Þjóðviljinn - 04.10.1961, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 4. október 1961 — 26. árgangur — 246. töiubiað
París 3/10 — Stjói'nmálafréttarit—
arar í París fullyrtu í dag, að
de Gaulle og Ben Khedda, for-
sætisráðherra útlagastj. serkja,
hefðu náð samkomulagi um að
bráðlega skuli fara fram þjóðar-
atkvæðagreiðsla í Alsír um sjálfs-
ákvörðunarrétt Alsírbúa. Opin-
berir aðilar neituðu að láta hafa
nokkuðu eftir sér um þetta mál.
Gœzlumaður ríkisins fyrir-
greiðslumaður hernámsliðs?
Á Vestfjörðum er altalað
aö þaö hneyksli eigi sér staö,
að löggæzlumaður íslenzka
ríkisins hjá bandaríska her-
námsliðinu í Aöalvík sé
jafnframt launaöur starfs-
maður hersins!
Þykir mönnum þetta að vonum
furðulegt ráðslag, og af þessu til-
efni hefur Þjóðviljanum borizt
svofellt bréf frá Norður-Isfirðing:
..Vinsamlegast birtið eftirfar-
andi fyrirspurn í von um, að
hlbtaðeigandi kaðilar íslenizkir
upplýsi það rétta:
Er það rétt, sem sagt er hér
yestra, að lögregluþjónn / toil-
þjónn ísl. ríkisins, sem verið hef-
ur til eftirlits hjá bandaríska
setuliðinu í Aðalvík og á
Straumnesfjalli sé jafnframt því
trúnaðarstarfi starfsmaður her-
námsliðsins, þ.e. sjái um allskon-
;ar' fyrirgreiðslur o.s.írv.1 fyrir
| það?
I Ef svo er, þá gegnir það furðu
að gæzlumaður íslenzka ríkisins
I skuli, auk launa sinna úr ríkis-
sjóði, vera á launum hjá
íska hernum, auk þess sem
hefur hingað til reynzt að þjóna
tveim herrum af samvizkusemi.
Ef þessi furðufregn er rétt, þá
er fróðlegt að fá að vita hvort
slíkt fyrirkomulag sé gert með
I ,’itund og vilja þeirra stofnana,
|sem.með þessi mál fara-‘.
Aö lokinni ráöstefnu A.S.Í. um kjaramál var haldin
sjómannaráðstefna, og mættu á henni fulltrúar frá sjó-
mannafélögum og verkalýðsfélögum sem fara meö samn-
inga fyrir sjómenn. Voru þar almennar umræður um
sérmál sjómanna, en aö þeim loknum var samþykkt ein-
róma tillaga sú sem hér fer á eftir:
„Sjómannaráðstefna Alþýðu-
sambandsins haldin í Reykjavík
1. okt. 1961, telur að segja verði'
upp þeim bátakjarasamningum er
gerðir voru á s.l. vetri, til þess
að samræma enn betu.r kjörin i
heildarsamningi en þá tókst, svo
og til þess að knýja fr.am þá rétt-
mætu kröfu sjómannasamtak-
anna að þau verði ótvíraeður að-
ili um fiskverð ásamt útvegs-
mönnum, viö fiskkaupmenn.
Til ábendingar telur ráðstefnan
nauðsynlegt að fá í hlut allra fé-
Töpuðu 0:6 fyrir
Norðmönnum
1 12. umferð á Evrópumeist-
aramótinu í bridge unnu Norð-
menn íslendinga í opna flokkn-
um með 6:0.
laganna þau ýmsu aukaatriði sem
ýmis félög náðu, umfram það
sem tókst í heildarsamningunum,
! svo sem 200 þúsund króna trygg-
inguna við dauða eða örorku og
ábyrgðartryggingu, aukagreiðslu
1 til háseta á landróðrabátum á
línuveiðum, hækkaða hlutartrygg-
ingu, 1% af heildartekjum er
renni í sjóði félaganna, hvers á
sínum stað, og önnur þau atriði
I sem samkomulag verður um að
bera fram.
Ráðstefnan telur rétt, að feng-
inni reynslu, og samþykkir að
væntanleg samninganefnd, verði
samansett og tilnefnd á sama
hátt og síðast var.
Þá telur ráðstefnan og. sjúlfsagt
að sjómannasamtökin sem heild
v.erði aðili u.m síldarverð á sama
hátt og um fiskverð og nefnd
verði skipuð á sama hátt og.báta-
kjarasamninganefndin er . undir-
búi og vinni að því máli“.
LIF OG
DAUÐI
Þessi mynd cr tekin í hitaskáp í Tilraunastö ðinni að Keldum og sýnir hvernig glösin með
sýkingar- og mótefnatilraununum eru geymd í stórum rúilum sem látnar cru snúast hægt.
Rúllurnar eru alls Iírjá.r en á myndinni sést aðeins hluti af einni þeirra. Um eða yfir 700
glös eru í hverri rúilu. Á opnu blaðsins í dag birtist siðasta greinin frá heimsókninni að
Keldum og segir þar frá v
veirusjúkdómum og /r\ \
veirurannsóluium sem
stundaðar eru bar.
< “
Fundur fullskipaðrar sam-
bandsstjórnar Alþýðusambands
íslands var haldinn í fyrradag
cg gær í fundarsal sambandsins
að Laugavegi 18.
Hannibal Valdimarsson, for-
seti sambandsins, setti fundinn
og flutti skýrslu um starfserp-
ina frá því þing ASÍ var haldið
| í nóvember sl. Fyrir fundinum
lágu reikningar sambandsins fyr-
ir árið 1960 og voru þeir sam-
þykktir samhljóða.
Á fundinum mætti Haukur
Helgason hagfræðingur, sem ver-
ið hefur fulltrúi ASl í viðræðu,-
nefnd við ríkisstjórnina um aðild
Islands að Efnahagsbandalagi
Evrópu. FJutti hann sambands-
stjórn skýrslu um störf sín í
hefndinni og. kynnti þá afstöðu
sína sem hann lét bóka á fundi
nefndarinnar með viðskiptamála-
ráðherra en sú afstaða var mörk-
uð á fundi miðstjórnar ASÍ 3.
ágúst sl. Þessi afstaða miðstjórn-
ar og Hauks Helgasonar var síð-
an borin undir atkvæði sam-
bandsstjórnarfundarins og stað-
fest af honum með atkvæðum
allra fundarmanna. Frá afstöðu
ASl í málinu hefur áður verið
skýrt hér í blaðinu en hún er í
stuttu máli á þá leið, að ekki
geti komið til mála að ríkisstjórn-
in hefji samninga við Efnahags-
bandalagið með væntanlega þatt-
töku fslands fyrir augum.
Mynd þessi af sambandsstjórn ASÍ var tekin meðan á fundi hennar
stóð. Stjórnarmenn cru taldir frá vinstri: Sveinn Gamalíeisson, Öð-
inn Rögnvaldsson. Herdís Ólafsdóttir Akranesi, Guðmundur Ejörn-
son Stöðvarfirði, Helgi Guðmundsson, Björn Jónsson Akureyri, Jón
Sncrri Þorleifsson, Ilannibal Valdimarsson, Eðvarð Sigurðsson,
Snorri Jónsson, Einar Ogmundsson, Gunnar Jóhannsson Siglufirði,
Sigurður Stefánsson Vestmannacyjum og Jón Magnússon ísafirði.
í Eeyhiavík í dag. — Sldlið spíöldum og peningum í skrii-
stduna, Þórsgötu 1, sími 22396. — Opið irá kiukkan lð
iyrir hádegi iil klukkan 11 í kvöld.