Þjóðviljinn - 26.04.1960, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 26. apríl 1960
tuntijrnirrmjxzi
Síðari hluti frósagnar Gísla Sigurðssonar
nc
33!
•M
ai
Bíi
r:;i
kjí!
aÆ
tbr
• Mí «
3u:
kk
Híi
m
;k
i
m
iíifr
!ít»í
i
ti-
i' **
n'5
i
u»'
ar
2i
ir;
rrr
trt:
IMOÐVIUINN
Uteefandi: Sameinlngarflokkur alliýðu - Sósialistaflokkurinn. -
RltstJórar: Magnús K.iartansson (áb.). Magnús Torfi Ólafsson, Sig-
urður Guðmundsson. — Fréttaritstjórar: ivar H. Jónsson, Jón
Bjarnason. - Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. - Ritstjórn,
afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. - Bími
17-500 (5 linur). - Askriftarverð kr. 45 á mán. - Lausasöluv. kr. 3.00.
Prentsmiðja Þjóðvíljans.
Hvað gerist í Genf?
T dag verða greidd aíkvæði á sjóréttarráðstefn-
* unni í Genf, og öll þjóðin bíður með eftir-
væntingu eftir úrslitunum. Augljóst er að hags-
munir íslands eru allir viö það bundnir að engin
tillaga verði samþykkt í Genf; þá verður ráð-
stefnan árangurslaus, ástandið óbreytt, og við
höld'um beirri 12 mílna landhelgi sem við tryggð-
um okikur fyrir tveimur árum. Öllum ber saman
um að Bretar láti sér ekki til hugar !koma að
senda herskip hingað á nýjan leik, og árangurs-
laus ráðstefna nú er trygging fyrir því að 12
mílna reglan vinnur sigur um heim allan á
næstu árum. Því hlaut það að vera sérstakt
verkefni íslenzku sendinefndarinnar að gera allt
sem hún megnaði til þess að fella tillögu and-
stæðinga okkar. Og að öllu eðlilegu hefðu ís-
lendingar átt að bíða þess eins í dag hvort þetta
tækist.
Pn i staðinn hefur ríkisstjórn íslands valið
‘ósæmilega og stórhættulega leið. Hún hefur
flutt breytingartillögu við bandarísku tillög-
una og boðizt til þess að íslendingar bregðist
bandamönnum sínum og fylli flokk andstæðing-
anna, ef við — og við einir — fáum undanþágu
frá sögulegum rétti, en allar aðrar þjóðir verði
að láta sér nœgja 6 mílna fiskveiðilandhelgi a.
m. k. nœstu 10 árin. Með slíkri breytingartillögu
erum við að bjóðast til þess að stuðla að því að ;H
andstæðingar okkar sigri á ráðstefnunni. fE
i~|g nú bíða Íslendingar eftir því að frétta hver
^ örlög þessi hættulega og lítilmannlega til- 53
laga hljóti. Bezti kosturinn er auðsjáanlega sá,
fyrst ríkisstjórnin fæst ekki til að afturkalla g3
tillöguna, að hún verðí samþykkt, en tillaga £n
Bandaríkfanna felld engu að síður. En það fylg- Q
ir tillögugerðinni af íslands hálfu að ísland muni iíH
beita sér gegn þeim málalokum, sem okkur eru
hagstæðust, og reyna þá að tryggja tillögu and-
stæðinga okkar samþykki.
l/'erði tillögurnar báðar samþykktar höfum við
* ekkert tryggt okkur framyfir þann rétt sem -/rc
við höfum haft í tœp tvö ár og enginn gat frá f£g
okkur tekið. En við höfum fallizt á það sjónar- [ftn
mið að við eigum að hafa sérstöðu INNAN 12
mílna. Og við höfum fallizt á gerðardómsákvæði,
ef ágreiningur rís; erlendur dómstóll á sem sé
að fjalla um vexðar innan 12 mílna við Island
ef einhver önnur þjóð gerir tilkall til slíkra
veiða.
