Þjóðviljinn - 03.10.1961, Side 6

Þjóðviljinn - 03.10.1961, Side 6
^txef&ndl: Sametnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórari liagnús KJarransson (áb.), Magnús Torfi ólaísson, Sigurður öuðmundsson. — *réttarítstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Wfagnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Ekólavörðust. 10. 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. Prentsmiðja ÞJóðvilJans h.f. Einræðisstjórn f»að er auðvelt verk að „stjórna" með endalausum til- skipunum og valdboði ofan frá. En eigi slík ein- ræðisstjórn að bera árangur til lengdar verður hún að ráða yfir öflugri lögreglu og her sem kúgi þegnana til þess að sætta sig við fyrirmælin gegn vilja sínum. Slíkt einræðisstjórnarfar er alþekkt í sögunni, en ís- lendingar hafa ævinlega verið frábitnir þvílíkum stjórnarháttum. Viðhorf íslendinga hefur verið Það að landi beri að stjórna í samráði við þegnana, í samvinnu við þá og samkvæmt vilja þeirra, og þegar gerðar séu erfiðar stjórnarathafnir verði þær að ganga undir þá prófraun að þegnarnir skilji nauðsyn þeirra og sætti sig við þær, en ekki vegna þess að þeir beygi sig af þrælsótta fyrir einhverjum voldugum ráðamönnum. Á þennan hátt kann oft að vera erfitt að stjórna, en þetta eru Þau einu stjórnmál sem íslendingar virða og viðurkenna og telja í samræmi við hugmyndir sínar um frelsi og lýðræði. Oú ríkisstjórn sem nú er við völd hefur algerlega gef- ^ izt upp við að stjórna íslandi í samræmi við vilja almennings. Hún hefur í staðinn gripið til vaxandi einræðisathafna, endalausra bráðabirgðalaga og fyrir- mæla. Þau viðbrögð eru ekki merki um styrka og á- kveðna stjórn, eins og málgögn hennar reyna stundum að halda fram, heldur sýna þau að ríkisstjórnin veld- ur ekki viðfangsefni sínu; hún hefur gefizt upp við að stjórna á þann hátt sem íslendingar vilja láta fara með sameiginleg mál sín. Ofbeldi ríkisstjórnarinnar hefur aftur og aftur bitnað á verklýðssamtökunum, sem hafa verið rænd hinum mikilsverðustu réttindum til þess að unnt væri að korna kjörum verkafólks langt niður fyrir viðunanlegt lágmark. Ofbeldið hefur bitnað á þjóðinni í heild, eins og þegar ríkisstjórnin fram- kvæmdi gengislækkun með bráðabirgðalögum og svipti alþingi einum dýrmætasta rétti sínum. Og einræðis- hneigðin hefur komið niður á einum starfshópnum af öðrum, nú síðast á læknum sem hafa verið beittir fantatökum í stað þess að samið væri við þá á menni- legan hátt. lVrauðsynlegt er að þjóðin veiti þessum vinnubrögðum stjórnarherranna sérstaka athygli. Ekki aðeins er stefna ríkisstjórnarinnar þjóðhættuleg heldur einnig aðferðir hennar við að framkvæma stefnuna. Henni hefur þegar tekizt að valda þvílíkri upplausn og ólgu í Þjóðfélaginu að dæmalaust er hér á landi um langt skeið; það sýður undir hvar sem litið er. Ætli ríkis- stjórnin að halda stefnu sinni og vinnubrögðum til streitu verður hún að styðja ofbeldisverk sín vaxandi valdbeitingu, og raunar er vitað að í stjórnarherbúð- unum eru sífelldar umræður um þau efni. Hugmyndin um aðild íslands að Efnahagsbandalaginu er til að mynda ekki sízt rökstudd með því að þar sé að finna kúgunarvald sem baldnir Íslendingar verði að beygja sig undir. Baráttan gegn ríkisstjórninni fjallar þann- ig ekki aðeins um kaup og kjör' og efnahagsmál 1 þröng- um skilningi; það er ekki síður barizt um frelsi og lýðræði og þau lífsviðhorf sem eru íslendingum jafn eðlileg og andrúmsloftið. Það er því orðið mjög brýnt að ríkisstjórnin fái að finna það svo að ekki verði um villzt að þjóðin ætlar hvonki að þola stefnu hennar né vinnubrögð; verklýðssamtök, bændur og milli- stéttir og menntamenn verða að taka höndum sam- an um að hrekja stjórnina frá völdum á eins skömm- um tíma og kostur er, áður en miklu verra hlýzt af rangsnúnum viðhorfum hennar,;^g-;ósíemilggBm;> vfmnw-s brÖgðuíttV' l2- m. :■* ■ ;-r v > Þessi hugsun lét mig síðan aldrei í friði Við erum ko.min til Hafli.