Þjóðviljinn - 31.01.1960, Side 10
20) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 31. janúar 1960 —-
Sextugur bóndi og bolsévikki
Framhald af 7. síðu.
fyrir norðan gekk erfiðlega
að fá vinnu 'í veginum, því
verkstjórarnir komu með
flokka með sér, og þess vegna
var félagið eiginlega stofnað
— til þess að eiga hægari
aðstöðu varðandi vegavinn-
una.
Félagið var að tveim þriðju
hlutum byggt upp af góðum
og einlægum Framsóknar-
mönnum og að einum þriðja
af vondum kommúnistum, —
ég var í hópi hinna góðu
Framsóknarmanna. Stjórnin
var skipuð í sama hlutfalli
og félagið. Björn Kristmunds-
son var kosinn formaður fé-
lagsins en ég og Helgi Þórð-
arson, bróðir Gunnars í
Grænumýrartungu vorum
Framsóknarmeirihlutinn I
stjórninni. Helgi var einlæg-
ur Framsóknarmaður og heil-
steyptur í málum Verkalýðs-
og smábændafélagsins. —
Það atvikaðist þannig að
Björn var ekki í bænum þeg-
ar deilan gerðist og lenti þá
þunginn á varamanni hans,
Jónasi Benónýssyni.
© Krati fyrirfannst
enginn!
Þannig var málum háttað
að hvergi á félagssvæðinu fyr-
irfannst nokkur Alþýðuflokks-
maður, en í þá daga mátti
enginn mæta á Alþýðusam-
bandsþingi nema hann væri
Alþýðuflokksmaður. Við vor-
um því ráðalausir með það
hvernig við gætum komizt
5 Alþýðusambandið, og varð
niðurstaðan að við gengum 'i
Verkalýðssamband Norður-
lands, er ekki hafði nein
slík flokksskilyrði fyrir þátt-
töku né fulltrúaréttindum.
Við fengum Þórodd Guð-
mundsson á Siglufirði til að
vera okkur hjálplegur við
stofnun félagsins og um
venjuleg lög og starfsregl-
ur verkalýðsfélaga.
Á Hvammstanga var verka-
lýðsfélag. Þar var einnig
kaupfélag, sem gert hafði
samninga við verkalýðsfélagið.
Skúli Guðmundsson var for-
maður kaupfélagsins. Fór ég
tij hans og fékk hjá honum
upplýsingar um kaupsamning-
ana á Hvammstanga, og eftir
þeim var sniðin tillaga okkar
að samningi við kaupfélagið
á Borðeyri. — Við Fram-
sóknarmennirnir efuðumst
ekki eitt augnablik um að
samningur við okkar eigið
kaupfélag væri auðfenginn,
töldum hannn liggja á borð-
inu.
• Jíaupfélag neitar að
semja við smábændur
— En svo lágu samningarn-
ir ekki á borðinu þegar til
kom?
— Nei, hreint ekki! Það var
kallaður saman fulltrúafund-
ur, — og kaupfélagið neitaði
að semja. Þeir sögðu bless-
aðir (við vissum það ekki
fyrr en seinna) að þessa bólu
yrðu þeir að sprengja áður
en hún yrði of stór fyrir þá!
Við settum þá kauptaxta.
En deilan stóð þó ekki fyrst
og fremst um kaup, heldur að
hve miklum hluta félagið
skyldi hafa forgangsrétt
til vinnu. Kaupfélagið vildi
tryggja þeim bændum rétt til
uppskipunarvinnu sem annars
töldu það fyrir neðan virðingu
sína að láta kalla sig „smá-
bændur“. Þegar afgreiða átti
Lagarfoss fórum við Skúii
á Ljótunnarstöðum um borð
til skipsmanna, sem vitan-
lega voru í Sjómannafélagi
Reykjavíkur, og tjáðum þeim
þá málavexti að deila stæði
um kaup og kjör við verka-
lýðsfélagið á staðnum og
mæltumst til liðveizlu þeirra,
en þegar þeir heyrðu að við
vorum ekki í Alþýðusamband-
inu komu þeim ekkert við
kjör manna í litlu norð-
lenzku félagi.
© Stórbændur vígbúa:>!
,,Stórbændur“ söfnuðu
miklu liði, og mátti þar marg-
an sjá, er fram að þessu hafði
talið sig slíkan stórbónda
að honum datt ekki 'í hug að
leggja sig niður við uppskip-
unarvinnu. Við létum ekki
koma til þess að hendur
skiptu, en létum Verkalýðs-
samband Norðurlands vita
hvernig málum var komið.
