Þjóðviljinn - 04.07.1958, Qupperneq 12
Bærilnn hækki lán fil Si rtið-
hás@íbú@cs wlð Réttarholisveg
móii jafnháu auknu láni frá Iiusnæðismálastjórn
SuðoviumN
Föstudagur 4. júlí 1958 — 23. árgangur — 146. tölublað.
Ingi R. I-Ielgason flutt: eftirfarandi tillögu á bæjar-
stjórnarfundi í gær:
„í tilefni af bréfi húsnæðismálastjórnar dags. 27. júní
s.l., þar sem skýrt er frá þeirri ákvörðun hennar að
hækka um 12 þús. kr. lán eftir 4. kafla húsnæðislag-
anna til 99 raöhúsaíbúða i Réttarholtshverfi, samþykkir
bæjarstjórnin að hækka sín lán út á sömu íbúöir um
jafnháa upphæð“.
í framsöguræðu gat Ingi þess
að 45 íbúðanna í raðhúsun-
um hefðu orðið 24 þús. kr. dýr-
ari en hinar 99 íbúðirnar, og
þar sem jöfnunarverð væri á
íbúðunum hefði þetta reynzt
töluverður viðbótarbaggi fyrir
kauúendur þessara íbúða. Hefði
félag íbúanna, Ásgarður, ósk-
að þess við húsnæðismálastjórn
að fá upphæðina lánaða samkv.
ákvæðum 4. kafla laganna um
húsnæðismál. Húnæðismála-
stjórn hefði orðið við þessu,
skrifað bæjarstjórn Reykjavík-
ur og boðið 12 þús. kr. við-
ibótarlán á hverja hinna 45 í-
búða.
Ingi kvað bæinn nú ekki
mega láta sinn hlut eftir liggja,
en lögin geri svo ráð fyrir að
jafnmikið komi frá bæ og ríki.
Ingi skýrði frá að raunveru-
leg útborgun í Gnoðav.húsunum
væri 141 þús. kr. Væru húsin
byggð samkvæmt lögum um
útrýmingu heilsuspillandi hús-
næðis en með svo hárri útborg-
væri hætta á að ýmsir þeirra
sem í slíku húsnæði búa yrðu
að hætta við að kaupa íbúð-
irnar og yrðu því jafnilla sett-
ir og áður, en ibúðirnar lentu
hjá mönnum er síður þyrftu
þeirra með, — nerna lán á í-
búðirnar væru hækkuð.
Framhald á 6. síðu.
. -..' < ■■■
FjiMylda sfendnr uppi siypp og
snauð sfiir mikinn bruna
í gærmorgun kom upp eldur í litlu húsi að Rauðarár-
stíg 23 og urðu þar miklar skemmdir. Einstæðingskona
og börn hennar þarfnast hjálpar bæjarbúa.
1 gærmprgun um kl. 9.20 var um
slökkviliðið kvatt að Rauðarár-
stíg 23, sem er litið hús og er
það kom á vettvang var kominn
upp mikill eldur og reykur. Á
rumum klukkutíma tókst
slökkviliðinu að ráða niðurlög-
Rannsókn lokið á ólögleg-
um veiðum í Fiskivötnum
Lögreglan hefur nú lokið rannsókn sinni á hinum ó-
löglegu veiðum í Fiskivötrum, sem Þjóðviljinn hefur áð-
ur skýrt frá, og mál um 40 manna hafa veriö send
dómsmálaráðuneytinu, sem tekur ákvörðun um frekari
aðgerðir.
