Þjóðviljinn - 12.09.1958, Síða 10
10)
ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 12. september 1958 —
Uppkastið 1908
„liivtinn er þjófur^
Framhald af 7. síðu.
árin, eins og höfundur (þ.e.
Jón Jensson) segir, þá var ekk-
ert hægara en að fá íslenzka
ríkið friðtryggt og heita s.iálfir
að hjálpa oss til að verja hlut-
leysi vort ..... margir ágæt-
ustu menn þjóðanna munu
bæði skilja það og meta, að
vér viljum ekki eiga vopn og
ekki sjá þau....“
Þeir sem ritað hafa um kosn-
ingahríðina 1908 eða muna
hana af eigin raun telja, að
ekki hafi öðru sinni verið harð-
ar barizt í kosningum hér á
landi. Ari Jónsson iýsir henni
í Minningum sínum sem ,.heift-
• arlegum átökum um ísland
allt“. Einna aðsópsmestir á-
róðurs- og fundamenn Upp-
kastsandslæðinga voru þeir
Bjarni frá Vogi og Bjöm Jóns-
son ritstjóri. Jón Jensson sagði
um framgöngu Bjarna, að
hvarvetna sæi reykinn upp af
þar sem hann færi og lysti
eldi í byggðirnar. Og það mun
hafa verið í þessari orrahrið
sem Björn Jónsson mæiti þau
fleygu orð, að hann þyrfti ekki
að sofa nema stutt af því hann
svæfi svo hratt. „Aldrei hefur
slíkt fjör verið á íslandi sem
sumarið 1908. Aldrei barizt
svo snarplega landshornanna í
milli um æðstu mál þjóðarinn-
ar“, segir Benedikt Sveinsson
í eftirmælunum um Bjarna frá
Vogi.
Það gat ekki farið hjá því að
fólkinu, hinum óbreytta kjós-
andi, hitnaði í hamsi. þegar
stjórnmálamennirnir kyntu svo
rösklega undir. Gísli Helgason
bóndi í Skógargerði segir mér
í bréfi, rituðu af öðru tilefni,
að þegar Jón ólafsson ritstjóri,
einn helzti má.'svari Uppkasts-
ins, hefði lokið máli sínu á
fundinum við Lagarfljótsbrú
hafi drjúgur hluti fundarmanna
svarað honum með því að
kyrja íslendingabrag yfir
hausamótunum á honum: En
þeir fólar, sem frelsi vort
svíkja. En Þórbergur Þórðar-
son hefur lýst því eftirminni-
legast, þó með vísvituðum öfg-
um sé, hvernig átökin um
„mii;ilandafrumvarpið“ orkuðu
á ungu kynslóðina 1908. Hann
lýsir því í fyrra bindi Ofvit-
ans hvernig „það var allt ann-
ar söngur í heimastjórnarhúsi
én sjálfstæðishúsi. Og sjálf-
stæðisgatan kvað við annan
tón en heimastjórnargatan“.
Ve-rst allra gatna í Reykjavík
var Tjarnargatan, þar sem þeir
bjuggu Lárus H. Bjarnason,
„ógurleg innlimunarbulla", og
Hannes Hafstein „innlimunar-
ráðherra", „sjálfur foringi
lalidrgðalýðsinst'. En: „Aust-
urstræti var gott stræti, því
að þar bjó Björn Jónsson rit-
stjóri Isafoldar, og þar var líka
Hannes Þorsteinsson ritstjóri
Þjóðólfs. Þeir voru báðir á
móti milliiandafrumvarpinu ....
Einna göfugast fannst mér þó
Vonarstræti. Þar bjó Skúli
Thoroddsen, sem fyrstur allra
reis gegn millilandafrumvarp-
inu. Hann þótti mér mestur
maður á öliu íslandi. Mér var
lika einkennjlega vel við norð-
urhornið á Aðalstræti og
Kirkjustræti, eftir að ég sá
þar Magnús Arnbjarnarson
lögspeking einu sinni á gangi
með dr. Jóni Þorkeissyni. Þeir
voru áreiðanlega að tala sam-
an á móti millilandafrumvarp-
inu“.
Svo rann kjördagurinn upp
og leið hjá, og senn tóku kosn-
ingafréttir, að berast. Lárus H.
Bjarnason féll á grúfu á Snæ-
fellsnesi fyrjr forseta Þing-
vallafundarins 1907: séra Sig-
urði Gunnarssyni í Stykkis-
hólmi. Benedikt Sveinsson
flaug inn í Norðurþingeyjar-
sýslu. Stefán Stefánsson dúndr-
aði í Skagafirði. Björn Jónsson
sigraði á Barðaströnd eftir 30
ára fjarvistir úr þingsalnum.
