Þjóðviljinn - 04.11.1958, Síða 9
Þriðjudagur 4. nóvember 1958 — ÞJÓÐVILJINN —
Frá þingi Fqáisiþróffasambands Islands:
Á laugardagseftirmiðdag hófst
ársþing Frjálsíþróttasambands-
ins í fundarsal ÍSÍ. Formaður
sambandsins, Brynjólfur Ingólfs-
son, setti fundinn og bauð fund-
armenn velkomna. Þá minntist
hann Erlendar Ó. Péturssonar, og
bað fundarmenn að rísa úr sætum
til heiðurs hinum látna leiðtoga.
Á fundinum voru um 20 full-
trúar frá 5 sambandsaðilum, en
alls eru í sambandinu 24 aðilar
á öllu landinu.
Skýrsla stjórnarinnar lá fyrir
og bar hún með sér að sambandið
hefur verið athafnasamt á liðnu
starfsári. Stærstu verkefnin hafa
verið þátttaka íslands í E.M. og
svo landskeppnin við Dani.
í skýrslunni er getið utanfara
íslenzkra íþróttamanna sem voru
allmargar á árinu. Var árangur
þeirra mjög góður og til þess að
auka hróður íþróttamanna okkar.
Þá gat Brynjólfur þess að da
Silva liefði verið eini frjáls-
íþróttamaðurinn sem heimsótt
hefði ísland í sumar og hefði það
verið ÍR sem að þeirri heimsókn
hefði staðið. Mætti segja að ÍR
hefði ekki gert það endasleppt,
því að síðastliðin 12 ár hefði fé-
lagið boðið hingað íþróttaflokk-
um sem hefðu verið hver öðrum
betri, og ber að þakka það og
meta.
í skýrslunni kemur fram að
verið er að athuga um keppni
í frjálsum íþróttum milli Osló og
Reykjavíkur á næsta sumri, en
það mál er enn ekki afgreitt. Það
er Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur
og ÍBR sem hafa mest um það
að segja. Er það almenn von
frjálsíþróttamanna að sú keppni
geti orðið að veruleika.
í skýrslunni segir ennfremur
orðrétt um horfur á landskeppni
á komandi ári :
,,Hyað er framundan 1959 í
landskeppnismálum?
Eftir keppnina við Dani í Rand-
ers, hófu forystumenn D.A.F. þeg-
ar máls á því hvort F.R.Í. myndi
ekki bjóða til keppni í Reykja-
vík 1959. Var til svarað að nú
væri ferðakostnaður orðinn svo
mikill milli landanna, að óhugs-
andi væri að íslendingar gætu
boðið Dönum hingað með jafn
rausnarlegum skilmálum og 1950
og 1957, hér yrðu Danir að mæta
okkur á miðri leið.“
Brynjólfur gat þess að í land-
inu væru 28 sambönd og 24 þeirra
væru aðilar að Frjálsíþróttasam-
bandinu, en eitt sfimband hefði
leiksmótið
Úrslit á laugardag og sunnudag:
2 fl. kv. A Þróttur—ICR 2:4
M. fl. kv. Ármann—Fram 3:4
2 fl. kv. B. Víkingur—Valur 1:5
3. fl. karla B. Ármann—Vík. 5:9
3. fl. lcarla B. Fram—KR 6:5
2. fl. karla A. Fram—Þróttur 4:6
2. fl. karla A. KR—ÍR 9:3
Sunnudagur:
3. fl. karla A.A. Valur—KR 4:3
3. fl. karla A.Á. KR—Þróttur 3:11
M.fl. karla Þróttur— Vík. 10:11
M.fl. karla ÍR—Valur 18:13
M.fl. karla KR—Fram 13:7
Nánar verður sag't frá leilcjun-
um á sunnudaginn síðar.
verið strikað út vegna þess að
ekkert lífsmark hefði heyrzt frá
því í fjögur ár, en það væri H.S.
Vestur-Barðstrendinga. Hann
kvað skýrslugerðir til sambands-
ins vera að færast í betra horf,
þó ekki væri það gott ennþá. í
því efni væri héraðssamband
Snæfellinga til fyrirmyndar, og
einnig væru góðar skýrslur frá
Strandamönnum og Skagfirðing-
um. Lagði hann áherzlu á nauð-
syn þess að góðar skýrslur bærust
frá aðilum, og taldi að ef til vill
væri örsökin sú, að menn létu sér
vaxa þetta í augum, sem væri í
rauninni einfalt og auðvelt, að-
eins að framkvæma það og senda.
í ræðu sinni minntist Brynj-
ó’lfur á Laugardalsvöllinn og þótti
það allhart, að frjálsíþróttamenn
yrðu að bíða a.m.k. 2 ár eftir að
knattspyrnumenn hefðu fengið
hann til afnota og þó væru frjáls-
íþróttamenn „bezti klassi“. í-
þróttamanna í landinu. Hann
sagði þó að Laugardalsnefnd gæti
svolítið bætt fyi'ir þetta með því
að efna til fjölmenns móts við
vígslu vallarins næsta sumar, þar
sem til þátttöku væri boðið er-
Brynjóifur
Ingólfs-
son, for-
maður Frjáls-
íþrótfasam-
bands íslands
lendum frjálsíþróttamönnum og
svo a.m.k. tveim mönnum úr
hverju íþróttahéraði.