Þarna var um að ræða tvo
starfshópa sem stunduðu skak
í Fiskivötnum án þess að hatfa
leyfi til þess. Skýrði rannsókn-
arlögreglan Þjóðviljanum svo
frá í gær að menn hefðu við-
urkennt veiðiskapinn og hver
um sig hefði tálið sig hafa veitt
5—25 fiska. Bað rannsóknar-
lögreglan Þjóðviljann að geta
þess að eftirleiðis yrðu veiðar
í Fiskivötnum teknar fastari
tökum, myndi sýslumaðurinn í
Rangárvallasýslu gera upptækt
afla og veiðarfæri, ef út af væri
forugðið og myndi ríkislögregl-
an verða honum til aðstoðar ef
á þyrfti að halda. Þessar veið-
ar eru algerlega bannaðar, og
er sérstök ástæða til að vekja
athygli fólks, sem fer í sum-
arleyfisferðir á þessar slóðir
á þessari staðreynd.
eldsins, en þá voru
skemmdir orðnar mjög miklar
á húsinu og innbúi fjölskyld-
unnar, sem í húsinu bjó.
I húsinu bjó einstæðings-
kona með börn sín og var allt
óvátryggt í eigu hennar og
standa þau uppi slypp og
snauð. Rauði krossinn kom
þegar til hjálpar til bráða-
birgða, en heitið er á fólk að
ieggja þessu fólki lið með
gjöfum, peninga eða fatnað,
eftir efnum og ástæðum.
Rauði kross Islands mun
veita gjöfum móttöku í dag
kl. 1—5 í Thorvaldsensstræti
Fúabryggjur Heykjavíkurhafnar
Það fer nú að verða lífs-
hættulegt að aka bílum með
þungu hlassi um bryggjurn-
ar hér í Reykjavíkurhöfnnni.
í gær var verið að landa
karfa úr togara, sem lá við
svokallaða togarabryggju,
sem liggur rétt við kolakran-
ann. Þessi stóri vöruflutn-
ingabíll á myndinni var bú-
inn að taka fullfermi af
karfa, er bryggjan brast und-
an vinstrj afturhjólum og sat ■
hann fastur í bryggjunni og
varð að moka öllu af honum.
Á að bíða með að gera við
bryggjurnar Þar til meirihátt-
ar slys hlýzt af?
7000 tunnur á land í gær
Siglufirði í gærkvöldi;
frá fréttaritara
Síðan á miðnætti í nótt hafa
20 skip fengið afla, samtals um
6.900 tunnur. Eftirtalin skip
höfðu yfir 300 tunnur; Auður
400, Trausti 400, Svanur KE
Eiipr sðnnanir fyrir íhlutun Samein
aða Arabalýðveldisins i Libanon
SkæSir bardagar eru háðir í landinu en samið
vopnahlé í Tripoli
Hammarskjöld framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna hefur sagt aö engar sannanir liggi fyrir um það
að kvörtun Líbanonstjórnar um stórfellda íhlutun af
hálfu Sameinaða Arabalýðveidisins í borgarastyrjöldinni
i Líbanon, sé á i’ökum reist.
7 merk gegn 1
1 gær kepptu Akurnesingar
og Valur í Islandsmótinu og
fóru leikar á þann veg að Ak-
urnesingar unnu með 7 mörk-
um gegn 1, eft;r fyrri hálfleik
stóðu leikar 6:0.
Hammarskjöld sagði þetta á
blaðamannafundi í New York
í gær. Hann sagði einnig að
það væri komið undir niður-
stöðu eftirlitsliðs Sameinuðu
þjóðanna í Líbanon, hvort á-
stæða þætti til að kalla Ör-
yggisráðið aftur saman til
fundar.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í Beirut skýrði frá því í
gær að foringi stjórnarhersins
í Líbanon hafi tekið tilboði
Lýsa yfir ánægju með út
víkkmi laiidhelginnar
Siglufirði í gær. Frá fréttaritara.
-
Eftirfarandi ályktun. var gerð á fundi í Verlcamanná-
félaginu Þrótti í gærkvöldi: „Fundur í Vehkamannafé-
laginu Þrótti haldinn 2. júlí 1958 lýsir ánægju sinni
yfir útgefinni reglugerð um stækkun fiskveiðilögsög-
unnar og treystir því að framkvæmd hennar verði fylgt
ifram af festu og engin erlend áhrif nái að hafa áhrif á
endanlega lausn má!sins“.
uppreisnarmanna um vopnahlé
hafnarborginni Tripoli, en
stjórnarherinn haíði þá tvo
þriðju hluta borgarinnar á
sínu valdi. Harðir bardagar
voru í borginni í gærmorgun.
