Þjóðviljinn - 01.02.1962, Blaðsíða 7
Maður hafsins, UHKSTEINN STEFÁNSSON, fræðir
okkur um næringarsölt og sitthvað fleira í sjénum
hverskonar útgáfa af fávizku
ég eiginlega sé, og segir síðan:
— f sambandi við spurningu
þina áðan, um hvað efnafræði-
legar rannsóknir á sjónum um-
hverfis landið kæmu fiskveiðum
að gagni, rifjast það upp að það
virðist vera mjög útbreidd skoð-
un hér að sjávarrannsóknir
eigi þvíaðeins rétt á sér að þær
séu í sambandi við fiskveiðar,
og ég vil endurtaka það sem ég
sagði áðan að algerlega burt-
séð frá þýðingu þeirra fyrir
fiskveiðar eru slíkar rannsóknir
sjálfsagðar sem þáttur í rann-'
sóknum á náttúru landsins því
s.iórinn umhverfis landið er
óaðskiljanlegur hluti þess.
Þarna blasa við verkefni hrein-
vís'nd.aie.ss eðlis. Þótt sjálfsagt
sé að p’’ka hafrannsóknir í þágu
fiíkveiðanna, eru auk þess ótal
verkefni frá beint haffræðilegu
sjónarmiði.
Jafnhliða fiskirannsóknastofn-
unum nágrannaþjóða okkar eru
starfandi hjá þeim sérstakar
stofnanir er fást eingöngu við
eðlis- og efnafræðilegar haf-
rannsóknir. í hafinu umhverfis
Island eru sérstaklega góð tæki-
færi til slíkra rannsókna vegna
legu landsins á mótum heitra
og kaldra strauma.
— Jú, vísindin efla alla dáð,
— en ég ætla enn að halda mig
við matinn, blessaðan fiskinn!
Segðu mér, hvernig þarf sjór-
inn að vera, til þess að fisk-
arnir sækist eftir því að vera
í honum?
— 1 námunda við strauma-
mót eru ævinlega auðug haf-
svæði, þar eru bezt skilyrði
fyrir plöntusvif og æti — en
hvorugt hið síðartalda er á
mínu sviði. Svarið við spurn-
ingu þinni er engan veginn ein-
falt mál, þar sem kemur svo
HVAÐ GERA
ÞEiR í
FISKIDEILDINNI?
margt til greina — og yrði langt
mál ef skýra ætti það nákvæm-
lega.
— Þú sagðir áðan, að bæði frá
sjónarmiði fiskirannsókna og
líka vísindalegu væri nauðsyn-
legt að auka hafrannsóknir við
ísland. Hvað þurfið þið fyrst
og fremst til þess að það sé
hægt?
— Til þess þarf að auka
starfslið — og sjálfsögð for-
senda er að við höfum sæmi-
lega búið hafrannsóknasldp til
eigin afnota.
Við þökkum Unnsteini. Hann
hefur m.a. frætt okkur um það
að í sjónum séu uppleyst efni,
„næringarsölt“, sem straumar
og vindar dreifi sem áburði yf-
ir einhverjar „plöntur“ í sjón-
um, — næst er þá að reyna að
fá einhverja vitneskju um
hverskonar „túngróður“ þar
vaxi. J. B.
Eigi vitum vér hverskonar eiturbras Unnsteinn var að frernja I
rannsóknarstofu sinni þegar myndin va(r tekin.
í á-standi sjávarins. Nú er í
prentun stór ritgerð u.m sjó-
inn milli Grænlands, Islands og
Jan Mayen. Þar kemur fram
árangur af þessu starfi.
Á svæðinu sunnanlands höf-
um við gert tiltölulega litlar
rannsóknir og er brvn nauðsyn
að hefja þær hið allra fyrsta
og auka þær, einkum er æski-
legt að geta haldið uppi kerfis-
bundnum, endurteknum athug-
unum á takmörkuðum svæðum.
— Segðu mér. eru þessar
rannsóknir á sjávarhi.ta og slíku
tómstundagaman eða vinna í
alvarlegum tilgangi varðandi
fisikveiðar? Er ekki fiskur í
sjómum hvort sem hann er kald-
ur eða heitur?
