Þjóðviljinn - 12.07.1959, Síða 1
]
Sunnudagur 12. júlí 1959 — 24. árgangur — 145. tölublað.
Norðurlanda-
r iiin tolk-
ia horflð frá bygglngu
hraðfrystihúss Bæjarúfgerðarinnar?
Meirihlutí utgerðarráðs meðmæltur að taka tilboði
um kaup á Fiskiðjuveri ríkisins fyrir 29.350.000
Á fundi Útgerðarráðs Reykjavíkurbæjar í fyrra-
dag lá fyrir tilboð ríkisstjórnarinnar um sölu á
Fiskiðjuveri ríkisins til bæjarsjóðs Reykjavíkur fyr-
ir kr. 29.350.000,00. Sambykkti útgerðarráð með
4 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins gegn 1 atkv. fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins, að mæla með því við bæjarstjórn að til-
boðinu verði tekið. \
Guðmundur Vigfússon, full-
trúi Afþýoubandaiagsins í Út-
gerðarráði bar fram eftirfar-
andi dagskrártillögu í málinu:
„Út.gerðarráð ítrekar fyrri
ákvörðun sína, um að Bæjar-
útgerðin reisi sjálf fnllkom-
ið hraðl'rystihús á Granda-
garði, og skorar á fjárfest-
ingaryfirvöldin að veita án
tafar nauðsynleg leyfi til
byggingarframkvæmdanna.
— Jafnframt felur útgerðar-
ráð framkvæmdastjórum sín-
um að gera |»egar ráðstafan-
ir til að afla fjár til lirað
frystiliússbyggingar og að
leita í því efni aðstoðar borg-
arstjóra og bæjarráðs, ef
með þarf, og tekur því fyrir
næsta mál á dagskrá".
Var þessi tillaga G, V. felld
með 4 atkv. fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflo'kksins
gegn atkv. flutningsmanns.
S^imi meirihluti samþykkti síð-
an með 4 atkvæðum gegn atkv.
G. V. að mæla með því að
kauptilboði ríkisstjórnarinnar á
fiskiðjuverinu yrði tekið. Jafn-
framt lýsti meirihlutinn þv’í
yfir i tillöguformi að hann teldi
])þr ineð úr gildi fallna sam-
þykkt útgerðarráðs og bæjar-
stjórnar um byggingu hrað-
frystihúss Bæjarútgerðarinnar.
Fyrirvarar Kjartans og Ingvars
Tveir af fulltrúum Sjál.f-
stæðisflokksins gerðu sérstaka
s'kriflega grein fyrir afstöðu
sinni: Ingvar Villijálmsson lýsti
því yfir að enda þótt hann
greiddi atkvæði með kaupum
á eignum Fiskiðjuversins ]»á
áskildi hann hlútafélagi s.ínu,
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unni li.f. á Kletti, forkaupsrétt
að hlutabréfiim Fiskiðjuversins
í fyrirtækinu. Er þessi hluta-
bréfaeign ríkisins í Kletti að
nafnverði 403 þús. kr. en met-
in á 3 millj. kr. í matsgerð
á eignum Fiskiðjuversins.
Þessi fyrirvari Ingvars merk-
ir greinilega að hiann vill halila
dyrunum opnum til að geta
sölsað a.m.k . þennan hluta
eignarinnar undir einkaaðila.
Kjartan Thors lýsti því yfir
'í fyrirvara sínum að enda þótt
hann greiddi at’kvæði með kaup-
um bæjarsjóðs á Fiskiðjuverinu
teldi liann einsætt að breyta
bæri því síðar í hlutafélag, þar
Framhald á 2. siðu.
Lið Suð-Vestur-
lands á morgun
Klukkau 8 annað kvöld liefst
þriðji og síðasti léikur úrvals-
liðsins frá Jótlandi á Laugar-
dalsvelli. Keppa Jótarnir þá
við úrvalslið Suð-Vesturlands,
sem þannig verður skipað:
Helgi Daníelsson, Hreiðar
Ársælsson, Árnj Njálsson, Guð-
mundur Árnason, Hörður Fel-
ixson, Sveinn Teitsson, Örn
Steinsen, Ríkarður Jónsson,
Þórólfur Beck, Sveinn Jónsson
o,g Þórður Jónsson.
