Þjóðviljinn - 11.10.1961, Qupperneq 3
Það 'hefur nú komið í ljós
að ríkisstjórn íslands ein
átti allt frumkvæði að fána-
hneykslinu 1 sambandi við
færeysku myndlistarsýning-
una. Það var rangt sem
Þjóðviljinn sagði í gær að
frumkvæðið hefði komið frá
danska sendiherranum, og
biöst blaðið afsökunar á
þeirri missögn og þeim á-
lyktunum sem af henni voru
dregnar.
Það varu íslenzk stjórnarvöld
sem að fyrrabragði fengu þá
: furðulega hugmynd að krefjast
þess að færeyskir myndlistar-
menn sýndu list sína hér undir
dönskum fóna! Það voru íslenzk
stjórnarvöld sem sneru sér til
danska sendiherrans og spurðu
livort hann vildi samþykkja ad
færeyski fáninn yrði hafður nppi
með þeim danska. Það voru ís-
lenzk stjórnarvöld sem bönnuðu
s.l. sunnudag að nokkur fáni
skyldi hafður uppi L, sambandi
i: við færeysku myndlisiarsýning-
una, vegna þess að þau gátu
ekki sætt sig við þá ákvörðun
- menntamálaráðs að aðeins skyldu
hafðir uppi færeyskur og íslenzk-
: ur . fáni. Og það voru í-slenzk
stjórnarvöld sem ákváðu að ís-
lenzki fáninn skyldi ekki hafður
uppi, eftir að þau guggnuðu á að
banna þann færeyska. Ríkis-
; stjórnin hefur ekki einu sinni þá
'í diplómatísku afsökun að hún
hafi orðið að taka tillit til danska
' sendiráðsins hér og óska þess;
] það hefur semsé lcomið í ljós að
íslenzkir ráðherrar eru meiri
| Stórdanir gagnvart Færeyingum
I en stofnanir danska ríkisins, enda
er alkunnugt að Færeyingar hafa
notað fána sinn víða um lönd
á undanförnum árum án þess að
nokkrar athugasemdir hafi ver-
ið við það gerðar — nema hér!
Þjóðvilianum bai’st í gær yf-
irlýsing frá menntamálaráðuneyt-
inu um fánamálið og þar er frá-
sögnin um þessa máiavexli stað-
fest. Mesinmál yfirlýsingarinnar
er svohljóðandi:
„Fimmtudaginn. 5. október,
kom framkvæmdastjóri Mennta-
máiaráðs. Gils puðmundsson, á
fund ráðuneytisstjóra mennta-
málaráðuneytisins, Birgis Thorla-
cius, og ræddi við hann um,
hvaða tilhögun skyldi hafa á
notkun fána við opnun sýningar-
innar. Taldi ráðuneytisstjórinn
eðlilegast, að þrír fánar yrðu
hafðir uppi við opnun sýningar-
innar, íslenzki. danski og fær-
ey-ski fáninn. Voru þeir fyrir sitt
ieyti sammála um þá tilhögun og
að rétt væri að ræða- hana við
hlutaðeisandi aðila. Skýrði ráðu-
neytisstjórinn menntamólaráð-
herra, Gytfa Þ. Gíslasyni, frá
bessu samdægurs. Hafði ráðherr-
ann ekkert við þessa tilhögun að
athuga, en bað um. að danska
sendiráðinu yrði skýrt frá því
fyrir fram, að tilhögunin yrði
þessi. Ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins skýrði sendiherra
Dana, Bjarne W. Paulson, frá því,
j hvernig ætlunin væri að haga
notkun fána við opnun sýningar-
| innar, og hafði hann ekkert v'ið
| það að athuga.
Þegar menntamátaráðherra,
sem Menntamálaráð hafði beðið
að opna sýninguna, að viðstödd-
um forseta íslands, korn til sýn-
ingarinnar laust fyrir kl. 5.
blöktu tveir íslenzkir fánar og
einn færeyskur við hún. Þegar
ráðherrá spurði formann og
framkvæmdastjóra Menntamála-
ráðs, hvers vegna sú tilhögun
væri ekki á höfð, sem um hefði
verið rætt milli ráðuneytisstjór-
ans og framkvæmdastjórans, kom
í liós. að af hálfu Menntamála-
ráðs hafði málið ekki verið rætt
við færeysku listamennina fyrr
en sama dag og sýninguna átti
að opna, en þeir hafi þá skýrt
frá því, að þeir mundu neita að
vera viðstaddir og jafnvel taka
niður myndir sínar, ef danski fán-
inn væri notaður. Ráðherrann lét
í ljós óánægju yfir því, að fá
ekki um þetta vandamál að vita
fyrr en á síðustu stundu og taldi
sér nauðsynlegt að skýra ríkis-
stjórninni frá móiinu. Þar eð
hann hefði ákveðið ferð í Borgar-
fjörð með Jörgen Jörgensen. fyrr-
verandi menntamálaráðherra
Dana. á sunnudag, gat hann ekki
háð t'l ráðherranna fyrr en á
mánudagsmorsun og taldi því
’’étt. að ekkert vrði flaggað við
bióðminiasafnshúsið á sunnudag.
eða þangað til tóm hefði gefizt
tU bess að ræða betta deilumál.
