Þjóðviljinn - 01.10.1958, Síða 11
Miðvikudagur 1. október 1958
ÞJÖÐVILJINN — (H
H a n s S c h e r f i g :
Fulltrúmn sem hvarf
gott að lögreglan hefur haft sínar grunsemdir og
kenningar, sem hún féll nauðug frá, og lítur nú
serinilega á staðfestingu þeirra sem uppreisn æru. Og
það er gott að hann er með þungan hamar í frakkan-
um sínum. Sérstakan harnar sem engu venjulegu fólki
dytti í hug að kaupa. Það er gott að hann getur líka
játaö að hann hafi haft í hyggju að myröa Ohmfelt
sknfstofustjóra. — Og hvers vegna gerði hann það
ekki? — — Hverju á hann að svara til? — Hann
getur reyndar sagt. að íbúð skrifstofustjórans hafi
verið morandi í vopnum. Að ekki hafi verið unnt að
fiamkvæma áætlun sína, þar sem maðurinn var svo
mjög vel vopnaður!
Þá hefur heimsóknin til skrifstofustjórans ef til vill
ekki verið til einskis!
Og nú veröur að skipuleggja hugsanirnar. Nú verður
að undirbúa allt.
Það er mikið sem stendur til. Það er yfirheyrsla og
réttarhöld og rannsókn á andlegri heilbrigði og dóm-
úrskurður.
Þetta verður mesta og hættulegasta prófið á ævi
hans. En hann mun standast það eins og hann hefm
staðizt öll hin.
Um kvöldið gefur Teódór Amsted sig fram á lög-
reglustöðinni. Hann er fölur af taugaóstyrk. Hann
gefur sig fram til lokaprófs.
Og í yfirheyrslu að næturlagi játar hann á sig
hræðilegan glæp.
LII
Frú Amsted siglir yfir haf.
Því hafði verið spáð fyrir henni. Og nú rætist það.
Og það er nú undarlegt þrátt fyrir allt.
Hún er á leið til Árósa. Þar á hún ókvæntan bróður
sem er eldri en hún og hún á að verða ráðskona hjá.
Hann er lektor við ríkisskólann. Reglusamur og skyldu-
rækinn maöur, sem í meira en 30 ár hefur útskýrt
fyrir uppvaxandi kynslóðum mismuninn á laust og
íast samsettum sögnum í þýzkri málfræði.
Hann býr í einbýlishúsi í útjaðri bæjarins. Gömlu
húsi með bogagluggum og dálitlum garði fynr framan
með rósum og smásteinum.
Og í stofunum hans standa gömlu húsgögnin frá
æskuheimili þeirra. Frú Amsted hlakkar til að sjá þau
aftur. Gamla heimilið með öllum minningunum. Og
litla skattholið og empire-speglana tvo og gömlu klukk-
una og allt hitt.
Það er búið að leysa upp heimilið í Herlufs Trolles-
götu. Það er búiö aö selja húsgögnin og dreifa þeim
viðsvegar. Frú Amsted hefur aðeins tekið það sem hún
þurfti nauösvnlega til að útbúa herbergið sem hún á aö
Það er búiö aö taka myndina af Teódór Amsted úr
ieðurrarqmanum. En rammann hefur hún með sér. Ef
til vill er hæg-t að nota hann seinna.
Hún er svartklædd. Hún er meiri ekkja en nokkru
sinni fyrr. Hún er tvöföld ekkja ef svo mætti segja.
Hún er gersamlega búin að missa manninn sinn. Ekki
einu sinni sál hans getur hún lengur stjórnað. Það em
önnur öfl sem ráða yfir honum núna.
Hún ætlar að reyna að gleyma að hann hafi verið
til. Hún ætlar að reyna að hlífa Leifi við þeirri smán og
vanheiðri sem yfii þau hefur gengið. Hún og Leifur ætla
að taka upp annað nafn. Þau geta ekki borið sama
nafn og morðingi og tukthúslimur. Þau ætla að lifa
sínu kyrrláta lífi í ókunnri borg þar sem enginn þekk-
ir þau.
Hún hefur gert upp sakirnar \nð fortíðina. Það er
búið að selja húsgögnin. En í Árósum bíða hennar önn-
ur húsgögn sem hún getur verndað og nostrað við.
Blessuð gömlu æskuheimibshúsgögnin.
Hún siglir yfir haf. En það er ékki ferðalag út í
óvissu. Árósaskipið flytur hana aö vissu leyti heim.
Og Leifur fær nýtt heimili. Það hefði ekki verið fjár-
hagslega kleift að hata hann í heimavistarskólanum
Stefán íslandi.
r • •
oper
usonovari
efnir til söngskemmtunar i Gamla bíói, fimmtudag-
inn 2. október klukkan 19,15.
Undirleik annast Fritz Weisshappel.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar
Ejnnundssonar.
Félag íslenzkra
c? •
KJÖR FLLLTRI A OG VARAFULLTRÚA Á 26.
