Þjóðviljinn - 30.01.1962, Side 12

Þjóðviljinn - 30.01.1962, Side 12
> > ► í f i r > i - ÞlÓÐVILJINN Þriöjudagur 30. janúar 19!32 — 27. árgangur — 24. tölublað ★ ★ ★ ★ ★ ★ ■k ★ * -A- ★ * ★ ★ ★ ~k kr ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ PUNTA DEL ESTE 29/1 — A ráðstefnu utanríkisráðlierra 20 Amcríkuríkja í Punta del Este i Uruguay hefur tilraun Banda. ríkjannna til að bola Kúbu burt úr Samtökum Ameríkuríkjanna farið út um þúfur. í staðinn var samþykkt álykt- un þar sem marx—lenínism- inn er sagðu.r ósamrímanlegur lífsvenjum í Ameríku. Jafnframt er kommúnisminn fordæmdur harðlega. Samþykkt var að Kúba Skyldi ekki fá að taka þátt í. fundum. hermálaráðherra Ameríkuríkj- anna framvegis fremur en und- anfarið. í Reutersfrétt segir að að þetta virðist vera það eina sem Bandaríkjamenn hafi komið fram í tilraunum sínum til að einangra Kúbu. Síðan innrásartilraun Batista- sinna á Kúbu mistókst í fyrra, hefur Bandaríkjastjórn reynt að knýja það fram að Kúbu verði vikið úr ..fjölskyldu Ameríku- ríkjanna“ og að þvinga Kúbu til að slíta öll tengsl við sósíalísku ríkin. Bandaríkin hafa náð smá- ríkjum í Mið-Ameríku algjörlega Framhald á 4. síðu. Á efri myndinni, sem er tekin um kl. hálf fjögur í gærdag, sést þar sem eldtungurnar gleypa í sig eldfimt braggaefnið við flugskýli Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli. í bragganum lengst til vinstri er aðsetur slökkvi- liðs Reykjavíkurflugvall- ar, næst kemur birgða- geymsla Loftleiða og lengst til hægri mötuneyti Loftleiða. Á neðri myndinni sést mötuneytisbragginn að mestu brunninn. Eldtung- urnar koma út úr fram- hliðinni, en afturhluti.nn er að hrynja niður. Járn- ið á bragganum var hvít- glóandi og ætti það að koma skýrt fram á mynd- ínni ef hún prentast vel. (Ljósm. Þjóðv.). eldsvoða á flugvellinum Fréttamaður Þjóðviljans fékk í gær fréttir af brunanum hjá slökkviiiðinu, Alfreð Elías- syni og Agnar Kofoed Hansen og fara þær frásagnir hér á eftir. Það var um kl. 15,19 að slökkviliðið var kvatt út, þar sem eldur hafði komið upp í bragga sem fiugmálastjórnin hefur á Rej>-kjavíkurflugve]li. Töluverður eldur var í bragg- anum er slökkviliðið kom á vettvang og breiddist síðan ,út í geymslubragga sem Loft- leiðir hefur og þaðan yfir í mötuneyti Loftleiða og brunnu þessir þrír braggar til grunna. Fjórði bragginn slapp frá skemmdum, en þar hefur slökkviliðið á Reykjavíkur- flugvelli aðsetur sitt. Einnig tókst að verja flugturninn gamla fyrir nær öllum skemmdum. Talið er að ein fímm tonn af góðvini hafi brunnið í geymslubragga Loftleiða, 3 tonn hafi verið fyrir um morguninn, en þá kom tveggja tonna viðbótarsend- ing. Kl. tæplega 9 í gærkvöld var slökkviliðið enn úti á Reykjavíkurflugvelli, þar sem' enn logaði í rusli í grunni bragganna og þurfti að ná burt júrnplötum til að komast að eldinum. Flugskýlið, sem braggarn- ir voru áfastir við, slapp • að miklu leyti við skemmdir. Slökkvistarfið var mjög erfi.tt, þar sem sækja þurfti ’vatn langar leiðir. Slökkvi- liðsmennirnir þurftu að sækja vatn