Var afgreiðslubann sett á
skipið bæði á Siglufirði, Ak-
ureyri og víðar og háðu verka-
menn þar harða baráttu við
lögreglu og liðssafnað — fyrir
okkur á Borðeyri — og hlutu
margir fangelsisdóma fyrir.
Við fólum Þórodd; Guð-
mundssyni á Siglufirði samn-
ingsumboð fyrir okkar hönd
og áttust hann og Þormóður
Eyjólfsson (kunnur siglfirzk-
ur krati) við um samning-
ana.
Félagið okkar er enn við
líði á Borðeyri.
• Dagsbrún — Kópavogur
— Kveðskapur
— Já, og þú, einlægur
Framsóknarbóndi gerðist
bolsevíkki á Borðeyri.
— Stórbændurnir kölluðu
mig það — og það hef ég
verið síðan, en mér finnst að
skoðanir mínar hafi lítið
breytzt — það er aðallega
Framsóknarflokkurinn sem
hefur breytzt!
— Og þegar mæðiveikin
evðilagði bústofninn sem þú
ætlaðir að hafa til styrktar
hlaupavinnunni á Borðeyri láj
leið þin suður.
— Já, þá flutti ég hingaðj
og gekk 'í Dagsbrún.
—- Og hvernig hefurðu
kunnað við þig í þeim félags-
skap?
— Eg kann prýðileea við
mig í þeim félagsskan, þar hef
ég kynnzt fjölda af indælis-
mönnum.
— Og hvernig stóð á því
að þú fluttir í Kópavog?
—1 Eg hafði getað eign-
azt húskofa á Hverfisgötunni
og bjó þar í 12 ár. En svo
varð ég veikur, lenti í upn-
skurði og gat lítið unnið, -—
hef ekki orðið samur maður
síðan. Þá seldi ég húsið og
keypti hér uppsteypt hús og
dútlaði við að innrétta það.
Og þá erum við aftur kom-
in að kveðskap Guðlaugs. 1
hópi þeirra er þekkja til hans
er hann kunnur fyrir smelln-
ar ferhendur og þó einkum
hve viðbragðsfljótur hann get-
ur verið með þær.
— En hvað svo um kveð-
skap þinn?
— Blessaður vertu, við skul-
um ekki vera að minnast á
hann. Það er helzt ’í góðum
félagsskap að ein og ein
staka hefur hrotið. Það er
misskilinn góðvilji ef einhver
hefur verið að hæla honum,
— bezt að slá striki yfir
hann, segir Guðlaugur.
Og við það hefði orðið að
sitja, ef góðir menn hefðu
ekki reynzt mér þar hjálp-
legir.
En það er tilviljun hvað hægt
er að fá með siíkum hætti,
og því alls ekki um úrval
að ræða. — Liklega er rím-
feimni enn óþekktur Sjúk-
dómur á Ströndum.
Eitt sinn fyrir norðan kvað
Guðlaugur svo um verkstjóra
sinn:
Er á stjái alltaf sá,
aldrei má því linna.
Lítur smáum augum á
alla þá sem vinna.
En þetta var í vinsemd og
gamni gert því að verkstjór-
inn var mikill ágætismaður
og þeir mátar — og hlóu
báðir dátt er Guðlaugur þuldi
honum v'ísuna. — Eitt sinn
er Guðlaugur var fulltrúi
Dagsbrúnar á Alþýðusam-
bandsþingi elduðu grátt silf-
ur þeir nafnarnir Jón Rafns-
son og Jón Sigurðsson. Var
hinn síðarefndi orðinn bæði
argur og rámur mjög. Guð-
laugur skrifaði þá á miða á
borðinu:
Líkast er það hlakki hrafns
hægri Jónsins þvaður.
Eg mun fylgja Jóni Rafns,
— ég er vinstri maður.
Og svo var það eitt sinn
á árshátíð Dagsbrúnar að
efnt var til kveðskapar. Var
þá þetta upphaf kallað yfir
salinn:
Fljótt, er þrjóta æskuár,
undan fer að halla.
Guðlaugur sat þannig að
hann horfði beint á skallann
á Sigurði Guðnasyni — og
sendi botninn á stundinni:
Ýmsir hljóta úlfgrá hár,
aðrir bera. skalla.
Dómnefndin verðlaunaði
ha.nn með Brekkukotsannál
fyrir botninn.
Og nú óskum við þessum
bónda og bolsevíkka, nú land-
nema á Hraunbraut 6 í Kópa-
vogi, til hamingju með sex-
■IiiCTCíifTn^ljg - J JJ.
