Þjóðviljinn - 16.01.1962, Blaðsíða 3
20 af 78 hlutu
verðlaun og
viðurkenníngu
Ágætur árangur íslenzku
þátttakendanna í alþjóða-
teiknisamkeppninni, sem
póiska útvarpið efndi til
á sínum tíma, hefur að
vonum vakið mikla at-
hygli. Af 78 myndum sem
sendar voru héðan frá ís-
landi hlutu 20 verðlaun
eða viðurkenningu. Hef-
ur þátttaka íslenzku
barnanna í samkeppn-
inni orðið þeim og teikni-
kennurum þeirra til mik-
ils sóma — og hinn góði
árangur ætti að verða
börnunum mikil uppöiT-
un.
Olíll-
stífla
Enn einusinni hafa lands-
menn verið minntir á bað að
til eru mál sem Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn eru alltaf sammála
um, hverjir svo sem eru í rík-
isstjórn og hvað sem rætt er
um stefnumál og hugsjónir
Alltaf eru fulltrúar þessars
flokka til dæmis' á einu mál:
um það að verðlag á olíum og
benzíni skuli vera sem hæsl
og álagning olíufélaganna í
hámSrki, Og sú samstaða hef-
ur raunar áhrif á fjölmörgum
öðrum sviðum, jáfnvel hinurr.
óliklegustu. Þegar Bjarni
Benediktsson ræddi á gaml-
árskvöld um nýskipan réttar-
farsmála á íslandi, áttu þær
hugsjónir þannig uppsprettu
sína i gruggugri olíulind. Fyr-
ir tæpum tveimur árum var
Bjarni Benediktsson kominn í
þá aðstöðu að hann varð að
taka ákvörðun um það hvort
mál skyldi höfðað gegn Vil-
hjálmi Þór og ýmsum öðrum
valdamönnum Framsóknar-
flokksins og Olíufélagsins h.f.
fyrir stórfelldustu svik sem
framin hafa verið á íslandi.
Ráðherrann taldi .sér hvorki
henta að höfða mál gegn ViL-
hjálmi og fé'.ögum hans né
treysti hann sér til að sýkna
þá sjálfur með því að láta.
málshöfðun niður falla. Hann
greip þá til þess ráðs að setja.
á laggirnar nýtt embætti,
starf saksóknara ríkisins, o.g
fyrsta verkefni sem honum,
var falið var einmitt oliumál-
ið. Fannst Bjarna hann þá
hafa losnað úr gapastokki, en.
efíir það reyndi hann að
breyta hvötum sínum í fagr-
ar hugsjónir, siðast á gaml-
árskvöld þegar hann ræddi:
um réttarfarsmál í landsföðv
urlegum tóni.
En jafnframt hefur komið i
ljós að einnig hja saksokn-
araembættinu er um ein-
hverja olíustíflu að raðða; þaði
hefur haft málið til meðferð-
ar í meira en ár án þess ai’>
komast að nokkurri niður-
stöðu. Auðvitað er það tiL-
viljun í þvi sambandi afj
Valdimar Stefánsson, saksókn-.
ari rikisins, og Vilhjálmur Þót'
seðlabankastjóri, fyrrverandii
valdsmaður í Olíufélaginut
h.f., eru báðir félagar í hags-
munasamtökum frímúrara;
Valdimar í stúkunni Mími og.
Vilhjálmur í bræðralaginu
Rúnari. — Austri.
Eins og skýrt var frá í
sunnudagsblaðinu, hafði
sendifulltrúi Pólverja á ís-
landi, frú Halina Kowalska,
boð inni í sendiráðsbústaðn-
um við Túngötu sl. laugar-
dag. Var þar margt manna,
börn, foreldrar þeirra, skóla-
menn o.fl. Sendifulltrúinn
afhenti verðlaun og viður-
kenningarskjöl þeim börnum,
sem til þeirra höfðu unnið,
skýrði frá teiknisamkeppninni
og úrslitum. Mælti frú Kow-
alska á íslenzku.
Samkeppni þessi var haldin
í tilefni Alþjóðabarnadagsins
svonefnda og verndari henn-
ar var pólska UNESCO-nefnd-
in (UNESCO: Menningar- og
vísindastofnun Sameinuðu
þjóðanna).
