Þjóðviljinn - 30.01.1962, Side 6
glfÓÐVlÚINN
Útgefandl: SameJningarflokkar alþýöu — Sósíallstaflokkurlnn. — Rltstjórari
Maanús KJartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. —
FréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir
Magnússon. — Rltstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
■lnii 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
PrentsmlðJa ÞjóðvilJans h.f.
Lengi skal manninn reyna
JJagsbrúnarmenn hafa enn einu sinni svarað á eftir-
minnilegan h'átt harðvítugu áhlaupi afturhalds-
ins, áhlaupi sem var magnað öllu því afli sem fjár-
magn og ósvífinn áróður geta tryggt. Haunar má segja,
að þetta áhlaup gegn Dagsbrún hafi staðið látlaust yf-
ir frá því í síðustu stjórnarkosningum í ýmsum til-
brigðum; í verkföllunum í fyrra, í framkomu ríkis-
stjórnar og atvinnurekenda eftir verkföllin og í lcka-
hríðinni nú. Var stjórnarliðið orðið svo sannfært um
árangur sinn, að Alþýðublaðið staðhæfði í fyrradag að
allar líkur væru á því að B-listinn hlyti meirihluta í
félaginu!
J þessum átökum hafa gerzt atburðir, sem verkafólk
þarf að gefa sérstakan gaum. Á Alþingi í vetur urðu
þau tíðindi að samþykkt var einróma tillaga frá Al-
þýðubandalaginu þess efnis að gerðar skyldu ráðstaf-
anir til þess að tryggja átta stunda vinnudag verka-
fólks.með óskertu árskaupi. Þarna hlaut eitt af jaelztu
baráttumálum verklýðssamtakanna næsta óvæntar und-
irtektir, og það vakti einnig athygli að Bjarni Bene-
diktsson þáverandi forsætisráðherra flutti ræðu á þingi
þ>ar sem hann lýsti afdráttarlausum stuðningi sínum
við málið. Síðan ítrekaði Bjarni enn þessa afstöðu sína
í áramótaræðu sem vakti mikla athygli. Töldu margir
að með þeirri ræðu hefði formaður Sjálfstæðisflokks-
ins verið að draga þá ályktun af reynslu síðustu ára,
að þess væri enginn kostur að brjóta verklýðshreyf-
inguna á bak aftur; nú yrði að semja við hana um ó-
hjákvæmilegar kjarabætur. Og raunar var það nærtæk
ályktun, ef við heiðarlega og drengilega menn væri
að eiga.
Fn nokkrum dögum fyrir Dagsbrúnarkosnmgar brá
svo við að Morgunblaðið hóf ferleg öskur þess efn-
is að „kommúnistar“ væru fallnir frá sinni eigin til-
lögu og vildu engar „kjarabætur án verkfalla11. Tilefni
til þessara óhljóða var nákvæmlega ekki neitt; þetta
voru tilhæfulausar lygar, fluttar af yfirlögðu ráði.
Við var bætt blaðri um það að í tillögunni fælist lög-
binding á öllu kaupi í landinu! Síðan voru birtar mynd-
ir af Eðvarð Sigurðssyni formanni Dagsbrúnar og
Hannibal Valdimarssyni forseta A.S.Í. og þeir taldir
sérstakir fjandmenn raunhæfm kjarabótá og átta tíma
vinnudags. Hannibal Valdimarsson var spurður gagn-
gert um afstöðu sína, en þegar hann sendi Morgun-
blaðinu svar um hæl, var því stungið undir stól en
lygaáróðurinn gegn honum magnaður um allan helm-
ing. Má segja að Morgunblaðið hafi ekki lagzt lægra
í ódrengilegum málflutningi á öllum ferli sínum.
Fjannig urðu viðbrögð Morgunblaðsins í því máli sem
* formaður Sjálfstæðisflokksins hafði þótzt hafa sér-
stakan áhuga á og ræða af drengskap og heiðarleik um
síðustu áramót. Engum þarf að koma í hug, að Morg-
unblaðið hafi brugðizt þannig við án samráðs við for-
mann flokksins í máli sem hann hafði gert sérstaklega
að sínu. Það er því óhjákvæmileg ályktun að fyrri við-
brögð Bjama Benediktssonar hafi einvörðungu verið
flærð, tilraun til þess að villa um fyrir verkafólki og
draga úr einbeittum baráttuvilja þess með fláttskap.
Stjórnarkjör í Dagsbrún varð síðan tilefni til að kasta
grímunni í þeirri fánýtu von að með því myndi takast
að sundra röðum verkamanna. Það á við um Bjarna
Benediktsson sem aðra að lengi skal manninn reyna,
en ekki fer reynslan batnandi. — m.