ða Hafliðasonar skipasmiðs " á Bjarkargötu og byrjum for- málalaust á efninu. — Hvenær og hvar ertu fæddur, Hafliði? ■— Ég er fæddur 3. október 1891 í Dvergasteini í Hafnar- firði. (þaðan er einníg Emil ráðherra). —• Svo þú ert þá Hafnfirð- ingur að uppruna? — Faðir minn Hafliði var sonur Þorsteins Halldórsson- ar frá Bakka í Garðahreppi. Amma mín var af Selkotsætt undan Eyjafjöllum. Langafi minn var austan úr Hreppum. Móðurafi var kominn af Bauka- Jóni og móðuramma mín var frá Signýjarstöðum af Húsa- fellsætt. Þú sérð því að ,.hafn- firzki“ uppruninn er ærið blendinn. — Uppalinn í Hafnarfirði? — Já, ég fluttist ekki hing- að fyrr en á afmælisdaginn minn þegar ég var 19 ára. — Hverju manstu eftih í Hafnarfirði þegar þú varst smástrákur? — Það fyrsta sem ég man eftir mér var í suðurendanum á Dvergasteini. Frans Simsen sýslumaður var þá næsti ná- granni okkar. Gömul kona í Hafnarfirði sagði mér ,að þá hefði hún eitt sinn komið að mér sitjandi á kjallaratröpp- um bak við húsin með bláan fresskött í fanginu sem við átt- um en Frans stóð dálítið frá óg miðaði á okkur byssu, hiigð- ist skjóta köttinn í fanginu á mér. Gamla konan tók byssima ýf sýslumanninum. Þú hefur Hafnarfirði? verið í skóla í — Ég fór í barnaskófann 1902 og á vornámskeið í Flens- borg 1905. Þá voru skínandi kennarar þar. Jón Þórarinsson skólastjóri, Ögmundur Sigurðs- son síðar skólastjóri, Jóhannes Sigfússon og Gunnlaugur Krist- mundsson, sem hafði verið nemandi þar en kenndi á nám- skeiðinu. Kennslan var ákaf- lega lifandi hjá Jóni Þórarins- syni. Það var lítið um kennslu- áhöld þá, en Jón sýndi okkur og sannaði hreyíingu Sólar- gangsins með krítarstrikufh á veggnum í sólskini. Jón Þorar- insson og Einar á Óseyri vildu að ég héldi áfram í Flensborg — en ég nennti því ekki, því miður. Enskan stóð í mér. Stærðfræði var eftirlætisgrein mín, og ég gat lært dönsku og þýzku — en ekki ensku! — Og hvað ‘gerðirðú þá? — Ég byrjaði í skipasmíði hjá Sveini Magnússyni frá Gerðum — og síðan hef ég ver- ið í þeirri grein. Við vorum í húsi er Jóhannes Reykdal átti við Lækinn og síðar Dvergur. Annars smíðuðum við báta þar sem mennirnir áttu heima er áttu þá. Seinna byggði Sveinn sér sm’ðaskúr á bak við hús er hann átti niðri við Lækinn. — Kaupið? — Þá hafði ég 12y2 eyri um •gfov ariignitó EífStór:. 1 iiárírífótuíégpað' " smíða báta sjálfur fyrir karl- I ana. Það hefur til skamms tíma verið við lýði bátur er ég smíðaði 1908 fyrir Halldór í Ásbúð og Ólafur átti s'ðar. Ég smíðaði eina 6—7 báta, t.d. 3 fyrir Hellubræður. Efnið í einn bátinn, tveggja manna far, man ég að kostaði 35 kr. f.vrir vinnun.a fékk ég 20 kr. og 2 tvævetra sauði. — man ekki hvað þeir voru virtir mik- ið. Árið 1909 var lögð vatns- veita til Hafnarfjarðar úr Lækjarbotnum, kaupið i þeirri vinnu var 20 og 25 aurar um tímann. eftir afköstum. — Hversvegna fórstu hing- að? — Ég fór hingað vegna þess hve lítið var að ger.a í Hafnar- firði. Norðmenn voru .