Fvrir hádesi á mánudag skýrði
menntamálaráðherra .samráðherr-
um sfnum frá málavöxtum, og
varð það eioróma álit ráðherr-
anna. að úr'hvf að ágreiningur
væri um bá tiihögun. sem unn-
hafleea hpfðþverið rætt um væri
hennilegast, að færeyski fáninn
einn væri notaður. Var hann
bví drevinn að hún við Þjóð-
miniasafnið í gær.
Sendiherra Dana á íslandi hef-
ur engin afskinti haft af þessu
máli, og harmar ráðunevtið rnjög.
að honum skuli hafa verið bland-
að í rmUið, eins og’geVt er í frá-
sögn Þjóðviljans.“
lakrossdelldir
iidi I landinu
StrompSeikur Kiljens
Framhald af 1. síðu.
baksviðinu, dyrnar til L,jónu.
Tvær hurðir hægramegin, önnur
veit fram í eldhús. Þátturinn
hefst um áttaleytið að morni á
útmánuðum. Dagsbirta kemur
innum glugga á baksviðinu. Sólin
kemur upp í þættinum.“
Vöruskemma Fiskhauss og Kó
Sviði annars þáttar er þannig
lýst:
„Skilnaðarhátíð í vöruskemmu
Fiskhauss og Kó.
Hlaðar af niðursoðnu fiskmeti
: í pappakössum með fánga-
marki firmans úr gólfi í loft
byrgja leiksviðið að mestu.
Fremst til hægri skrifstofupláss
vöruskemmunnar: fyrir framan
lítinn disk tveir stálstólar, fyrir
innan tvö smáborð undir reikn-
ingsvél og ritvél, hetta yfir vél-
unum. Svið þáttarins liggur að
baki „i.eiksviði" skemtunarinn-
ar. Á hlaða af fiskvörukössum
hefur verið gerður leikpallur
fyrir miðju sviði, en „áhorfenda-
svæðið“ er að mestu falið bakvið
vöruhlaðana, svo ekki er hægt
að gera sér grein fyrir mann-
fjölda, en tveir og tveir veislu,-
gestir sjást á sveimi milli hlað-
anna og halda á kokteilglösum.
Píanóskrifli krotað með hjarta og
ör í' gegnum, I love you o. þh.
upDá leikpallinum. Ómur og
kliður, hlátrar og' undirgángur og
ávæningur af djassi. Þrjú sjó-
görl eru að ljúka dansnúmeri
uppá leikpaWinum, Innflytjandinn
tekur á móti þeim og faðmar
þær.“
Flngstöð og bragginn aftur
Síðari hlutr arinars þáttag ger-
. ist við „horn s á flugstöðinni,
Hægra- megin hliðið <þar sem að-.
Komú’fár^égár koma gegn.
Vinstra n\egin nokkur smáborð
þar sem hægt er að fá sér hress-
íngu.“
Þriðji þáttur gerist á sama stað
og sá fyrsti: „Herbragginn eftir
ca. þriggja ára tiltölulega vel-
geingni. Veggmyndin af skógi er
horfin; kominn sími. Kamínan
virðist stærri en áður, en kubba-
hlaðinn er með ummerkjum. Á
veggina eru komnar tvær flenni-
stórar auglýsingamyhdir, önnur
af hvítri gistihússforhlið og
pálmaviður fyrir framan, blár
himinn; hin, amrísk bifreið af
siðustu árgerð. Þríkrossaði með-
alaskápurinn einsog fyr. Píanóið
sem á er rispað hjarta með ör
i gegn osfrv. Fyrir framan kam-
ínuna upptroðinn hundur mo-
rau.ður. Blóm í vasa fyrir fram-
an hundinn.
Frú Ólfer og vinnukonan Óla
eru að eánga frá skálanum undir
gestaboð."
Á 19. þingi Iðnnemasamþands
fslands, er haldið var um síð-
ustu helgi, var eftirfarandi á-
lyktun um kjgramál iðnnema
samþykkt með samhljóða át-
kvæðum;
„19. þing- I.N.S.Í. ítrekar enn
sem fyrr þá kröfu sína, að lág-
markslaun iðnnema verði sem
hér segir:
Á 1. ári 49% af kaupi sveins
— 2. — '50% —
Aðalfimdur Rauða kross ís-
lands var haldinn í Góðtempl-
arahúsinu í Hafnarfirði laugar-
dagicu 30. sept. í boði Hafnar-
fjarðardeildar RKÍ. Mættir voru
á fundinum 41 fulltrúi frá 18
deildum og fundarstjóri var
kosinn Jón Mathiesen kaupmað-
ur.