Trúlofunarhringir, Stein-
hringir, Hálsmen, 14 og
18 kt. gull.
Til sölu
Allar tegundir BÖVÉLA.
Mikið úrvai af öllum teg
undum BIFREIÐA.
Bíla- og
Búvélasalan
Baklursgötu 8- Símí 23136.
FÉLAGS- OG
TÓMSTUNDAIÐJA
1. febr. — 13. apríl 1960
TÓMSTUNDAHEIMILIÐ, Lindargötu 50
Starfað alla daga. Verkefni: Föndur (3 flokkar),
smíðaföndur (útskurður, útsögun o. fl.), módel-
smíði, málm- og rafmagnsvinna, ljósmyndaiðja,
taflklúbbar, frímerkjaklúbbur, söfnunarklúbbur
(söfnun jurta, steina og skelja), kvikmyndaklúbb-
ur barna.
Á þriðjudags- og laugardagskvöldum er opið fyrir
unglinga frá kl. 8,30—10 e.h. Geta unglingarnir
þá leikið sér að tafli, ,,bobbi“, borðtennis, hlustað
á útvarp og hljómplötur og lesið blöð og bækur.
Sunnudagaskóli Hallgrímssóknar starfar á sunnu-
dögum kl. 10,30 f.h. og á sunnudagskvöldum eru
fundir hjá æskulýðsfélögum Fríkirkjunnar og æsku-
fólki úr Hallgrímssókn.
GOLFSKÁLINN:
Mánudaga kl. 8,30 e.h Leikklúbbur
Þriðjudaga kl. 6,45 e.h. Föndur
Miðvikudaga kl. 5,45 e.h. Fr'ímerkjaklúbbur
Miðvikudaga kl. 7,30 Taflklúbbur
Föstudaga — Tómstundakvöld. Umsjón Samband
bindindisfélaga 'í skólum.
MELASKÓLI:
Þriðjudaga kl. 7,30 e.h. Smíðar
LAU GARNESSKÖLI:
Þriðjudaga kl. 7,30 e.h. Smiðar
MIÐBÆ JARSKÖLI: :
Fimmtudaga kl. 7,30 e.h. Brúðuleikhúsflokkur
ÍÞRÓTTALEIKVANGURINN I LAUGARDAL:
Mánudaga til föstudaga, frá kl. 5,15 til 10.00 e.h.
KVIKMYNDAKLUBBAR; fyrir börn:
Sýningar í Áusturbæjarskóla sunnudaga kl. 4 e.h.
Sýningar í Háagerðisskóla, í samvinnu við sóknar-
nefnd Bústaðasóknar, laugard. kl. 4,30 og 5,45 e.h.
Sýningar að Lindargötu 50, laugardaga kl. 4 e.h.
SKÁTAHEIMILIÐ:
Dans- og skemmtiklúbbur. Skemmtanir annan hvern
sunnudag kl. 7,30 e.h.
BCSTAÐAHVERFI :
Föndurflokkur kl. 7,30 á mánudögum
TÓMSTUNDAKVÖLD:
I Framheimilinu, á vegum Knattspyrnufélagsins “
Fram, alla þriðjudaga kl. 7,30, Föndur, frí-
merkjaflokkur og skemmti- og fræðsludagskrá.
í K.R.-lieiniilinu, á vegum Knattspyrnufélags Reykja-
víkur, hvern miðvikudag kl. 7,30 e.h. Fönd-
ur, taflflokkur, frímerkjaflokkur og skemmti-
og fræðsludagskrá.
I I.R.-húsinu, á vegum íþróttafélags Reykjavikur,
Föndur og frímerkjaflokkur, mánudaga kl. 7,30.
I Ármannsheimilinu, á vegum Glímufélagsins Ár-
manns, hvern miðvikudag kl 7,30. Föndur,
frímerkjaflokkur, taflflokkur og skemmti- og
fræðsludagskrá.
I Víkingsheimiiinu, á vegum Knattspyrnufélagsins
Vikings, á mánudögum kl. 6,30 e.h. Frimerkja-
flokkur, taflflokkur.
Það æskufólk, sem áhuga hefði fyrir þátttöku í
bréfavinaklúbbi, tónlistarklúbbi eða málfundaklúbbi,
láti vita á skrifstofu Æskulýðsráðs.
Þátttakendur geta mætt á nefndum stöðum og
tímum til innritunar.
Allar nánari uppplýsingar á skrifstofu Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur, að Lindargötu 50, daglega frá
kl. 2—4 e.h., sími 15937.