Þjóðviljinn - 12.09.1958, Qupperneq 11
Föstudagur 12. september 1958 — ÞJQÐVILJINN — (11
51
Hans Scherfig
Fulltrúmn sem hvarf
nauöþurftir sínar á hvítu, nýmáluðu garðmublurnar
hans Hageholms. Það er bæði stórt og smátt og því-
líkt og annað eins svínarí hefur aldrei sézt! Auðvitaö er
þetta kært, en lögreglan getur ekkert gert nema fá á-
þreifanlegar sannanir. — En þetta gengur nú of langt,
— segir lögregluþjónninn.
Tvisvar í viku ekur Martin Hageholm til litla kirkju-
garðsins, þar sem kona hans og dóttir eru grafnar. Og
þar er sýslað og dútlað og skeljasandi stráð á. Og
málmfestarnar eru fægðar með klút.
Jóhanna er alltaf með. Og enginn veit hvað hún er
að hugsa þegar hún lagar leiði frú Hagehoim. Hún
segir ekki neitt, en varir hennar eru á hreyfingu og
litlu augun flökta.
Tengdasonur Hageholms er kvæntur aftur. Og það
gerist tæpu ári eftir lát kærustunnar. Þannig er hann
og þetta virðist ekki hafa haft meiri áhrif á hann en
svo. Og svo. kemur hann samt sem áður öðru hverju
og leg'gur blóm á leiðið.
En það þolir Hageholm ekki. Hann tekur blóm tengda-
sonarins og fleygir þeim langt í burtu. —r Þau voru
visin! — segir hann þegar tengdasonurinn kvartar. —
Og svo áttu nú nýja konu. Hún hlýtur að vera nóg
fyrir þig. —
Það upphefjast mikiar deilur milli mannanna tveggja.
— Þetta er mín gröf! — segir Hageholm. — Eg
keypti hána og borgaði hana fyrir konuna mína. Og
ég er búinn að gera hana upp og hef kostað upp á
hana graníts girðingu með málmfestum. —
— En þetta er mitt lík! segir tengdasonurinn. Og
ef á að hindra hann í aö leggja blóm á gröfina, getur
hann látið grafa líkið upp og flytja það í aðra gröf.
En Hageholm hefur tromp á hendinni. Dóttir hans dó
úr stífkrampa. Og hver veit nema hún smiti ennþá?
Það er altalaö að þessar bakteríur lifi í níu ár.
Og Hageholm hringir til héraðslæknisins og spyrst
fyrir um, hvort hægt sé að leyfa að líkið sé grafið upp,
þegar banameinið hafi verið stífkrampi og hugsanlegt
er að það smiti ennþá?
Það finnst héraöslækninum ekki. — Nei, látið það^
liggja kyrrt. Til hvers væri að grafa þaö upp? —
Hageholm hefur sigrað.
Herbert Johnson er friðsamur maöur. Og hann um-
gengst enga. Engin hætta er á að hann lendi í brösum
við neinn. En hann fréttir um það sem gerist.
Húsbóndi hans hefur líka sín vandamál .Jens Jen-
sen er alvarlegur og skyldurækinn maður. En hann
verður líka fyrir árásum og andspyrnu. Nú héldu allir
að Andi'és sæti vel geymdur á vinnuhælinu og hefði
ekki tækifæri til að nöldra meira.
En Andrés hefur líþa orðið vorsins var og hann
langar. til að sleppa út. Hann veit að maður sem
hefur framið glæp á rétt á því að mál hans komi fyrir
dómstólana. Hann fær verjanda og hægt er að áfrýja
dómnum til æðri dómstóla. Allt fer fram opinberlega
og undir eftirliti.
En Andres er ekki glæpamaður. Hann hefur bara
neitað að höggva grjót hreppsins, vegna þess að hon-
um fannst það of illa borgað. Og nú er hann lokaður
inni um óákveðinn tíma.
Hið eina sem hann getur gert er að skrifa sýslu-
nefndinni og reýna að verja málstað sinn. Andrés
er enginn rithöfundur, en hann kemur þó saman
bréfi. Og fulltrúinn á sýsluskrifstofunni sem fær bréfið
í hendur, sendir það áfram til Jens Jensens ásamt
fyrirspurn.
Vár elskede ambassadör
TORGEIR ANDERSSEN-RYSST
döde i Reykjavik 8. september og ble kremert i
stillhet i dag.
Reykjavik, 10. september 1958.
Ruth Auderssen-lRysst,
Riinuveig, Torunn.
Og nú er \-öðin komin að Jens Jensen að setjast viö
skriftir. Hann er enginn pennamaður heldur, og hann
fyllist reiði í garð þessa Andrésar, sem ge.tur aldrei
séð hann í friði. Það tekur sinn tíma áð köma saman
bréfi, en úr því má lesa aö Andrés í Mýiá sé vinnu-
fælinn og drykkfelldur náungi sem geti ekki séð fyrir
fjölskyldu. Og fulltrúinn á sýsluskrifstofunni stafar sig
gegnum bréfið og kemst að raun um að Andrés hefur
ekki verið órétti beittur.
Og nú getur Andrés reynt aftur aö skrifa félags-
málaráöuneytinu. En hcnum væri nær að búa í hag-
inn fyrir sig hjá forstjóra vinnuhælisins sem ræður
því, hvenær honum verður sleppt lausum.
