Þjóðviljinn - 28.04.1957, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.04.1957, Blaðsíða 1
VILIINN Suimudagur 28. apríl 1957 — 22. árgangur — 95. tölublað 1. maínefndar-) fundur annað í kvöld 1. maí-nefnd verkalýðsfélag- anna heldur fund annað kvöld kl. 9 í Tjarnargötu 20. Norðmenn eru að missa allan !*"'cke"1“r tnduí<^,s,: - r. - ■ . r ~ r . b|oðcs 3-6% kauphœkkun salffiskitiarkaosinn a Spani Franco vill komast í ÁílanzbandalagiSt tvöfaldar jbw' gengi norsku krónunnar A I'ðjufundi í gær var skýrt frá því aö' iðnrekendur hefðu — án þess að samningum væri sagt upp — boðizt jtil að hækka kaup iðnverkafólks um 3—6% og er hækk- Horfur eru á því aö Norðmenn muni missa. markað trúl íslands hjá Atlanzbamda-unm mes^ ^ efstu karlmannatöxtunum. Fylgir almenn verðlækkun á iðnaðar- kjölíarið? vorum í sinn fyrir saltfisk á Spáni eftir að spánska stjórnin hefur lækkaö gengi pesetans gagnvart norskri krónu. manna gegn upptöku Spánar i Atlanzbandalagið. Stjórn Spánar spurðist ný- lega fyrir um það hjá norsku stjórninni hver væri orsök þess áð hún væri andvíg aðild Spán- ár að Atlanzbandalaginu, en talið er að tilraunir Bandaríkj- ahna til að koma Spáni inn í bandalagið hafi aðallega strand- að á andstöðu Norðmanna. Sendiherra Noregs í Madrid svaraði þessari fyrirspurn í fyrradag. Sagði hann að norska stjómin telji ekki að Atlanz- bandalagið sé einvörðungu hernaðarbandalag, heldur einn- ig stjórnmálasamtök á breiðum grundvelli og leggi hún mikla áherzlu á þau lýðræðissjónar- mið sem fram komi i sáttmála bandalagsins. Gengi norsku krónunnar liækkað 1 fyrradag var tilkynnt í Madrid' að gengi norsku krón- unnar gagnvart spánska peset- anum hefði verið hækkað úr 3,05 í 5,85 peseta, og lítill vafi talinn á að þessi hækkun sé í sambandi við andstöðu Norð- Atómstöðin komin lít í Frakklandi Atómstöðin er nú komin út á írönsku. Það er fyrsta bók eftir Halldór Kiljan Laxness sem kem- ur út á því máli síðan fyrri helmingur Sölku Völku var gef- ipn út fyrir stríð og endurprent- aður þegar höfundur fékk nó- belsverðlaun. Þýðinguna sem er úr íslenzku gerði Jacqueiine Joly, en útgef- andi er Les Éditeurs Francais Réunis. iaginu hafi lýst sig samþykkan^ A Iðjufundinum var einróma laga frá Birni Bjarnasyni: eða a.m.k. ekki andvígan aðitd samþykkt að ganga að tilboð- Spájiar að því. ' inu og einnig eftirfarandi til- Þessi gengisbreyting mun ger- eyðileggja saltfiskmarkað Norð- manna á Spáni. Eitt af stærstu saltfisksölufélögum í Noregi sagði í gær að það hefði nú 2.800 lestir af saltfiski tilbúnar til útflutnings til Spánar, en vonlaust væri að senda fiskinn eftir gengisbreytinguna. Hver er afstaða íslauás? Það er vitað að Francostjórn- in hefur lengi haft mikinn hug á að komast í Atlanzbandalagið og að stjóm Bandaríkjanna hefur lagt að aðildarríkjum bandalagsins að verða við þeirri ósk hennar. Fyrir skömmu lýsti vestur- þýzka stjómin yfir því að hún væri fyrir sitt leyti alveg á því að veita bæri Spáni inngöngu í bandalagið, og myndi greiða því atkvæði, ef ósk kæmi fram um það á fundi í Atlanzráðinu, en næsti fundur þess verður haldinn í Bonn innan skamms. Fyrirspura Francostjómar- innar til stjórnar Noregs um hvað valdi andstöðu hennar við upptöku Spánar í bandalagið bendir eindregið til þess að leitað hafi verið hófanna hjá hinum ýmsu aðildarríkjum bandalagsins um afstöðu þeirra til þessara ráðagerða og norska stjórnin hafi ein lýst því yfir að hún muni beita neitunar- valdi til að koma í veg fyrir að fasistaríkið Spánn fái aðild að samtökvmr sem í orði kveðnu eru stofnuð til vamar lýðræði og frelsi. Það er því full ástæða tíl aft spyrja utanrfkisráðherra Is- lands, livor hann eða fastafull- ÖrcefaferS Páls Arasonar 'nicr’y--- - '7 j-r % -** ^ . * * + *** Pálína í Sandgígjukrisl á austurleið. — Bíll þessl hefur þann míkla kost að á þakinu til beggja hliða eru gluggar og sést því mun betur út en venja er í bílum. — Sjá frásögn á 3. síðu. Vesturveldin ekki á einu máli um tillögur Egypta Bandaríkin vilja ganga að þeim til reynslu, Frakkar telja þær óaðgengilegar Á fundi Öryggisráös SÞ í gær um tillögur Egypta um tilhögun á stjórn Súezskuröarins