Þjóðviljinn - 31.05.1961, Qupperneq 4
"§) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 31. maí 1961
cDagskrd konungs-
heimsóknarinnar
Árdegis í dag stígur Ólafur fimmti Noregskon-
ungur á land í Reykjavík. Hann er hingað kominn
í opinbera heimsókn og dvelst hér á landi fram á
laugardagskvöld. Hinni opinberu heimsókn konungs
lýkur þó á föstudagskvöldið; á laugardaginn dvelst
Ólafur V. hér í einkaerindum og mun þá m.a. heim-
sækja Borgarfjörð og koma að Reykholti, þar sem
hann afhjúpaði fyrir tæpum 14 árum styttu þá af
Snorra Sturlusyni, sem Norðmenn gáfu íslending-
um eftir stríðið. Ólafur var þá, á Snorrahátíðinni
il 947, ríkisarfi Norðmanna.
Hér á eftir verður rakin dag-
skrá hinnar opinberu heimsókn-
ar ^Noregskonungs.
1 4
Miðvikudégur
Árdegis í dag sigiir varðskip-
ið Óðinn til móts við kcnungs-
skipið NORGE og fylgir því til
haínar. Konungsskipið leggst
ekki að bryggju heidur mun
liggja v:ð festar á ytri höfn-
inni. Um kl. 10.30 íara H’alvard
Lange utanríkisráðherra Nor-
«gs, Bjarne Börde ambassador,
dr. Sigurður Nordal og Valgeir
Björnsson hafnarstjóri um borð
í konungsskipið. Kl. 11 leggur
hátur Noregskonungs að bryggju
og konungur stígur á land. Þar
verða fyrir forsetahjónin, ráð-
liillliiiililiiiiliillllilllilillilllirfjraiini
| Föruneyti |
| konungs og |
| fyigdarlið |
E Föruneyti Ólafs kon- E
= ungs er þannig skipað: E
E Halvard Lange utanríkis- E
E ráðherra, Odd Grönvold E
5 stallari, E. T. Lundes- -
E gaard ofursti og Arne E
E Haugh majór.
E í hinu íslenzka fylgdar-
E liði Noregskonungs eru:
E I>r. Sigurður Nordal pró-
E fessor og Pétur Sigurðs-
= son forstjóri Landhelgis-
= gæzlunnár. Fylgdarmaður
= utanríkisráðherra Noregs =
= er Þorleifur Thorlacius =
= deildarstir.ri í utanríkis- =
= ráðuneytinu. E
Últlllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllll
herrar ailir, fylgdarlið konungs,
utanríkisráðherra Noregs o.fl.
Þegar forseti íslands og for-
setafrú hafa heilsað konungi og
fylgdarmönnum hans verða
leiknir þjóðsöngvar Noregs og
íslands. Síðan verður ekið írá
höfninni um Geirsgötu, Póst-
stræti, Hafnarstræti, Lækjar-
torg, Lækjargötu og Vonar-
stræti að Tjarnargötu 32, ráð-
herrabústaðnum, þar sem kon-
ungur mun búa meðan hann
dvelst hér.
Kl. 12.07 leggur Ólafur kon-
ungur blómsveig að styttu Jóns
Sigurðssonar á Austurvelii, en
nokkrum mínútum síðar verður
gengið í alþingishúsið, þar sem
þingforsetar taka á móti kon-
ungi og föruneyti; Konungur
skoðar síðan húsið undir leið-
sögn forseta þingsins, en því
næst gengur hann ásanit forseta
íslands út á svalir alþingishúss-
ins.
Kl. 15.40 hefst stutt athöfn í
Fossvogskirkjugarði. Konungur
leggur þá blómsveig að norska
minnisvarðanum í kirkjugarðin-
um. Norðmaðurinn séra Harald
Hope heldur minningarræðu og
Karlakórinn Fóstbræður syngur.
Kl. 17 tekur Noregskonungur á
móti forstöðumönnum erlendra
sendiráða í ráðherrabústaðnum.
Bjarni Börde ambassador kynnir
en viðstaddir verða utanríkis-
ráðherra Noregs, Halvard Lange,
og fylgdarmenn konungs. Laust
eftir kl. 20 um kvöldið hefst
veizla forseta íslands að Hótel
Borg.
Fimmtiidagar
Annar dagur hinnar opinberu
konungsheimsóknar hefst með
heimsókn í Háskóla íslands,
kl. 9.55—10.45. Frá háskóianum
verður ekið að þjóðminjasafninu
og það skoðað kl. 10.50—11.45-
K'. 12>’0 hefst guðsþjónusta
í Béssastaðakirkju, en að messu
lokinni snæðir konungur og
fylgdariið hádegisverð að
Bessastöðum í boði íorsetahjón-
anna. Kl. lö heíst móttaka
Reykjavíkurbæjar í Melaskól-
anum, en kvöJdverð snæða hin-
ir norsku gestir ásamt forseta-
hjónunum í ráðherrabústaðnum.
Hátíðasýning hefst í Þjóðleik-
húsinu kl. 20.45. Þá verður sýnd
ur leikþáttur sá sem dr. Sigurð-
ur Nordal samdi sérstaklega
vegna konungskomunnar; einnig
verður kórsöngur.
Föstudlagur
Árdegis á föstudag, síðasta
dag hinnar opinberu heimsókn-
ar Noregskonungs, verður farið
til Þingvalla. Lagt verður af
stað frá ráðherrabústaðnum kl.
