Þjóðviljinn - 12.07.1959, Qupperneq 12
Svipmynd frá hlaðinu á Yalhöll um kl. liálfeitt aðfaranótt sunnuda.gsins 5. þ.m. fslenzkir
unglingar ráfa um í hópuin en stríðsmenn eru á vakki til að lokka unglingsstúlkur í lokuðu
búrin sín, — að því er bezt varð séð með aðstoð íslenzkjjar konu. Hér sjáið þið tvær sem
eru að fara inn í búrið. — Sjá 3. síðu.
Við kosningarnar 28. júní
voru ffild atkvæði 84788
Landskjörstjórn hefur úthlutað uppbótarþingsætum
Landskjörstjórn kom saman til fundar sl. fimmtudag
til þess að úthluta upptaótarþingsætum. Skýrslur höfðu
borizt úr öllum kjördæmum um kosningaúrslit. Sam-
kvæmt skýrslum yfirkjörstjórnar voru greidd 84788
gild atkvæöi samtals í öllum kjördæmum.
þJÓÐVILJINN
Sunnudagur 12. júlí 1959 — 24. árgangur — 145. tölublað.
Heíur náð hættumarki í rigningarvatm
Mæiingar sýna að geislaverkun af völdum heliyks frá
kjarnorkusprengingum hefur fjórfaldast á Noröurlönd-
um síðasta misserið.
Atkvæði skiptust þannig milli
flokka;
Alþýðuflokkur ...... 10632 atkv.
Framsóknarfl........ 23061 atkv.
Sjálfstæðisfl....... 36029 atkv.
Þjóðvfl. íslands .... 2137 atkv.
Alþýðubandalag .... 12929 atkv.
Tala kjörinna þingmanna í
kjördæmum og meðaltal at-
kvæða hvers flokks á kosinn
þingmann (tala kjördæmakos-
inna þm. í fyrri töludálki og
atkv. á hvern þm. í seinni tölu-
dálki):
Alþýðuflokkur 1 10632
Framsóknarfl. 19 1213 14/19
Sjálfstæðísfl. 20 1801 9/20
Alþýðubandalag 1 12929
Tveir Finnar
keppa á afmæl-
ismóti Ármanns
Sjötíu ára afmælismót
Ármanns í frjálsum í-
þróttum fer fram n.k. mið-
vikudag og fimmtudag á
Laugardalsvellinum. Iíeppt
verður í öllum hlaupum
frá 100 til 3000 metra,
köstuin og stökkum. Einn-
ig eru meðal keppnis-
greina 100 og 1500 m
hiaup drengja.
Meðal keppenda verða
tveir af fremstu frjáls-
íþróttamiinnum Finna,
spretthlauparinn llorje
Strand og kastarinn Kal-
eviy Horppu.
Þjóðvarnarflokkur íslands
fékk engan þingmann kosinn.
Samkvæmt framangreindum
skýrslum hefur Framsóknar-
flokkur fæst atkvæði á þing-
mann og er hlutfallstala hans
1213 14/19 þvi hlutfallstala
kosninganna.
Uppbótarþingsæti samkvæmt
127. gr. kosningalaga hlutu Al-
þýðuflokkur og Alþýðubanda-
lag í þessari röd:
atkvt.
deild
Hlutfallst. með
1. Alþýðub. 6464 1/2 2
2. Alþýðui'l. 5316 2
3. Alþýðub. 4309 2/3 3
4. Alþýðufl. 3544 3
5. Alþýðub. 3232 1/4 4
6. Alþýðufl. 2658 4
7. Alþýðub. 2585 4/5 5
8. Alþýðub. 2154 5/6 6
9. Alþýðufl. 2126 5
10. Alþýðub.' 1847 7
11. Alþýðufl. 1773 6
Til þess að finna, hverjir
frambjóðendur þessara þing-
í'lokka hafa náð uppbótarþing-
sætum og varasætum var farið
éftir' fyrirmælum 128. gr. kosn-
ingalaganna. Samkvæmt því
geta þessir frambjóðendur kom-
ið til greina hjá hverjum flokki
í þeirri röð, sem hér greinir
(persónuieg atkv. í fremri tölu-
dálki, en hlutfall í aftari):
Alþýðuflokkur;
1. Eggert G. Þorsteinsson
23501/2 (6,68)
2. Emil Jónsson (1337) 40,14
3. Guðmundur í. Guðmundsson
1034 .(13,72)
4. Steindór Steindórsson (253)
19,34
5. Friðjón Skarphéðinsson 489
(11,65)
6. Áki Jakobsson (230) 17,52
7. Benedikt Gröndal 404 (16,20)
8. Friðfinnur Ólafsson (114)
13,27
Framhald 4 10. síðu.