Varamenn: Heimir Guðjóns-
son, Rúnar Guðmannsson, Helgi
Jónsson, Guðjón Jónsson og
Ilögni Gunnliaugsson.
Þessi mynd var tekin
norður á Siglufirði fyrir
skömmu, ])egar bátaflot-
inn lá í höfn, Síðan hefur
lifnað til muna yfir síld-
veiðunum, eins og ljóst má
verða íaf fréttum síðustu
daga.
I fyrrinótt og gærmorg-
un komu allmörg skip með
afla til Si.gluf jarðar og
Raufarliafnar, en nánari
fréttir af veiði í gær
liöfðu ekki borizt, er hlað-
ið fór í prentun síðdegis.
í dag koma forsætisráðherrar
Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Svíþjóðar saman á fund í
Kungsálv í Svíþjóð. Þar munu
þeir ræða tillögur um tolla-
bandalag Norðurlanda, en við-
ræðurnar um mynídun fríverzl-
unarsvæðis sjö ríkja hafa
breytt ýmsum viðhorfum síð-
an viðskiptamálaráðherrarnir
bjuggu málið í hendur forsætis-
ráðherrunum. Raddir eru uppi
um að vel sé hægt að efna til
horræns tollabandalags enda
þótt vestari ríkin þrjú gerist
aðilar að fríverzlunarsvæðinu
og Finnland standi utan þess,-
. Helzti ásteytingársteinninn
mun sém fyrr vera ósamkomu-
lag Dana og Svía um landbún-
aðarafurðir. Vilja Danir fá
frjálsari aðgang að sænska
markaðinum en sænska stjórnin
hefur talið sig geta fallizt á
til þessa.
Haile Selassie Eþíópíukeisari
og fylgdarlið hans átti í fvrra-
dag viðræður í Kreml við æðstu
menn Sovétríkjanna. Keisarinn
hefur undanfarið verið í opin-
beri’i heimsókn í Sovétríkjun-
um.
Tilkynnt var eftir fundinn að
keisarinn hefði boðið þeim Vor-
oshiloff forseta og Krústjoff
forsætisráðherra að heimsækja
Eþíópíu. Þeir tóku boðinu, en
ekki verður ákveðið að sinni
hvenær af ferðinni verður.
MIÐNÆTTI
Á ÞINGVÖLLUM
Á 3. síðu er birt fram-
hald frásagnarinuar af þvi
sem sjá mátti á Þingvöll-
um síðla kvölds fyrra laug-
ardag. —
Héfleg bjcirtsýxil á
árangiir I Genf
Menn| virðast hóflega bjartsýnir á að árangur náist
á síðari hluta fundar utanríkisráðherra fjórveldanna og’
þýzku ríkjanna í Genf.
Fundurin hefst ’ að nýju á
morgun eftir nokkurra vikna hlé.
Gromiko, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna. kom til Genf í
gær.
Ekki úrslitakostir.
Vonir rnanna um árangur af
þessari samning'alotxi byggjast
einkum á því að nú lítur út
fyrir að Vesturvéldin hafi við-
urkennt að síðustu tilögur
Gromikos í Genf’áður en fundi
var írestað séu ekki xirslita-
kostir. Lioyd', útanríkisráðherra
Bretlands, .sagði í þingræðu í
síðustu viku. að han vaeri þess
fullviss að sovétstjórnin vildi ná
samkomulagi um skipun mála í
Vestur-Berlín. Herter. utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði á
fyrsta blaðamannafundinum sem
hann hefur haldið síðan hann
tók við embætti. að hann vonaði
að það1 kæmi í Ijós á fundinum
í Genf að yfirlýsing Gromikoa
frá 28. júní þýði að ekki sé um
neina úrslitakosti að ræða afi
hálfu Sovétríkjanna.
Viðræður milli Þjóðverja.
New York Times skýrir frá
því að embættismenn i utanrik-
isráðuneytinu í Washington
telji að „þýði yfirlýsing Gromi-
kos það sem hún virðist -þýða,
gæti það greitt götu samkomu-
lags um svonefnda „alþýzka
ráðstefnu". þar sem íulltrúar
begg'ja hluta Þýzkalands ræðist
við. Vesturveldin rnyndu þá
ekki hafa neitt á móti því að
setja starfstíina slíkrar ráðstefnu
Framhald á 8. síðu.