Þjóðviljinn - 28.09.1960, Side 4
'4) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 28. september 1960 — -
Myndir frá Leopoldville
Belgiskir hermenn eru enn í Kongó þrát* fyrir samþykktir
Öryggisráðsins um að þeir skyldu á brott. 1 Katanga stjórna
belgiskir herforingjar liði sem Mobútú ofursti hefur sér til
ráðuneytis. Heitir þessi Fernand Keyers. Myndin var tekin
í Leopoldville nokkru eftir að Mobútú hafði lýst yfir að hann
hefði tekið öll völd í Kongó í sínar hendur með tilstyrk hersins.
Hermaður úr liði Sameinuðu þjóðanna stendur á verði við
forsætisráðherrabústaðinn í Leopoldville, liöfuðborg Kongó.
I'atrice Lúmúmba forsætisráðherra hefur haft aðsetur í for-
sætisráðherrabústaðnum á hverju sem gengið hefur í skiptum
bans við aðra stjórnmálamenn og lierforingja. Sendilierrar
Afríkuríkja í Leopoldville vinna sífellt að því að sætta þá
Lúmúmba og Kasavúbú forseta.
Bridgeþáltur
í þessum þætti skuium við
hregða okkur aftur í tímann,
til ársins 1958. Það ár var
Evröpumeistaramót í bridge
haldið í Osló og' áttu íslend-
ingar þátttakendur bæði í
karla- og kvennaflokki. Ekki
var það nein frægðarför en þó
átti íslenzka sveitin því láni
‘að fagna að hún sigraði Evr-
ópu- og þáverandi heimsmeist-
ara, ítali, með þó nokkrum
stigamun.
Eftirfarandi spil er frá þeim
leik. Er það spii nr. 2 úr leikn-
um og er ég ekki frá því, að
nokkurs taugaóstyrks hafi gætt
hjá íslenzku spilurunum ef
dæma má eftir úrslitum spils-
ins. Staðan var n—s á hættu
og austur gaf.
Stefán
Sp: K-G-7-4-3
Kj: 10-5
Tí: D-7-5
L: D-6-3
Bel'adoiina
Sp: A-9-6-2
Hj: A-4-2
T.': ekkert
L: K-8-7-5-4-2
Jóhann
Sp: D-8-5
Hj: K-D-G-9-8-6-3
Tí: A-G
L: A
Avarelli
Sp 10
Hj: 7
Tí: K-10-9-8-6 ^1-3-2
L: G-10-9
N
V A
S
í opna salnum gengu sagnir
eftirfarandi: A: 2H — V:2S —-
A:3H — V: 4H — A:4G —
V:5L — A:6H. Þetta gekk yfir
til Belladonna sem doblaði. Út-
spilið var tígultía, sem var
trompuð. Eítir nokkra um-
hugsun spilaði norðui laufáttu
og austur komst inn til að
trompa út. Eftir það fékk norð-
ur einungis ásana, svo að aust-
ur slapp með tvo niður. Eins
„Borgari" skriíar um lögreglumál:
% » %. 'f. v '*’■d ' '4 % -p. /j % ^*3**2^
r
Ostfórii vernduð og
t
óregla verðlaunuð
Kunningi okkar ,,Borgari“
hefur verið fjarverandi um
tíma meðan ýmis tíðindi hafa
gerzt í lögreglumálum liöfuð-
staðarins. Víkur hann að þeim
nýjustu á sinn hátt í efitir-
farandi grein.
Til Þjóðviljans,
Keýkjavík.
Það hefur nú komið ber-
lega í ljós í dagblöðum, að
dómsmálaráðherra, herra
Bjarni Benediktsson, er að
gera sjálfan sig að viðundri
með því að sitja svona fast
með félaga sinn fyrrv. lög-
reglustjóra Sigurjón Sigurðs-
son, S kjöltu sinni, alveg eins
og „rakka“, sem hann getur
ekki losnað við. Bjarna fer
vonandi að verða ljóst, að
ekki er um annað að ræða
fyrir hann en að ráða um-
ræddan „rakka“ á siitt eigið
iheimili til lífstíðar, til þess
eins að iforða mannorði sínu
frá alvarlegum skakkaföllum.
Eg gat ekki látið -hjá líða
að skrifa blaði yðar nokkrar
línur, þegar ég hafði lesið, að
ráðherra neitaði að áminna
Herstein Pálsson.
