Þjóðviljinn - 24.12.1957, Page 3

Þjóðviljinn - 24.12.1957, Page 3
JÓLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS 1957 (3 ■ Vingjarnlegt, brosandi andlit silfurhnappa'ðs manns í svörtum knjábuxum og skóm með silfurspennu var hið fyrsta sem ég tók eftir þegar við stigum út úr Loftleiðaflugvélinni- á Fleslandsvelli. Velkominn til Noregs, voru fyrstu orðin; handtakið var hlýtt og nota- legt. Þetta var nefnilega alls ekki tollari né útlend- ingaeftirlit, heldur hann Jerdal, formaður móttöku- nefndarinnar, og auk þess starfsbróðir.' Þar voru fleiri menn er buðu okkur velkomna. Mér varð starsýnt á silfurhnappamanninn. Fyrr á öldum áttum við íslend- ingar éinnig margt slíkrá hnappa. En svo varð plag- siður að skjóta þeim á drauga þá er riðu húsum á íslandi í þann tíð. Síðan áttum við íslendingar fátt silfurs ;— því drykkjarhornin og kirkjubikarana hirtu Danir! Við erum drifnir inn í bíla, síðan ekið á fleygiferð milli húsa og trjáa inn til Björgvinjar. Bílarnir stað- næmast við hús er nefnist Horda-Heimen. Það var liðið nær morgni, flestir vildu fara að halla sér og ruddust um fast til að komast sem fyrst í háttinn. Nokkur hluti hópsins skyldi fara í annað hótel. Jerdal veitti ekki af öllum herforingjahæfileikum sínum til þess að stjórna þessum úrillu mörlöndum. En svo kom hann út í bíl til okkar hinna latari í hópnum og tjáði að einn vantaði hér enn. Eg tók föggur mínar og hélt inn, en sá ekkert til landa minna í hótelinu annað en bakhlutann á þingmanni Egils Skallagrímssonar, hverfandi inn um einhverjar dyr. Svo hallaði ég mér á mjúkan kodda á efstu hæð, sáttur Á fornum við guð og menn, því daginn eftir slóffum áttum við „frí“ til kvölds, þakknð sé því að Loftleiðir skiluðu okkur hálfum sólarhring á undan áætlun. Þegar niður kom morguninn eftir sá ég ekki svo mikið af íslandi sem bakið á þingmanni Egils á Borg, og hafði lítt áhyggj- Balaströnd í Sogni. Ein- kenni „Vestur- landsins“ í Noregi eru firffir, margir þröngir og langir, sem aff liggja sæbrött skógivaxin fjöil og bak viff Bala- strönd er einnig jökull. Svo var komið kvöld og íslendingarnir, um 30 tals- ins, voru komnir saman í einn rekstur, undir frænd- Jón Bjarnason: Morguninn eftir, 14. júní, liggur leiðin til Suður- fjarðar, að Hafratúni. Á leiðinni þangað er okkur bent á nes eitt lítið við fjörðinn. Á árunum Einhverntíma á árunum kringum kringum 800 800 tóku tveir fóstbræður sig upp af nesi þessu og héldu á haf út með öndvegissúlur sínar. Það voru þeir Bjólfur er nam Seyðisfjörð (og Bjólfurinn þar heitir eftir), og Loð- mundur sá er fyrstur nam Loðmundarfjörð. Já, óneit- R EGILS ur af; hélt út og rann beint á sjávarlyktina, eins og sauðkindin sem eltir efstu grös á vorin. Af fyrstu bryggjunni blasti við höll Hákonar gamla, handan Vík- urinnar. Nú vissi ég þá hvar hinn „harði heimur“ og ég vorum niðurkomnir í bænum, sneri við og inn á Torgalmenninginn. Þar getur venjulega að líta að morgni dags álitlegt safn húsmæðra og vinnukvenna ' bæjarins, kaupandi allt frá angandi rósum til ilmandi ( saltfisks, — en umhverfis standa sólbakaðar hispurs- meyjar og skrápsmurðar kerlingar, spjátrungar og ýstrumagar, hlaðin myndavélum og kíkjum, talandi allar mögulegar tungur, en mest bandarísku, og horfir dolfallið á hvernig lífið gengur fyrir sig norður hér. Svo skiptist þetta fólk á um að taka myndir af sér með fiskborðin í baksýn, til sannindamerkis um það suður í heimi að það hafi nú séð sitthvað um dagana. ■ Það er gott blaðamanni að staldra stundarkorn í sumarlogninu á sævar- : bakkanum hjá höllu Há- . konar konungs, horfa um stund á hið iðandi líf við höfnina. Þar er allt frá 1 smákænum til línuskipa. En mitt í ys og glamri at- ómaldar hverfur þér þetta og upp rennur önn- ur mynd. Þú sérð sæ- barða skeggjaða víkinga sögualdar á langskipum með gapandi trjónum. í þá daga var hér oft margt íslenzkra. Hingað áttu þeir að sækja til frænda, ættlands og erfða. Hér getur þú endurlifað í hug- anuna marga atburði er þú last um sem drengur. Það var liðið á dag, og ég var alls ekki hættur gömlum upprifjunum, þegar ég mætti- Guðm. Hagalín, skammt frá horninu á Loðins lepps götu, og hann fræddi mig á því að flestir landar okkar væri í boði Norð- manna (utan dagskrár) úti í Askeyju, — því þar Keimasæturnar í Sogni kom Egill sálugi Skalla- geía