Yfirhershöfðingi stjórnarhersins
í Tripoli segir að stjórnarher-
inn hafi beitt stórskotaliði
gegn uppreisnarmönnum, sem
höfðust við í kastala borgar-
innar. Var skotið á kastalann
Framhald á 5. síðu
500, Keilir 300, Ásgeir 50Ö,
Svanur AK 300, Hrafn Svein-
bjarnarson 450, Snæfell 300,
Faxaborg 500, Sæljón 300, Víðir
II. 800, Búðarfell 300, Hafþór
400, Arnfirðingur 500.
Tvö ,af þessum skipum, Ásgeir
og Svanur fengu aflann siðdegis
í dag en hin skipin fengu haun
í nótt og í morgun.
Síldin á Grímseyjarsundi er
enn að fitna og er með meðal-
fitumagn um 18,5%. Enn er kol-
svarta þoka á miðunum, en logn
og sléttur sjór. Flotinn er nú
dreifðari en áður. Allmörg skip
eru komin vestur á Stranda-
grunn. Talsvert var saltað hér í
nótt og í dag, sennilega um 3—
4000 tunnur.
Heildarsöltun á Norðurlandi
var á miðnætti s.l. 80.020 tunnur
og skiptist þannig á söltunar-
staðina: Dalvík 8500, Hjalteyri
1111, Hrísey 1280, Húsavík 6023,
Ólafsfjörður 5062, Siglufjörður
56.604, Skagaströnd 249, Bol-
ungavík 644 og Súgandafjörður
547.
Ný ákvæði um hámaskskraða cg aðalhrauiarréit
35 krn hámarkshraði iimaiihæjar nema
45 km á 5 götum og 60 á hhita af götu
Bæjarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær tillögur um-
feröarnefndar um breytingar á 46. gr. lögreglusamþykkt-
arinnar, hámarkshraða, aöalbrautarrétt o.fl.
Nauðsynlegt er fyrir alla veg- ustu varkárni, þegar skuggsýnt
farendur að kynna sér ræki-
lega þessi nýju ákvæði og eru
því samþykktir þessar birtar.
sem heild, , «
„Ökuliraða bifreiða skal á-
vallti niiða við gefð og ástand
ökutækisins, staðhætti, færð,
veður og umferð og haga
þannig, að aksturinn valdi
ekki hættu eða óþægindum
fyrir aðra vegfarendur né
gerir þeini óþarfa tálmanir.
Sérstök skylda hvílir á öku-
manni að aka hægt og sýrta ýtr-
er, skyggni lélegt eða útsýn er
takmörkuð að öðru leyti, í beygj-
um, við vegamót, við biðstöðv-
ar almenningsvagna, þar sem
mikil umferð er eða börn eru á
eða við veg eða gera má ráð fyr-
ir, að börn séu að leik, hálka er
á vegi eða önnur hætta. Þegar
bleyta er á vegum, skal aka
þannig, að ekki slettist á aðra
vegfarendur né hús.
Á svæðinu vestan Elliðaánna
má eigi aka hraðar en 35 km á
klukkustund, enda séu umferð-
O
arskilyrði góð. Austan Elliðaáa
má með sama skilorði aka allt
að 45 km hraða á klukkustund.
Bæjarstjórn er þó heimilt að á-
kveða annan hámarkshraða á
einstökum vegum.“
Ennfremur samþykkti bæjar-
stjóm að hámarkshraðf verði á
eftirtöldum vegum sem -hér seg-
ir: . .
A. 45 km á klukkustund:
1. Hringbraut frá Miklatorgi
að Melatorgi.
2. Reykjanesbraut frá Mikla-
torgi að takmörkum lögsagnar-
umdæmisins.
Framhald á 11. síðu.