Þjóðviljinn - 01.02.1962, Síða 3
Skátar írá Stykkishólmi við cldamennsku á skátamóti í Botnsdal.
Skátahreyfingin á íslandi
fimmtíu ára nœsta haust
Á þessu ári eru liðin 50 ár
síðan fyrsta skátáfélagið var
stofnað hér á landi en það var
2. nóvemb^r árið 1912. Voru að-
alhvatamenn að stofnun þess þeir
Sigurjón á Álafossi, er var for-
ingi félagsins, Hclgi frá Brennu
cg Benedikt Waage. Fyrsti skáta-
höfðingi Islands varð hins vegar
Axel V. Tulinlus, er einnig var
fyrsti forseti ISl.
I tilefni af afmaelinu hefur ver-
ið skipuð hátíðanefnd og er Þór
Sandholt formaður hennar. Þá
hefur og verið ákveðið að Banda-
ilag íslenzkra skáta haldi í sum-
ar landsmót á Þingvöllum og hef-
ur verið unnið að undirbúningi
þess frá því. snemrna á síðasta
vori. Var fréttamönnum skýrt frá
undirbúningi mótsins í gær af
forráðamönnum skátahreyfingar-
innar.
Mótið verður haldið dagana 28.
júlí til 7. ágúst og er gert ráð
fýrir að það sæki um eða yfir
1500 íslenzkir skátar víðsvegar að
Friðrik tapaði
3, umferð
1 þriðju umferð á skákmótinu
í Stokkhólmi vann Kortsnoj
Friðrik Ólafsson, Filip vann Cull-
ar, Uhlmann vann Schweber,
Fischer vann Aaron og Geller
Stein. Jafntefli gerðu Bertok og
Yanowsky, Benkö og Pomar,
Bilek og Barcza. Aðrar skákir
fóru. í bið.
Eftir þrjár umferðir er Filip
efstur með 3 vinninga, Uhlmann
annar með 2% og Benkö, Barcza,
Fischer og Cullar hafa 2 vinn-
inga. 1 fjórðu umferð teflir Frið-
rik við Filip.
af landinu Eru skátafélögin nú
35 að tölu með hátt á fimmta
þúsund félaga alls. Þegar hafa
borist tilk. um þátttöku á fjórða
hundrað erlendra skáta og fleiri
eru væntanlegir. Munu sækja
■mótið skátar frá Norðurlöndun-
um öllum, Kanada, Bandaríkjun-
um, Bretlandi, Þýzkalandi, Spáni
Mývetningcr báru
öskju rsngri sök
í gær birtu Tíminn og Morg-
unblaðið fréttir frá fréttaritur-
um sínum í Mývatnssveit um
það, að þar hefðu menn séð í
fyrradag mikinn mökk bera við
loft í átt til Dyngjufjaíla og töldu
menn norður þar, að Askja
myndi aftur vera farin að láta á
sér kræla og farin að gjósa að
nýju annað tveggja gufu- eða
hraungosi.
I gær flaug Björn Pálsson
flugmaður austur yfir öskju og
var dr. Sigurður Þórarinsson
jarðfræðingur í för með honum
til þess að kanna, hvort Mývetn-
ingar bæru öskju réttum sökum
eður eigi. Þjóðviljinn átti stutt
tal við dr. Sigurð í gærkvöld og
skýrði hann svo frá, að þeir fé-
lagar hefðu ekkert markvert séð
í ferðinni. Ailt hefði verið með
kyrrum kjörum að sjá ó gos-
stöðvunum frá í vetur. Að vísu
hefði skyggni ekki verið vel gott
en þó hefðu þeir séð það glöggt
til gosstöðvanna að óhætt væri
að segja, að mökur sá, er Mý-
vetningar sáu í fyrradag hefði
ekki verið undan rótum öskju
runninn.
og e. t. v. fleiri löndum.
Þá verður einnig haldin hér
um mánaðamótin júlí—ágúst for-
ingjaráðstefna skáta á Norður-
löndum, hin fyrsta, sem hér er
haldin. Verða þátttakendur vænt-
anlega 40—50 og munu þeir heim-
sækja mótið á Þingvöllum.