Fnn einn kostur er eftir. Þrátt fyrir allt samn-
ingamakkið í Genf og Lundúnum og þrátt
fyrir öll loforð sem Bandaríkin og Bretland hafa
gefið Ólafi Thói'S og félögum hans, kann tillaga SU5
íslands að verða felld. Og þá eru íslenzk stjórn- j~fj
arvöld búin að tefla þjóð sinni í hættulega að- m
stöðu. Við höfum þá — sjálfir — gert okkur leik
að því að láta fella tillögu um
mm Hér segir Gísli Sigui'ðs- aranum og þurrkvínni Suðurnesjum, bæði fyrr
wa :h:j son lögregluþjónn nokkuð hans, svo og kón.gsins og síðar, og engir íslend-
IKS frá gömlu hafnfirzku kot- böðli og Bessastaðavald- ingar heldur lengur bor-
unurn, byggðahverfunum inu, en fáa staði landsins iö menjar erlendrar yfir-
og gömlum örnefnum. En hefur erlent vald leikið drottnunar en fólkið þar.
«5 hann segir líka frá ridd- jafn grátt og byggðina á
i 1
Kotin
urrkvíin
Ttrt
UD
Gísli Sigurðsson lögreglu-
þjónn í Hafnarfirði hefur
ekki aðeins safnað heimildum
er komnar hafa verið að því
að glatast, heldur hefur hann
einnig grafið upp þræði úr
sögu Hafnarfjarðar um hálfa
fjórðu öld aftur í tímann. í
fyrri hluta spjallsins við hann
vorum við komin að því að
ræða um einstaka bæi og ör-
nefni.
—• Með fyrstu bæjarnöfn-
unum sem heimildir eru um
hér í Hafnarfirði, segir Gísli,
er Brúarhraun. Það var
byggt um 1770, en líklega
mun hafa verið þar sjóbúð-
arnefna á 17. öldinni.
Klofi var byggður 1775 og
Gestshús um 1790. Fram af
Gestshúsum var á sínum tíma
byggð fyrsta hafskipabryggja
í Ilafnarfirði og Bæjarútgerð-
arhúsin standa á Klofalóðinni.
Nýjahraun, (nú 27 við
Strandgötu) var byggt 1806.
Garður eða Sigþrúðarbær stóð
þar sem byggt var hús Ein-
ars Þorgilssonar (nr. 25 við
Strandgötu). Markúsarbær
(Markús þessi var forfaðir
Brynjólf Jóhannessonar leik-
ara) stóð þar sem nú er
Sjálfstæðishúsið (nr. 29 við
Strandgötu). Fyrsti bær við
Lækinn var Weldingshús,
byggt um 1784 og kennt við
Kristján Welding, steinsmið
og assistent' við verzlanir hér.
Frá honum er mikil ætt kom-
in. Lækjarkotsnafnið kemur
fyrst fram um 1830, en það
er ekki það Lækjarkot sem
síðar var kunnugt móti Dverg.
Bæirnir voru eins oft kenndir
við konur, t.d. Kolfinnubær,
— sem einnig var nefndur
Tutlukot. Á Hamrinum var
Hamarsbærinn, sem Bjami
Oddsson verzlunarmaður hjá
Linnet byggði á öidinni sem
le:ð. Sjóbúð var þar nokkru
suunar. Hamarsbæjarnafnið
færðist svo yfir á annan bæ,
sem nú er Hellubi’aut 9, en
upphaflegi Hamarsbærinn var
svo kallaður Bjarnabær, og er
nafnið í góðu gildi enn, Hella
er byggð um 1870, og heitir
þar svo enn. — Þá kemur
næst suður í Flensborgar- eða
Skuldarhverfið. Þar verður
fyrst f.vrir Guðrúnarkot.
Nafn þetta lifir fram yfir
1860. Þar umhverfis rís svo
heil bæjarþyrping, kölluð
Skuldarhverfi. Hvernig nafnið
er til komið er óvíst, en lík-
legt má telja að bæirnir hafi
verið í skuld við Flensborgar-
verzlunina; það voru fátæk-
lingar sem þarna bjuggu.