Dómsmálaráðherra gerði þó
tvennt í einu, sem sé lög-
reglustjórann að engu, en það
varð mikið igleðiefni fyrir all-
an almenning, og svo gaf
ihann öllum fordæmi til þess
að svívirða hver annan, —
sem ég ætla að notfæra mér
eftir þörfum og þá á misk-
unnarlausasta ’hátt, ef því er
að skipta, og þá jafnt ráð-
herra sem aðra.
Eigi má eftir geðþótta
og sjá má getur austur orðið
íjóra niður eí' norður tekur
spaðaásinn og aftur spaða, en
hver getur láð Belladonna að
halda að austur væri með eyðu
í spaða, þar eð hann fór rak-
leitt í slemmuna þó að vestur
gæfi upp engan ás.
í lokaða salnum sátu n-s,
Eggert og Stefán St., en ítal-
irnir Siniscalco og Forquet,
a-v. Þeir sögðu eftirfarandi
eftir Neopolitan Club keríinu:
A:1L (gervisögn, sem spyr
strax um ása og kónga íélaga)
— V:1H (ég á einn kóng) —
A:3Ií (krefur um úttekt) —
V:3S — A:4II og allir pass.
Hjartasögn vesturs hefur gert
það að verkum að illmögulegt
er að setja spilið niður, þar
eð spaðaásinn er haria ógirni-
legt útspil upp i spaðasögn
vesturs. Suður hefði hinsvegar
eflau-t rnilað út tígli og hefði
vörnin þá mjög iíklega tekið
íimm íyrstu slagina og tapið
á spilinu ekki verið mjög til-
finnanlegt, eða .3 EBL-stig, í
stað þeirra 6, sem töpuðust.
Útspil Eggerts var laufafimm,
í þeirri von að Stefán ætti
annað hvort eitt eða ekkert
lauf og tvö tromp . .. Forquet
tók með ásnum í borði og gaf
einn slag á hvern hinna lit-
anna.
.raska heimilisfriði nokkurs
manns, vanvirða hann eða
lítillækka. Allir menn skulu
jafnir fyrir lögum og eiga
rétt á jafnri vernd þeirra, án
manngreinarálits .
Ekki má eftir geðþótta
ta'ka menn fasta, hneppa þá
í varðhald eða fangelsi.
Hvern þann mann, sem bor-
inn er sökum fyrir refsivert
athæfi, skal telja saklausan,
unz sök hans er sönnuð lög-
fullri sönnun fyrir opinberum
dómstóli, enda hafi tryggi-
lega verið húið um vörn sak-
bomings.
Yfir allt þetta er nú aug-
Ijóst að dómsmálaráðherra
getur slegið striki, fyrir
kunningja sinn Sigurjón, enda
þótt Bjarni fórni sjálfum sér
um leið, því hvert mannsbarn,
sem eitthvað hefur lesið, hef-
ur orðið þess áskynja að ein-
mitt Bjarni hefur talið fólki
trú um að hann vildi tileinka
sér þessi boðorð og fara efit-
ir þeim.
Öll þjóðin fordæmir slíkar
hugveilur æðsta manns dóms
og laga, að hann kasti allri
rökréttri hugsun fyrir borð,
aðeins til þess að reyna að
skýla nekt manns, sem er
orðin ein beinagrind og von-
laust er að geti nokkurn
tíma orðið annað fyrir al-
menningssjónum.
I apríl sl. upplýsti Morgun-
blaðið, að lögregluþjónn
hefði verið itekinn ölvaður
við akstur og sagt upp
starfi, sem var ofur eðlilegt,
en hvað skeður eftir að um-
ræddur lögregluþjónn hafði
hlotið sinn dóm, réttinda-
missi í sex mánuði og sekt
fyrir að hafa ætlað öðrum sín
verk, þá var þessi virðulegi
maður gerður að yfirlögreglu-
þjóni á Húsavik og skartar
þar með sex stjörnur ásamt
fleiru. Eg hygg að þetta séu
verk þeirra vinanna Bjarna
og iSigurjóns Sigurðssonar, en
eins og allir vita fór dóms-
málaráðherra fram á það fyr-
’ ir skemmstu, að sönnuð yrðu
fylleríisafrek Sigurjóns lög-
reglustjóra og ýmissa lög-
regluþjóna, en ráðherra virð-
ist það nauðsynlegt, ef hann
hafði í hyggju að hækka
menn í tign, eins og hlið-
stætt dæmi sýnir.