EGGERT ÞORBJARNARS ON:
22. þing Kommúnistaflokks
Ráðstjórnarríkjanna
Um það bil fimm þúsund full-
trúar sátu 22. þing Kommún-
istaflokks Ráðstjórnarríkjanna,
sem haldið var í Moskvu 17.*—
31. október síðastliðinn. Þeir
fóru með umboð nær tíu millj-
óna flokksmanna. .
Auk þeirra sátu þingið sem
gestir fulltrúar frá hér um bil
áttatíu flokkum víðsvegar um
heim, en samanlögð meðlima-
byrðis stöðu hins nýja sósíal-
istiska heims og hins gamla
heims auðvaldsins.
Á síðustu fimm árum hefur
hlutur sósíalismans í iðnaðar-
framleiðslu heimsins vaxið úr
27% í 36%.
Síðan 1937 hefur iðnaðar-
framleiðsla sósíalismans aukizt
6,8 sinnum, en auðvaldsheims-
ins 2,5 sinnum.
hafa verið tekin í notkun á
þessum hálfa áratug.
Nýjar borgir hafa þotið upp
víðsvegar um land, landflæmi á
borð við heil þjóðlönd verið
tekin til nýræktar, víðáttur
Síberíu og austurhéraðanna að
breytast í blómleg iðnaðar-
landbúnaðar- og menningarhér-
láð.
OHuvinnsla hefur aukizt á
Þinghöllin nýja í Kreml þar sem 22. fiokkþingið var haldið.
tala allra þeirra flokka, sem
fulltrúa áttu á þessu þingi, var
um það bil fjörutíu milljónir.
Þingið var haldið í nýju
stórhýsi innan Kremlmúra, hinu
nýtízkulegasta að öllu leyti,
táknrænu fyrir þá nýju tíma,
sem ganga nú yfir Ráðstjórnar-
ríkin.
Þingið fjallaði aðallega um
þrjú mál, skýrslu miðstjórnar-
innar um tlmabilið frá 20.
flokksþinginu 1956, hina nýju
stefnuskrá flokksins og breyt-
ingar á lögum hans.
Upp úr öllum málum þings-
ins gnæfði hin nýia stefnuskrá
um uppbyggingu allsnægtaþjóð-
félags kommúnismans í Ráð-
stjórnarríkjunum á næstu ára-
tugum.
Miklar umræður urðu á
þinginu og margar nýjar hug-
myndir komu þar fram, en
mánuðina fyrir þingið höfðu
sovétþjóðirnar rætt stefnu-
skráruppkastið af miklu kappi
í borgum og sveitum og gert
sínar athugasemdir við það.
Loks var á þinginu valin ný
forysta fyrir Kommúnista-
flokkinn samkvæmt hinum nýju
flokkslögum.
★
í sambandi við skýrslu mið-
stjórnarinnar um viðburði síð-
ustu fimm ára og samþykkt
hinnar nýju stefnuskrár komu
fram athyglisverðar upplýsing-
ar um óvenjuleat uppbygging-
arafrek ráðstjórnarj>jóðanna
þennan hálfa áratug,1" ásámt '
fróðlegum samanburði á inn-
Á áratugnum 1950—1960
þrefaldaðist innbyrðis verzlun
sósíalistísku landanna, en tvö-
faldaðist milli auðvaldsland-
anna.
Á síðustu sex árum hafa 28
ríki verið stofnsett o,g nýlendu-
kerfi auðvaldsins hrunið í rúst.
í miðri Ameríku, Cúbu, hef-
ur fáni sósíalismans og sjálf-
stæðisins verið dreginn að hún.
Innan auðvaldsheimsins ger_
ast einnig eftirtektarverðar
breytingar, þar sem Bandarík-
in hafa nú misst algera forystu
sína í framleiðslu og verzlun
auðvaldslandanna. Þannig hef-
ur t.d. iðnaðarhlutur þeirra fall-
ið úr 56,6% árið 1948 í 47%
árið 1960, samtímis því að Jap-
an, Vestur-Þýzkaland og Ítalía
hafa sótt á.
Síðastliðin fimm ár hefur ný
og öflugri uppbyggingaralda
farið um Ráðstjórnarríkin en
nokkru sinni fyrr. Þjóðir Ráð-
stjórnarríkjanna, sem telja nú
um 220 milljónir manns, hafa
slegið öll fyrri met sín á sviði
framleiðslu, tækni og vísinda,
og eru nú önnum kafnar við
framkvæmd þeirrar sjö ára á-
ætlunar, sem hófst 1958.