í skýrslu stjórnar RKÍ kom
m.a. fram að á sl. sjö árum hef-
ur að meðaltali verið stofnuð
ein Rauðakrossdeild á ári. Alveg
nýverið hafa verið stofnaðar
deildir á Patreksfirði með 36
stofnendum og Ólafsfirði með
47 stofnendum. Formaður á
Patreksfirði er Kristján Sig-
urðsson, á Ólaf$firði Guðlaug
Gunnlaugsdóttir. Nú eru starf-
andi 18 deildir á landinu. Kynnt
hefur verið lífgunaraðferð dr.
Rubens víða á landinu, auk þess
sem námskeið í hjálp í viðlög-
um hafa verið haldin, sérstak-
lega í Reykjavík.
Nokkrar lagabreytingar voru
samþykktar á fundinum og sú
helzt að framvegis verður kosin
— 3. — 60% — — —
— 4. — 70% —- — —
Afnám vísitöluuppbóta og sí
feUdar gengislækkanir á undan
törnum árum gera nauðsynina á
því, að lágmarkslaun iðnnema
verði hækkuð, enn brýnni. 19.
þing I.N.S.Í. vill vekja sérstaka
athygli á þyr, að á meðan öðr-
um stéttum er að nokXru bætt
hin gífurlega kjaraslcerðing
leggst hún með fullum þunga á
iðnnema, þar sem fæstir hafa
9 manna stjórn í stað 17 manna
stjórnar áður os 7 manna fram-
kvæmdaráðs. Stjórnin er skip-
uð 5 mönnum úr Reykjavík og
4 utan af landi, einum úr hverj-
um landsfjórðungi^ og á að far.a
með öll málefni RKÍ á milli að-
alfunda.
Fráfarandi formaður RKÍ g.af
ekki kost á sér til endurkjörs
og var dr. Jón Sigurðsson borg-
arlæknir kosinn formaður í hans
stað. Aðrir í stjórn eru: Guðm.
Karl Pétursson læknir Akureyri,
sr. Jón Auðuns Rvík, Torfi
Bjarnason læknir Akranesi, Árni
Björnsson endurskoð. Rvik, Dr.
Gunniaugur Þórðarson Rvík, Óli
J. Ólason kaupm. Rvík, Jón
Mathiesen kaupm. Hafn., Emil
Jónasson Seyðisfirði. Þorsteinn
Sch. Thorsteinsson var kosinn
fulltrúi RKÍ í stjórn sambands
Rauða Kross félaga.
Fundurinn sendi fráfarandi
form., Þorst. Sch. Thorsteinsson
sem dvelst erlendis, þakkir fé-
lagsins fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf á liðnum árum.
fyrir fjölskyldu að sjá og verða
því með öUu afskiptir þeim upp-
bótum, sem aðrir lauuþegar fá.
Þess vegna skorar 19. þing
I.N.S.Í. á Iðnfræðsluráð að ganga
nú þegar að kaupkröfum Iðn-
nemasambandsins.
Þingið þakkar þeim sveinafé-
lögum, sem stutt hafa kaupkröf-
ur iðnnemasamtakanna og vænt-
ir enn frekari stuðnings sveina-
félaganna við bágsmunamál iðn-
nema“.
Brýn nauðsyn að lágmarks-
laun iðnnema verði hœkkuð
ÞJÓÐVILJINN er vopn
fólksins í þeirri baráttu, sem
nú er háð um tilverurétt
rerkalýðssamtakanna og sjálf-
stæða tilveru þjóðarinnar.
Þess vegna er engu fé bet-
ur varið en því. sem fer til
þess að tryggja útkomu hans.
Brynjólfur Bjarnason
formaður Sósíalistafélags
Reykjavikur.
í 25 ár heíur ÞJÓÐVILJ-
INN haldið uppi sókn og vörn
fyrir málstað verkalýðsfélag-
anna í átökum þeirra við at-
vinnurekendur og ríkisvald
um hærra kaup og aukið
þjóðfélagslegt öryggi verka-
tólkinu til handa.
Án ÞJÓÐVILJANS hefði
baráttan orðið erfiðari og
árangurinn minni.
Um leið og við leggjum
eitthvað af mörkum til þess
að gera ÞJÓÐVILJANN að
öflugra og betra baráttutæki,
erum við að styrkja og efla
aðstöðu verkalýðsfélaganna í
hagsmunabaráttunni.
Eðvarð Sigurðsson
formaður Verkamannafél.
Dagsbrúnar.
20
dagar
20 dagar eru eftir fram að
afmæli Þjóðviljans og
fyrsta drætti í happdrætt-
inu.
Skiladagur verður á
mánudag (16. okt.) fyrir
umboðsmenn utan Reykja-
víkur.
í Reykjavík verður næsti
skiladagur miðvikudagurinn
18. okt.
Allir nú til starfa fyrir
happdrættið og gerið skil
á skrifstofunni, Þórsgötu 1.
Hún er opin daglega kl.
10—12 og 1—7. Á föstudag
verður opið til kl 10 um
kvöldið vegna þeirra, sem
búa við langan vinnudag.
Sími skrifstofunnar er
22396.
Miðvikudagur 11. október 1961 —; ÞJÓÐVILJINN —