Guðlaugur Guðmundsson þing-
flokksformaður Heimastjórnar-
manna steyptist kollhnís í
Austurskaftafellssýslu. Skúli
Thoroddsen varð sjálfkjörinn í
Isafjarðarsýslu. Jón Jensson
kafnaði í reyknum af eldi
Bjarna frá Vogi í Dölum vest-
ur. Og þegar búið var að
leggja saman og draga frá, þá
höfðu 25 Sjáifstæðismenn náð
kosningu, en einir níu Heima-
stjórnarmenn. Það hafði engan
dreymt slíkan sigur. En —
ekki er sopið kálið þó í aus-
una sé komið, sagði Grettir;
og máttu Sjálfstæðismenn bráð-
lega reyna sannleik þeirra orða.
En það er önnur saga:
„íslenzkara og festumeira
nei hefur aldrei hljómað yfir
þessu landi heldur en nú hef-
ur gert hið nýja svar vbrt til
Dana“, sagði Björn Jónsson í
ísafold 23. september. „ Og
fyrir sjónum vorum hefur birt
sfórkostlega til í íslenzku þjóðlífi'
við það svar“. „Þetta sumar
hefur sýnt að þjóðin sjálf er
fylgin sér og órög ....“, sagði
Þorsteinn Erlingsson í bréfi til
Sigurðar Guðmundssonar skóla-
meistara síðar um haustið. „Á
þessu hefur hún þó lumað, og
gæti vel orðið eign ef gæfa
fylgir“.
Auglýsið
í Þjóðviljanum
Framhald af 3. síðu.
framferði hans nú. Hvernig
stóð á því að brezkir togarar
sigldu niður íslenzka báta bæði
fyrir austan og vestan meðan
þeir voru sem reiðastir út af
stækkuninni í 4 mílur, en
þetta gerðist ekki, hvorki und-
an né eftir?
Semjum ekki um það
sem við eigum
Hvernig finnst þér hafa ver-
ið haldið á landhelgismálinu?
— Vel. Það hefði orðið ægi-
legt ástand ef íslenzka ríkjs-
stjórnin hefði hagað sér eins
og Danir og farið að spyrja
Breta hvort við mættum koma
og hefja við þá samninga!
— Þú telur okkur ekki þurfa
samninga?
— Nei, það átti aldreí að
semja neitt við Breta um land-
helgina, og á aldrei að gera.
Við þurfum ekki að semja við
þá um það sem við eigum.
Ekki einn einasti Norðfirð-
ingur hefði viljað ganga inná
að semja við Breta um viður-
kenningu á 12 mílum gegn for-
réttindum fyrir Breta innan is-
lenzkrar1 landhelgi.
Afstaða okkar Norðfirðinga
í landhelgismálinu kom bezt
fram í því, að þegar þurfti að
kalla menn á varðskipin í stað
hinna herteknu buðu sig hér
fram þrisvar sinnum fleiri
menn en varðskipið þurfti.
Dómar yfir landhelgis-
brjótum
— Dómum yfir landhelgis-
brjótum þarf að breyta þann-
ig, segir Hörður ennfremur, að
þegar þeir áfrýja til hæsta-
réttar séu þeir látnir bíða þar
til dómur er fallinn, í stað
þess að sleppa þeim strax út
til að brjóta landhelgina á
ný! Er ekki glæpamaður sem
áfrýjar til hæstaréttar geymd-
ur í gæzlu þar til dómur er
fallinn? Hversvegna á þá að
sleppa landhelgisbrjótum?
Ekkert annað
— Hvað viltu gera fyrir
brezka togara sem leita lands?
— Þeir eiga enga þjónustu
að fá — aðra en þá sem frá
aldaöðli hefur verið siður að
veita á íslandi, þ.e. veita þeim
læknishjálp og bjarga þeim úr
sjónum. En meðan Bretar
halda fast við að brjóta land-
helgina gétum við enga aðra
þjónustu veilt þeim.
Að toga á herskipum?
— Hvernig heldurðu að veið-
ar undir herskipavernd tak-
ist?
—• Brezku togararnir hafa
margir verið slíkir koppar að
þeir hafa ekki getað siglt heim
einu sinni án hjálpar Islend-
inga, án viðgerða og annars.
Og þeir geta hvergi fiskað
neitt að gagni í hnapp undir
herskipavernd.
— En ef þeir fjölga herskip-
unum hafa t.d. eitt til að gæta
hvers togara!?
— Þú hlýtur að eiga við að
toga á herskipum! Nei, það
lukkast ekki!
Gamlir kunningjar
Loks hittum við Ragnar Sig-
urðsson hafnarstjóra niðri á
bryggju. Hann er ungur maður,
en hefur þó verð togaramaður
alllengi.
— Hvað segir þú um fram-
ferði Bretanna?
