Þjóðviljinn - 11.10.1961, Blaðsíða 9
i
i
l
Stjórn Knattspyrnusambands
Evrópu hefur dregið liðin sam-
an sem unnu í fyrstu umferð,
og er ætíð mikil eftirvænting
hvernig liðin dragast saman.
Vafalaúst munu Danir harð-
ánægðir með það hvernig til
tókst, því að lið þeirra sem
"tekur þátt í keppninni fyrir
þá er B-1913 frá Odense. en
þeir eiga að leika við Real
Madrid. sem allir vildu til sin
fá, bæði- til þess að sjá góða
knattspymu og eins r hins að
Vilja fá Guomund
• f sænska Idrottsbladet 9. j
októbet- sl. er íslendingsins ■
Guðmundar Þórarinssonar að ■
góðu getið. Er skýrt frá því :
að hann hafi dvalið í Norr- •
köbing í mánaðartíma, vegna j
sjúkleika dóttur hans, og hafi •
hann æft íþróttafólk þar með ■
góðum árangri. Á greininni j
er helzt að skilja að Sviarn- •
ir viíji hafa Guðmund áfram j
hjá sér og ætli að gera hon- ■
um atvinnutilboð.
Sláðu, litli vinnr
• Áhugi á hnefaleikum virð- ■
ist vera mikill í Svíþjóð og j
eiga þeir nokkra frambæri- ■
lega menn í þeirri grein og •
einn fyrrverandi heimsmeist- :
ara. Sl. föstudag keppti Sví- ■
inn Thörner Áhsman við \
Young Jaek Johnson USA í ■
þungavikt og sigraði sá síð- j
arnefndi á tekknísku KO í 4. :
lotu. Keppnin var mjög ójöfn ■
og fréttaritarinn segir m.a.: :
Jáek Johnson: þurfti í raun- •
inni ekki annað en taka af j
sér sloppinn og sýna gljá- :
svartan líkamann og Thörner ■
féll allur ketill í eld. Leikur- j
inn var tapaður áður en hann ■
byrjaði... eftir hverja lotu j
var sem Johnson vildi segja: ■
„Sonur minn hvað ert þú að •
gera á galeiðunni?“
Út yfir tók þegar Thörner •
hafði komið höggi á Johnson, j
og sá síðarnefndi rétti upp :
hendurnar, rétt eins og hann ■
Víldi segja: „Sláðu litli vin- j
ur. Það gerir mér ekkert til!“ ■
Heimsmet
i
• Irina Press, sovézka j
íþróttakonan, bætti um helg- ■
ina heimsmet sitt í fimmtar- j
þraut, hlaut 5137 stig.
Clay skorar á
Ingemar j
• Bandaríski hnefaleikarinn :
Cassius Clay hefur skorað á j
Ingemar Johansson að keppa^
við sig innan 90 daga. Clay j
er bandarískur meistari í j
þungavigt. Clay, sem er 19 i
ára .igamall, æfði með Inge-j
mar er hann var að búa sig j
undir þriðju keppnina við j
Patterson. Clay hefur látið j
: hafa það eftir sér að hann j
• verði orðinn heimsmeistari j
: áður-en- hann verður 21 árs. :
utan úr heimi
• • ~ . •
þar sem Real kemur er ævin-
lega fullskipað á áhorfenda-
pöllum og svo mun verða er
liðið kemur til Danmerkur.
Yfirleitt verður að greiða há-
ar fúlgur fyrir það að fá Real
í heimsókn, en að þessu sinni
þarf B-1913 ekki annað en að
taka á móti Spánverjunum og
leika við þá, því að hvort lið
borgar fyrir sig í keppni þess-
ari, eða leikirnir bera allan
kostnað. f þessu tilfelli má
gera ráð fyrir að drjúgt verði
eftir í ,;kassa“ B-1913.
Það er eins og belgíska lið-
ið Standard Liege sé til þess
ráðið að setia lið Norðurland-
anng útúr keppninni, því að
það vann Fredrikstad^ frá Nor-
egi í fyrstu umferð. og urðu
Belgarnir ekki vinsælir meðal
Norðmanna sem frægt er, og
réði því slæm framkoma Belg-
íumannanna. Nú eiga þeir að
leika við finnska liðið Haga.
sem sat hjá í fyrstu umferð,
og er gert ráð fyrir að Belg-
arnir vinni auðveldan sigur.
Skotar fengu sem móstöðu-
menn austur-þýzka liðið Vor-
warts, sem slapp í gegnum
fyrstu umferð án keppni, þar
sem Norður-írland vildi ekki
hleypa íiðinu inn í landið.
neitaði því um vegabréfsárit-
un. Taki Skotar sömu afstöðu.