Frú Kovvalska sendifulltrúi Póllands heldur á gullpeningi og verðlaunagjöf
H!yns Andréssonar á Hólmavík. — (Ljósm.. Þjóðv. A. K.). »
Slökkviliðinu í Eyjum
tókst að forða stárbruna
Vestmannaeyjum 15/1 — Skömmu
eftir miðnætti í nótt, kom upp
eldur í verzlunarhúsi Björns
Guðmundssonar fréttaritara
Morgunblaðsins að Bárugötu 11,
en það ejc mjög gamalt timbur-
hús.
Eldurinn magnaðist skjótt og
komst í fiugelda og blys og mun
hafa magnazt mjög við' það
Uppi á lofti búa ung hjón og
vöknuðu þau við sprengingarnar
af flugeldunum og tókst að skríða
út með barn sitt, en mikill reyk-
ur komst upp á hæðina.
■ Skemmdir urðu miklar í verzl-
uninni og á lagemum af völd-
um elds, reyks og vatns,. Innan-
j gengt er úr verzluninni inn í
miðstöðvarklefa, en kviknað mun
hafa í útfrá reytoháfnum. Má
þakka slökkviliðinu, að ekki
varð þarna stórbruni, en slökkvi-
. starfið tók rúma klukkustúnd.
Hjónin sem bjuggu uppi eiga
3 börn. 6 ára 2ja ára og eins árs,
en eitt þeirra lá veikt með 40
stiga hita og urðu þau að skríða
út með það, þar sem reykurinn
var svto xnikill, að ekkert loft
var að fá, nema við gólfið.
Hús og vörur var vátryggt.
Siglufirði 15/1 — Þegar strand-
ferðaskipið Esja var að leggja
frá bryggju hér á Siglufirði til
Akureyrar í gærkvöldi, sunnu-
dag, fór vír í skrúfu skipsins og
varð að fresta brottför þess
af þeim orsökum. í morgun var
fenginn kafari til að losa vírinn
og hélt Esja áfram ferðinni
skömmu eftir hádegi.
Frá verdlaunaafhendingunni á laugardaginn. — (Ljósmynd Þjóðv. A.
um barna frá skólum víðsveg-
ar um land.
Gullverðlaun, stóran verð-
launapening, viðurkenningar-
skjal og fallega gjöf: brúður
í pólskum þjóðbúningum,
hlaut 9 ára drengur á Hólma-
vík, Hlynur Andrésson.
Silfurverðlaun hlaut Mar-
grét Hauksdóttir úr Miðbæj-
arskólanum í Reykjavík og
bronsverðlaun: Ingunn Stef-
ánsdóttir, Kársnesskóla Kópa-
vogi, Þóra Hreinsdóttir
Reykjavík og Kristrún Har-
aldsdótti.r Miðbæjarskólanum
Reykjavík.
Fimmtán börn hlutu viður-
kenningarskjal og heiðurs-
skjöl.
Þá dæmdi dómnefndin Víg-
þóri H. Jörundssyni teikni-
kennara við Hólmavíkur-
skóla sérstaka gjöf í viður-
kenningarskyni fyrir góða
teiknikennslu.
★ Á annað hundrað þúsund
teikningar
Á annað hundrað þúsund
teikningar vor sendar til sam-
keppninnar frá 80 löndum
heims. Dómnefnd valdi úr
þessum fjölda 887 teikningar
yeitti_ fyrir þær verðlaun
og viðurkenningu. Sýning var
síðan haldin á verðlauna-
teikningunum í Varsjá og
síðar í aðalstöðvum UNESCO
í Parísarborg. Ráðgert mun
einnig að halda sýningar í
fleiri löndum.
Frá Japan bárust alls 6956
teikningar og þangað fóru
flest verðlaunin: 10 gullverð-
laun, 5 silfurverðlaun og 16
bronsverðlaun.
★ 20 hlutu viðurkenningu
af 78
Þátttaka íslenzku barnanna
í samkeppninni vakti sem
fyrr segir mikla athygli.
Héðan voru sendar 78 teikn-
ingar, þar af valdi Teikni-
kennarafélag íslands um 40
myndir úr 700—800 teikning-
K.)
Þriðjuddgur 16 jannar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Jj-