yfir þvera flugbrautina, í brunahana rétt við Tivoli og þurfti að tengja saman einar 50 slöngur. sem hver um sig er 15 m löng. 8 bílar frá slökkviliðinu tóku þátt í björgunarstarfinu og voru flestir þeirra með hájDrýsti- dælur, sem eru ágætar til að hefta bruna á byrjunarstigi, en nægja ekki þegar svo mik- ill eldur er eins og í þessu tilfelli. Það þykir þvi furðu- legt að ekki skyldu vera vatnshanar nálægt svo mikl- um verðmætum og eldfimum húsakynnum. Milli 50 og 60 slökkviliðs- menn tóku þátt í björgunar- starfinu. Fréttamaður Þjóðviljans ræddi við Alfreð Elíasson á sjöuhda tímanum í gær og spurði hann m.a. hvað hann áliti tión Loftleiða mikið. Al- freð kvaðst ekki geta svarað því að svo stöddu. Það hefði tekizt að bjarga flughreyfii að verðmæti 25—30 þúsund dollara úr geymslubragganum, en allur varahlutalager Lo.ft- leiða hefði brunnið inni í brgganum. Úr mötuneytis- bragganum tókst að bjarga innanstokksmunum, eitthvað Fréttamaður hafði einnig tal af Agnar Kofoed Hansen í gærkvöld og spurði um tjón sem Flugmálastjórnin hefði orðið fvrir í eldsvoðanum. Agnar skýrði frá því að elds- upptökin hefðu verið í bragga Flugmálastjórnarinnar; þar hefðu menn verið að vinna með logsuðutæki og neisti hrokkið í benzíngeymi, sem álitinn var tómur. Bragg- inn varð alelda á svip- stundu og sluppu menn- irnir nauðulega út. Þarna skemmdust og eyðilögðust ■ ýmis fæki sem notuð hafa verið til viðhalds ailra sjúkra- flugvalla og inni brann snjó- blásari, sem átti að senda norður á næstunni og einnig brann lager af ýmsu tagi. Agnar kvað það alrangt sem komið hefði fram i út- varpinu, að vatnshanar hefðu ekki verið í grennd við bragg- ana, t.d. var stórt vatnsból rétt við skemmuna með um 2 þúsund gallon af vatni, en illa gekk að dæla því vatni upp af einhverjum orsökum. Enn- fremur voru fleiri vatnshanar nær en sá sem slökkviliðið notaði. — (Sjá frásögn af slökkvistarfi). af eldhúsáhöldum, matvælum, teppum o.fl. í geymslubragganum brunnu inni miklar birgðir af víni, tóbaki, ilmvötnum, súkkulaði, en ekki treysti Alfreð sér til að tilgreina hve mikið það magn hefði verið, en það hafði komið ný sending af þessum vörum um morguninn. Alfreð skýrði frá því að hann hefði í fyrstu haldið að það hefði kviknað í Claud- masterflugvél Loftleiða, sem stóð rétt við mötuneytisbragg- ann. En svo var til allrar hamingju ekki og var flug- vélin færð úr stað þegar er eldsins varð vart.. Allar eignir Loftleiða sem urðu eldinum að bráð voru tryggðar. Stærstan hluta trygginganna höfðu Vátrygg-- ingarskrifstofa Sigfúsar Sig- hvatssonar og Trygging h.f., sem höfðu endurtryggt víða. í gærkvöld áttu að koma tvær flugvélar til Loftleiða og lentu þær á Keflavíkur- flugvelli í stað Reykjavíkur- flugvallar. Alfreð bjóst við að Loftleiðaflugvélarnair mjmdu lenda á næstunni í Keflavík, en ekkert vildi hann segja um hvort Loftleiðir myndu flytja bækistöð sína þangað fyrir fullt og allt, eins og menn ræddu sín á milli úti á Reykjavíkurflugvelli í gær.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.