Mótið verður haldið á Leirun-
um á Þingvöllum og verða þar
reistar miklar tjaldbúðir er skipt-
ast í tjaldbúðir drengja, stúlkna,
fjöiskyldubúðir, foringjabúðir og
væntanlega einnig gestabúðir. Eru
fjölskyldubúðirnar nýmæli og er
ætlast til, að þar geti búið eldri
skátar með fjölskyldum sínum.
Þátttökugjald verður alls kr.
875 00. Eiga 175 krónur að greið-
ast 1. marz n.k. en afgangurinn
fyrir 15. júlí. 1 gjaldinu er inni-
fa'lið allt efni í mat og eldsneyti,
mótsmerki, smærri ferðir á dag-
skránni en ekki lengri ferðir eða
ferðir að og frá mótsstað.
Dagskrá mótsins hefur þegar
verið samin í aðaldráttum og
verður hún hin fjölbreyttasta,
ýmis skemmtiatriði um hönd
höfð, keppt í skátaíþróttum og
leikium, farið í margar ferðir
bæði lengri og skemmri um
nágrennið og nærliggjandi sveit-
ir, haldnar sýningar, varðeldar o.
m. fl.
Mclstjóri verður Páll Gíslason
varaskátahöfðingi, aðstoðarmóts-
stjóri Aðalsteinn Júlíusson og
aðrir í mótsstjórn Guðmundur
Ástráðsson, Erna Guðmundsdóttir
og Elín Káradóttir. Dagskrár-
stjórn skipa Hermann Ragnar
Stefánsson, Guðríður Friðfinns-
dóttir og Bragi Þórðarson, en
tjaldbúðastjórn Magnús Stephen-
sen. Anna Kristjánsdóttir og
Rúnar Brynjólfsson.
Öryggisráðið
kemur saman
New York 31.1 öryggisráð SÞ
kcmur saman á morgun til að
ræða deiluna um Kasmír milli
Indlands og Pakistan.
Sovézka sendinefndin hjá SÞ
birti á þriðjudaginn, yfirlýsingu
þess efnis, að írestun Kongóráð-
stafana öryggisráðsins til óá-
kveðins tíma, sýni að Banda-
rikín og Stóra-Bretland geri allt
•sem í þeirra valdi stendur til
að ýta ákvörðunum ráðsins til
hliðar, þannig að þau geti óáreitt
haft alla- sína hentisemi í Kongó.
Nýjasta
herbragðið
IVlorgunblaðið hefur nú tek-
ið það fram sautján. sinnum
að Sjómannafélag Hafnar-
fjarðar sé „fyrsta“ verklýðs-
félagið sem „kommúnistar"
i hafi tapað á þessu ári; virð-
ist blaðið telja það mikil und-
ur og stórmerki að þar var
skipt um stjóm með fjögurra
atkvæða mun. En blaðið
kemst aldrei lengra í talningu
sinni; „annað“ félagið sem
kommúnistar tapa er ennþá
ófundið. Því verður það að
láta sér nægja að tala um
þær einstæðu hrakfarir
ftustin Gypsy nýr
iandbuneðarbíil
Á þriðjutlagskvöldið sýndi
Austin-umboðið, Garðar Gíslason
h.f. fréttamönnum tvær landbún-
aðarbifreiðir, scm fyrirtækið hef-
ur flutt inn frá Austin-verk-
smiðjumim. Bilagerð þessi nefn-
ist Austin Gypsy og eru í henni
ýmsar nýungar, sem ekki hafa
áður veriö í slíkúm bílum. Má
í þessu sambandi sérstaklega
geta nýs f jöðrunarútbúnaðar, sem
sagt er að sé einhver mesta
framför, sem um getur i því efni.
Fjaðraútúnaðurinn er með
þeim hætti, að hvert hjól hefur
sjálfstæða fjöðrun og hefur það
sína kosti á ójöfnum og í þýfi
og þess er getið í umsögn um-
boðsins, að ekkert slit eigi að
geta komið til greina á þessum
útbúnaði. Fjaðraútbúnaðurinn er
falinn inní grindinni, sem er úr
lokuðum sívölum rörum. Billinn
er sérstaklega þýður í akstri og
öruggur í hvívetna við hin erfið-
ustu. skilyrði.
Bifreiðin er fáanleg, hvort
heldur vill með dieselvél, eða
benzínhreyfli, en Austin-verk-
smiðjurnar eru, sem kunnugt er,
gamalreyndar í smíði beggja
vélagerða.
