Þjóðviljinn - 08.05.1960, Qupperneq 3
Sunnudagur 8. maí 1960
ÞJÖÐVILJINN
(3
Hagnaður á millilandafluginu
en tap á fluginu innanlands
Halli á rekstri Flugfélags íslands á sl. ári nam 280
þús. kr. Heildartekjur félagsins voru 79 millj. kr., en
rekslurskostna'ður 79.280.000 kr. og eru þá 13,9 millj. kr.
afskriftir meðtaldar.
Frá þessu var skýrt á aðal-
fundi Flugfélagsins í fyrradag,
en á honum var félagsstjórnin
öll endurkjörin. Hana skipa:
Guðmundur Vilhjálmsson, Berg-
ur G. Gíslason. Jakob Frímanns-
son, Björn Ólafsson og Richard
Thors.
Raufarhöfn 14 stig
Klukkan þrjú í gær var 14
stiga hiti á Rauíarhöfn, en að-
eins þriggja stiga hiti á Galtar-
vita.
Badmintonmót
Meistaramót Islands í bad-
minton sem hófst í gær með
undankeppni, verður háð í KR-
húsinu klukkan tvö í dag.
Farþegar á innaniandsflugleið-
um voru 51.195 árið 1959, 8%
íærri en árið áður. Flestir voru
fluttir milli Reykjavikur og Ak-
ureyrar eða 15064. Heildartekjur
innanlandsflugs námu tæpum 20
■miilj. kr. en reksturskostnaður
að meðtöldum 1,15 millj. kr. af-
skriftum varð 23,1 millj. Tveir
þriðju hlutar hallans er tap á
rekstri Katalínuflugbátsins.
Farþegar í utanlandsflugi voru
á sl.'ári 29.495, 22% fleiri en ár-
ið áður. Flestir, eða 11249, voru
fluttir milli Reykjavíkur og
Kaupmannahafnar. Brúttótekjur
félagsins af millilandaflugi námu
59 millj. kr. en reksturskostnað-
ur að 12,8 millj kr. afskriftum
meðtöldum varð 56:2 millj. og
nettóhagnaður því 2,8 rnillj. kr.
Háaleitisskóli
Framhald af 1. síðu.
herzlu á að þeim verði hrað-
að, svo að skólinn geti tekið
til síarfa um svipað leyti og
hverfið verður fullbyggt“.
Fjölmennt hverfi að rísa
f framsöguræðu sinni minnti
Guðmundur Vigfússon á að Háa-
leitishverfi væri aðalbyggingar-
svæðið í Reykjavík um þessar
mundir og það yrði væntanlega
fullbyggt á næsta ári. Skóla-
bygginganefnd . hefði á sínum
•tíma gert ráð fyrir að skólahús
yrði byggt í þessu hverfi í tung-
unni milli Brekku- og Stóragerð-
is. Nefndin gerði ráð fyrir að í
hverfinu yrðu 1250 íbúðir alls og
íbúafjöldi 56251 Nemendafjöldi á
barnafræðslualdri er áætlaður
776 og á gagnfráeðastigi 312 eða
alls á skyldunámsstigi 1088. Til-
laga nefndarinnar gerði ráð fyr-
ir að reist yrði á íramangreind-
um stað skólahús. þar sem yrðu
23 skólastofur og leikfimisalur.
Guémundur kvað nauðsynlegt
að skólahúáin risu áf grunni
Skammt út af Reykjanesi
er lægð sem hreyiist hægt
úr stað. Veðurhorfur: Aust-
an og suðaustan gola. Skúr-
ir en bjart á milli.
nokkurnyeg'inn jafnsnemma og
ibúðarhúsiti, svo að skólarnir
gætu tekið til starfa strax og
hverfin væru fullbyggð. Með
þetta í huga væri tillagan fram-
borin.
Varað við fyrri stefnu
Gísli Halldórsson varð fyrir
svörum af hálfu íhaldsins og
talaði um að „athugun hefði far-
ið fram“ og „tillögur verði gerð-
ar“ og „áætlanir birtar" o.s.frv.
Bar hann fr.am frávísunartillögu.
Guðmundur Vigfússon talaði
aftur og varaði fuiltrúa bæjar-
stjórnarmeirihlutans þá við að
taka aftur upp sömu stefnu og á
árunum 1951—'56 er alger stöðv-
un het'ði orðið á skólabygging-
um í bænum svo að fullkomið
öngþveiti hefði skapazt, hærinn
hefði orðið að taka allt fáanlegt
húsnæði til leig'u fyrir skóla-
starfsemina, félagsheimili o.þ.h.
