Þjóðviljinn - 31.01.1960, Síða 5
Sunnudagur 31. janúar 1960 — ÞJÓ0VILJINN — (3
Annað krabbalví í Sovétríkjunum, þar hef-
ur mænusóttarlömun einnig verið læknuð
Brezkir vísindamenn thafa fundið efni sem virðist geta
lœknað krabbamein í lungum.
Lœknar eru gjarnan tor-
tryggnir á fréttir sem berast
alltaf öðru hverju af því að
fundizt hafi ný lyf sem lækni
krabbamein. Sérfræðingar vilja
ekki vekja of miklar vonir,
þegar um er að ræða sjúkdóm
sem menn vita jafn lítið um
og krabbameinið, því bæði er
ekkert vitað með vissu um or-
sakir hans og auk þess hagar
hann sér misjafnlega.
Bjargar Iífi manna sem tahlir
voru af
Það er því athyglisvert að
hið viðurkennda brezka lækna-
rit The Lancet birtir skýrslu
um lyf sem gefið getur vonir
um að lækna megi lungna-
krabba í isjúklingum eem áð-
ur voru taldir ólæknanlegir.
Þrír brezkir læknar skýra þar
frá niðurstöðum af rannsókn-
um sínum á efninu tretamine
sem þeir hafa gefið lungna-
krabbasjúklingum. 4 af 43
sjúldingum batnaði alveg, en
líðan 30 annarra skánaði. Hefðu
þessir 43 sjúklingar ekki feng-
ið tretamine, hefði enginn
þeirra lifað lengur en þrjá
mánuði.
Afbrigði af sinnepsgasi
Efnið tretamine er afbrigði
af hinu baneitraða sinnepagasi,
þannig að köfnunarefni er lát-
ið koma í stað brennisteins.
Rannsóknir á lækningamætti
efnisins hófust 1950 í rann-
sóknarstofum Imperial Chemi-
cal Industries, þar sem menn
höfðu veitt því athygli að efn-
ið dró úr vexti æxla sem fram-
kölluð höfðu verið á tilrauna-
dýrum.
Síðari rannsóknir leiddu í
ljcs, að efnið reyndist vel gegn
hvítblæði, cg læknarnir þrír
gerðu síðan rannsóknir sínar á
tímabilinu júní-nóvember i
fyrra.
Of snemmt að fullyrða
The Laneet slær þann var-
nagla að of snemmt sé að full-
yrða nokkuð um árangur af
notkun þessa lyfs. Það segir
nægjanlegar sannanir fyrir þvi
að einhverskonar sinnepsgas-
blanda kunni að reynast ve)
gegn krabbameini í lungum ,,en
ekki munu allir sammála um
að það sé tretamine“. Rann-
sóknir á verkunum lyfsins hafa
enn staðið of stutt til þess að
vitað sé með vissu að það hafi
enga aukakvilla í för með sér,
en röntgenmyndir af lungum
þeirra sem það læknaði sýna
að þau eru nú alheil, enlda
þótt krabbameinið hefði áður
leikið þau illa.
Blóðvatn gegn krabba
Frá Sovétríkjunum berst
samtímis frétt um að þar hafi
verið gerðar tilraunir sem bor-
ið liafi góðan árangur með
nýtt blóðvatn (serum) gegn
krabba. En þar eins og í Bret-
landi er varað við of mikilli
bjartsýni. Rannsóknum á lyfi
þessu er enn ekki að fullu lok-
ið.
Nýtt lyf gegn mænusóttarlöm-
un
En frá Sovétríkjunum berst
einnig sú gleðifrétt að þar hafi
fundizt lyf sem læknar sjúkl-
inga sem lamazt hafa af
mænusótt. Fyrst var tekið eftir
lækningamætti lyfsins í efna-
fræðistofnun Úsbekistans, en
síðan hefur það verið notað
með góðum árangri i mörgum
sjúkrahúsum í Moskvu.
Sovétstjórnin tilkynnti ann-
ars um daginn að rannsóknir
á krabbameini myndu stór-
aukast í Sovétríkjunum á
næstunni, og mun m.a. 18 mill-
jónum rúblna eem áður voru
ætlaðar til landvarna verða á
þessu ári varið til krabba-
meinsrannsókna.
28. febrúar — 8. marz 1960
Kaupstefnan -- Leipzig
vöru- og tæknisýning
Aðalmiðstöð viðskipta milli austuxs og
vesiurs. Spegill íramfara I tækui — 9500
sýningaraðilar frá 50 löndum.
Vegabréfsáritun ókeypis i— hentugar flugsam-
göngur — niðursett fargjöld með járnbrautum.
Upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofum.
Skipulagningu hópferða, kaupstefnuskírfcinj og
upplýsingar veitir Kaupstefnan í Reykjavík,
Lækjargötu 6 A, sjmi 1-15-76.
hefir beinar flugferðir: Kaupmannaliöfn— Leipzig.
Upplýsingar um viðskiptasambönd veitir
endurgjaldslausft:
Leipziger Messeamt Hainstr. 18 A,
Leipzig C 1.
Nýtt á útsöluimi á
morgiih
Gardínudamas’; — Æfingaföt drengja og unglinga —
Innkaupatöskur — Nælonsokkar.
— 20% afsláttur —
Ullargarn á kr. 12.00 hespan. — Kápupoplin — ódýrt
Sængurveradamask — Molskinn — Rifflað flauel
Kjólatau og sirs — Jerseybuxur á 8 til 12 ára.
Morgunsloppar á kr. 125.00.
Vefnaðarvöruverzlunin, Týsgötu 1.
Sími 1-23-35.
Poplinrykfrakkar
Mjög góðir
Verð frá kr. 595.00.
Vetrarkápur
Verð frá kr. 795.00.
Athugið: útsalan hættir á þriðjudag.
Hafnarstræti 5
LTSAUMUR
Létt og skemmtilegt nútíma-mynztur. Kvöldnámskeið.
Handíða- og myndlistaskólinn. Upplýsingar í síma
19821 mánud. 1. febr. kl. 16—19 eða á venjulegum
skrifstofutímum skólans.
Nýtt og fjölbreytt úrval tekið fram á morgun.
Aðalstræti 8.