Úr skýrslu útbreiðslunefndar
Við hlið sambandsstjórnar
starfar svokölluð útbreiðslunefnd,
en í henni eru Bragi Friðriksson
formaður, Þorsteinn Einarsson,
Hermann Guðmundsson, Bene-
dikt Jakobsson og Stefán Krist-
jánsson, og eftir skýrslu þeirrar
nefndar hafa þeir unnið gott
starf.
Hafa þeir efnt til fræðslu og út-
breiðslufunda og sýnt kvikmynd-
ir og við viss tækifæri hafa frjáls-
íþróttamenn eins og Vilhjálmur
Einarsson og Svavar Marlrússon
kvnnt íþróttaiðkun sína í sam-
tali.
Þá liefur nefndin gengizt fyrir
útgáfu þjálfunarrita með fræðslu
um lög og þjálfun varðandi ýms-
ar íþróttagreinar, og fylgja þeim
góðar skýringamyndir. Munu á
næstunni koma á markaðinn slík
rit um spretthlaup, langstökk og
kúluvarp, en Benedikt Jakobs-
son hefur samið rit þessi. Mun
hann hafa ritin til hliðsjónar 1
fræðsluþáttum sínum í útvarpinu
sem þegar eru byrjaðir.
Nefndin hefur haft samvinnu
um umferðakennslu í íþróttum
við KSÍ, HSÍ og UMFÍ, og er þar
átt við að ráðinn sé umferðakenn-
ari sem annaðhvort tekur að sér
að ferðast um meðal félaga í einu
iþróttahéraði, eða meðal félaga í
mörgum íþróttahéruðum.
Segir í skýrslu nefndarinnar
mjög ítarlega, hvernig starf þetta
gekk til og hvar, og virðist þetta
hafa borið góðan árang'ur.
Það var upplýst í umræðum að
í 16 héraðasamböndum fóru fram
æfingar og keppni í frjálsum í-
þróttum, sérstaklega var vikið að
Héraðssambandi Snæfellinga sem
fyrirmynd í þessum efnum, en
þar er það Sigurður Helgason
sem er lífið og sálin og skipuleggj-
arinn. Væri það útaf fyrir sig
verkefni fyrir útbreiðslunefndina
að útskýra fyrir öðrum sambönd-
um þær vinnuaðferðir sem notað-
ar eru á Snæfellsnesi, þar er hið
púlsandi líf sem talar skýru og
skiljanlegu máli.
í kaflanum frá Héraðssambandi
Suður-Þingeyinga segir m.a.:
— Athyglisvert er það, að þar
sem FRÍ efndi ekki til „íþrótta-
viku“ þá efndi Hérðassambandið
til unglingamóta eða réttara sagt
unglingaviku. Þátttakendur voru
piltar, sem fæddir voru 1943—
1948 (10—15 ára).
Unglingarnir höfðu æft vel og
fjölmenntu á mótin og störfuðu
einnig að þeim sjálfir (dæmdu
og tóku tíma). Þess er vert að
geta að þátttaka í æfingum komst
upp í 50.
Hefði verið gaman að fara nán-
ar út í skýrslu nefndarinnar sem
er hin merkilegasta, en því verð-
ur sleppt að þessu sinni, en starf-
semi þessi lofar mjög góðu.
Þá lagði dómara- og laganefnd
FRÍ fram skýrslu, en nefndin
leysir einnig af hendi gott starf
og nauðsynlegt og virðist hafa
byggt það vel upp.
Á sunnudaginn hélt þingið á-
fram og verður síðar getið ýmsra
þeirra mörgu mála sem rædd
voru.
Stjórnarkj ör fór líka fram og
var stjórnin að mestu endurkjör-
in.
Formaður var einróma kosinn
Brynjólfur Ingólfsson og með-
stjórnendur Lárus Ilalldórsson,
Björn Vilmundarson, Guðmund-
ur Sigurjónsson, og Stefán Krist-
jánsson sem er nýr í stjórninni.
Þórhallur Gíslason frá Keflavík
baðst undan endurkosningu. í
varastjórn eru Jón M. Guðmunds-
son, Örn Eiðsson og Höskuldur
Goði Karlsson.
Fonnaður útbreiðslunefndar
var kjörinn Bragi Friðriksson og
formaður dómara- og laganefnd-
ar var k'jörinn Jóhann Bernhard.
Endurskoðendur voru kosnir
þeir: Gunnar Vagnsson og Ár-
mann Pétursson.
29 ára gamait.
iík hengt upp í
flaggstöng
Lögreglan í Houston í Texas-
fylki í Bandaríkjunum fann
fyrra sunnudag lik svertingja
sem hafði verið hengt upp í
flaggstöng fyrir framan skóla
í borginni.