Spegilmynd þess gifurlega á-
taks, sem hófst í þjóðarbú-
skapnum eftir 20. flokksþingið,
er sú staðreyhd að á árunum
1956—1961 hefu.r fjárfesting í
atvinnuvegununí numið 156
þúsund milljónum rúblna, sem
er meir en öll samanlögð fjár-
festing Ráðstjórnarríkjanna frá
Sex’ þúsund stór fyrirtæki
....... . i i r .. ii.'..'. ...
5 árum sem svarar til fimm-
faldrar Qlíuframleiðslu Bakú-
borgar.
Aukning raforkuframleiðsl-
unnar svarar til 50 Dnépur-
rafstöðva.
Allar greinar atvinnulífsins
hafa verið enduriðnvæddar að
miklu eða öllu leyti.
Síðastliðin fimm ár hafa
fleiri íbúðir verið byggðar í
Sovétríkjunum en á síðustu
fimmtán árum þar áður, og urn
50 milljónir manna, tæplega
fjórðungur þjóðarinnar, flutt í
nýjar íbúðir.
Á sviði menningarmála,
menntunar, vísinda og tækni
haga gerzt atburðir, sem tala
sínu máli.
Sovétríkin urðu á þessum ár-
um fyrst til að senda gerfihnött
út í geiminn og umhverfis
jörðu, fyrst til að senda eld-
flaugar út fvrir aðdráttarafl
jarðar, fyrst til að setja niður
merki sitt á tunglið og ljós-
mynda bakhlið þess, fyrst til
að senda menn út í geiminn og
umhverfis jörðu.
Um það bil 40% sovézkra
verkamanna og 23% samyrkju-
bænda hafa framhalds- Uða
æðri menntun.
Þrisvar sinnum fleiri stunda
þar verkfræðinám en í Banda-
ríkjum Norður.<Ameríku. 350
þúsund vísindamenn eru þar
að verki.
Á þessum síðustu fimm árum
hafa lífskjör alþýðu batnað
verulega, lægstu launaflokkar
hækkað, vöruverð farið lækk-
andi, en almenn hlunnindi auk-
in. Þannig var vinnuvikan
stytt þar í fyrra um sex og
hálfa klukkustund — með ó-
skertum launum — jafnvel með
launahækkunum — og 1. októ-
ber 1960 hófst kerfisbundið af-
nám skatta, en árið 1965 er á-
ætlað, að skattar verði að fullu
og ÖIlu afnumdir í Ráðstjórn-
urríkjunum.
Á sviði heilbrigðismála hafa
nýir sigrar unnizt. Ráðstjórnar-
þjóðirnar búa nú við lengstan
meðalaldur manna.
★
. Á því, sþm hér. hefur verið
talið, má marka, að síðustu
fimm árin hafa orðið mikil um-
skipti til framfara í efnahags-
og þjóðlífi Ráðstjórnarríkj-
anna og að þau geysast nú á-
fram tviefld í friðsamlegri sam-
keppni við auðvaldsríkin á
sviði framleiðslu og lífskjara.
Umskipti þessi eru rökrétt
afleiðing þess, að á 20. þingi
Kommúnistaflokks Ráðstjórnar-
ríkjanna árið 1956 og árunum
þar á eftir voru gerðar gagn-
gerar ráðstafanir til þess að
leiðrétta margvísleg mistök,
sem höfðu tafið fyrir og seink-
að framvindu sósíalismans í
Ráðstjómarríkjunum og dregið
úr sköpunarmætti alþýðunnar.
Það sem gerzt héfur — og er
meginskýringin á þessum um-
skiptum — er í rauninni það,
að stíflu hefur verið rutt úr
farvegi þróunarinnar, að hið
nýja hefur sigrað hið gamla og
úrelta, að skapandi lífskraftur
hins óbreytta manns hefur verið
leystur úr læðingi og tvö
hundruð og tuttugu milljóna
brautryðjendaþjóð sósíalismans
í heiminum slitið af sér höml.
ur, er torvelduðu sókn hennar
til allsnægtaþjóðfélags komm-
únismans.
Þetta er um leið meginfor-
sendan fyrir því, að ástandið í
efnahags- og þjóðlifi Ráðstjórn-
arríkjanna var nú orðið þrosk-
að fyrir þá heimssögulegu tutt-
ugu ára áætlun um uppbygg-
ingu kommúnismans í Ráð-
stjórnarríkjunum, sem sam-
þykkt var á nýafstöðnu flokks-
þingi, og sem fel'st í hinni nýju
stefnuskrá flokksins.