ÞING ALÞÝÐÚSAMBANDS ISLANDS
Tillögum um einn fulltrúa og einn til vara ásamt
skriflegum meðmælum 1/10 bluta fullgildra félags-
manna skal skilað til formanns félagsins Framnes-
veg 28 eða pósthólf 1338, Reykjavík fyrir kl. 7 e.h.
fimmtudaginn 2. okt. n.k. og er þá framboðsfrestur
útrunninn — Kjörstjórn.
Frá matsveina- og veitinga-
þjónaskólanum
Matsveina- og veitingaþjónaskólinn verður settur
föstudaginn 3. október klukkan 3 síðdegis.
Skólastjórinn.
Trúlofunarhrtngir,
Steinhrtngir. Hálsmen,
14 og 18 kt. gull
í lÍCTGi’r leiSÍD
HöfuÖbúnaSur handa
smáfe! pum
Þegar kólna tekur í veðri,
verða börnin að setja upp höf-
uðföt. Trúlega verður „strokk-
urinn“ einnig vinsæll í ár,
enda er hann bæði hlýr og fer
telpunum ágætlega.
En telpum þykir líka alltaf
fengur í að fá nýjan höfuð-
klút og ef þið getið um leið
kennt þeim að binda hann á
sig á skemmtilegan hátt, er
það öldungis víst að hann verð-
ur notaður sem liöfuðbúnaður.
1 ldútinn á myndinni þarf
stykki af mynstruðu eða köfl-
óttu efni, 70x70 sm á hvern
veg. Þið byrjið á að falda brún-
irnar. í miðjan klútinn klippið
þið síðan gat fyrir höfuðið.
Varpið brúniraar svo að þær
trosni ekki. Saumið síðan fald
til að draga teygju í gegnum
svo að opið verði mátulegt
fyrir andlitið (Sjá teikning-j
una). Klúturinn er nú tilbúinn
og á teikningunni má sjá
hvemig hægt er að binda hann
á þrjá mismunandi vegu.
Á einni teikningunni eru.
aftari hornin bundin að fram-
an og hornin sem vita fram
bundin að aftan.
Á næstu teikningu eru horn-
in að framan látin hanga laus
en hornin að aftan eru bundin
saman í litla slaufu að fram-
an.
Á þriðju teikningunni er
klúturinn settur á höfuðið aft-
anfrá eins og kappi, þannig að
hornin fjögur hanga laxis nið-
ur. Svo er stykkinu sem hangir
framfyrir andlitið smiið við og
hornin fjögur síðan bundin
saman í fallega slaufu uppi á
hvirflinum.
En vilji maður ekki hafa
klútinn á höfðinu, má draga
liann niður fyrir höfuðið og
nota hann eem sjal, þannig að
hora sé að framan og aftan
og sitt á hvorai öxl.
SMFAUTC.CRB RiKtSlfnSj
E s ja
vestur um land í hringferS
hinn 5. þ.m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna
vestan Akureyrar í dag. Far-
seðlar seldir á föstudag.
fer frá Reykjavík 6. okt. til
Færeyja og Kaupmannahafnar.
Tilkynningar um flutning ósh-
ast sem fyrst.
Skipaafgreiðsla JES ZIMSEN
Sími 13025.
Saumanámskeið
hefst í Mávahlíð 40, mánu-
daginn 6. október.
Biynhildur lngvarsdóttirð
Framhald aí 7. síðu.
lesta af*stáli á ári. Nokkrir
þessara ofna munu komast
í gagnið þegar á þessu ári.
Þessar framkvæmdir gera
fært að framleiða milljós
lestir af járni og stáli í smá-
um málmiðjuverum á þessu
ári, fjórum sinnum meira
magn en í fyrra.
Með sameinuðu framtaki
ríkisstjórnarinnar, fylkis-
stjórnanna og bæjar- og
sveitastjórna, þar sem hver
aðili sníður sér stakk eftir
vexti, á að tryggja að allir
möguleikar til að auka fram-
leiðslu málmiðnaðaranis verði
hagnýttir. Sama máli gegnir
um aðrar iðngreinar. Rikið
reisir stóriðjuverin en aðrir
aðilar smærri verksmiðjur og
verkstæði, allt eftir því hver
kostur er á vinnuafli og hrá-
efnum á hverjum stað. Þessi
iðnfyrirtæki leggja þeim sem
jörðina erja til verkfæri og
vélar, við það losnar fólk
frá landbúnaðarstörfum og
þá eru tök á að fjölga enn
iðnfyrirtækjunum og stækka'
þau sem fyrir eru, Svfflsssg
hyggjast Kínverjar gera iðn-
byltingu í landi sínu.
Klnverjar hafa sett sér
mark til að keppa að. Þeir
ætla sér að ná Bretlandi i
framleiðslu iðnaðarvarnings og
fara fram úr því á ekki lemgri
tíma en fimmtán árum. Byrj-
unin bendir til að þvi rnarki
verði náð.