Hiö illa skap Jens Jensens bitnar einnig á leigianda
hans. Það kemur í ljós aö veggfóðrið er rispað. Og
slíkt verður aö bæta. Og hvað snertir lökkun á gólf-
unum, þá er það leigjandans að sjá um hana. Og
herra Johnson hefur nú stikað svo mikið fram og
aftur um gólfið, að það er oröið slitið. En Jens Jensen
líður það ekki að verðgildi íbúðarinnar rýrni. Og nú
veröur að kippa þessu í lag með lökkunina, ef herra
H. Johnson vill fá að búa þarna áfram. Nú er sumarið
framundan' og margir um boöið!
Og Jens Jensen ætlar ekki að skinta sér af því
hvernig hann fer að því að lakka gólfið. En hann er
stór og sterkur og ætti að geta lakkað gólf. Annars
er svo sem hægt að fá verkamenn. Og svo getur
líka verið að Karen fáist til að taka að sér lökkunina
gegn smáþcknun.
Og það verður úr. Og rifan í veggfóörinu er líka
límd. Herbert Johnson fær að vera þarna um kyrrt og
halda áfram að lifa nýju lífi.
XLI
Leigjandi Jens Jensens er allt í einu farinn að fást
við dularfullar og kynlegar sýslanir.
Fólk fylgist af forvitni með atferli hans og revnir
að ímynda sér hvað ameríkaninn hafi í hysgju. Allan
veturinn hefur hann ekki gert handarvik. Hann hefur
slæpzt á hinn fyrirlitlegasta hátt. En nú er hann
allt í einu orðinn gagntekinn af athafnaþrá.
Hann kemur heim frá kaupmanninum meö stóra
pakka. Og hann tekur þá upp þýðingarmikill á svip.
Það eru stór niðursuðuglös sem hann setur í glugga-
kistuna. Bæði Jens Jensen og Karen virða fyrir sér
aðfarir hans með mikilli undrun.
Ðálítil bókahilla
Það er auðvelt að finna
handbækur og aðrar slíkar
bækur þegar þeim er komið
fyrir í dálítilli bókagrinjl á
vinnuborðinu. Og stærri skóla-
böm kunna llka að meta svona
grind. Oft þarf daglega að
skipta um skólabækur í tösk-
unni. Og sé svona bókagrind á
skrifborðinu er hægðarlei'kur
að hafa yfirlit yfir þær og
hafa þær í röð og reglu.
Smíði á þessari snotru grind
er ekki sérlega vandasöm og
fyrir handlagið fólk er hún
ekki annað en skemmtileg
dægrastytting.
Herkostnaður
Framhald af 6. síðu
Frank Chapman, fiskkaup-
maður í Grimsby, segist búast
við því að fiskverðið sem neyt-
endur í Bretlandi verða að
greiða hækki um fjórðung
vegna hernaðaraðgerða togara-
eigenda gegn Islendingum.
Brunabótafélagið
Framhald af 2. síðu.
un húsnæðisins, en með honum
hafa unnið þeir Jónas Sól-
mundsson húsgagnameistari,
Sighvatur Bjarnason málara-
meistari, Siguroddur Magnús-
son rafvirkjaméistari, Sig-
hvatur Einarsson pípulagninga-
meistari og Ólafur Ólafsson
veggfóðrari. Er húsnæðið allt
hið vistlegasta.
Brunabótafélagið annaðist
eing' ngu brunatryggingar fram
til ársins 1955, en hefur nú
fært út starfssvið sitt til ým-
issa annarra tryggingagreina
og hyggst í framtíðinni veita
félags- og viðskiptamönnum
sínum eem allra víðtækasta
þjónustu og fyrirgreiðslu.
Fram' -væmdast jórn Bruna-
bótafélaf sins, sem er kosin af
fulltrúaráði þess, en í því eiga
sæti fulltrúar ahra sýslufélaga
landsins og kaur't.aða, nema
Revkjavíkur, skipa þessir
menn: Jón G. Sólnes banka-
fulltrúi Akureyri form., Emil
Jónsson bankastjóri Hafnar-
firði varaform., og Jón Stein-
grímsson sýslumaður B.orgar-
nesi ritari. Forstjóri er Ásgeir
Ólafsson.
Maríimis
Framh. af 9. síðu
reyndar svo mikið, að hann
hefur ekki trú á að mannlegar
verur komi nokkru sinni lif-
andi aftur úr ferðum til ann-
arra stjarna.
I því og ýmsu öðru kynni
honum nú að skjátlast. En
það mun ekki hagga þeim
fornu meginsannindum sem
honum eru hugleiknust. Þau
hafa sett mark' sitt á heillandi
rvorsó-mleika þessa aldurlausa
öldungs. Og hví skyldu ekki
n™ og mannvísindi framtíð-
arinnar mótast af þeim ?
Þ. V.
SVJ$!sIl Isisadar
3311 1-esium
Togaiinn Röðull landaði á
miðvikudaginn os i gæ,r 338 lest-
um af karfa í Hafarfirði.
Formamii Rauða
krossins afhent
heiðursmerki
Hinn 10. september á fundi
framkvæmdaráðs Rauða kross
Islands færði aðalræðismaður
Austurríkis á íslandi, Júlíus
Schopha, formanni Rauða kross
íslands æðsta heiðursmerki
austurríska Rauða krossins í
gmlli sem þakklætisvott til
Rauða kross Islands frá aust-
ui'rísku þjóðinni og Rauöa
krossi Austurrikis fyrir auð-
sýnda hjálp til ungverskra
flóttamanna. — (Frá Rauða
Krossi ísiands).