Þjóðviljinn - 11.10.1961, Qupperneq 1
*
VIU1jm nn
Miðvikudagur 11. október 1901 — 26. árgangur — 232. tölublað
Fánahneykslið sök
ríkisstjórnarinnar einn-
ar.
Sjá 3. síðu. ]
Séð yfir fundarsal sameinaðs þings í gær. (Ljós mynd Þjóðviljinn).
Strompleikurínn kom
í bókabúðir í gær
Frumsýning i ÞjóSieikhúsinu i kvöld
SAMAN TIL
Áiitamál um aidursforseta
Alþmgi, 82. löggjafar-
bing, kom saman til fund-
ar í gær. Var þingfundur
stuttur og kosningu þing-
forseta frestað þar til síð-
degis í dag.
í kvöld verður Strcmp-
leikur Halldórs Kiljans
Laxness frumsýndur í
Þjóðleikhúsinu og í gær
kom leikr;tið í bóka-
búðir, ge'fið út af Helga-
felli: Strompleikurinn,
gamanleikur í þrem þátt-
um.
Bókin er 133 síður og þar er
í upphafi skýrt frá persónum
leiksins á þennan hátt:
„FRÚ ÖLFER ekkja af góðum
ættum
LJÓNA ÓLFER (ÓLJÓNA)
dóttir hennar
ÚTFLYTJANDINN („Fiskhaus
og Kó“)
INNFLYTJANDINN (merkið
„sjálflýsandi kattarhaus“)
SAUNGPRÓFESSORINN
KÚNSTNER HANSEN
LAMBI miljóner sjómaður og
barnakennari
ÚTFLYTJANDAFRÚIN
SAUNGPRÓFESSORYNJAN
ÓLA
FULLTRÚI ANDANS ÚR JAP-
AN
Ennfremur þrjú sjógörl, þrír
lögregluþjónar, fiskimatsmaður,
nokkrir hátíðagestir.11
Þrír þætlir
Að öðru leyti er gerð svofelld
grein fyrir leiknum:
„Leikurinn gerist um miðja
tuttugustu öld í norðlægu landi.
Fyrsti þáttur gerist að morni um
sólaruppkomu á útmánuðum í
gömlum herbragga (Nissen hut)
þar sem mæðgurnar eiga heima.
Annar þáttur gerist þrem ár-
um seinna og er tvískiftur. Fyrri
hluti gerist í skilnaðarhófi sem
haldið er í vöruskemmu Fisk-
hauss og Kó þegar Ljóna er að
fara á stað til útlanda að sýngja
í óperum. Síðari hluti á flugstöð.
Þriðji þáttur yiku seinna: trú-
lofunargildi Ljónu Ólfer; sama
leiksvið og í fyrsta þætti."
Herbraggi
Um lejksvið fyrsta þáttar seg-
ir svo:
„Niðurníddur herbraggi úr
stríðinu, þar sem miðhluti endi-
langs ,.tunnuhelmíngs“ er skáli,
en fjögur herbergi afþiljuð sitt
á hvora hlið. Grábleik tötraleg
texþil. -Máiverk af útlendum
skógi, tiiviijanlegt og sambands-
iaust við umhverfið, fórur úr
þrotabúi borgaralegs heimilis ut-
an af landi. önnur veggjaprýði:
myndir af filmstjörnum og prins-
essum uppfestar með teiknibólum
og flennistór amerísk veggalm-
anök með myndum af fáklædd-
um kvenmönnum. Á vegg hángir
lítill meðalaskápur með þremur
krossum. Meðalaglas stendur á
borði. Þúngamiðja herbergisins
er gríðarstór ensk kamína með
mannhæðarháu eldholi hægra
megin á sviðinu, kubbahlaði hjá.
Anddyri vinstra megin en auk
þess tvær hurðir aðrar: dyr til
Gunnu frænku og, nokkru nær
Framhald á 3. síðu.
Við þingsetningu í gær, að lok-
inni messu í Dómkirkjunni, las
forseti íslands bréf handhafa
forsetavalds dags. 13. september
sl. um samkomudag Alþingis, en
lýsti síðan yfir að löggjafarþingið
væri sett og árnaði því allra
heilla í störfum.
Látinna þingmanna minnzt
f lok ræöu sinnar bað forseti
aldursforseta að taka við störf-
um þingforseta þar til kjörinn
hefði verið forseti sameinaðs
þings, eins óg þingsköp mæltu
fyrir um. Sté þá Gísli Jónsson
umsvifalaust í forsetastól, bauð
forseta fslarids velkominn úr
Kanadaför, óskaði Ólafi Thors
góðs afturbata og minntist fjög-
urra manna, sem setið höföu á
Alþingi og látizt hafa á þeim
tíma sem liðinn var síðan þing
kom síðast saman til funda,
þeirra Jóhanns Þ. Jósefssonar
fyrrv. ráðherra, sem lézt 15. maí
sl., Gunnars Ólafssonar kaup-
manns í Vestmannaeyjum sem
lézt 26. janúar sl., Angantýs Guð-‘
jónssonar verkstjóra sem lézt 6.
ágúst sl. og Ásgeirs Sigurðsson-
ar skipstjóra sem lézt 22. sept-
emþer sl. Heiðruðu þingmenn
minningu hinna látnu með því
að rísa úr sætum.
sonar, Einar Sigurðsson í stað
Jónasar Péturssonar og Sveinn
Einarsson í stað Ölafs Triors.
Þar sem Sveinn hefur ekkí áð-
ur átt sæti á Alþingi var fundi
frestað um sinn meðan kjör-
bréf hans var rannsakað. Er
rannsókn kjörbréfsins var lokið
og fundur settur að nýju kvaddi
Skúli Guðmundsson sér hljóðs
utan dagskrár. Benti hann á að
samkvæmt þingsköpum ætti ald-
ursforseti að stjórna þingfundi
þar til forseti sameinaðs þings
hefði verið kjörinn. „Ef ég man
rétt“, sagði Skúli, „þá er Jón
Pálmason, sem nú er mættur til
þings, nokkru eldri en sá þing-
maður sem situr nú í forseta-
stól“. Kvaðst Skúli vilja spyrja
hvort Jón ætti frekar að stjórna
fundi en Gísli. Sá síðarnefndi
svaraði því til, að tilkynningin
um þingsetu Jóns Pálmasonar
sem varamanns hefði ekki verið
Framh. á 10. síðu.
Gísli eða Jón?
Nokkrir þingmenn boðuðu for-
föll og tóku varamenn sæti þeirra
á þingi: Jón Pálmason í stað
Gunnars Gíslasonar, Hjörtur
Hjálmarsson í stað Birgis Finns-
Gísli Jónsson minnist látinna
þingmanna úr forsctastóli.
Fundur i Iðnó í kvöld um
Efnahagsbandalag Evrópu
mM..
Þór Vigfússon.
Á fundinn um Efnahagsbanda-
lag Evrópu sem Sósíalistafélag
Reykjavíkur heldur í Iðnó í kvöld,
eru allir fylgjendur Alþýðubanda-
lagsins velkomnir meðan húsrúm
leyfir og aðrir þeir er áhugavhafa
fvrir bvj mikla máli.
Ungur hagfræðingur, Þór Vig-
íússon, flytur þar erindi um Efna-
hagsbandalagið. Fundurinn hefst
kl. 8.30.
Það er mikið örlagamál fyrir
íslenzku þjóðina alla hver verður
afstaða íslands til Efnahagsbanda-
lagsins og ætti hver maður að telja
það skyldu sína að kynnast sem
bezt hver, konar samtök banda-
lagið er.