstóli á 75.
afmælisdegi Jóns Þorlákssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, 3.
marz 1952. Stofnendur sjóðsins
voru frú Ingibjörg Claessen Þor-
iáksson og kjördætur hennar,
frú Anna Margrét Hjartardóttir
og Elín Kristín Halldórsson.
Nú nýlega (2. febrúar) af-
henti firmað J. Þorláksson &
Norðmann háskólarektori 25
þús. kr. gjöf í sjóðinn, af því
tilefni, að þá voru liðin 40 ár frá
stofnun fyrirtækisins.
Sjóðnum er ætlað að styrkja
nemendur í verkfræðisdeild Há-
skóla íslands, svo og þá, sem
lokið hafa fyrra hluta prófi í
deildinni og halda áfram námi
erlendis, en stúdentar ættaðir
úr Húnavatnssýslu og Skaga-
fjarðarsýslu ganga fyrir að
öðru jöfnu.
Næst verður veitt úr jsóðn-
um 3. marz. Umsóknir um styrk
skal senda skrifstofu Háskól-
ans fyrir febrúarlok.
* ' UTBREIÐIÐ i-*
* * ÞJÓDVU TANN
‘RÚLOFUNARHRIN GIR
18 og 14 karata.
Fjölbreytt úrval af
STEINHRINGUM
— Póstsendum —
Nælonpelsar eru ekki lengur
nýir af nálinni, en aftur 4
móti koma nú svo margar nýj-
ar og skemmtilegar útgáfur af
þeim, að hætta þykir á að þeir
nái meiri útbreiðslu en raun-
verulegar loðkápur. Nælonþels-
ar hafa marga kosti, fyrst og
fremst er verðið á þeim
skikkanlegt, hægt er að fá góða
og fallega nælonpelsa á sama
verði og allra ódýrustu skinn-
pelsa. Við þetta bætist að næl-
onpelsar eru sterkir, þeir þola
rigningu, mölur vinnur ekki á
þeim. Rosknar konur sem eiga
erfitt með að vera í þungri
kápu eða þungum pels verða
hrifnar af því hvað nælonpels-
inn er léttur. Þeir eru fram
leiddir í öllum mögulegum lit-
um. Reyndar eru ljósu pels-
arnir mjög viðkvæmir fyrir ó-
hreinindum og sagt er að dökk-
brúnu pelsarnir upplitist dá-
lítið, og því er taiið skynsam
legast að velja milliliti, svo
sem dökkdrapp eða millibrúnt.
Seljum
prjónavönir
Með niðursettu verði.
í dag og næstu daga
nna Þórðardóttir h.í.
Skólavörðustíg 3
iMDii*>BaBBaBa«a*Baa.Bai.aiaMaaBaa>a
Takið snúruna
úr sambandi!
enjið ykkur á að taka snúr-
á strokjárninu úr sam-
di þegar þið eruð búnar að
a það. Það er ekki nóg að
ckva á járninu sjálfu eða á
gslökkvaranum, — það get-
hæglega komið fyrir að ein-
r kveiki óvart á því aftur
það getur haft eldsvoða í
__með sér.
Mjólkin sem ný
í tíu daga
Vísindamenn við stærstu
kjarnorkurannsóknarstöð Eng-
lands í Hanvell, hafa uppgöt-
vað að mjólk sem meðhí'ndluð
er með geislaverkun, helzt al-
gerlega fersk í 10 daga án þess
að missa nokkuð af bragði sínu.
Rannsóknum er enn ekki lokið,
en gert er ráð fyrir, að eftir
tvö til fimm ár þurfi húsmæð-
ur ekki að kaupa nýmjólk nema.
einu sinni í viku.
... ...... ÚUceíandi: Samcinlngarflokkur aiþýíu - Sósialistaflokkurinn. - RitsUórar: Magirús K.tarlans.soa
DIOÐwiIrllRVIV ítAb ), .Sieurtfvr OuSimmdason. - Fréttarit«U6ri: Jdn Biamason. - BlaSamenn: Ásmunctur sigur-
» ióhsson. OuSmundur ViBfúSson. Ivar H. JSnsson, Masnús Torfi Ólafsson. Sigurión Jóhannsson. —
Auglí-slhtrtistJSfl: <JuS«slr'Maenflsson. - Rlt&Óóm, afgrciísla, auglýslngar, preötsmlSja: SkólavörSUstíg 19. - Bimi' 7800 (3
linur). — Áskriftarvcro kr. 25 ó mán. í RcykJavík og nágrenni: kr. 22 annarsstaSar. - Lausasöluv. kr. 1. Prontsm. Þjóðvtljans.