Þjóðviljinn - 13.09.1960, Síða 9
<■
X
Síðasta keppnideginum í frjjáls-
um íþr. á OL lýst í fréttabréfi
Róm, 8. september.
Dagurinn í dag og í gær hafa
ekki markazt neitt af þátttöku
okkar íslendinga, við höfum svo
sem kunnugt er lokið þátttöku
okkar að þessu sinni, með þeim
árangri ,að ná tveim stigum í
hinni óopinberu stigakeppni
leikanna.
Þetta mun sumum kannski
ekki finnast mikið hjá okkar
rnönnum, og eflaust hefðum við
getað fengið meira út úr leik-
snum, ef rétt hefði á spöðunum
verið haldið, og ekki sízt ef
einhver heppni hefði verið með
'Vilhjálmi í þrístökkinu, en hann
tel ég hafa verið sérlega óhepp-
ínn í keppninni, bæði vegna
mótvinds sem á var alltaf öðru
hvoru og einnig vegna keppi-
tnautar síns, Rússans, sem und-
þreytast eftir keppnina, sem er
með erfiðari keppnum leikanna.
T.d. stóð keppnin Jþennan dag
frá kl. 1.30 eftir hádegi til kl.
7.30, eða rúma 6 klukkutima án
hvíldar.
Annar maður í' keppninni var
enginn annar en Bandaríkjamað-
urinn Morris, sem þó hafði ekki
náð að stökkva 4.40 metra, eins
og krafizt var til að komast í
Fréttabréf
frá Róm
aðalkeppnina, heldur komst
hann inn í keppnina vegna þess
að reglur heimta 12 menn í und-
anúrslitin, en einungis 10 náðu
4.40 og Morris stóð næstur og
58,45. Oerter er einn af þeim
fáu OL meisturum, sem hafa
varið titil sinn hér í Róm. Marg-
ir þeirra hafa fallið, sumir jafn-
vel mjög illa. Connolly komst
ekki í úrslit, sama er um
Strandli, Hewson og marga
fjeiri að segja.
Annar í kringlukasti varð Rink
Babka með 58.02 m. og þriðji
varð landi hans Cocran, kastaði
57.16 m.
„Maraþonhlaup“ kvenna
vann hin rússneska Lisenko
í augum stúlkna eru 800 metr-
arnir hálfgert maraþonhlaup,
enda finnst mér það heldur ó-
kvenleg íþrótt. OL-meistari í
hlaupinu varð rússneska stúlk-
an Lisenko, hljóp á góðum tíma,
2.04,3 mírí. Önnur varð Jones
Rúmenska stúlkan Iolanda líalas stekkur. II úr, vann mesta yfirburðasigur á olympíuleik-
uniim í Róm j— kepi)inantar ihennar stuklui hæst 1,73, hún sló OL metið 1,76 og bætti
það síðan um 9 sm. eða í 1,85 m.
an honum stökk, en hann tók
óhóflega langan tíma að undir-
búa sig undir stökk sín, lengst
15 mínútur. En hvað um það,
okkar þátttöku er lokið að sinni,
og við verðum að hugga okkur
við það, að aðalatriðið er ekki
að sigra heldur taka þátt, en það
er orðin nokkuð tuggin setning
i sambandi við Olympíuleikana.
„Tarzan“ Bragg vann
stangarstökkið
Don Bragg, oftast í daglegu
tali nefndur ,,Tarzan“, vann
stöngina örugglega svo sem
vænta mátti. Hann stökk 4.70
metra örugglega í fyrstu tilraun.
Tilraunir hans við 4.82 metra
báru ekki árangur, enda hefur
maðurinn eflaust verið farinn að
komst því inn. Morris hlaut sem
sé 2. sæti með 4.60.
Þriðja sætið fór til Norður-
landanna, Landström frá Finn-
landi stökk 4.55 m og tryggði
sér þriðja sæti á verðlaunapalli.
Afrek Braggs er að sjálfsögðu
OL met. Það fyrra átti Robert
'"hards og var það 4.56 m, sett
í Melbourne.
Þrefaldur kringlukasts-
sigur
Önnur úrslit í gær voru m.a.
kringjukast, þar sem risinn
Babka varð að láta í minnipok-
ann fyrir landa sinum Oerter,
sem sigraði á síðasta kasti, sem
mældist 59.18 metrar, sem einn-
ig er nýtt OL met, það fyrra
átti Oerter sjálfur og var það
frá Ástralíu eftir mjög harða
baráttu við rússnesku stúlkuna
á 2.04,4 mín.
í dag var hálfgerður boð-
hlaupsdagur á Stadio. Veðrið
hefur í þessar þrjár vikur aldrei
verið svo kalt, sem það var nú.
eða 20" C. Nokkur rigning var
einnig ó köflum og sólarlaust.
Auk boðhlaupanna ióru iram
úrslit í 10 km. hlaupi og spjót-
kasti.
