Þjóðviljinn - 04.05.1957, Page 10
2
c
-----------——-....................-——
HÁRLOKKURINN
Hér birtum við marg umbeðinn texta eftir
Loft Guðmundsson. Erla Þorsteinsdóttir hef-
ur sungið lagið inn á hljómplötu ODEON nr.
DK1415. Platan fæst í Fálkanum h.f.
Allt er hljótt nema liafið sem gnauðar, 14
og- í húmi ég stjörnurnar spyr,
hvort liún sjái ekki fley þitt á sævi
sigla heimleiðis óskljúfau byr.
Því ég veit, að þú kemur, minn vinur
og ég veit, hvar sem ber mig uni tröf,
berð þú lokk mér úr hári við hjarta,
\ mína heitvígðu skilnaðargjöf.
Og ég veit, að sú stjarna, er við völdum
stciðugt vakir og skín okkur tveim.
Að hún lýsir þér leiðir um höfin,
að hún lýsir þér stefnuna heim.
Hverja nótt, er þú heim til mín hugsar,
og minn hárlokk berð dapur að vör,
bið ég stjörnuna að vaka og vernda,
þig minn vinur, unz heim snýrðu för.
Loftur Guðmundsson
síðasta vetrardag og þá
var sýning á handavinn-
unni okkar. Alls héldum
við þrjár skemmtanir í
fyrravetur. Svo fór kenn-
arinn með okkur norður
í Þingeyjarsýslu í fyrra-
vor og það var nú
skemmtilegt ferðalag.
Neinandi lir Barna-
skólanum í Búðardal
Hann langar
í sveitina
Kæra Óskastund!
Komdu nú blessuð og
sæl. Mér datt í l*ig að
skrifa þér, af því að ég
hef ekkert að gera.
Hvernig er skriftin mín?
Mig langar mikið að fara
í sveit. Ég er 10 ára,
bráðum 11 og heiti Guð-
rrundur Kr. Sæmundsson.
Ég á heima í Efstasundi
28 í Reykjavík. Gleðilegt
sumar og vertu svo bless-
uð og sæl.
Gummi,
Handavinnukennslan í Búðardal
Mig langar til að leið-
rétta mismæli í frétta-
bréfi úr Dalasýslu, sem
birtist 23. marz síðastiið-
ínn. Þar var sagt að
handavinna hafi ekki ver-
ið kennd í barnaskólan-
um í Búðardal, fyrr en í
vetur. En það er ekki
rétt. fyrir fáurn árum var
kona búsett í Búðardal,
sem kenndi barnaskóla-
stelpunum handavinnu.
Og kennarinn, sem við
Hjörtur Guðmundsson,
sem var hér í fyrravetur
keimdi okkur handa-
vjnnu, þó hann kenndi
ekki að prjóna, sauma
eða hekla. Hann kenndi
okkur að gera ýmsa muni
úr pappa og hann kenndi
okkur að saga út. Hvert
einasta bam í skólanum
tók þátt í þessum tímum
og þar ríkti ósvikin
vinnugleði. Við gerðum
hús og húsgögn og alls-
konar dýr og fugla. Ein
stelpan gerði líkan af
landinu okkar, íslandi,
og það var undrafallegt
á að líta, útsagað í kross-
viðinn. Við máluðum alla
þessa muni okkar. Svo
héldum við skemmtun
PÖSTHÖLFIÐ
Mig langar til að kom-
ast í bréfasamband við
strák á aldrinum 9—10
ara.
Guðm. Kr. Sæmundsson,
Pósthólf 1321, Reykjavík.
Talnagaldur
Hugsaðu þér tölu, marg-
faldaðu hana með tveim-
ur, bættu svo hundrað
við, deildu í það með
tveimur og dragðu nú
upphaflegu töluna frá —
og nú eru eftir fimmtíu.
3
— Bíttu haim, Snati, bíttu hann!
Svör við spumingum
í 14. tölublaði birtum
við nokkrar spurningar og
óskuðum eftir svörum
ykkar og vonuðum að þið
senduð okkur smá rit-
gerðir. Spurningarnar
voru þannig:
1. Hvað mundir þú gera
ef þú værir ósýnilegur?
2. Hvers mundir þú
óska ef þú ættir eina
ósk?
3. Hvað viltu verða,
þegar þú ert orðinn stór?
Við höfum fengið bréf
frá dreng og stúlku og
birtum þau hér með.
Theodóra Ingvarsdóttir 9
ára, Arnarholti í Biskups-
tungum, svarar svo:
1. Ég mundi þá vera
allsstaðar.
2. Ég vildi alltaf vera
góð stúlka.
3. Ég vil vera sauma-
kona.
Júmbó, sem er 10 ára
og vill ekki láta rétta
nafnið uppi, segir svo:
Kæra Óskastund; Ég
get svarað ’tveimur síð-
ustu spumingunum en
ekki þeirri fyrstu Nú
skrifa ég svörin:
2. Að vera góður og
reglusamur maður.
3. Að verða flugmaður.
Þau vilja bæði verða
rýtir og góðir borgarar
og okkur er mikil ánægja
að birta svona hjarta-
hrein svör. Nú viljum við
HVEK
er lítill rauður
í því hann flýgur
fellur hann dauður?