þá að hætta sinni útgerð þar — ég man eftir 35 norskum línu- veiðurum þar á höfninni þeg- ar flestir voru. Svo var þar dauður tími þar til Bookles settist ,að í Svenborg. — Varstu orðinn sveinn, og gekk betur í Reykjavík? — Ég útskrifaðist eiginlega aldrei sem sveinn! Þegar ég kom hingað haustið 1910 í Slippinn til Ellingsen ' voru þar aðeins 4 verkstjórar, sem höfðu 40 aur,a á tímann, beztu skipasmiðirnir hö.fðu 35 aura á togara með Þórarni Olgeirs- sýni, hann var þá nýtrúlofað- ur dóttur Joe Little og var þetta annað skipstjórnarárið hans! — Hvað manstu eftir lengstri vöku á togara? -— Lengstri vöku man ég eftir þegar við vorum ný- komnir frá Grimsby beint á Hvalbak, við vöktum þar lát- laust í 2 sólarhringa, fórum svo inn á Fáskrúðsfjörð eftir salti — ég gleymi ekki þeim viðbrigðum að koma utan úr þokuyeggnum á hafinu upp undir Seley þar sem allt var baðað í sólskini! Við sváfum 4 stundir í höfn, síðan út aft- ur og vöktum samfleytt aðra tvo sólarhringa. — En mestri veiði? — Skörpust veiði á vertíð var þegar við fórum út um miðjan dag miðvikudaginn fyr- ir sk'rdag og þá beint austur að Þjórsárkjafti, þar fiskuð- um við látlaust báða bænadag- ana en á laugardaginn kom snarpt austan skafningsrok svo við fórum í var við Vestmanna- eyjar. Á páskadagsmorgun- fór- um við svo beint upp í Vík í Mýrdal — hefðum getað þekkt fólk á landi, svo grunnt vor- um við. Þarna var svo stór Hafliði skipasmiðameistari og aðrir íhlaupasmiðir 27y2 eyrir. Ellingsen setti mig í að gera við jullur með gömlum hreppstjóra af Snæfellsnesi, Ármanni föður Kristins rektors. Hann sagði þegar ég byrjaði; þú færð útborgað á laugardag- inn. Svo kom hann öðru hvoru til að Jíta á verkið, en sagði aldrei neitt. Á laugardaginn fékk ég svo útborgaða 40 aura um tímann. Þá varð ég ánægð- ur og hrifinn. Ellíngsen var ágætiskarl, hann var í senn slippstjóri og verzlunarstjóri Qg allt í öllu. Frá Ellingsen fór ég til Otta — þá var farið að smíða mót- orbáta. Annars var nóg að gera við skipasmiði frá því skúturnar komu á haustin og þar til þær fóru í febrúar-marz, síðan komu Fransarar inn sem lent höfðu í „hafaríi“, skút- umar með bilanir og líka Fær- eyingar svo nóg var ,að gera fram í júlí, en síðan ekkert þar til skúturnar komu aftur á haustin. Þá varð maður að far,a til sjós á sumrin. Sumarið 1911 var ég á lítilli skútu, Ásu. 1912 var ég á síldveið- um, reknetaveiðum hér í Faxa- flóa með Geir Sigurðssyni skipstjóra. Hann var ágætis- maður og oft glaðværð, hann var alltaf að koma með vísur á okkur. Kátir voru karlar á kútter Haraldi orti hann þegar hann var rneð Harald frá Akranesi. Við höfðum 50 krónur á mánuði í kaup og 50 aura í premíu af tunnu og máttum Sumarið 1913 fór ég svo göngufiskur að við gátum varla einhent hann milli kassa. Við fiskuðum þarna báða ; páska- dagana og komum sýo með skipið fullt uppi og íniðri á þriðja í páskum. Þórarinn vakti jafnt* mönn- um sínum, það var nfeira en sumir aðrir gerðu. Hann hyllt- ist til að láta okkur sofa eitt- hvað í hverjum sólarhring, en hann var vinnuharður. En svona var þetta alstaðar. Karl- arnir á skútunum stóðit meðan þeir gátu staðið og eins var á róðrarbátunum, kaupamenn stóðu myrkranna á milli. Líf þjóðarinnar var ein vinnulota þegar gaf fyrir veðri. — Og kaupið? — Kaupið á togaranum voru 75 kr. á mánuði og 9 kr. af fatinu, nema 18 kr. í Vest- mannaeyjum, þar var Norð- maður sem gaf helmingi hærra fyrir það en gert var í Reykja- vík. — Þú lærðir meira í skipa- smíði en þetta hjá Sveini? — Sumarið 1910 fór ég einn túr á Elínu, lítilli skútu. í Pat- reksfjarðarflóanum fór ég áð velta því fyrir mér í stormi hvaða afl það væri sem rétti skipið við aftur þegar það hallaðist. Þessi hugsun lét mig síðan aldrei í friði. Svo fór ég í skóla í Bergstaðastræti hjá Ásmundi Gestssyni, það var kallaður lýðháskólj, var þar tvo vetur. Síðan smíðaði ég nótabáta fyrir eigin reikning og fékk 5 þúsund krónur frá ára.m.óiuna „jij .ágús.tlaka, ,Það iifffiM hiikill peningúri'þá. Þá fór ég út að læra, fór 16. sept 1916 g) — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 3. október 1961

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.