8.30, komið ti! Þingvalla um
klukkustundu síðar, staðnæmzt í
Almannagjá og gengið á Lög-
berg. Hressing verður veitt í ráð-
herrabústað á Þingvöllum. en
síðan haldið til Reykjavikur aft-
ur. Hádegisverður verður snædd-
ur í Sjálfstæðishúsinu í boði
ríkisstjórnarinnar.
Kl. 1G verður móttaka fyrir
ncrska boðsgesti í norska sendi-
ráðinu við Fjólugötu, en um
kvöldið býður Ólafur konungur
til kvöldverðar um borð í kon-
ungsskipinu Norge. Munu for-
setahjónin leggja af stað á
skipsbáti útí kónungsskipið frá
Loftsbryggju kl. 19.50.
Lcagardtgur
ó’.afur konungur óskaði þess,
er heimsókn hans var ákveðin.
að fá að dveljast hér ú landi
einn dag eftir að hinni opin-
beru heimsókn hans lyki. Þann
dag, laugardag, mun konungur
nota m.a. til að komast ,að Reyk-
holti, þar sem hann aíhjúpaði
árið 1947 styttu Snorra Sturlu-
sonar svo sem áður var greint
frá.
Konungsskipið siglir árdegis á
laugardag upp í Hvalfjörð, en
þar stígur Ólafur konungur á
land ásamt föruneyti og ekur
síðan, i fylgd með forseta ís-
lands o. fl. um nærsveitir, upp
í Borgarfjörð að Reykholti. Um
kvöldið stígur konungur aftur
um borð í skip sitt, sem held-
ur þegar af stað áleiðis til Nor-
egs.
Þessi mynd er tekin í
Norður-Noregi. Ólafur
konungur hefur heimsótt
byggðarlög á Finnmörk,
konungsskipið liggur úti
á Porsangerfirði eni skips-
báturinn er leið frá landi
til skips.
_ Konungsskipið Norge er
1628 lestir r.ð stærð, 80
metra langt, 11,6 metra
breitt. Aflvélar eni tvær
15 þús. lia. disslvélar og
ganghraði skipsins 16
hnútar. Skipið var smíðað
á árinu 1937 í Englandi.
Á styrjaldaránmum var
skipið í þjónustu brezka
flotans, en 1948 var það
keypt fyrir fé sem safrazt
hafði meðal Norðmanna
heima og erlendis og af-
hent Hákoni konungi, föð-
ur Ólafs V., að gjöf.
Hafði skipið þá verið lag-
fært hátt og lágt.
Norski sjóherinn sér um
viðhald á konungsskipinu
og áhöfnin er sjóliðar.
Yfirmenn skipsins eru 8
talsirs, 11 undirforingjar
og 45 óbreyttir. Skipherra
er kommandörkaptein W.
O. Thoresen.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimintiiiiiiiiMiimiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiimiiiiiii"imiii!miiiiiiiiiiiiiiiiii!miiiiiiiimiiiiiiiiii!
Menning -þjóða sést oít aí salernismenningu
hennar — kvengestur segir ekki sínar íarir
sléttar — ljót lýsing af Hressingarskálanum —
verkamaður ofan úr Borgarnesi sendir okkur
vísu
ur kurteis og lipur og öll
umgengni í sölunni til sóma.
En eins og stundum kem-
ur upp á, þá þurfti ég að
bregða mér inm á salerni og
annan eins sóðaskap og ó-
þrifnað hef ég aldrei aug-
um litið fyrr.
Vatn úr einni salernisskál-
inni flóði yfir mest allt
Hér kemur umkvörtunar-
bréf frá kvengesti á veit-
ingastað:
„Svo er mál með vexti,
að ég fékk mér kaffisopa
inni á Hressingarskála fyrir
nokkrum dögum ásamt vin-
konu minni. Framreiðslan
var í stakasta lagi og
stúlkan, sem afgreiddi okk-
gólfið og megnan ódaun
lagði frá þessu. Ekkert
handklæði var við vaskinn
og þeir allir stiflaðir.
Ekki bætti úr skák, að
lýsir.igin var með eindæmum
slæm og ekki viðlit að púðra
nefbroddinn án þess að eiga
á hættu að verða eins og
hveitipoki í framan.
Ekki má gleyma að geta
þess, að Iæsingin á annarri
salemishurðinni var í ólagi
og þar sem vatn flóði úr
hinni skálinná urðu gestir
frá að hverfa og það er
ekki gcður kostur að
hlaupa unp I Bankastræti
eða flýta sér með hraðferð-
inni heim og getur haft ó-
fyrirsjáanlegar afleiðingar á
almannafæri.
Nú langar mig til að
spyrja, hvort ekkert eftir-
lit sé haft með veitinga-
húsum hér í bæ eða hvort
þar sé farið í manr.igrein-
arálit og einstöku menr< fái
að reka veitingahús án alls
eftirlits. Spyr sá' sem ekki
veit. Ég get ekki fundið
neina frambærilega afsökun
fyrir veitingahúsið, þar sem
margir veitingastaðir eru
reknir með sóma og hrein-
lætis gætt í hv'ivetna.
Menn mættu athuga, að
menning þjóða sést oft af
salernismenningu hennar.“
Verkamaður einn uppi í
vísu, þegar hann frétti af
undirtektum litvaxpsráðs
undir dagskiá Alþýðusam-
bands Xslands 1. maí s.l.
Fnykurinn verður fúll og súr,
firrtur þrifa kjörnum.
Hvernig sem þeir ausa úr
andans kveisugömum.
imiiiiiiimimmiiiiiiiimiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiin'