Þjóðviljinn - 15.11.1958, Blaðsíða 12
Augljóst brot á alþjóðarétti
og íslenzku fullveldi
MótmœlaorSsending afhent Bretum i gœr
í gær afhenti Guömundur í. Guð’mundsson utanrík-
isráðherra brezka sendiherranum hér mótmælaorðsend-
ingu vegna síðasta ofbeldisverks Breta hér við land. Jafn-
framt halda áfram umræður innan ríkisstjórnar og ut-
anríkismálanefndar um frekari aðgerðir íslendinga.
Orðsending sú sem utanríkis-1 * 3
ráðherra afhenti hljóðaði svo
í íslenzkri þýðingu:
„Reykjavfk, 14. nóvember
1958.
Herra sendiherra.
Eg leyfi mér að vekja at-
hygli yðar á atviki því, er nú
skal greina og gerðist innan
íslenzkrar landhelgi 12 nóv-
ember s.l.:
Kl. 11,25 mældi íslenzka
varðskipið Þór brezka togar-
ann Harkness FD-120 2,5 sjó-
mílur undan strönd Island í
námd við Bjargtanga.
Kl. 11,30 mældist togarinn
2,7 sjómílur undan landi.
Vlarðskipið Þór varð þess
vart, að veiðarfæri togarans
voru innan borðs en ekki lög-
lega frá þeim gengið.
Augljóst var, að Harkness
var innan óumdeildrar íslenzkr.
ar landhelgi og brotlegur við
íslenzk lög.
Kl. 11,35 gaf Þór togaranum
merlki um að nema staðar og
var þá jafnframt ljóst að tog-
arinn var kominn á talsverða
ferð.
Togarinn nam ekki staðar.
Milli kl. 11,38 og 11,52 skaut
Þór fjórum lausum púðurskot-
um og mældi aftur (kl. 11,52)
stöðu beggja skipanna.
Með þvi að Harkness niam
eigi staðar þrátt fyrir stöðvun-
armerki og púðurskot frá ís-
lenzka varðskipinu, skaut Þór
kl. 11,58 föstu skoti rétt fyrir
framan Harkness. Eftir harð-
an eltingarleik var Þór nú á
hlið við Harkness og staða tog-
arans 0,35 sjómílur innan við
gömlu (1952) fiskveiðimörkin.
Kl. 12.00 nam Harkness loks
staðar.
Nokkru síðar kom brezka
flotaskipið Russel á vettvang.
Eftir að foringjar Þórs og
Russels höfðu rætt um málið,
tilkynnti hinn síðarnefndi skip-
herra Þórs, áð Russel myndi
sökkva varðskipinu, ef það
s'kyti á togarann.
Ríkisstjórn íslands mótmæl-
ir hið eindregnasta þessu aug-
ljósa broti á alþjóðarétti og
íslenzku fullveldi, þegar brezkt
herskip aðstoðar brezkan tog-
ara, sem er að brjóta íslenzk
lög innan óumdeildrar landhelgi
Islands, til þess að komlast
undan og hótar jafnvel að
sökkva íslenzka varðskipinu
þegar það reynir að taka hið
brotlega skip.
Geymir rikisstjórnin sér all-
an rétt í þessu máli og krefst
þess jafnframt, að brezka rík-
isstjómin geri þegar í stað
ráðstafanir til þess að láta
færa togarann Harkness og
skipstjóra hans til íslands, svo
að lögfullt mál megi höfða
vegna brota á íslenzkum lög-
um og reglugerðum.
Væntir íslenzka ríkisstjórnin
tafarlauss svars við kröfu
þessari.
Bíkisstjórn íslands lítur
þennan atburð alvarlegri aug-
Nýtt lag eftir
Sigfús Halldors-
son á hljómplötu
Á markað er komin ný hljóm-
plata með laei Sigfúsar Halldórs-
sonar „Hvers vegna“. Höfundur
Ijóðsins er Stefán Jónsson, en
lagið syngur Erla Þorsteinsdóttir
með undirleik Jörgen Grauen
Gárd og hljómsveitar hans. Út-
gefandi er hljómplötudeild Fálk-
um en nokkuð annað er brezk-
skip hafa aðhafzt í íslenzkri
landhelgi.
Eg leyfi mér, herra sendi-
herra, að fullvissa yður um
virðingu mína.
Guðmundur 1. Guðmundsson.
(sign).“
Orðsendini;
frá Kvenfélagi Sósíal-
ista
Félagsfundur verður hald-
inn n. k. þriðjudag 18. nóv.
1958 kl. 8,30 s.d. að Tjarn-
argötu 20.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Sagt frá aðalfundi
Bandalags kvenna í
Reykjavík.
3. Kaffi.
4. Kvikmynd.
Félagskonur! Við skulum
fjölmenna á fundinn og
inæta stundvíslega.
Stjórnin.
