Þjóðviljinn - 25.05.1957, Side 3
Laugardagur 25. maí 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
lilil
A
sýnjiiguimi eru einnig
og sjást hér
brenndir leirmunir, seni börnin eiga sjálf
fjórir gripir gerðir úr lelr.
yndlistarskólinn géfur
Listasafninu merka gjöf
60 myndir eítir börn; íyrsti vísirinn að
sérstöku listasafni barnanna
1 clag, kl. 2, opnar Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi,
sýmngu í Bogasalnum á myndum þeim, er Listasafninu
Þarst að gjöf frá Myndlistarskólanum í Rvík.
Sýningin verður opin í 10
daga og verða þær myndir,
sem nú eru eign Listasafns
rikisins, sýndar fram á mið-
vikudag, en síðan myndir sem
börn hafa gert í skólanum í
vetur. Myndirnar sem eni á
sýningunni eru gerðar á und-
anfömum. 5 árum og eru eftir
börn á aldrinum 8-12 ára.
I Myndlistarskólanum stund-
uðri um 180 börn nám í vetur,
og var kennt í námskeiðum
bæði fyrir og eftir hádegi.
Kennarar hafa verið Valgerður
Hafstað, Guðmunda Andrés-
dóttir og Ragnar Kjartansson.
Þessi sýning er sérstaklega
skemmtileg, og eru margar
mvndir undurfallegar og hug-
ftreiðfirðingar
fjölmennið í Heið-
nsörk í dag
Breiðfirðingafélagið fer skóg-
ræktarför í Heiðmörk í dag kl.
2. Farið verður frá Breiðfirð-
ingabúð. Breiðfirðingafélagið
myndaríkar. Fullorðnir jafnt
sem börn ættu að hafa gaman
af að sjá þessa sýningu.
Forráðamenn Myndlistarskól-
ans eiga mikinn heiður skilið
fyrir þessa ágætu gjöf. Er ekki
að efa, að börn kunna að meta
það að eiga sína fulltrúa á
Listasafni ríkisins.
80 biis. kr. söfnuð-
ust á mæðradag
Fjársöfnunin á mæðradaginn,
sl. sunnudag, nam rúmum 80
þús. krónum eða allmiklu hærri
upphæð en í fyrra. Hefur Þjóð-
viljinn verið beðinn að flytja
öllum bæjarbúum og öðrum, er
stuðluðu að þessum ágæta
söfnunarárangri, hinar beztu
þakkir.
Góð síldveiði
Akranessbáta
Síldveiðibátar frá Akranesi
hafa aflað ágætlega síðustu
daga. í fyrradag bárust þar á
land 915 tunnur. Aflahæsti bát-
urinn var Höfrungur með 204
tunnur. Aðeins 5 bátanna kom-
ust á sjó í gær, og öfluðu þeir
allir ágætlega, frá 100—150
tunnur hver. Keilir var þeirra
aflahæstur.
Bænadagui'-
iiau er á
muFgun
Hinn almenni bænadagur ís-
lenzku þjóðkirkjunnar er á
morgun 26. maí. Höfuðefni
bænadagsins að þessu sinni er
heimilið. Munu prestar tala um
það í prédikunum sínum og fyr-
ir því beðið.
Messað verður í allflestum
kirkjum landsins þennan dag.
Bandalag kvenna í Reykjavík
40 ára á fimmtudaginn
í bandalaginu eru nú 20 kveníélög í bænum
Hinn 30. þ.m. eru 40 ár liðin frá stofnun Bandalags
kvenna í Reykjavík. Verður afmælisins minnzt með hófi
n.k. miðvikudagskvöld, en þá munu konur jafnframfc
minnast sjötugsafmælis formanns bandalagsins, Aðal-
bjargar Sigurðardóttur.
Afmælishófið hefst með borð-
haldi í Sjálfstæðishúsinu kl. 7
á miðvikudagskvöld. Verða þar
ræður fluttar og ýms skemmti-
atriði. Öllum konum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir,
en einkum er þó heitið á félags-
konur í bandalagsfélögunum að
fjölmenna.
♦
20 félög innan banilalagsins.
Bandalag kvenna í Reykjavík
var stofnað 30. maí 1917 og
höfðu aðallega forgöngu um
stofnun þess þær Steinunn H.