Eg get ekki betur séð en
að lögreglustjóri og dóms-
málaráðherra séu festir í
klafa, líkt og þegar bíllinn
varð að klafa um háls þeirra
Bjarna og Sigurjóns Inga-
sonar, er þeir keyrðu fullir
á Fossvogsbrúna og munaði
minnstu að þeir dræpu sig,
og eyðilegðu brúna.
!Hve lengi ætlar almenning-
ur að láta bjóða sér upp á
öngþveiti og vitleysu í allri
stjóm lögreglumála höfuð-
staðarins? Og ætlar almenn-
ingur að kingja því, að dóms-
málaráðherra sjálfur auglýsi
sig vemdara slíkrar óstjóm-
ar?
„Borgari“.
Sérstakur fulltmi
annist öll kjara-
mál Pósts og síma
Aðalfundur félagsdeildar
símstjóra á 1. fl. B stöðvum
var haldinn í Hveragerði dag-
ana 17. og 18. september sl.
Rædd voru á fundinum mörg
hagsmunamál félagsmanna o.g ’
opinberra starfsmanna yfirleitt,
og margar ályktanir gerðar þar-
að lútandi.
M.a. taldi fundurinn nauð-
synlegt, að sérstakur fulltrúl
Póst- og símamálastjórnarinn-
ar hefði með öll kjaramál að
gera, með ihliðsjón af því hva
fjölþætt þau eru orðin.
Af sömu ástæðu taldi fund—
urinn tímabært orðið, að fé-
lagssamtök símamanna réði
fastan starfsmann í þjónustu
sína.
Úitaf skrifum blaða undan-i
farið samþykkti fundurinn svo-
hljóðandi ályktun:
Fundur símstjóra á 1. fl. B.
stöðvum, 'haldinn að Hvera-
gerði 18. september 1960, vill,
að gefnu tilefni, láta 'í ljós þá
skoðun sína, að stjórnmálablöð-
unum beri að stuðla að bættu
siðgæði í stjórnmála- og við-
skiptalífi íslenzku þjóðarinnar.
Hinsvegar fordæmir fundurinn
þá 'blaðamennsku, sem æ meir
hefur ,rutt sér til rúms, að not-
aðar séu ámyndaðar sakir ein-
stakra manna sem æsifregnir
í iblöðum til fjárhagslegs fram-
dráttar, af fullkomnu tillits-
leysi til viðkomandi manna ó,g
fjölskyldna þeirra.
Sérstaklega hefur fundurinn
i huga ihina hatrömu árás á
póst- og símamálastjóra, Gunn-
laug Briem.
Telur fundurinn af fenginni
reynslu, að þrátt fyrir margt,
sem á milli hefur borið í sam-
skipitum við núverandi póst- og
símamálastjóra. þá sé hann í
hópi þeirra 'embættismanna er
sizt myndi nota embættisað-
stöðu sína sér i vil.
Ungur sjómaður
af Akranesi sýn-
ir í Mokka-kaffi
Ungur Akurnesingur, Hreinn
Elíasson, sýnir þessa dagana
um 20 myndir eftir sig, mos-
aik, svartlist og olíumáiverk,
í veitingastofunni Mokka-kaffi
við Skólavörðustíg.
Mosaikmyndimar eru 7 tals-
ins og málverkin 4, en aðrar
myndir, sem til sýnis eru á
veggjum veitingastofunnar, eru
svartlistarmyndir (grafik).
Allar eru myndirnar til sölu.
Hreinn El'íasson er Akumes-
ingur sem fyrr segir og hefur
verið sjómaður, enda bera
margar myndirnar það með
sér, mótdfin eru mörg frá sjó.
Hreinn hefur haft af því mik-
ið yndi að teikna og mála allt
frá barnæsku. Tvo síðastliðna
vetur stundaði hann nám í
Handiða- og myndlistarskólan-
um. Hreinn Elíasson hefur eltki
sýnt myndir sínar opinberlega
hér í Reykjavík fyrr, en tvö
undanfarin vor hefur hann hald-
ið sjálfstæðar sýningar á Akra-
nesi. Þykir hann hinn efnileg-
asti myndlistarmaður.