Þjóðviljinn - 10.12.1961, Side 4
SPJALLAÐ VIÐ ARNÓR KRISTJÁNSSON Á HÚSAVlK
r
Þótt Arnór sé nú koniinn á
sjötugsaldur þá vann liann dag
hvern sl. sumar frain á haust
við aðgerð frá morgni til kvölds
og var myndin tekin þegar
Þjóðviljinn hitti Arnór að máli
í sumar.
Lítið er um ljósastraum,
lýður blœs í kauntn.
Laxá eins og lús með saum
læðist út í hraunin.
Þannig hljóðaði ..vísa vikunn-
ar“ á Akureyri fyrir nokkrum
dogum, þegar notendur raf-
straums frá Laxá sátu í kulda
og myrkri. Sú uppákoma hjá
Norðlingum er nú úr sögunni
að sinni, og hefur auk þess
verið rækilega frá henni sagt
svo ekki skal fiölyrt um hana.
Samt er skiljanlegt að_Laxár-
virkjun berist í tal þegar Norð-
lingar skjóta upp kollinum hér
syðra. einkanlega þegar þeir
hafa alizt upp á bökkum Lax-
ár, eins og Arnór Kristjánsson
á Húsavik. Hann virðist vita
dálítið um ána sem verkfræð-
irigar mættu taka til athug-
unar.
— Ég var 9 ár á Hamri,
fremsta bæ í Laxárdal, þegar
ég var ungur, segir Arnór. Þar
sem hin raunverulega Mývatns-
sveit og Laxárdalur mætast,
rétt fyrir framan Hólkot, er
eyja í ánni, Hofsstaðaey (Hofs-
Fyrsfu
samningar -
Hœst kaup
HöfSingleg
• •• f
g/o?-
staðir neðsti bær í Mývatns-
sveit) og síðan smáhólmar
þannig að áin rennur í tveimur
kvíslum fram á móts við Hellu-
vað. Ég tók eftir því þegar ég
var strákur á Hamri og þegar
stóð norðvestan í ána, að það
var töluverður kraftur í henni
út á móts við Ljótsstaði í Lax-
árdal. Ég hef aldrei heyrt að
svo mikla stórhríð hafi gert að
krap hafi setzt í ána á móts
við Ljótsstaði. Veturinn 1923
gerði svo mikla norðvestan
stórhríð að krap settist í ána
neðan við Ljótsstaði svo þar
varð hestheldur ís. Sagði þá
Hjálmar bóndi á Ljótsstöðum,
að hann myndi ekki til að
slíkt hefði komið fyrir áður.
Á móts við Hólabeitarhús, hjá
Hádegishól, breikkar áin og
grynnkar og þar sezt krap í
hana og þar leggur hana oft.
Síðan mjókkar hún aftur, en
fyrir utan Hólahornið og alla
leið út fyrir Birnustaðaflóa
breikkar hún og er lygn svo
það sezt kran í hana, og þá
rennur hún út í hraunið. Ég'
álíí að vifl eigum á hættu raf-
magnsleysi alltaf þangað til að
áin hefur verið sett í stokk
þarna, eðn komið í veg fyrir
að liún renni út í hraunið, því
það vatn; sem síast niður í
liraunið knýr ekki vélar virkj-
unarinnar.
Þetta var aðeins fátæklegur
útdráttur á hinni nákvæmu
lýsingu Arnórs á Laxá.
.•—Viðgerðinhjá Geirastöðum,
sem átti að tryggja rennsli ár-
innar, er góð, en hún er ekki
einhlít meðan vatnið getur
runnið út í hraunið niðri í
Laxárdalnum, sagði Arnór
ennfremur.
— En hvað- um atvinnu á
Húsavík?
xo....
Sjómenn á Húsavík seldu Fiskiðjuverinu lifrarbræðsluna á sl. vori — en andvirðið, 250 þús. kr,
gáfu þeir s júkrahúsinu.