Bjarnason, Inga Lára Lárus-
dóttir og Hólmfríður Árnadótt-
ir. Stofnendur bandalagsins
voru 9 kvenfélög hér í bæ; nú
eru bandalagsfélögin 20 talsins,
Þjóðleikhúsið frumsýnir
„Sumar í Týról44 í kvöld
í kvöld er frumsýning í Þjóðleikhúsinu á óperettunni
„Sumar í Týról“ eftir Hans Muller og austurríska tón-
skáldið Ralph Benatzky. Leikstjóri er Sven Áge Larsen,
sem setti „Kátu ekkjuna" á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrra,
en hljómsveitarstjóri er dr. Victor Urbancic.
Óperettan „Sumar í Týról“
var frimisýnd í Vínarborg ár-
ið 1931. Á frummálinu heitir
hún „Im weissen Rössel“ (I
Hvíta hestinum) en það er nafn
á frægu gistihúsi í austurrísku
Ölpunum. í nágrannalöndunum
hefur hún hinsvegar jafnan
verið nefnd eins og hér, „Sum-
ar í Týról“. Óperettan hefur
verið afar vinsæl erlendis og
sýnd í flestum löndum Evrópu.
Tíunda uppeldismálaþingið
hefsi á Akureyri 12. júní
Tíunda uppeldismálaþing Sambands íslenzkra barna-
heitir á félagsmenn sína aðkennara og Landssambands framhaldsskólakennara hefst
fjölmenna og láta ekki hlut
Breiðfirðinga eftir liggja við
skógræktina í Heiðmörk. —
Breiðfirðingar, mætið kl. 2 e.li.
í d.ag við Breiðfirðingabúð.
N emendatónleikar
Tónlistarskólans
Hinir árlegu nemendatónleik-
ar Tónlistarskólans verða
haldnir í dag kl. 2 í Austur-
bæjarbíói.
Þar koma fram 19 nemendur
skólans og leika á ýms hljóð-
færi, svo sem píanó, fiðlu og
klarinettu. Meðal þessara nem-
enda eru þrír sem ljúka burt-
fararprófi í vor.
Aðgangur að tónleikunum er
ókéypis og öllum heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiðar verða afhentir
hjá Eymundsson og í Tónlist-
ai'skólanum til hádegis í dag.
á Akureyri 12. júní n.k. og mun því ljúka 15. júní.
Þatta er þriðja uppeldismála-
þingið sem Samband ísl. barna-
kennara og Landssamband
framhaldsskólakennai'a halda
sameiginlegt. Þetta er ekki full
trúaþing og er öllum kennurum
heimill aðgangur að þinginu.
Ný náinsskrá.
Nefnd hefur verið starfandi
að undirbúningi nýrrar náms-
skrár fyrir barnaskólana og
flytur Helgí Elíasson fræðslu-
málastjóri framsöguerindi á
þinginu um hina nýju náms-
skrá.
Aðrir sem erindi fl.ytja á
þinginu verða Jóhann Frímann,
dr. Matthías Jónasson, Stefán
Jónsson námsstjóri og Jónas B.
Jónsson fræðslufulltrúi mun
segja frá för sinni til Banda-
ríkjanna.
Ríkisútgáfa námsbólfa.
Á tveim uppeldismálaþingum
hefur móðunnálskennslan ver-
ið eitt aðalmálið, en á þessu
þingi verður einkum rætt um
kennslumál og kennslutæki og
alveg sérstaklega um náms-
bækur, en samkvæmt lögum á
Ríkisútgáfa námsbóka nú einn-
ig að gefa út námsbækur fyr-
ir 2 fyrstu ár gagnfræðastigs-
ins.
Skólasýning.
Annan dag þingsins verður
opnuð skólasýning og verður á
henni handavinna og teikning
barna á Akureyri. Þá hefur
upplýsingaþjónusta Bandaríkj-
anna boðizt til að leggja til
sérstaka. námsbókásýningu.
Formaður Sambands ís-
lenzkra barnakennara er Gunn-
ar Guðmundsson, yfirkennari
við Laugarnesskólann, en for-
maður Landssambands fram-
lialdsskólakennara er Helgi
Þorláksson, yfirkennari við
við Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar.
Auk þess hefur hún verið kvik-
mynduð oftar en einu sinni og
var ein útgáfan sýnd hér fyr-
ir mörgum árum.
Lögin í óperettunni eru flest
vel þekkt og vinsæl hér á landi
sem annars staðar. Meðal
þeirra er eitt, sem eitt sinn var
sungið hér í revýu við textann
„Hvað getur liann Stebbi gert
að því þótt hann sé sætur“.
