Þjóðviljinn - 05.05.1960, Síða 9
Fimmtudagur 5. maí 1960
ÞJÓÐVILJINN — (ð
f#
RiHfjóri: Frímann Helgason
John Thomas stökk 2,17
og setti nýtt heimsmet
Sundlaugin
Það kom engum á óvart að
hinn 19 ára gamli stúdent frá
Boston, John Thomas, bætti
heimsmetið í hástökki; það var
aðeins spurning' hvaða dag'ur
það J'rði. Hann haiði áður farið
yfir 2,19 m inni. en það fær
hann ekki viðurkennt sem met.
Þetta sag'ði þó til um hæini hans
og, hváð í vændum væri. Met
það sem hann bætti var 2,16 m
og átti Rússinn Judi Stepanof
það irá árinu 1957. Um það met
var á sínum tíma mikið deiit
og rætt, og naumast Um önnur
meira, og hafa þó mörg metin
valdið miklum umræðum. Rúss-
inn notaði sem kunnugt er skó
með þykkum sólum, og þótti sem
hann mundi hafa haft af þeim
mikið gagn, en þar sem engin
fyrirmæli voru þá um þykkt
sóla, var metið að lokum stað-
fest, en sérstakar reglur voru
settar um þykkt sóla á skóm
fyrir hástökkvara.
ef svo mætti segja, og hann er
í dag af öllum taiinn örúggasti
maðurinn til þess að vinna gull
í hástökki í Róm. í fyrra varð
hann að taka það heiduy rólega,
vegna þess að hann meidc’is í
lyftu háskólans sem hann stund*
ar nám við.
Brasilía vann sam-
bandsríki aral
með 5:0
Tveir kunnir íþróttamenn starf-
rækja ,sumarbúðir’ fyrir drengi
Sumarbúðir,
uppistaðan í
drengja, þar
starfseminni
sem
yrði
íþróttir og fræðsla um (þær og
félagsmál, hefur um nokkurt
skeið verið til umræðu meðal
áhugamanna um íþróttir. Slík-
ar sumarbúðir eru algengar er-
lendis og hafa verið ákaflega
vinsælar og haft sín áhrif á
aukinn áhuga þátttakenda fyrir
íþróttum og glætt þekkingu
þeirra fvrir gildi íþrótta.
Kennsla sú, sem þar fer líka
fram, miðar i þá átt að bæta
árangur, einstakli'nganna.
Hingað til hefur þetta að
mestu verið talin orðin tóm, en
til að fýrirbyggja allan misskiln
ing, er hér átt við annað en það
merka starf sem bæði skátar og
KFUM halda uppi fyrir drengi
Nú hafa tveir kunnir íþrótta-
menn ráðizt í það fyrirtæki að
hrinda þessu í framkvæmd, og
skal þar íyrst frægan telja Vil-
hjálm Einarsson, sem gert hefur
hinn ísíenzka íþrótta„garð‘‘
frægari en nokkur annar íþrótta-
maður, og' hirin er Höskuldur
Karlsson, sem m.a. hefur verið
meðal keppenda í landsliði ís-
lan.ds í frjálsum íþróttum.
Þessir ágætu menn hafa feng-
ið til umráða húsakynni Garð-
yrkjuskólans að Reykjum við
Hveragerði, og hafa þeir aðgang
að sundlguginni og öðrum stöð-
um sem til þarf og tiltæk eru þar.
Þeir segjast hafa í hyggju
að byrja með'tvö námskeið sem
eiga að standa frá 4. til 14.
júní og það síðara írá 18. til 28.
júni. Gera þeir ráð fyrir að
hámarkstala joátttakenda geji
orðið. 40, og aídurstakmarkið er
12—16 ára.
Dagskráin sem þeir félagar
hafa búið út ber með sér að
drengirnir fá nóg að gera, og
það verður æði tilbreytingaríkt.
Þarna verður auðvitað morgun-
leikfimi, knattleikir, knattspyrna
og har.dknattleikur, frjálsar í-
þróttir og sund. Inn á milli verð-
ur svo komið fyrir íþrótta-
fræðslu, fjallaferðum, og' þá um
leið náttúruskoðun. Að loknu
góðu dagsverki, er svo kvöld-
vaka fyrir drengina.
Um þessa dagskrá sína segja
þeir Vilhjálmur og Höskuldur,
að ætlunin sé að blanda saman
áreynslu og' hvíld, leik og
fræðslu, þannig að á hverjum
degi fái hver og einn sem mest
við sitt hæfi. Þeir segjast ekki
líta aðeins á það sem dreng-
irnir gera þennan stutta tíma
sem þeir eru hjá þeim. Við
viljum, og leggjum á það sér-
staka áherzlu, segja þeir, að
kenna þeim og efla áhuga þeirra
og skilning á iþróttum. Með
þessu vonum við að þeir haldi
áfram, þegar heim er komið og'
taki þá ef til vill aðisér að
leiðbeina öðrum,
Þó vilja þeir ekki segja að
þetta sé leiðbeinendanámskeið
en með kvikmyndasýningum, um-
ræðufundum og leiðbeiningum
um félagsmál o.fl. telja þeir að
drengirnir verði betur undir
slíkt búnir. en ella.