— Ég man vart eftir að það
hafi verið nokkru sinni meiri
atvinna á Húsavík en s..l, sum-
ar.
— Hverju var það að þakka?
— Það var tekin upp verka-
skipting, þannig' að fiskiðju-
verið kaupir nú fiskinn á
bryggjunni og sér um aðgerð
hans, í stað bess að sjómenn-
irnir fari í aðgerð að loknum
róðri. Sjómennirnir gátu því
einbeitt sér að veiðunum og
við það skapaðist atvinna fyrir
aðra í landi. í sumar komu
tveir línubátar í bæinn og
heimatrillur eru um 40. í ,sum-
ar mun hafa komið þriðjungi
meirj fiskur á land en und-
anfarin sumur.
Þá var Þar op byrjað i fyrra-
haust að fiska í net og hefur^
síðan fiskazt töluvert vo.r og'
haust í net.
Sjómenn telja að aukinn
afli stafi af stækkun land-
helginnar á sínum tíma og
friðuninni sem þá fékkst. Hafa
má og í huga, segir Arnór enn-
fremur, að hvar sem Húsvík-
ingar stunda veiðar við landið,
hvort heldur er þorsk- eða
síldveiðar eru þeir í fremsta
flokki.
*— Hvernig stóð höfnin sig
í ofviðrinu?
— Það hefur tvisvar gert
ofviðri á Húsavík i haust, en
hafnargarðurinn hefur staðið
allt af sér og erum við heppn-
ir með hve vel hann er byggð-
ur.
— Hafa hlaðizt upp hjá
ykkur fiskbirgðir?
— Þegar ég fór að norðan
var allur saltíiskur og skreið
farin.
— Hafið þið ekki haft góð-
ar tekjur fyrir allan þennan
fisk og vinnu?
— Jú, og framkvæmdastjóri
fiskiðjuversins má eiga Það að
hann borgar verkafólkinu sam-
kvæmt samningum.
— Já, samningar, — hafið
þið ekki hæsta kaup á landinu
nú á Húsavík?
— Það mun vera, kaupið
hjá okkur er kr. 23,74 í dag-
vinnu.
— Og ykkur gekk vel að
ná samningum í vor?
— Samningar gengu frekar
vel, a.m.k. náðust samningar á
Húsavík fyrst á öllu landinu
1 verkföllununi s.l. sumar, Að-
alviðsemjendur þar eru kaup-
félagið, bæjarfélagið og Fisk-
iðjuverið. svo. raunverulega
erum við að sernia við okkur
sjálfa eða samtök fólksins
sjálfá ef allt er með eðlilegum
hætti.
Talið berst að því að Hús-
víkingar hafi mikinn áhuga
fjrrir aukinni síldarsöltun og
síldarbræðslu og í því sam-
bandi segir Arnór:
— Samvinnufélag' sjómanna
kom lifrarbræðslunni upp á
sínum- tíma. Vélamar voru þá
taldar einhverjar vönduðustu-
á landinu, bótt nú séu þær
gamlar, ófullnægjandi og
bræðslan of lítil. Samvinnufé-
lag sjómanna seldi Fiskiðju-
verinu iifrarbræðsluna síðast-
liðið vor, •— bó með því skil-
yrði að brædd yrði lifur fyrir
bátaeigendur enda þótt þeir
væru ekki í Fiskiðjusamlaginu.
Söluverð lifrarbræðslunnar,
250 þús. kr., gáfu sjómennirn-
ir Sjúkvahúsi Húsavíkur.
Við Arnór gætum spjallað
lengi enn, en nú skal staðar
numið að sinni.
J.B.
Gefið ekki dægurflugur
í jólagjöf, heldur góðar
bækur og eigulegar.
Jólabók okkar er
Á IslendingaslóSum i Kaupmannahöfn
effir Björn Th. Björnsson
HEIMSKRINGLA
%) ~ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 10. desember 1961