Eins og i flestum óperettum
er mikið dansað í „Sumar í
Týról", en dansana hefur leik-
stjórinn Sven Age Larsen sam-
ið. Þau Bryndís Schram, Anna
Guðný Brandsdóttir og Helgi
Tómasson dansa sóló, en auk
þeirra eru 10 aðrir dansendur.
— Þjóðleikhúskórinn kemur
einnig fram á sýningunni.
Hlutverk í óperettunni eru
25. Sænska óperusöngkonan
Evy Tibell fer með aðalhlutverk
ið en helztu leikarar aðrir eru
Bessi Bjarnason, Ævar Kvaran,
Hanna. iBjarnadóttir, Ólafur
Jónsson, Helgi Skúlason, Bald-
vin Halldórsson, Rósa Sigurð-
ardóttir, Gestur Pálsson, Helgi
Tómasson.
Óperettan er í þrem þáttum
og ier fram úti fyrir gistihús-
inu „Hvíta hestinum“ og í um-
hverfi þess í Týról, nokkrum
árum fyrir fyrri lieimsstyrjöld-
ina. Búningar eru mjög skraut-
legir og fallegir. Þeir eru saum-
aðir í saumastofu Þjóðleikhúss-
ins, undir stjórn Nönnu Magn-
ússon, eftir teikningum Lárus-
ar Ingólfssonar. Lárus hefur
einnig teiknað leiktjöldin. Loft-
ur Guðmundsson hefur þýtt
textann.
Önnur sýning á óperettunni
verður annað kvöld og þriðja
sýning á miðvikudagskvöld.
þ.á.m. öll pólitísku kvenfélögin.
Fyrsti formaður Bandalaga
kvenna í Reykjavík var kjörin
Steinunn H. Bjarnason og
gengdi hún því starfi til ársins
1925, er Inga Lára Lárusdóttir
tók við formennsku. Ragnhild-
ur Pétursdóttir var formaður
bandalagsins frá 1931 til 1943»
er Aðalbjörg Sigurðardóttir var
kosin til formennsku. Aðalbjörg
liefur verið formaður Banda-
lags kvenna síðan ,en með
henni í stjórn eru nú Jónírtá
Guðmundsdóttir og Guðlaug
Bergsdóttir.
Stuðningur rfð margvísleg
málefní.
Tilgangur Bandalags kvenna
í Reykjavík var í upphafi; 1)]
að efla samúð og samvinnií
meðal kvenna, 2) styrkja sér-
hvert gott málefni, 3) styðja
stofnun héraðssambanda kven-
félaga, og 4) koma fram fyrir
íslands hönd á kvennafundum
erlendis. Gekk bandalagið S
upphafi í Alþjóðakvennasam-
bandið og átti nokkrum sinnumi
fulltrúa á fundum þess. Er
Kvenfélagasamband Islanda
var stofnað 1930 tók það við
tveim síðarnefndu verkefnumi
Bandalags kvenna í Reykjavík.
Síðan hefur bandalagið veriS
eitt af þeim héraðasamböndumi
sem skipa kvenfélagasamband-í
ið.
Bandalag kvenna í ReykjavíK
hefur látið fjölmörg mál til sía
taka. Til dæmis má nefna að
Barnavinafélagið Sumargjöfi
var á sínum tíma stofnað a®
tilhlutan bandalagsins og þaðí
kom fyrst fram með liugmynd-
ina um kvennaheimili í Reykja-
vík, Hallveigarstaði. Bandalag-
ið hefur þó einkum látið séE
annt um skólamálin í bænum,
einnig látið sig miklu skipta
ýmis almenn mál, svo sena
skatta- og tryggngamál. Eno
má nefna, að bandalagið varð
fyrst til að hreyfa málinu unn
byggingu fæðingardeildarinna®
nýju í Reykjavík.
í
Uppboð ]
áóskilamunum ^
í gær var haldið f jörugt upp-
boð á óskilamunum, sem veri§
hafa í vörzlu lögreglunnar.
Fór það fram við Templara-
liöllina við Fríkirkjuveg og val
talsverður mannfjöldi viðstadd-
ur. Talsvert var þar eigulegra
muna, svo sem reiðhjól, og þrí-
hjól og var boðið í þau af
kappi. Seðlaveski og buddux
voru boðin upp í kippunt,
kassar með allskyns dóti, ráp-
tuðrur og minnkaskinn máttS
einnig sjá þar. Lögreglan hef-
ur uppboð á óskilamunurffl
tvisvar á ári og er af nógis
að taka, því fólk virðist ekki
telja það ómaksins vert a®
reyna að hafa upp á munum,
sem það týnir. j