Óseyri verður til 1770-1774
og Ásbúð um svipað leyti og
Melurinn. Brandsbær heitir
svo eftir fyrsta búanda þar,
Guðbrandi að nafni.
í Vesturbænum var t.d.
Skcmagerens Hus, er fyrst
hét svo, en síðar aldrei kall-
að annað en Skóbót. Skers-
eyrar og Bala er beggja getið
í jarðabók Árna Magnússon-
ar. Þar vestur frá var líka
bær sem kallaður var Söng-
hóll, og hefur sennilega ein-
hverntíma verið glatt á hjalla
þar.
Fyrst framan af virðist
Hafnarfjarðamafnið aðeins
hafa náð yfir byggðina norð-
an Lækjarins. Byggðin í
hrauninu skiptist í Lækjar-
þorpið, það náði frá Gerðinu
(hjá Barnaskólanum) og inn
að Gunnai’ssundi. Brúar-
hrau'Uhverfið náði frá Guð-
arssundi að Linnetsstíg —
og suður að Læk við Ósinn.
Frá Linnetsstíg tók við
Skemmuþorpið vestur að R-
víkurvegi. Stofuþorpið eða
Akurgerði var þaðan vestur
að Merkúrgötu eða Ivlofa og
Gestsliúsum.
Frá læknum og suður að
Hamri var stundum nefnt
Miðfjörður, nokkru seinna er
öll byggðin suður að Hamri
nefnd Hafnarfjörður. Bærinn
Jófríðarstaðir suður á Hamr-
inum hét áður Ófriðarstaðir,
nefndur í heimildum frá 1595
sem sérstakur bær — og var
þá konungsjörð. Árið 1816 er
þetta land, al.lt sunnan frá
Bruna (Hafnarfjarðarmegin
við Straum) cg allt vestur að
Fiskakletti í Hafnarfirði kom-
ið í eigu Bjarna riddara Si-
vertsens.
— Bjarni riddari var víst
einn umsvifamesti Hafnfirð-
ingur, fyrr og síðar.
— Já, og þegar hann fór
að stofna til sk’pasmíða
byggði hann m.a. þurrhvi fvr-
ir 3 skip við Skipaklett. Hún
var til fram að 1882 eða 1884,
ég talaði við fólk sem mundi
hana þar. J sóknarlýsingu sr.
Árna Helgasonar prófasts í
Görðum er ágæt lýsing á
henni. Sr. Árni segir þar;
„1 Hafnarfirði er grafin
gröf inn í malarkambinn í
hléi við klettasnös sem geng-
ur fram í fjörðinn til suðurs
skammt fyrir vestan það elzta
liöndlunarhús. I þessa gröf
gengur sjór með hverju að-
fal’.i, en um fjöruna er hún
þurr. Fyrir framan er hurð
og sterkt plankaverk með
grjóthleðs’u fyrir innan, nema
þar sem hurðin er. Hingað
eru á haustin, með stór-
straumsflóði, leidd 3 þilskip.
Fleiri rúmast þar elcki, en
eigi veif ég hvort þetta má
lieita hróf. Flest þilskip standa
allan veturinn í fjörum hinu
megin fjarðarins, sunnan til
að ísland skuli
undanþegið ákvœðunum um „sögulegan rétt'.
Við höfum þá á óbeinan hátt stuðlað að því að .LH
unnt sé að halda því fram að sögulegi rétturinn
skuli einnig ná til Islands og skerða þá land-
helgi sem við höfum haft að heita má óskerta í
tæp tvö ár. Við höfum þá fært andstæðingum
okkar upp í hendurnar vopn sem okkur kunna
að reynast mjög hættuleg. Því er tillaga Islands
ekki aðeins ósæmileg og hættuleg framtíðarhags-
munum okkar, hún er einstætt glæfraspil með
örlagamál þjóðarinnar. Allir Islendingar vona
að betur fari en til er stofnað. — m.
Hvaleyri. — (Ljósmynd Sigurður Guðmundsson)