Kvikmynd frá
NorSurlanda-
mófi kvenna
Áður en langt um liður mun
Handknattleikssambandið hefja
sýningar á'kvikmynd sem tek-
in var á Norðurlandamóti
kvenna, sem fram fór i Sví-
þjóð 1960 en þar. urðu íslenzku
stúlkurnar no. 2, og komu mjög
á óvart. Síðar mun sambandið
svo lána myndina, og munu
margir hafa gaman af að sjá
keppni þessa á kvikmynd.
sem ekki er ólíklegt, þar sem
gera verður ráð fyrir að sam-
ræmi sé í utanríkis-pólitíkinni
á Bretlandseyjum, getur svo
farið að Vorwárts fari í þriðju
umferðina án þess að keppa!
Benefica sem sigraði í fyrra
i Evrópu-keppninni leikur við
austurrisku meistarana Austria,
og getur það orðið nokkur
mælikvarði á getu Benefica. því
að Austria hefur átt góða
leiki uppá siðkastið.
Tottenham frá Englandi þarf
ekki langt að fara til að leika
sína leiki en Englendingarnir
keppa við Hollendingana sem
slógu Gautaborgarliðið út í
fyrstu umferð með miklum
mun.
Leikirnir munu fara fram
innan skamms og þau lið sem
kunna' að skilja jöfn, verða að
hafa keppt til úrslita fyrir 30.
nóvember n.k.
Kobú á knatt-
spyrHuþingi
Það mun heldur fátítt að
konur sæki þing knattspyrnu-
manna, þegar um landsþing er
að ræða. en fátíðara mun það
þó vera að konur sitji þing
Alþjóðasambands knattspyrnu-
manna. Þetta átti sér þó stað
um daginn í London, þegar
þing FIFA fór þar fram. Með-
al hinna 200 fulltrúa sem
þangað komu var ein kona, og
var hún frá Luxemburg, og
heitir. Elaine Cremona. Eftir
myndum af henni að dæma
hlýtur hún að hafa yljað upp
þing þetta, þó ekki sé um það
getið að hún hafi haldið uppi
hörkuumræðum!
Til gamans má geta þess að
þessir 200 fulltrúar komu fram
fyrir um það bil 8 miiljónir
knattspyrnumanna, eða sem
fulltrúar sambanda með þessa
félagatölu.
Gamli maðurinn er með spjót í hendi en dóttir hans með sverð.
Þau eru að æfa leik sem Kínverjar kalla Wu Shu og í skýringum
segir að dóttirin sé kcnnari í þessari íþrótt í íþróttaskóla í Shang-
hai. Eftir myndinni að dæma virðist hér vera um líka íþrótt að
ræða og skylmingar, en það er talin fögur íþrótt og skemmtileg.
Ásbjörn Sigurjónsson
kjörinn formaður HSI
Hið árlega þing Handknatt-
leikssambands íslands fór fram
um sl. helgi. Lagði stjórnin
fram ítarlega skýrslu um starf-
semi stjórnarinnar á liðnu
starfstímabili, og hefur hún
haft í mörgu að snúast, og
árangur i málum handknatt-
leiksmannanna yfirleitt verið
góður. Fjárhagslega stendur
sambandið sig furðuvel, miðað
við það að stjórnin verður
sjálf að standa í fjáröflun,
sem um félag væri að ræða.
Það léttir að sjálfsögðu undir
í þeim málum að þátttakend-
ur í utanferðum taka þátt í
kostnaðinum við landsleiki er-
lendis, ella væri þátttaka ekki
möguleg, en til þessa hafa
handknattleiksmenn starfað á
þeim grundvelli.
Nokkrar umræður urðu um
boð til keppni við Balkanlond-
in, sem fara á fram í Júgó-
slaviu um mánaðamótin . júni
og júlí næsta sumar, en þar
verða m.a. Rúmenar og Tékk-
ar sem voru no. 1 og 2 í síð-
ustu heimsmeistarakeppni.
Verður síðar vikið nánar að
starfsemi HSÍ á Sl. ári.
í stjórn Handknattleikssam-
bandsins voru kjörnir: Ás-
björn Sigurjónsson formaður,
Axel Einarsson, Axel Sigurðs-
son, Valgeir Ársælsson og Val-
garð Thoroddsen.
AXMINSTER — vefnaðurinn er heimskunnur. AXMINSTER j
— gólfteppin eru eftirsótt hér á landi sem ahnarsstaðar. j
Pantið AXMISTER—gólfteppið sem allra fyrst því senn
líður að jólaannríkinu. Veljið yður mynztur og liti úr hinu j
ótrúlega fjölbreytta úrvali hjá AXMINSTER.
Þér lyeljið RÉTT ef þér veljið AXMINSTER. j
ma
$
%
m
I \
Miðvikudagur 11. obtóber 1961
ÞJÓÐVILJINN
(9.