í gær var í Bonn, höfuðborg
Vestur-Þýzkalands, höfðað mál
gegn Hans Kjlb, einkaritara Ad-
enauers forsætisráðherra, og
Koenicke, forstjóra Daimler-
Benz-bílaverksmiðjanna fyrir að
hafa þegið og boðið rnútur. Kilb
hefur setið í valdhaldi síðan í
septemberbyrjun.
plÓÐVILJINH
Lav,gardagur 15. nóvember 1958 — 23. árg. — 26Í. tölubiað.
7 ára áætlun Sovétríkjanna
Fríverzlunarsvæðið virðist nú
endanlega vera úr sögunni
Ekki eru nú horfur á öðru en að hið svokallaða frí-
verzlunarsvæöi í Evrópu sé endanlega úr sögunni. Eitt
er víst að úr því verður ekki um næstu áramót eins og
ætlunin var.
Ráðherrar aðildarríkja Efna-
hagssamvinnustofnunar Vest-
ur-Evrópu komu aftur saman
á fund í París i gær til að
ræða þetta mál. Með þeim fundi
lauk tveggja daga úrslitatil-
raun til að koma á sáttum milli
Frakka og Breta, en deila
þeirra um framkvæmd þessarar
hugmyndar hefur staðið henni
fyrir þrifum.
Að fundinum loknum kom
franska ríkisstjórnin saman.
Soustelle, upplýsingamálaráð-
herra hennar, skýrði síðan frá
því að Frakkar teldu sig ekki
geta tekið þátt í fríverzlunar-
svæðinu að svo stöddu.
Þeim væri dkki unnt að veita
öðrum löndum sömu ívilnan-
ir og löndin i sexvelda tolla-
bandalaginu njóta, ef þessi
önnur lönd væru ófús til að
taka á sig sömu skuldbinding-
ar og tollabandalaginu fylgja.
Franska stjórnin á hér við
að hún geti ekki fallizt á að
Bretum einum verði leyft að
njóta sérstakra ívilnana og
veita þær í viðskiptum við sam.
veldislönd sín.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins sagði í gær að fréttin um
þessa ákvörðun frönsku stjórn-
arinnar hefði verið reiðarslag.
Framtíð málsins væri nú hul-
in algerri óvissu.
Maudling, fulltrúi brezku
stjórnarinnar í viðræðunum í
París, sagði að ef engin niður-
staða fengist fyrir áramót
myndi það þýða tíu ára aft-
urför fyrir efnahagssamvinnu
rBcja Vestur-Evrópu.
Þrír togarar - þrjú herskip
Bretar opna nýtt þjófabœli viS Látrabjarg
I gær var vitað um 3 brezka
togara að veiðum innan fisk-
veiðitakmarkanna hér við
land.
Voru þessir togarar allir
að veiðum skammt suður af
Látrabjargi og gættu þeirra
3 brezk herskip.
Brezku herskipin tilkynntu
togurunum í gærkvöldi að
verndarsvæðin tvö, sem ver-
ið hafa útaf Vestfjörðum
hefðu nú verið lögð niður og
í stað þeirra opnað nýtt
svæði útaf Látrabjargi. Voru
16 togarár á þessum slóðum
í dag, en einsog áður var
sagt voru aðeins 3 þeirra að
veiðum innan 12 sjómílna
markanna.
Af öðrum fiskislóðum um-
hverfis landið er ekkert sér-
stakt að frétta, en geta má
þess, að brezlca flotadeildin
hefur ekki opnað verndar-
væði aftur útaf Auturlandi.
Landhelgigæzlunni er kunn-
ugt um allmarga brezka tog-
ara, sem eru að veiðum 30—
40 sjómílur útaf Austurlandi.
Framhald af 1. síðu.
framleiðslu helztu matvælateg-
unda á hvern íbúa.
Árið 1965 er áætlað að korn-
uppskeran verði orðin 165 mjll-
jónjr lesta a. m. k., eða um 40
milljónum lesla meiri en luin var
metuppskeruái’ið 1956.
Framleiðsla landbúnaðarins á
hráefnum handa iðnaðinum mun
einnig stóraukast, svo og fram-
leiðsla búfjárafurða hvers kon-
ar. Landbúnaðurinn getur þar
reitt sig á mikilvægan stuðning
hins stóreflda iðnaðar: Fram-
leiðsla tilbúins áburðar verður
þannig þrefölduð á tímabilinu
og samyrkju- og' ríkisbú landsir.s
munu fá 1,5 milljón dráttar- og
uppskeruvéla til viðbóíar.
Nærri sexíölduð fjár-
festing
Á þessum sjö árum mun sam-
anlögð fjárfesting nærri því
jafnast á við alla fjárfestingu í
Sovétríkjunum síðustu fjóra ára-
tugina, hún mun því u. þ. b. sex-
faldast.
Byggt yfir hálfa þjóðina
Eitt stórfelldasta átakið til að
bæta lífskjör almennings í Sov-
étríkjunum felst í þeim lið áætl-
unarinnar sem fjallar um íbúða-
byggingar á árunum 1959—1965.