í framtíöinni kom i Ijós að ágreingur er á milli vesturveldanna i þessu máli. (Jtgöngubann enn f Jórdan — 6. flotinn bíður átekfa Engin ný tíðindi bárust frá Jórdan í gær. Herlög eru enn í gildi og nær algert útgöngubann í öllum borgum. Ekki fréttist um nein átök Það var staðfest í Amman í gær að leiðtogar meirihluta- flokkanna hefðu verið handtekn- ir, þ. á m. Nabulsi. fyrrv for- sætisráðherra. Sjötti flotinn bandaríski en í honum er stærsta flugvélaskip heims, Forrestal, tvö beitiskip og ftíu tundurspillar, bíður átekta við botn Miðjarðarhafs og tals- maður Bandaríkjastjórnar ítrek- aði í gær hótanir hennar um að Bandaríkin muni ekki láta af- skiptalaust það sem fram fer í Jórdan, ef hún teldi hagmuni sína í voða. Tilkynnt var í Washingion i gær að á morgun yrðj send sveit landgöngúliða frá Bandarikjun- um til sjötta flotans. Kuwathly, forseti Sýrlands, hóf í gær viðræður sínar við Saud Arabíukonung. Alí Sabrí, ráðu- nautur Nassers Egyptalandsfor- seta, tekur þátt í viðráðunum. Henry Cabot Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna, lagði til að fall- izt yrði á tillögur Egypta í reynsluskyni. Hann sagði að þær væru að áliti Bandaríkjastjórn- ar að vísu ekki í fullkomnu sam- rærni við þau 6 meginatriði varð- andi framtíðarstjórn skurðarins sem Öryggisráðið samþykkti í október, en taldi það ekki næga ástæðu til að vísa þeim á bug. Hann sagði að Bandaríkja- stjórn myndi heimila bandarísk- um skipum að sigla um skurð- inn og greiða egypzkum stjóm- arvöldum tilskilin gjöld, ef það væri aðeins gei-t með fyrirvara Bretar og Frakkar á öðru máli Fulltrúar Breta, Frakka og Ástralíumanna gagnrýndu tillög- ur Egypta hins vegar og franski fulltrúinn sagði þær með öllu óaðgengilegar og hafði allt á hornum sér, að sögn fréttaritara brezka útvarpsins. Fulltrúi Breta tók ekki eins djúpt í árinni og sagði að brezka stjórnin áskildi sér rétt til að at- huga tillögurnar nánar og láta síðar í ljós endanlegt álit sitt á þeim. Framhald á 5. siðu „Fundurinn lýsir ánægjíí sinni yfir því samkomulagi, til breytinga á kjarasamningi fé- lagsins við iðnrekendur, sern fyrir liggur og væntir þess jafn- framt, að sú launahækkun er 5 samkomulaginu felst verði ekki tekin aftur með hækkuðu vöm- verði“. n Ánægjuleg umskipti Þessi tíðindi sýna mjög ánægjuleg umskipti á hag ís- lenzkra iðnrekenda og afstöðut þeirra til verkafólks. Allt til þessa hafa ýmsir iðnrekendur verið harðsvíraðastir allra at- vinnurekenda í viðskiptum við verkafólk, neytt allra bragða til að brjóta kjarabaráttu Iðju- fólks á bak aftur, og það hefur komið fyrir að það hefur orðið að reka iðnrekendur úr samn- inganefnd atvinnurekendá vegna þess að þeir neituðu að skrifa undir gerða samningaí En nú koma þessir sömu menn með nokkra kauphækkun & silfurbakka. Það er endurfæð- ing sem um munar og er von- andi að hún verði varanleg í samtökum iðnrekenda og at- vinnurekenda almennt. Iðnrekendur hafa æfinlega1 borið því við í samningum að hagur íslenzks iðnaðar væri mjög erfiður. Nú virðist hafa orðið gagnger breyting á því eftir að vinstri stjórn er kom- in í landinu, og er það mjögl ánægjulegt. Væntanlega verður það næsta ráðstöfun iðnrekenda að lækka framleiðsluvörur sínar í verði svo að allur almenning- ur njóti góðs af hinum bætta hag; — að minnsta kosti er gott til þess að vita að eklri kemur til þess á næstunni að iðnrekendur fari fram á það við verðlagsyfirvöldin að fá að hækka verð á varningi sínum. Dagsbrúnarmenn! Fundurmn í dag heíst kl 2 í Iðnó Dagsbrún heldur félagsfund í Iðnó í dag og hefst hann kl. 2 e.h. Dagsbrúnarmenn þurfa að fjölmenna á þennan fund. Þar verður rætt um saraninga félagsins og tekin ákvörðun im þá, og ættu menn ekki að sitja heima þegar jafn mikilvægt mál er rætt. Þá er og rétt að muna einnig, að Ihaldið hefur sett Holsteinvélina í gang til safna liði sínu á fundinn. Þegar Dagsbrún hefur mest þurft á að halda hefur því liði venjulega tekizt að vera víðsfjarri. Ættu því þeir sem félagsstarfið hefur hvílt fyrst og fremst á fram til þessa, að láta sig ekki heldur vanta á þennan fund.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.