Þjóðviljinn - 25.05.1957, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 25.05.1957, Blaðsíða 6
g£ w ÍÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 26. mai 1957 ÞlÓÐVlLIINN Útgefandi: 8&meiningarflokkur alpýðu — Sóslalistaflokkurinn Stærsta átakið Speidel (í mi5i8) og Hltler (til hægri) á velmaktardögum þeirra beggja. Myndin var tekin í FrakkLandi aumarið 1940. Hershöfðinginn senra sveik Rommel í hendur Gestapo Skipun Hans Speidels yfir landherstyrk A-bandalagsins rif]ar upp fortiB hans 0ft hefur Sj álfstæðisflokkur- inn gengið ótrúlega langt á braut ósanninda, lýðskrums ög blekkinga. En þess munu þó fá dæmi að forkólfar hans og mólgögn hafi gengið eins iangt í þessum efnum og í sambandi við lögin um veðlánakerfið til íbúðabygginga. Þessi lagasetn- ing íhaldsins átti bókstaflega að leysa allan vanda þeirra sem í byggingar vildu ráðast. Lögin áttu að tryggja hverjum sem byggja vildi íbúðarhús 100 þúsund kr. fast lán. Þannig túlkaði íhaldið þessa lagasetn- jngu. Og það bætti við: Með lögunum um veðiánakerfið er lagður öruggur grundvöllur að lausn húsnæðismálsins. Reynslan sjálf sýndi hins vegar allt annað. Að vísu liófu hundruð ef ekki þúsundir manna byggingar í trausti á lagasetninguna og loforðin miklu. En kerfið reyndist gagnslítið og ferli þess lauk með algerri uppgjöf og gjald- þroti. Eftir stóðu á þriðja þús. manns sem enga fyrirgreiðslu hlulu og á annað þúsund höfðu fengið örlítið byrjunarlán, venjulega 15—35 þús. kr. Hrökk það að sjálfsögðu skammt til aðstoðar þeim sem voru að hyggja, þar sem byggingar- kostnaðurinn hafði einnig rokið upp úr öllu valdi. '■''¥* eðlónakerfi íhaldsins var aldrei nein frambúðarlausn, enda ekki þannig tii þess stofn- að. Það byggðist á tímabundn- um samningi við banka, spari- sjóði og tryggingafélög um fjár- framlög. Inn í sjálft veðlána- keríið kom aldrei nema tak- rnarkaður hiuti þeirrar upp- hæðar sem lofað var. Utan kerfisins lentu allmörg lán og þá ekki allt til þeirra ' sem mesta höfðu þörfina fyir opin- bera aðstoð. Er þar frægust að endemum lánveiting Sparisjóðs Reykjavíkur tii Helga Eyjólfs- sonar út á 24 íbúðir, sem Bjarni Benediktsson hafði for- Ustu um á sama tíma og fátæk- um mönnum, sem voru að byggja eina íbúð og fengu hvergi lán var neitað um alla fyrirgreiðslu. fT'kkert liggur fyrir um hvað " íhaldið ætlaðist fyrir í mál- Um veðlánakerfisins eftir að íveggja ára samningurinn var útrunninn. Er líklegt að það hafi gert sér þess litla grein. Enginn varaniegur lánasjóður gat myndazt með aðferð íhalds- ins. Lánveitingarnar byggðust á lántökum sem varð að endur- greiða viðkomandi stofnunum. Hér var því unnið af algeru fyrirhyggjuleysi og ekkert hugsað fyrir framtíðinni eða að leysa vandamálið á varanlegan an hátt, íhaldið skyldi við veð- lánakerfið í algjöru gjaldþrota- ástandi og við þúsundir hús- byggjenda með brostnar vonir og vantrú á framtíðina. Þannig var arfurinn sem íhaldið skil- aði í hendur ríkisstjómar Al- þýðubandalagsins, Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins. úverandi ríkisstjórn er að fá lögfest á Alþingi nýja skipan þesara mála þar sem byggt er á allt öðrum og traust- ari grundvelli