Frá þessu er skýrt í skýrslu
sem heilbrigðisstjórnir Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar
hafa gefið út. Þar er skýrt frá
niðurstöðum nýafstaðins fund-
ar sérfræðinga í Osló.
Aukning enn um slnn
Sérfræðingarnir telja að fjór-
földun magns geislavirkra efna
sem falla til jarðar á Norður-
löndum síðasta misseri stafi að
langmestu leyti ;frá vetnis-
sprengingum Sovétr'íkjanna á
norðurslóðum í fyrrahaust. Bú-
izt er við að geislaverkunin
lialdi enn áfram að aukast um
skeið, en svo táki aftur að
draga úr henni, komi ekki nýj-
ar sprengingar til sögunnar.
Fimmti til tíundi hluti
Kjarnageislun sem menn á
Norðurlöndum verða fyrir af
sökum helryks nemur nú tíu
til tuttugu af hundraði af
þeirri geislun sem menn verða
að staðaldri fyrir frá um-
hverfi sínu. Flestir vísinda-
menn hallast að ,því að nái
helryksgeislunin sama magni
og náttúrugeislunin sé veruleg
hætta á ferðum fyrir heilsu
manna.
Mest er geislunin í rigningar-
vatni og hefur þar komizt mjög
nærri hættumarkinu fyrir
drykkjarvatn. Sama máli gegn-
ir um leysingarvatn. Stöðug
neyzla úrkomuvatns jafnóðiim
og það fellur getur því vérið
varhugaverð.
Þess hefur ekki orðið vart
að geislaverkun í jarðvatni
aukizt. .
Auknar atlmgaiiir
Tölurnar sem fy.rir liggjá eru
Framhald á 10. síðu.
Skipverji á
síidarskipi
bíður
í fyrradag beið ungur piltur,
Ágúst Markússon skipverji
á v.b. Þórunni frá Yest-
mannaeyjum, bana af völd-
um höfuðhöggs, er hauu
lilaut við starf sitt.
Slysið varð er háturinn var
að síldveiðum suðaustur af
Langanesi. Var Ágúst heit-
inn fluttur um borð í varð-
skipið Ægi sem sigldi með
hinn slasaða mann til Seyðis-
fjarðar. Pilturinn lézt í
sjúkrahúsinu þar í gær.
I
Itnlsh.iw iiáivlcfiatlsmaiH iastaiSs
í fyrradag hófst fimm daga verkí'all milljón málmiðnaðarmanna á Italíu. Þrátt fyrir margra
inánaða ^amningaumleitanir hafa atvinnurekendur harðneitað að ganga nokkuð til móts við
kröfur verljamanna. Verkamenn svöruðu með því að neita að vinna eftirvinnu, síðan styttu
þeir vinnudaginn um tvo klukkútíma og nú liggur vinna í málmiðnaðinuin al.gerlega niðri.
— Myndin sýnir verkamenn úr Breda verksmiðjunni í Sesto San Giovanni nærri Mílanó á
fundi um verkfallsaðgerðirn(ar. Mesta verkfallsfalda um mörg ár gengur nú yfir ítalíu. Far-
menn eru búnir að vera í verkfalli á annan mánuð og verkamenn í stáliðjuveruin hafa boð-
að vinnustöðvun.