— Togararnir þrír sem fyrst
komu við sögu hér úti á fló-
anum munu allt vera gamlir
kunningjar okkar hér. King-
stone Ruby hefur tekið hér vatn
og komið með veika menn. Það
var hann sem herskipð neitaði
um að fara hingað inn með
veikan mann.
Þá er Northern Pride ekki ó-
kunnur okkur. Hann var tek-
inn út af Glettingi fyrr í sum-
ar og 20. ágúst var hann síð-
ast hér inni og fékk þá sekt
fyrir ólöglegan veiðarfæraút-
búnað,
Hljótum að vinna þetfír
— Hvernig heldurðu að Bret-
Framhald af 12. síðu.
að forsenda þess að viðræður
Dana og Breta beri árangur
virðist þó vera að „Islendingar
slaki á sínum kröfum, sem
færeyska Lögþingið liefur gert
að sínum, en ekkert bendir til
þess að þeir muni gera það“.
Information segir að vegna
þessarar afstöðu íslendinga eé
lausn málsins enn í óvissu, en
hins vegar geti ýmislegt skeð,
þegar samningaumleitanir séu
hafnar á annað borð.
„Til að sýna sáttfýsi“
Fréttritari Svenska Dagblad-
et í London telur óvíst að
nokkur árangur verði af við-
ræðum Dana og Breta meðan
engin lausn hefur fundizt á
deilunni við ísland. Blaðið bæt-
ir við:
„Það getur þó verið að Bret-
ar muni reyna að knýja fram
samkomulag við Dani í því
skyni að sýna vilja sinn til
samkomulags og málamiðlunar
og fá þannig sterkari áróðurs-
tromp í hendur í viðureigninni
^dð Islendinga“.
Fréttaritarinn segir að slíkt
samkomulag geti verið um sex
mílna landhelgi og sérstök á-
kvæði um veiði milli sex og
tólf mílna (þ.e. bandarísku til-
löguna frá Genf), en minnir
réttilega á að erfitt sé fyrir
um takist veiðar undir her-
skipavernd?
— Þær eru óframkvæman-
legar. Skipin sjálf, einkum þau
sem hér hafa verið eru þannig
útbúin að það þarf að breyta
þeim mikið til þess að þau geti
legið úti í vondum veðrum, og
mannskapurinn á þeim er oft
samanskrap.
Oft hafa þeir verið svo illa
settir með vatn að þeir hafa
orðið að. koma hingað inn til
að fá vatn eftir aðeins 2ja til
3ja daga veiðar.
Megi þeir ekki koma inn
fyrir — segjum þriggja mílna
landhelgina — til þess að
vinna að viðgerðum, þá koma
oft langir kaflar sem ekki er
unnt að komast á milli skipa
og algerlega vonlaust að ætla
að gera við fyrir utan þriggja
mílna landhelgina.
Eigi að hugsa um eitt-
hvert gagn af fiskveiðum þá
er þessí'áðfefð' Bretanna al-
gerlega vonlaus. Við hljót-
um því að vinna þetta mál,
— það er ekki hægt að
sunda fiskveiðar undir
svona kringumstæðum. Eeiti
Bretar hafnar eigum við
ekkert að gera fyrir þá
nema það sem mannúðar-
skylda býður, þ.e. að takæ
við veikum mönnum.
Dani að virða að vettugi við-
brögð þau sem verða myndu
í Færeyjum við slíkum svik-
um.
>
„Riddaraskapur" Breta
Þær vonir sem Bretar gera
sér um Dani koma glöggt fram
í skrifum brezka íhaldsblaðsins
Daily Express. Það segir að
Bretar hafi sýnt ,,riddaraskap:‘
þegar þeir féllust á að ræða
við Dani um landheigi Færey-
inga, en þeir geri sér um leið
vonir um að með því verði
hægt að sannfæra íslendinga
um að þeir komi engu til leið-
ar með þrjózku sinni.
„Ætlunin er“, segir blaðið,
„að sýna þá drenglund að
semja við Dani um þá skilmála
sem Islendingar höfnuðu; ann-
aðhvort sex tnílna landlielgi eða
hámarksveiði“.
Viðræður Dana og Breta
eiga að hefjast í London í dag
og verða Viggo Kampmann,
fjármálaráðherra Dana, og
John Hare, fiskimálaráðherra
Breta, fyrir samninganefndun-
um.
Isátar með
tnsiniti*
Tíu reknetabátar komu til
Hafnarfjarðar í gær með sam-
tals um 400 tunnur .síldar.
J. B.
<?>-------------------------------------------------
Ætla að nota Dani
Rýmingarsalan heldur áfram
Tökum fram í dag eftirstöðvar af #
herraskóm VerzJtmm
Verð frá kr, 150.00 til 200.00 Garðastræti 6.