en áður hefur verið lagður. Höfuðatriði þeirr- ar lajfasetningar er myndun öflugs byggingasjóðs með álit- legri stofneign. Sjóðurinn faer til eignar þegar í byrjun 1,18 milljón króna stofnfé og auk þess fastar árlegar tekjur. Ár- legt eigið fé sjóðsins til útlána ætti á næstu árum að verða um 40 millj. kr. en eigið fé hans vex ört frá ári til árs þar sem sjóðurinn sjálfur er eigandi stofnfjárins og árlegra tekna. Er þar byggt á ólikt traustari grunni en var um hið eigna- lausa og allslusa veðlánakerfi. Byggingarsjóður ríkisins á innan skamms tíma að verða svo öflugur að hann geti að verulegu leyti fullnægt eftir- spurn eftir lánum til nauðsyn- legustu íbúðabygginga. En myndun hans og eignasöfnun skapar einnig möguleika til að lækka vextina á byggingalánum en á slíku er brýn þörf. Vaxta- pólitík íhaldsins, sem m.a. var mótuð með veðlánakerfinu, er í algeri mótsögn við það sem tíðkast í nágrannalöndunum að því er tekur til lána til í- búðabygginga. Var harðlega á þetta deilt af þáverandi stjórn- arandstöðu við setningu lag- anna 1955 og nú er lagður grundvöllur að fljótlegri lækk- un vaxtanna með þeirri nýju löggjöf sem Hannibal Valdi- marsson hefur haft forgöngu um og brátt verður lögfest á Alþingi. Jafnframt lagasetningunni um Byggingarsjóð ríkisins hefur ríkisstjórnin gert ráðstafanir til að varið verði stórlega auknu fjármagni til bygginga- lána þegar á þessu ári. Hefur hún lýst yfir að tryggðar verði a.m.k. 44 millj til útlána á veg- um veðlánakeríisins. Auk þess er svo stóriega aukið framlag til Byggingarsjóðs verkamanna og til útrýmingar heilsuspill- andi íbúða í samvinnu við bæj- arfélögin. Er þannig ákveðið að verja til íbúðabygginga í ár og á næstu árum miklum mun hærri fjárhæðum en áður hefur þekkzt. Var líka vissu- lega á slíku átaki brýn nauð- syn svo mjög sem húsnæðis- málin hafa verið vanrækt af afturhaldsstjórnum undanfar- inna ára. 17'itt merkasta nýmælí hús- næðislöggjafarinnar nýju eru svo ákvæðin um skyldu- sparnaðinn og frjáls sparnaðar- framlög til íbúðabygginga. Með þeim er unga fólkinu sköpuð ný og áður óþekkt skilyrði og aðstaða til að eignast íbúðir með viðráðanlegum hætti um leið og það stofnar til hjúskap- ar. Er það eftirtektarvert að gegn þesu stórmerka nýmæli fjandskapast íhaldið langsam- lega mest, og hefur það þó beitt Qkipun vesturþýzka hers- ^ höfðingjans Hans Speidels yfir landher A-bandalagsins á miðsvæðinu svonefnda, V- Þýzkalandi, Frakklandi og Niðurlöndum, hefur að vonum vakið kurr meðal þjóða, sem fyrir rúmum áratug urðu að þola hernám þýzks hers, þar sem hershöfðinginn var einn af æðstu mönnum. Meðan Speidel starfaði í þýzka yfir- herráðinu átti hann megin- þátt í að undirbúa árásina á Holland, Belgíu og Luxem- burg. Síðar var hann her- námsstjóri Hitlers á svæði í Frakklandi norðaustanverðu, og fyrirskipaði þar meðal annars aftökur gisla og mót- spyrnuhreyfingarmanna. Síð- an var hann sendur til Úkra- inu, þar sem enn voru unnin hryðjuverk undir yfirstjórn hans. Loks var hann sendur aftur til Frakklands og sett- ur yfir herráð Rommels mar- skálks. • l|/|otmælin gegn skipun þessa I"1 fynverandi nazistahers- liöfðingja yfir heri