Á þessum sjö árum er ráðgert
að byggja í borgum og við iðn-
aðarmiðstöðvar landsins fimmtán
milljón íbúðir. Samanlagt flatar.
mál íveruherbergja þeirra mun
nema um 700 miiljónum fer-
metra. Auk þess verða byggðar
aðrar sjö milljónir íbúða í sveit-
um landsins. Það verða því
byggðar 22 milljónir íbúða, eða
því sem næst íbúð fyrir aðra
hverja fjölskyldu sem nú býr í
Iandinu.
Auknar þjóðartekjur —
bætt lífskjör
Áætlað er að þjóðartekjurnar
muni á þessu tímabili aukast um
62—65%, eða um tvo þriðju.
Kaupmáftur launa vinnandi
manna í borg og sveit mun að
meðaltali aukast um 40%, eða
tvo fimmtu, en kaup hinna lægs't-
launuðu tvöfaldast. Ellilaun
verða aukin.
Ilaldið verður áfram að styí'ta
vimiludaginn niður í 7 og 6
klukkustundir án nokkurrar
ltaupskerðingar. Ætlunin er að
koma á fimm daga vinnuviku
með tveim lieilum frídögum í
viku. Vinnudagurinn og vinnii-
vikan verða því styttri en i
nokkru öðru landi. *
Aukin heilsurækt, fleiri
menntamenn
Framlög ríkisins til heilsu-
verndar,. fræðslumála og vísinda
verða stóraukin. Á næstu sjö ár-
um munu æðri menntastofnanir
útskrifa 2.300.000 sérfróðra
manna og nærri því hehninii
fleiri vélfræðingar og aðrir
tæknimenntaðir verkamenn
rnunu ijúka námi en á undan-
förnum sjö árurn. Ymsar ráðstaf-
anir verða gerðar til að full-
konina skólakerfj*( samræma
kennsluna og skóiagönguiid r'>a
kröfum lífs og s arfs.
Mikilvæg þáttaskil
Á þessum sjö árurn munu
verða mikilvæg þáttaskil í hinni
friðsamlegu samkeppni sósíal-
ismans og iauðvaldsþjóðfélags-
ins. Að þeim loknum munu Sov-
étríkin vera komin fram úr öll-
um Evrópuríkjum í framleiðslu
iðnaðarvarnings á íbúa.
Árið 1965 mun framleiðsla Sov-
étríkjanna á 33 vörutegundum
verða orðin meiri en Bandaríkj-
anna og vera u. þ. b. jöfn fram-
leiðslu Bandaríkjanna á öðrum
tegundum.
I>á verður framleiðsla lielztu
landbúnaðarafurða bæði í heilcl
og á íbúa orðin meiri en liún
er nú í Barsdaríkjunum,
Fram úr Bandaríkjunum
fyrir 1970
Sökum þess að. árjeg hlutfalls-
aukning fr.amleiðslunnar er
mun meiri í Sovétríkjunum en
í Bandaríkjunum munu þau geta
farið fram úr Bandaríkjunum á
u. þ. b. 5 árum eftir 1965.
Þá eða jafnvel enn fyrr munu
Sovétríkin komin lengst allra
ííkja, bæði í heildarframleiðslu
og framleiðslu á íbúa, og geta því
tryggt þegnum sínum beztu lífs-
kjör í lieimi.
Hutur Sovétríkjanna og ann-
arra sósíalistískra ríkja í heild-
arframleiðslu heimsins mun stór-
aukast á tímabilinu og árið 1965
verður hann orðinn meira en
helmingur.
Að friður haldist
Lögð er áherzla á að þessi á-
ætlun sé bein áskorun til auð-
v'aidsríkjanna um friðítamlega
samkeppni um að auka fram-
leiðslu og bæta lífskjör þjóð-
anna. Áætlunin er ný sönnun
þess að í Soyétríkjunum geta
ongin íþjóðfélagsöfl hafzt við
sem hafa hag af landvinningum,
alþjóðlegum viðsjám c/ árásar-
styrjöldum. Friður er frumskil-
yrði þess að sovétþjóður.um tak-
ist að ná því stórfenglega marki
sem þær liafa sett sér í liinni
nýju áætlun.
Nasser leggur
feomstein Assuan
Nasseri, fors.e\ Eg\-ptalands,
lagði í gær hornsteininn að hin-
um mikla stiflugarði sem nú á
að fara að reisa í Níl ofanverðri,
við Assúan.
^ýiðstaddir þá athöfn voru sov-
ézkir sérfræðingar sem munu
verða Egyptum til aðstoðar við
framkvæmd þessa stórvirkis, en
Sovétrikin hafa sem kunnugt er
veitt Egyptalandi 400 milljón
rúblna lán til byrjunarfram-
kvæmda.
MUNIÐ
afmœlisfagiiað Sósíalista-
félags Reykjavíkiir að
TJótel Borg 22. p.m.