Líkið er af manni sem lézt
árið 1938, en hefur hvilt smurt
í grafhvelfingu siðan. Talið er
að unglingar hafi verið þarna
að verki og hafi þeir brotizt
inn í grafhvelfinguna.
ý![ ÍÞRÓTTIR
gtrsTJOBs> miMAMe hcuzasok
Norræna unglingakeppnin
Svíþjóð varð efsl, en Island neðst; .
vaxandi áhngi hér á landi
íslandi var-falin umsjá norrænu
unglingakeppninnar 1958. Stjórn
FRÍ vísaði framkvæmd og úndir-
búningi til útbreiðslunefndar.
Nefndin tók þegar úr nýári að
vinna að málinu og 17. febrúar
var öllum sérráðum íþrótta- og
héraðssamböndum og einstökum
félögum ritað bréf varðandi kepn-
ina. Formaður nefndarinnar lagði
til við stjórn FRÍ, að drengja- og
unglingameistaramót færu fram
á keppnistímabilinu 7.—29. júní
og var það ákveðið.
Hér birtast úrslit keppninnar:
lenzka áletrun á viðurkenningar-
skjöl og verða þau send árituð til
allra þáttakenda. Betur hefur nú
tekizt um þátttöku íslands en
áður og eiga þeir þakkir skilið,
sem beitt hafa sér ötullega á þess-
um vettvangi og er vonandi, að
hlutur íslands verði í framtíðinni
enn betri í þessari skemmtilegu
keppni.
Ef reiknuð eru stig úr keppni
þessari verður útkoman þessi:
Svíþjóð 28 st., Finnland 25, Nor-
egur 18 og ísland 11 stig.
Nefndin hefur látið prenta ís- Úi skýrslu íþróttanefndar.
lang- stangar- kúlu- spjót-
100 m 1500 m stökk stökk Vai'ji kast
Svíþjóð 11,076 4,07,064 6,54,60 3,53,93 12,81,24 56,48,96
Finnland 11,392 4,07,804 6,50,44 3,58,00 13,42,88 56,34,83
Noregur 11,196 4,14,524 6,49,60 3,07,72 12,25,00 53,88‘, 20’
Danmörk 11,436 4,17,056 6,07,36 3,07,80 11,05,76 45,55,43
Island 11,447 4,34,000 6,20,40 3,04,00 12,20,20 45,36,40
Fulltrúi Flugfélags Islands
sat fund í ATA í Cannes
Hinn 23. sept. hófst i Cannes í Frakklandi fundur
I.A.T.A., Alþjóðasambands flugfélaga.
Fulltrúi Flugfélags íslands
á fundinum var Birgir Þór-
hallsson, yfirmaður millilanda-
flugs félagsins. Alls voru full-
trúar 300 frá sextíu og fjór-
um félögum.
Aðalmálið, eem fyrir fund-
inum lá, var eins og venju-
lega, að ákveða fargjöld hjá
flugfélögum innan samtak-
anna og sér í lagi að ganga
frá fargjöldum fyrir hinar
nýju þotur, sem nú eru í þann
veginn að hefja flug. Auk þess
voru á fundinum rædd fjöl-
mörg önnur vandamál far-
þegaflugsins.
Á fundinum í Cannes komu
fram mörg mismunandi, sjónar-
mið, sem að líkum lætur þar
sem stærstu og minnstu flug-
félög heims, með gjörólíkar
aðstæður áttu þar fulltrúa. —
Mikill samkomulagsvilji varð
því að vera fyrir hendi hjá
öllum aðilum til þess að sam-
komulag næðist um hin ýmsu
atriði millilandaflugsins.
Samkvæmt reglum sem Al-
þjóðasambandið starfar eftir er
ekki hægt að breyta flugfar-
gjöldum nema með sérstöC*}
samþykki allra flugfélaga, sem
hlut eiga að máli. Minnsta fé-
lag samtakanna getur því kom-
ið í veg fyrir fargjaldabreyting'*
ar hjá öðrum félögum á sömu
flugleiðum.
Þetta atriði er að sjálfsögðu
mikil vörn fyrir minnstu félög-
in.
Þrátt fyrir margskonar á-
greiningsefni hinna ýmsu flug-
féla.ga má segja að yfirleitt rikl
mikill samstarfsvilji milli aðiia
Alþjóðasambands flugfélaga.
Þegar fulltrúi Flugfélags ís-
lands, Birgir Þórhallsson, hélt
heimleiðis frá Cannes, eftir að
hafa setið fundinn í næst.ura
mánuð, Var honum enn ólokiðý
en þá voru öll mál er varða
hagsmuni Flugfélags Islancla
afgreidd.
OfbretBiB
ÞiöBviliann
Hafnarljörður
hjóðviliann vantar börn til blaðburðar í
vesturhluta suðurbæjar.
Talið vio Sigíúiiu Sveinsdótíur, Skúlaskeiðí
20, sími 50648
Kaupið miða í Happdrætti Þjéðviijans