Ágústa setti nýtt
met í gærkvöld
A sundmóti IR í gærkvöldi
bar það helzt til tíðinda, að
Ágústa Þorsteinsdóttir bætti
met sitt í 100 mera skrið-
sundi, synti á 1:05,6, og bætti
því metið um 1/10 úr sek-
úndu. Önnur i sundinu varð
danska sundkonan Kirsten
Strange á 1:06,6. í 100 metra
skriðsundi karla sigraði Guð-
mundur Gislason bezta skrið-
sundmann Dana á 58,3.
Larson synti á 58,3.
í 100 metra bringusundi
kvenna sigraði Linda Peter-
sen, Danmörku á 2:57,0, en
Hrafnhildur synti á 2:59,8.
Nánar verður sagt frá
keppnlnni í blaðinu á morgun.
Þeir leggja áherzlu á það að
ekki verði farið út á þá braut
að velja þá hæfustu, því ..heil-
brigðir þurfa ekki læknis við“
eins og þeir orða það. Umsóknir
verða því teknar í þeirri röð
sem þær berast. Þeir segjast
þó ekki neita því að æskilegt
væri að ungmenna- og iþrótta-
félög ættu sem flesta fulltrúa,
og kæmi þá til álita hvort ekki
kæmi til mála að þau styrktu
til dæmis efnilega drengi til æf-
inga þarna fyrir keppni síðar á
sumrinu.
Allur kostnaður fyrir hvern
einstakling verður 500 krónur
fyrir hvort námskeið, og' er þar
allt innifalið: fæði, húsnæði
kennslugjöld, afnot af íþrótta-
velli.
Umsóknir eiga að sendast
Höskuldi Karlssyni, Keflavík' eða
Vilhjálmi Einarssyni, Lynghaga
11, Reykjavík, og þurfa að hafa
borizt fyrir 10. maí vegna fyrra
námskeiðsins, en fyrir 20. maí
vég'na þess síðara.
Ágæt tilraun
Það er sannarlega virðingar-
vert að þeir Vilhjálmur og Hösk-
uldur skuli ráðast í þetta fyrir-
tæki, sem svo lengi hefur verið
urn rætt, en framkvæmdin dreg-
ist. Er ekki að efa að þeir fé-
lagar leysi þetta verkefni vel af
höndum, enda eru þeir engir við-
vaningar í þessum málum.
Vafálaust verður áhugi hér
fyrir svona námskeiðum ekki
síður en annars staðar. Árangur-
inn fer að s'jálfsögðu eftir því
hve vel tekst að gera þetta líf-
rænt og skemmtilegt og hve
miklum fróðleik verður hægt að
miðla ungum mönnum. Verður
sannarlega fróðlegt að fylgjast
ineð framvindu þessa ágæta
máls.
John hefur lagt mikið að sér
að bæta metið nú undanfarið
ár og það sýnir bezt að það er
engin tilviljun að hann bætir
það, að þegar hann setti metið
var rigning og heldur óhagstætt
veður. Það er því ekki að efa
að keppnistimabilið sem er að
byrja verður hans fyrsta stórár.
Viðskiptasamkomu-
lag framlengt
Samkomulag um viðskipti Is-
lendinga og Pólverja hefur ný-
lega verið endurnýjað óbreytt
til septemberloka n.k.
Landslið Brasilíu í knattspvrnu
lagði fyrir nokkru upp í knatt-
spýrnuför, þar sem keppt verður
í þrem heimsálfum. Fyrsti leik-
urinn fór fram í Kairo og fóru
leikar þannig að Brasilía va-in
Arabíska lýðveldið 5:0. Mikill á-
hugi var fyrir leiknum og' fciðu
áhorfendur frá því snemraá
morguns við aðgöngumiðasöluna
til þess að tryggja sér aðgöngu-
miða. Næsti leikur átti að vera
í Damaskus og þriðji leikurinra
á að fara fram í Malmö i Sví-
þjóð.
í Kaupm.höfn leik þeir 10. maí.
Tveim dögum síðar leika þeir
í Mílano á Ítalíu og sennilega
leika þeir annan leik þar eiiin:g.
F.vrir hvern leik sem þeir
leika i Arabíska iýðveldinu fá
þeir 45 þús. dollara, en í Ve.;t-
ur-Evrópu íá þeir 20 þúsu.id
dollara. Næstum allir þátttak-
endur voru með i Svíþjóð 1958:
þegar þeir unnu heimsmeistara-
keppnina það ár.
Trúlofunarhringir, Stein-
krlnglr, Hálsmen, 14 og
1B kt gull.
Er hun höfuðlaus
Knattspyrnulið brezkra,
kvenna mun bráðlega leggja
upp í keppnisför um margar lieimsálfur, til Bandaríkjanna, Suð-
ur-Ameriku, Ástralíu, Japan og' Filippseyja. I liði þessw, se:n
þeklet er undir nafninu „Nomads“, eru 29 leikmenn, stúlfewr á
aldrinum 12—30 ára, allar frá Manchester. Myndin hér fyrir
ofan var tekia á æilngu „Nomads“ í Didsbury, nálægt Man-
chester, og er engu ljkara en önnur stúlkan hafi misst höfuðsð
í viffureigmiuii.