Það hefði þá verið hlutskipti
fulltrúa sósíalista að flytja
hvað eftir annað tillögur um
skólabyggingar og aukið fé til
þeirra. Kvaðst hann vara meiri-
hlutaíulltrúana við að taka upp
slíka stefnu aftur og fella allar
tillögur og skella skollaeyruni við
ábendingum um það sem gera
þj'rí'ti í skólabyggingamálunum.
Að umræðum loknum var frá-
vísunartillaga íhaldsins sam-
þykkt með 10 atkvæðum gegn
4.
Kaffidrykkja til
styrktar náms-
konum
Kvenstúdentafélagið stendur
fyrir kaffisölu í Sjálfstæðis-
húsinu í dag, og er tilgangur-
inn sá að safna fé til styrktar
námskonum, Á s.l. hausti
veitti félagið tvo styrki, sam-
tals kr. 12.500, til náms við
trlenda háskóla. Félagið gerir
sér vonir um að geta veitt
hliðstæða upphæð I styrki
næsta haust, en 'þá er ætlunin
að miða þá við nám við Há-
kkóla Tslands.
Otvarpsnot kosta ^
1251 kr.
a an
Vopnafirði. Frá fréttaritara
Það er orðið æði dýrt að
hlusta á útvarp úti á lands-
byggðinni, þar sem ekki er
rafmagn. Eftir síðustu hækkun
á afnotagjaldi og hækkun á
verði þurrahlaða vegna gengis-
lækkunarinnar kosta útvarpsaf-
notin um 1250 krónur á ári.
Afnotagjaldið er hækkað um
100 krónur í 300 og hver raf-
hlaða kostar nú 162 krónur,
en á fjöimennum heimilum þar
sem mikið er hlustað þarf sex Núverandi stjórn karlakórsins Fóoibræðra, aftari röð talið frá
þurrhlöður yfir árið.
TÍM-hóf ó
mónudaginn
Á morgun. þjóðhátíðardag
Tékkóslóvakíu. halda Tékknesk-
íslenzk menningartengsl skemmt-
un í Framsóknarhúsinu klukkan
8.30 s.d. Þar flytur sendifulltrúi
Tékkóslóvakíu ávarp, Karl Guð-
jónsson alþm. heldur ræðu. Al-
þýðukórinn og barnakór syngja,
Karel Lang léikur á óbó og
Gísli Magnússbn á píanó og Karl
Guðmundsson flytur skemmti-
þátt. Síðan verður dansað.
Um 2.ooo vangefinna í landinu
Konur úr Styrktarfélagi vangeíinna hafa
bazar og kaffisölu í Skátaheimilinu
vinstri: Ásgeir Hallsson, Þorsteinn Helgason; sitjandi: Sigurður
Haraldsson, forinaður og Ágúst Bjarnason, varaíormaður og u*t-
anfararstjóri.
FéstbrœSur í sörsgför
til Norðurlanda
árið 1954 til Vestur-Evrópulanda.
Þá söng kórinn í útvarp og kom
fram í sjónvarpi, bæði í London
og Paris.
í þetta sinn er förinni fyrst
heitið til Stavanger í Noreg'i.
Þaðan vérður síðan ferðast yfir
Noreg og haldnar margar söng-
skemmtanir. Á þjóðhátíðardegi.
Norðnianna. 17. maí verður kór-
inn i Bergen og tekur þátt í há-
tíðahöidum þar. Sungið verður
í norska útvarpið og þeim söng
útvarpað beint.
Næstkomandi laugardag, 14.
maí, leggur karlakórinn Fóst-
bræður upp í söngför til Norður-
landa. Söngstjóri kórsins verður
Ragnar Björnsson. einsöngvarar
Kristinn Hallsson og Sigúrður
Björnsson og undirleikari Carl
Billich.
Kórin hefur farið i söngferðir
til annarra landa áður síðast
í dag efna konur i Styrktarfé-
lagi vangefinna til bazars og
kaífisölu í Skátaheimilinu við
Snorrabraut og hefst hvort-
tveggja kl. 2.
Styrktarfélag vangefinna er
aðeins tveggja ára gamalt, eri
hefur þegar unnið allmikið starf.
Tilgangur þess er að stuðla að
velferðarmálum vangefins fólks;
en svo sem öllum er ljóst, eru
örkuml þess með þeim hætti, að
það getur aidrei staðið eitt og
óstutt í harðri lífsbaráttu.
Styrktarfélagið hefur starf-
rækt lítinn leikskóla íyrir van-
gefin börn í Reykjavík og er nú
að hefja b.vggingu dagheimilis,
sem væntanlega tekur til staría
í haust. Einnig hefur félagið
veitt námsstyrki til sérmenntun-
ar í meðferð vangefinna barna,
styrkt starfandi hæli og beitt sér
fyrir skýrslusöfnun um vangef-
ið fólk á öliu landinu. svo nokk-
uð sé neínt.