★
Hin nýja stefnuskrá Komm-
únistaflokks Ráðstjórnarrikj-
anna er sú briðja í röðinni,
Pramhald á 10. síðu
— ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 30. janúar 1962
•• .:;:•••
[W •'•, ■
Með því að neita að semja við verkfræðinga, hefur bæjarstjórnarmeirihlutinn gert tæknistofnanir bæjarins óvirkar svo ekki hafa
einu sinni fengizt mældar út lóðir. Nú er tekið það ráð að fela einkafyrirtækjum verkefnin með langtum meira kostnaði en orðið
hefði jafnvel þótt gengið befði verið að öllum kröfum verkfræðinga. Það er með öllu óeðliiegt að bærinn sjálfur hafi engu tækni-
menntuðu starfsliði á að skipa til að vinna störf, sem sífellt kaila að, svo sem að skipuieggja ný hv^rfi og búa undir byggingu.
Á neðri myndinni sést yfir nýbyggingar í Háaleitishverfinu. Sú efri er af sambýlishúsi á vegum Reykjavikurborgar við Grensásveg.
GUÐMUNDUR VIGFÚSSON: ÖNNUR GREIN
HVERS VEGNA ERU TÆKNI-
, , S9
DEILDIRNAR LAMAÐAR? •
Stéttárfélag verkfræðinga, fór
á s.l. sumri fram á verulega
launahækkun fyrir meðlimi
sína. Félagið rökstuddi kröfur
sínar m.a. með hinni ört vax-
andi dýrtíð hér á landi, löngu
og kostnaðarsömu námi verk-
fræðinga, og að kjörin hér
væru svo langt að baki þess
sem verkfræðingar á Norður-
löndum bygeju við að ekki
yrði við unað.
Samningsaðilar verkfræðing-
anna voru Reykjavíkurbær,
ríkið og einkafyrirtæki sem
hafa verkfræðirrga í sinni þjón-
ustu. Alllangt samningaþóf mun
hafa farið fram áður en verk-
fræðingarnir sáu sig til þess
neydda að grípa til verkfalls-
vopnsins. Allan þann tíma og
einnig eftir að verkfall hófst
beittu fuiltrúar Alþýðubanda-
lagsins sér fyrir því í bæjar-
ráði og bæjarstjórn Reykjavík-
ur að bærinn gengi til alvar-
legra samninga við verkfræð-
ingana og Ieitaðist við að leysa
ágreiningsefnin. Þessar kröfur
okkar Alþýðubandalagsmanna
mættu jafnan eindreginni and-
stöðu Sjálfstæðismanna, sem
töldu kröfur verkfræðinganna
svo ósvífnar að engin leið væri
um þær að semja.
Ég var frá upphafi sannfærð-
ur um að unnt væri að ná við-
hlítandi samningum við verk-
fræðingana, auðvitað með því
að ganga verulega til móts við
óskir þeirra og kröfur. En það
sem á skorti var vilji borgar-
stjórans pg'bæjarstjórnarmeiri-
hlutans, sem ekkert skeytti um
þótt verkfall verkfræðinga. væri
í augsýn og þar með stöðvun á
stærstu tæknideild bæjarins.
Enda varð sú raunin. Verkfall-
i$ skái^á og öll tæknileg störf
borgarvcrkfræðingssk rif stofunn-
ar stöðvuðust, svo sem útreikn-
ingar og undirbúningur allra
verklegra framkvæmda. Bærinn
varð m.a. svo illa settur að
menn fengu ekki mældar út
lóðir hvað þá meir. Verkiegar
framkvæmdir bæjarins lömuð-
ust.
Það kom fliótt i ljós að við-
brögð einkaframtaksins urðu
nú með nokkuð öðrum hætti en
Reykjavíkurbæjar og ríkisins.
Strax í upphafi sömdu nokkur
verkfræðifirmu og verktaka-
firmu við verkfræðingana. Þeg-
ar á verkfallið leið komu önn-
ur á eftir og að lokum höfðu
öll einkafyrirtækin samið og
tryggt sér áfram starfskrafta
verkfræðinga sinna og ann-
arra sem til þeirra vildu ráð-
ast. Verkfræðingar, sem áður
höfðu starfað hjá bæ og ríki
réðu sig ýmist til einkaaðil-
anna eða tóku að vinna sjálf-
stætt, þ.e. taka sjálfir að sér
verkefni í samræmi við gjald-
skrá verkfræðingafélagsins.
Meðal þeirra sem sömdu við
verkfræðingana voru ýmsir að-
ilar að heildarsamtökum at-
vinnur^kendja, Vinnuveitendal-
samhandi fslands. Nú gerðist
það í fyrsta skipti, að opinberir
aðilar neituðu að fylgja for-
dæmi annarra atvimmrekenda.