Lítt þekktur Rússi vann
10 km. öllum á óvart
Bolotnikoff er nafn, sem
íþróttaheimurinn hefur ekki
veitt mikla athygli. Eftir Olymp-
íuleikana verður nafn hans þó
áreiðanlega vel þekkt vegna sig-
Framhald á 10. síðu
- þriðjudagur 13. september 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (8
írar unnu íslendinga 2:1,
Þórólfur skoraði markið
Á sunnudaginn kl. hálf
þrjú háðu írar og íslend-
ingar landsleik í knatt-
spyrnu og fóru leikar þann-
ig, að írar unnu með tveim
mörkum gegn •- einu,
frar skoruðu fyrsta mark-
ið þegar eftir 7 mín., en
Þórólfur Beck jafnaði þeg-
ar þrjár mínútur voru eftir
af fyrri hálfleik. Annað
mark íranna kom eftir
stundarfjórðung í síðari
hálfleik, og var það vinstri
útherjinn sem það skoraði,
hann skoraði einnig fyrra
mark íranna. Nokkur rign-
ing var síðari hluta leiks-
ins.
Markamunur þessi cr
minni en almennt mun
hafa verið búizt við og
hvað það snertir er þetta
góð frammistaða. í út-
varpsfrétt frá leiknthn
sagði, að Hörður og Helgi
Daníelsson hefðu verið
beztu menn liðsins og gæti
það bent til þess að nokk-
uð hafi legið á íslending-
unum.
Áhorfendur voru um 10
þúsund.
Liðið á að leika tvo leiki
við irsk lið og fara þeir
fram í þessari viku.
Ungt íþróttafólk fró Vest-
mannaeyjum hér í boði Vals
Keppti í knattspyrnu og hand-
knattleik nú um helgina
Það virðist sem ungu stúlkurn-
ar, sem handknattleik stunda
hér um slóðir, hafi haft mikið
að gera um helgina, því auk
heimsóknarinnar til Ármanns
voru hér einnig handknattleiks-
stúlkur frá Vestmannaeyjum í
boði Vals. Handknattleiksdeild
Vals hefur nokkur sámskipti við
Vestmannaeyjar og í sumar voru
Valsstúlkur þar í heimsókn og
voru Valsmenn að endurgjalda
þá heimsókn.
Flokkur þessi var frá Tý og
eru stúlkurnar allar ungar. Á
laugardaginn efndi Handknatt-
leiksdeild Vals til hraðkeppni-
móts fyrir meistarafiokk kvenna
óg tóku 5 félög þátt í þvi eða
Týr, Fram. FH, Víkingur og
Valur.
Einhver misskilnings mun þó
hafa gætt. hvað snerti Fram,
því það sendi annan flokk i stað
meistaraflokks, eigi að síður
áttu þessar Ungu stúlkur góð-
an leik við Val.
Leikar íóru þannig: FH —
Tý, Valur — Fram 8:3, FH —
Víkingur 9:3 eftir framlengdan
leik.
Úrslitaleikurinn varð svo milli
Vals og FH og varð hann mjög
jafn og skemmtilegur, og mátti
lengi ekki ó milli sjá hvor mundi
sigra, en er á leið náði Valur
dálitlu forskoti, sem FH tókst
ekki að vinna upp. Leikurinn
endaði með sigri Vals 9:3.
Fram og Týr léku au^aleik
meðan liðin hvíldu sig og fóru
leikar þannig að Týr vann 9:8.
Týr í úrslitum í öðrum
flokki, en FH vann
Á laugardaginn efndi Valur
svo til hrakeppnimóts fyrir 2.
flokk kvenna, og voru þátttak-
endur; FH, Týr, Fram og Val-
ur.
Leikar fóru þannig að FH
vann mótið í úrslitaleik við Tý
frá Vestmannaeyjum. Annars
fóru einstakir leikir þannig: FH
•— Víkingur 5:3, Týr — Valur
8:2, FH — Fram 6:4, FH — Týr
8:4.
Framhald á 10. siðu
2. flokkur kvenna í KA vann
hraðkeppnimót í Reykjavík
Akureyrarstúlkurnar léku miöa aóðan
handknattleik og komu öllum á óvart
Um s.l. helgi bauð Handknatt-
leiksdeild Ármanns öðrum fl.
kvenna til keppni hingað, og tók
flokkurinn þátt i hraðkeppni-
móti. sem deildin efndi til í
tilefni komu stúlknanna. Milli
Ármanns Qg Akureyringa hefur
verið allnáið samstarf um lang-
an tíma og hafa Ármenningar
það fyrir fastan lið í starfsemi
sinni að heimsækja Akureyringa
um hvitasunnuna ár hvert, og
keppa þar í handknattleik og
körfuknattleik.
Mun það ekki fjarri lagi að
segja, að með samstarfi þessu
hafi Ármann á vissan hátt hald-
ið áhuga á handknattleik vak-
andi á Akureyri. Ármenningat
hafa einnig, með því að gefa
bikar til keppni í handknatt-
leik á Akureyri, stuðlað að því
að handknattleikur verði þar
keppniíþrótt, en það mun háia
legið niðri þar um skeið.
Því miður mun ekki hafa ver-
ið efnt til keppni um bikarinn
ennþá, en væntanlega verður
þess ekki langt að bíða að til
þess komi.
Fimmtón stúlkur eru í hópn-
um ásamt fararstjóra, en hann
er Gísli Bjarnason íþróttakenn-
ari. Ætlunin var að hingað
kæmi einnig körfuknattleiks-
Framhald á 10. síðu.