sannarlega örvaff grímssonur við sögu, hjartslátt ungra manna. sjálfsagt hefur hann reist Þannig er þjóffbúningur þar níðstöng — og gott ef þeirra. hann drapekkilíkamann! rækinni herstjórn Jerdals. Og áður lengra er haldið skal lauslega gerð grein fyrir þessum hópi. Veturinn 1956 barst boð frá samtökum Vestanfjalls í Noregi til 30—40 félaga, einstaklinga og stofnana á íslandi um að senda fulltrúa í frændsemiheimsókn á slóðir þær er Egill á Borg vitjaði forðum, og skyldi ferðin heita: í fótspor Egils Skallagrímssonar. Hinir gest- risnu norsku bjóðendur voru: Mæris- og Raumdals- fylki, Sogn- og Firðafylki, Björgvinarbær, Vestmanna- laget, Ungmennafél. Erfinginn og Ungm.fél. í Björg- vin, Ungmennafélögin í Sogni og Fjörðum og Frjáls- lynda ungmennafélagið á Suður-Mæri. í okkar hópi voru ráðherrar, alþingismenn, bændur, prófessorar, stúdentar, prestar, hæstaréttardómari, útvarpsstjóri, bankastjóri, ferða- Kvöld í Gimli skrifstofustjóri, blaðamaður, — að óglaymdum sýslumanni Egils Skallagrímssonar, þingmanni hans og ungmennafé- lagsformanni, — og eru þó ekki allir taldir. Björgvin er raunar hin eina heimsborg Noregs, en inni í Gimli erum við komin í hóp ungra stúlkna í „sveita- pilsum“ og útsaumuðum blússum og „upphlutum“. Strákarnir ganga í treyjum og knjábuxum og klæðast ullarsokkum til hnés. Við erum í vafa um nema við séum vaknaðir upp einhversstaðar aftur í öldum — og þá kannski heima í sveit á íslandi. Hér eru dansaðir þjóðdansar og sungin norsk þjóðkvæði. Þáðum við ís- lendingarnir það með þökkum, vegna þess að eitt sinn þrúgaði dönsk hreinlífskristni svo ísland að við bönn- uðum okkar Jörvagleði og glutruðum niður þjóðdöns- unum. Það er ekki laust við að unga kynslóðin sé of urlítið óframfærin við okkur fyrst. En eldri kynslóðin, er enn brennur í frumeldur ungmennafélagavakningarinnar, tekur okkur þeim mun innilegar. Það væri dauður íslendingur sem fyndi ekki hér inni að þetta fólk lítur ekki aðeins á hann sem góðan gest, heldur og ættingja og vin. Sviðið hér er skreytt með íslenzkum fána. Þar er og brjóstmynd af Jóni Sigurðssyni forseta. Eskelund, nafnkunnur maður vestanfjalls, ávarpar okkur sem lengi þráða ættingja. Aðalræðu okkur flytur sr. Eirílcur á Núpi, og fræðir hann Norðmenn á því að við lítum einnig á þá sem frændur og vini, Nor- egsferð sé íslendingi það, að koma heim. Svo kemur kona upp á sviðið og flytur okkur kvæði. Hár maður kemur með fangið fullt af blómum og færir blóma- rósunum tveim í okkar hópi, en þær roðna og fara hjá sér, eins og kvenna er siður þegar þeim er eitt- hvað vel gert. Sá mælir á íslenzku. Iiann réynist vera Jón Sigurðsson, sá er utan fór einhversstaðar af ís- landi árið 1910 og var vélameistari hjá Bergenslta gufuskipafélaginu í 32 ár, en er nú kominn á land og er sölumaður og umsjónarmaður véla. anlega eru íslendingar í þessu landi komnir á gaml- ar ættarslóðir. í brattri hlíðinni við fjörðinn stendur fornfáleg húsaþyrping: Hafratún, gamalt byggðasafn. Hús hlað- in úr hellum, eins og heima á íslandi í gamla daga. Hús úr skógarbjálkum, hús klædd eini, (er kvað seint fúna), allskonar gömul hús. í stofu safnvarðarins, sem hefði eins vel getað verið gömul stofa á íclandi, eru okkur bornir norskir þjóðréttir: „rjomegraut og spike- kjöt“. Innilegar ræður eru fluttar af beggja hálfu, sungið á norsku og íslenzku. Brottfarartíminn er kom- inn áður en nokkurn varir. í Hafratúni er með okkur staurapresturinn, sem íslenzkir skógræktarmenn nefna svo, sr. Harald Hope. Hann er mikill áhugamaður um velgengni íslands og íslendinga. Hefur beitt sér fyrir skógræktarferðum til íslands, hefur gróðursett hér sjálfur. Það var hann sem safnaði á 9. þús. girðingarstaurum hjá skóg- arbændunum, sóknarbörnum sínum, sem gjöf til ís- lenzku Skógræktarinnar, svo norsk tré mættu vaxa upp á íslandi í öryggi. Hann býður okkur velkomin með kvæði er hann nefnir Velkomin, en mætti eins- vel heita: Móffir Noregur heilsar þér. í kvæðinu segir hann m. a.: Her er du ingen framand, Velkommen „Óteljandi börn, veifandi norskum fánum“. bydst du inn! Nu opnar moderlandet Sin í. n :,not sonen sin. . . . Og var du lenge burte so vm I \ r.mstn enn. Du dine brpder fimier pá kvar ein sllg o veg, som um ditt upphav miimir. Mor Noreg helsar degí

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.