Áætlað er að um 500 fávitar
séu hérlendis. sem nauðsynlega
þarfnist hælisvistar, en alls
munu vera um 2 þúsund van-
gefinna í landinu.
Fyrir atbeina Styrktarfélagsins
voru sett lög um styrktarsjóð
vangefinna og rennur : hann 10
aura gjald at' öli og gosdrykki-
um, sem seld eru í landinu. Hef-
ur sá sjóður þegar orðið mikil
lyítistöng um byggingafram-
kvæmdir við ríkishælið í Kópa-
vo'gi. Þar er nú rúm íyrir 85
sjúklingá. Nýlega er byrjað að
byggja þar starfsmannabústað og
þegar hann verður fullbúinn,
losnar rúm fyrir 'a.m.k. 25 sjúk-
linga.
Æskilegt væri að hægt væri
að koma öllum vangefnum börn-
um undir handleiðslu sérmennt-
aðra kennara, svo að þau geti
fengið þann þroska, sem hæfi-
leikar þeirra leyfa, og telja má
það lágmarkskröfu, að rúm sé
til á hælurn fyrir þá sjúklinga
sem þess eru þurfi.
í Skátaheimilinu verða einnig
til sýnis munir, sem unnir eru á
þeim hælum, sem nú eru til fyr-
ir vangefið fólk.
Ollum er ljóst hve nauðsynlegt
er að bæta aðstöðu til kennslu
og hjúkrunar vangefins i'ólks og
gefst fólki kostur á að leggja
þessu máli lið með því að styrkja
starfsemi Styrktarfélagsins.
Verið velkomin i Skátaheimil-
ið í dag. S. Th.
Frá Osló verður haldið til
Kaupmannahafnar. Þar kemur
kórinn væntanlega frarn í út-
varpi og konsertsalnum í Tívoli,
einnig er ráðgert að kórinn syngi
inn á nokkrar plötur í Kaup-
niannahofn. Ef ástæður leyía
munu Fóstbræður heimsækja
Sv'þjóð og syngja í sænska út-
varpið.
Þátttakendur eru 38 söngmenn
auk söngstjóra, einsöngvara og
undirleikara, sem áður er getið.
Fararstjóri verður Ágúst Bjarna-
son, skrifstofustjóri;
Á mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag heldur kórinn sam-
söngva fyrir styrktarmeðlimi sína
í Austurbæjarbíói.
P /
Fra
Einn
réttlátur
Óheiðarleiki og' spilling hafa
hrjáð íslendinga á undanföm-
um árurh, og þar hafa marg-
ir þeir haft forustu sem vís-
astir áttu að vera til varnar.
Sá sem er virðulegur embætt-
ismaður í dag og þjóðarsómi
er kannski orðinn tukthús-
matur á morgun. Og\ við
þessa iðju hefur einskis verið
svifizt. Menn hai'a rænt gjald-
eyri, sem þeim heíur verið
trúað fyrir, svo milljónum
króna skiptir. Þýfið hafa
rnenn falið á leynireikningum
í öðrum þjóðíöndum og notið
aðstoðar erlendra auðhringa
við stuldinn. Peningana hafa
þeir notað til að standa
straum af lúxusferðum sínum
en fyrst og fremst þp til þess
að kaupa dýran várning. Þess-
um varningi hafa þeir síðan
smyglað inn i landið með föls-
uíum skjölum og mútað í því
skyni valdamönnum til gagn-
kvæms ábata, en tryggt með
samböndum s'num að gjald-
eyriseftirlitið skipti sér ekki
neitt af neinu.
Þetta eru ljótar aðfarir og
ekki að undra þótt menn haft
fyllzt svartsýni. Og því kem-
ur það sem ljós i niyrkri, þeg-
ar blöðin skýra frá því að
Vilhiálmur Þór seðlabanka-
stjóri haíi bannað að birta
mynd af bankaseðlunum nýju;
hann hafi eftir miklar laga-
rannsóknir komizt að þeirri
niðurstöðu að það væri ó-
heimilt að gera eftirmyndir
af peningaseðlum í ábata-
skyni. Þar fyrirfinnst loks
embættismaður sem gætir
þess vandlega í öllu líferni
sínu að hvika ekki hársbreidd
af hinum þrönga vegi laga
og heiðarleika. Og meðan einn
réttlátur finnst í landinu er
ekki ástæða til að örvænta.
— Austri.
V.