Kenningu Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn, og bæði fyrrver-
andi og núverandi borgarstjóra
hans, var nú gjörsamlega snúið
við og afneitað, þ.e. að bæjar-
félagið skuli að vísu- aldrei
sémja á 'undan öðrum atvinnu-
rekendum, en jafnan faiiast á
það sem einkaatvinnurekendur
og íaunþegar koma sér saman
um, Þessari kennihgu varpaði
meirihlutinn nú gjörsamlega
fyrir borð í striðinu við verk-
fræðingana.
Með þessum hætti voru verk-
fræðingar sem starfað höfðu
hjá Reykjavíkurbæ hraktir
burtu og þeim ýmist þrýst til
að ráða sig annars staðar eða
taka upp sjálfstæða starfsemi.
Var þetta gert af einskærri
blindni? Hélt borgarstjórinn og
bæjarstjórnarmeirihlutinn í
raun og veru að Reykjavíkur-
bær kæmist að öðrum og betri
kjörum en verkfræðingarEir
höfðu feugið fram með samn-
ingum við einkaframtakið?
Nei, áreiðanlega ekki. Borg-
arstjórinn er ekki slíkt barn
hvað sem segja má um suma
flokksmenn hans. Geir Ilall-
grímsson var hins vegar að
framkvæma þá sanrfæringu
sína og stefnu að bæjarfélagið
eigi að fást við sem fæst verk-
efni, lausn þeirra sé betur kon>
in í höndum einkafyrirtækja og
gróðamanna en samfélags borg-
aranna, bæjarfélagsins. Tækni-
deild borgarverkfræðings var
fórnað á alfari þessarar mis-
vitru stefnu borgarstjórans,
verkfræðingarnir reknir yfir til
einkaaðila o.g í eigin rekstur.
Síðar mátti svo fara að verzla
við einkaframtakið, enda þótt
það væri óhagkvæmara fyrir
bæjarfélagið!
Þessi afstaða og framkoma
öll er hrein og bein skemmdar-
starfsemi gegn hagsmunum
bæjarfélagsins. Hvað sem líður
stefnumun og ágreiningi um á-
gæti eða ókosti rekstrarforma
óhjákvæmilégt og hagkvæmt að
taká tæknistörf í skipulagsmál-
um og að undirbúningi verk-
legra framkvæmda hjá, sjálfu
sér. Og forustuskyldan á þess-
um þýðingarmiklu sviðum verð-
ur undir engum kringumstæð-
um rækt nema með öflugum og
vel menntum eigin tækni-
deiidum.
En skemmdarverkin snerta
ekki aðeins þessa hlið málsins,
sem er þó nógu alvarleg. Mál-
ið er einnig fjárhagslegs eðlis.
Að kaupa vinnu verkfræðinga
beint eða bjá einkafyrirtækjum
kostar a.m.k. kr. 116,72 á klst.
eða 17—20 þús. kr. á mánuði
fyrir manninn. Er bað miklum
mun hærra en það meðalkaup
sem verkfræðingar fóru fram
á, hvað þá bað sem semja hefði
mátt um, ef kröfum þeirra hefði
í upphafi verið mætt af skiln-
ingi og velvild. Það er því síð-
ur en svo verið að spara fyrir
bæjarfélagið og skattborgara
bess. Þeir verða að standa und-
ir útajöldunum af óráðsíunni
og bera kostnaðinn af fram-
kvæmd hugsjónarinnar um á-
gæti einkarekstursins.
Geir Hallgrímsson hefur
skýrt frá því .að 29 verkfræð-
ingar séu að einhverju leyti að
störfum fyrir borgina upp á
ofangreind kjör. Látum sann-
leiksgildi þess og vinnutíma
þessara manna liasja á milli
hiuta. En væru þeir að störfum
árið um kring og ynnu þann
vinnutíma sem borgarstjórinn
hefur lýst eðlilegan, myndi
vinna þeirra hvers um sig kosta
bæjarfélagið kr. 210.096,00 á
ári. en kaup þeirra allra myndi
nema nær 7 milljónum króna.
Er það meir en heímingi hjærri
en áætluð var s.Í. ár
í öll laun hjá börgarverkfræð-
ingi lóðaskrárritara: og skipu-
iagsstjóra.
Þannig lítur þá fjármála-
snillin út, þegar dæmið er gert
upp-
í atvinnurekstri almennt, þá
kemst ekkert.... baajarfélag á
stærð við Reýkjavík fram hiá
þeirri staðreynd að ýsð ér hæði
f iárhæð
Þriðjudagur 30. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (7]