Meira vatn
Presturinn: Hvað á
bamið að heita?
Konan: Gústaf, Adólf,
Aíexander, Cæsar, Shake-
speare, Goethe, Napoleon.
Presturinn: Hm, hm!
(lágt við meðhjálparann)
Ofurlítið meira vatn
Bjami minn.
Kvenfólk!
Kennarinn: Hvað get-
ui þú sagt mér um hest-
inn, Jóhanna?
Jóhanna: Það er hægt
að matreiða hann eins og
nautakjöt en verður að
steikja hann svolítið
meira.
Þessar tvær skrýtlur
sendu okkur systkini
z Reykjavík,
minna ykkur hin á þess-
ar spurningar og gjaman
mættu svörin vera dá-
litlar ritgerðir og það
þarf ekki frekar að svara
öllum spurningunum i
einu. Bara þeirri, sem þið
eigið bezt með að svara.
Felumynd
Kæra Óskastund!
Ég ætla að senda þér
felumynd og biðja þig að
birta hana, þó að hún sé
ekki merkileg. Að end-
ingu ætla ég að biðja þig
að birta textann Gamla
Kvíabryggja, sem Hauk-
ur Morthens syngur og
Vagg og velta, sem Erla
Þorsteins syngur.
Með beztu þökk fyrir
allt gamalt og gott,
Sigríður Jónsdóttir,
9 ára,
Eyri, Fáskrúðsfirðí,
Þarna sjáið þið stúlku,
sem er að fara að gifta
sig. Nún bíður eftir brúð-
gumanum og biður ykkur
að hjálpa sér að finna
hann.
10) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. maí 1957
íbúðabyggingar
Framhald af 7. síðu.
Utan Oslóborgar er starf-
andi fjöldi byggingarfélaga.
En þau ásamt OBOS mynda
sambandsfélag sín á milli sem
(hefur aðsetur í Osló Þessi fé-
lagsstofnun gegnir líku hlut-
verki fyrir byggingarfélög
Btan Oslóar og OBOS fyrir
pndirfélögin í Oslóborg. Þessi
Btofnun undirbýr byggingar-
framkvæmdir deildanna með
í tvegun teikninga, gerð á
byggingarlýsingum og með
því að annast byggingarút-
boðin. Til þessarar stofnunar
er leitað með útvegun á
byggingarefni, sem erfitt er
að fá á hinum smærri stöð-
um. En sjálf rekur stofnunin
hvorki verzlun með bygging-
arvörur né gegnir hlutverki
b.yggingarmeistara. Þessi
Stofnun annast einnig fram-
íkvæmdir að verulegu leyti á
byggingum ríkisins víðsvegar
um landið, enda á ríkisstjórn-
in fulltrúa í stjórn stofnunar-
innar.
Lögð er áherzla á vandaðan
frágang og að nýtízku þæg-
indi fylgi hverri íbúð. Hinar
nýju íbúðir eru nokkru stærri
en áður var og fara heldur
Btækkandi. Miðað við her-
bergjafjölda í íbúðum byggð-
um á árinu 1905 eru hlut-
föllin eftirfarandi í %:
1 herbergi með eldhúskrók
1.4.
1 herbergi með eldhúsi 4.7.
2 herbergi með eldhúsi 14.3.
3 herbergi með eldhúsi 39.5.
4 herbergi með eldhúsi 22.7
5 herbergi o. fl. 17.4.
Algengasta gólfflatarstærð
3 herbergja íbúðar er um
80—90 ferm.
í Noregi er mikill hluti
hinna nýju íbúða enn í smá-
húsum. Aðeins i hinum
stærstu borgum mun veruleg-
ur hluti íbúðanna byggður í
fjölbýlishúsum.
Samkv. skýrslu Húsbank-
ans er flokkun íbúðarhúsa
sem byggð voru á árinu 1955
sem hér segir:
Einbýli 30.9%
Tvíbýli 34.4%
3- og 4-býli 7.6%
5—6 íbúðir í húsi 3.6%
10 íbúðir o. fl. 15.3%
Ýmisl. 8.2%
(Niðurlag á morgun)
ru
liggnx leiðln
SÉÐog
LIFAÐ
ÍFSREYNSU • MANNRAUNIR • /EFINTYRI
Maíblaðið komið út
Ný verzlun
Nýjar vörur
BILLABÚÐ
Laugavegi 76
Nýlenduvörur — Hreinlætisvörur
Ö1 — Tóbak — Sælgæti
Lítið inn um leið og þér gangið Laugaveginn.
B I L L A B Ú Ð,
Laugavegi 76 - Sími 6811
Röskur unglingur
getur fengið atvinnu við sendiferðii og fleira á að-
alskrifstofu vovri, hið allra fyrst-a.
Umsækjendur komi til viðtals á skrifstofuna
mánudaginn 6. maí, klukkan 10—12 fyrir hádegi.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
RAFORKUMÁLASKRIFTSOFAN
Laugavegi 118
Framhaldsaðaifuudur
Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur verður hald-
inn í Tjamarcafé (niðri), mánudagimi 6. maí og
hefst kl. 8.30 s.d.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Fasteignc.málin og löggjafarvaldið
4. Önnur mál
Félagsstjórnin.