A-banda- lagsríkjanna hafa verið borin fram á ýmsan hátt. I Hol- landi hafa á annað hundrað háskólakennarar skorað á ríkisstjórnina að beita áhrif- um sínum til að fá hinn þýzka hershöfðingja fjarlægð- an úr herstjórnarstöðvum A- bandalagsins. I Frakklandi hafa synir manna, sem Spei- del lét taka af lífi, lýst yfir að þeir muni neita að gegna herþjónustu undir yfirstjórn manns, sem gerðist böðull feðra þeirra. Stjómir borga sér af sauðþráu íhaldseðli sínu gegn húsnæðislöggjöfinni í heild. En hvað sem þeirri and- stöðu líður mun það verða dóm- ur reynslunnar og sögunnar að með setningu laganna um hús næðismálastofnun og Bygging- arsjóð ríkisins hafi verjð lagður grundvöllur að stærsta og raun- hæfasta átakinu til lausnar á húsnæðismálunum sem gert hefur verið fram að þessu. á fyrrverandi hernámssvæði Speidels hafa samþykkt mót- mælaályktanir og mótmæla- fundir hafa verið haldnir. Formælendur herstjórnar A- bandalagsins hafa reynt að lægja mótmælaölduna með því að halda því fram, að Spei- del hafi tekið þátt í samsæri þýzkra herforingja gegn Hitl- er sumarið 1944, þegar ein- ræðisherranum var sýnt bana- tilræði. Benda þeir á, að Spei- del var handtekinn síðsumars 1944 og sat í fangelsi til striðsloka. • 17ins og kunnugt er voru þátttakendur í júlí-sam- særinu líflátnir af hinni mestu grimmd hvar sem til þeirra náðist. Það eitt, að Speidel slapp með lífi, sýnir að þátt- taka hans í samsærinu hefur ekki getað verið mikil. Deilan um skipun hans yfir heri A- bandalagsins hefur líka orðið til að rifja upp, að í stríðs- lokin báru nánustu aðstand- endur Rommels þær sakir á Speidel, að hann hefði svikið þennan fyrrverandi yfirboð- ara sinn í hendur böðla Oestapo. Hitler lét breiða út, að marskálkurinn, sem naut meiri vinsælda í Þýzkalandi en nokkur annar hershöfðingi, hefði látið lífið í bílslysi. Vor- ið 1945 undirritaði Manfried Rommel sonur marskálksins, eiðsvama og vottfesta yfir- lýsingu, þar sem hann skýrði frá afdrifum föður síns. • ¥ yfirlýsingunni segir: „Fað- ir minn, Ei-win Rommel marskálkur, dó 14. október 1944, ekki eðlilegum dauða í Herrlingen, heldur var hon- um rutt úr vegi að skipun Hitlers á þann hátt sem nú skal lýst.“ Síðan er skýrt frá því, hvernig tveir sendiboðar Hitlers neyddu Rommel til að taka eitur með því að hóta honum ella kvalafullri aftökú fyrir þátttöku í júlí-samsær- inu. Loks segir Manfried Rommel: „Þegar ég ræddi síð- ast við föður minn 14. októ- ber 1944, skýrði hann mér frá því, að hann væri grunað- ur um þáttböku í atburðunum 20. júlí. Speidel hershöfðingi, fyrrverandi formaður herráðs hans, sem hafði verið hand- tekinn nokkrum vikum áður, hafði gefið vitnisburð, þar sem sagði, að faðir minn hefði haft fomstuhlutverk í undirbúningi 20. júlí, og það eitt að hann lá þá í sárum Frqmhald ó 10. síðu. Speidel (tll hægrl) hefur elzt og fitnað, en aftur er hann lcominn til Frakklands til að gegna háu herstjómareinbætti. Nú er það ekki lengur í Fiihrer-Hauptquartler heldur í herstjórnaxstöövum NATO. Hér stendur haim við hlið yfirhershöfðingja A-bandalags- ins, Bandaríkjumannsins Norstad. ..•"Tjr «■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.