Þá er önnur nýung, þarsem er
drifútbúnaðurinn. Drifkúlurnar
eru tvær og sérstakt drifskaft er
fyrir hvert hjól. Kúlurnar eru
fastar í grindinni, liggja þar í
gúmmífóðringum. Hægt er að aka
bílnum, hvort heldur maður vill
með framhjólunum einum sam-
an, afturhjólunum einum, eða
cllum hjólunum fjórum.
Það er trú umboðsmanna, að
þessi bíll verði hættulegur keppi-
nautur fyrri tegunda af landbún-
aðarbílum, þegar fram líða
stundir.
Þó má bæta við, að einn leiður
en raunar smávægilegu.r galli er
á útbúnaði bílsins. Hitamælirinn
sýnir hitastig í Farenheit, en
ekki Celsíus. Við Islendingar
eigum afar bágt með að átta
okkur á Farenheitmælum og
raunar stefnir þróunin í þá átt,
að taka upp Celsíuskerfið. I
þessu sambandi má geta þess, að
brezka veðurstofan hefur nú
þann hátt á, að útvarpa hitastigi
bæði á Celsíus og Farinheit og
hyggst innan skamms, taka upp
Celsíuskerfið eingöngu.
Bifreiðainnflytjendur ættu að
vera á varðbergi gagnvart svona
ósamræmi því að sáralítil fyrir-
höfn er að fá þessu breytt áður
en bíllinn er afhentur eiganda.
Meiri líkur ■
á sáttum
PARÍS 31/1 — Um 4000 manna
herlið var í gær sett undir stjórn
lögreglustjórans í París, til að
halda uppi lögum og rétti í
frönsku höfuðborginni.
Haft er eftir góðum heimild^
um í París, að franska lögregl-
an hafi í gær fengið fyrirskip-
un um að skjóta hvern þann.
sem neitaði að hlýða stöðvunar-
merkjum hennar og það hvorfc
sem viðkomandi væri fótgang-
andi eða í bíl.
Hið áhrifaríka óháða franska
síðdegisblað, Le Monde, telur sig
hafa vitneskju um, að samkomu-
lags sé að vænta milli frönsku
ríkisstjórnarinnar og útlaga-
stjórnar Serkja í Alsír, en. ekki
hafi enn náðst samkomulag um
tímasetningu vopnahlés.
Þessi mynd sýnir Austin Gypsy Iandbúnaða(rbil, sem er í eigu
Sigurjóns Rist, vatnamælingamanns. í blaðamannaviðtali Iýsti hann
reynslu sinni af bílnum og kvað betri bíl fyrir mann í sinni stöðu
vandfundinn. Maðurinn sem stcndur hjá bílnum, er eigandinn,
Sigur jón Rist. * I
kommúnista að þeir skuli
sigra í Þrótti og Dagsbrún,
og að öðru leyti veit frétta-
blaðið mikla ekki um stjórnar-
kjör, jafnvel ekki í hinum
stæstu verklýðsfélögum. Það
hefur t.d. ekki ennþá skýrt
frá því að ,,kommúnistar“
hafa verið sjálfkjöi'nir í
stjórnum sumra öflugustu
félaganna utan Reykjavíkur,
eins og verkamannafélögun-
um á Akureyri Siglufirði og
Húsavík. Og þótt leitað sé
vandlega í stærsta blaði lands-
ins er þar ekki orð að finna
í gær um þau athyglisverðu
tíðindi að stjórn Félags járn-
iðnaðarmanna varð sjálfkor.
■ <->••
iL-
in. í bví félagi hafa þó orð-
ið býsna stórfelld umskipti;
ekki er ýkjalangt síðan stjórn-
arskipti urðu þar ár eftir ár.
Það er býsna dularfullt að
stjórnarliðið — sem að sögn
málgagna sinna er í stórsókn
í verklýðsfélögunum og vinn-
ur einn sigurinn öðrum stór-
felldari hvernig svo sem úr-
slitin eru — skuli ekki einu-
sinni bjóða fram í Félagi
járniðnaðarmanna, En þetta
er vafalaust nýjasta herbragð-
ið. Morgunblðið getur rétti-
lega haldið því fram að
kommúnistar hafi ekki fengið
eitt einasta atkvæði við ko.sn-
ingar í því félagi. — Austri.
i
;
!
!
!
11
Fimmtudagur 1 febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3’