— Sjórannsóknir eru vitan-
lega sjálfsagður liður í sam-
bandi við fiskirannsóknir. Það
er löngu vitað að göngur fiska
og fæðuskilyrði eru að verulegu
leyti háð ástandinu í hafinu og
því algerlega óumflýjanlegur
þáttur í starfi fiskirannsóknar-
stofnun^r að athuga ástand
sjávarins.
Sem d.ætmi. má nefna að í
samband.i við síldarleitina eru
ávallt framkvæmdar víðtækar
ihitamælingar, enda hefur
reynslan sýnt að í byriun ver-
tíðar finnast oft stærstu torf-
urnar við hitaskilin á mótum
heitra og kal^ra strauma.
— Hversvegna?
— Gróðu.rskilvrði í hafinu eru
m.a. nátengd lóðréttri blöndun
sjávar og næringarsöltum, og
slíkar rannsóknir eru því nauð-
synilegur Iþáttur í umhverfis-
rannsóknum.
— Hvað eru þessi „næringar-
sölt“?
— Næringarsölt eru u.ppleyst
efni í sjónum. (venjulega í mjög
litlu magni) sem eru plöntu-
svifinu. nauðsynleg ti.l þess að
það geti þri.fi.zt, líkt og plöntur
á landi, þurfa áburð til þess að
vaxa.
Rannsóknir á Norðurlands-
svæðinu hafa leitt ýmislegt
fróðlegt í ljós. í sumarbyrjun
er sambandið milli sjávarhita
og seltu mjög náið, þannig að
ráða má í aðalatriðum af hita-
mælingum einum saman um út-
breiðslu Atlanzsjávar.
iÞá er iþað fróðlegt að af vind-
átt í hafiuu vestan Islands að
vori virðist mega ráða með tölu-
verðu öryggi um sjávarhita á
mið- og austursvæðinu síðar
um sumarið.
— Hversvegna síðar um sum-
arið en ekki strax?
— Siór sá sem berst norð-
ur fyrir Horn að vori er nokk-
urn tíma ó leiðinni ausur með
lan.di, Það hefur komið í Ijós
að bau ár sem hefur verið mik-
ilí sunnanvindur í hafinu vest-
an íslands hefur sjórinn verið
hlýr í djúplögum á austan-
verðu Norðurland-ssvæðinu.
Skýringin er vafalaust sú að
su.ðlægar óttir auka á inn-
streymi Atlanzsjávar norður
f.vrir landið en norðlægar áttir
draga úr því innstreymi.
— Á hverju byggið þið það?
— Þessi ályktun er því að
iþakka að ti.l eru athuganir frá
ákveðnum stöðum á allmörgum
árum.
Ástandið í hinni svokölluðu
köldu tungu, Austur-Islands-
strau.mnum, á úthafssvæðinu
mill.i í'slands og Jan Mayen,
virðist einnig háð vindátt,
— Telur þú þá að auka þurfi
rannsóknir á sjónum sjálfum
hér við land?
— Já, það þarf að auka þess-
ar rannsóknir, svarar Unn-
steinn og heldur áfram: Það er
miög nauðsynlegt í sambandi
við hrygningu nytjafiska að
h.efja á svæði.nu suðvestan ís-
lands reglubundnar mælingar á
straumum og . kortleggja. út-
ibreiðslu ferska vatnsins á svæð-
inu, næringarsalta o.fl. Það er
eitt af því sem liggur beint við
að gera í nájjipi íramtíð.
Svo h'tur'"Uiihsteinn dálítið
rannsakandi á mig, 'eins og
hanii sé að velta því fyrir sér,
Rafvirkjar í New York fá kjör sín bætt
25 stunda vinnuvika
-.flB
'■ \M£jr*ic\r ' *»
- kaupið 7000 krónur
Rafvirkjar sem. starfa í
byggingaiðnaöi New York
borgar hafa knúið fram
bætt kjör sér til handa
með verkfalli. Samkvæmt
nýja samningnum styttist
vinnuvika rafvirkjanna
niður í 25 stundir og viku-
kaup verður 161,20 dollar-
ar eða tæplega 7000 ís-
lenzkar krónur.
Rafvirkjar hafa lengi búið
við bezt kjör allra byggingar-
iðnaðarmanna í New_ York.
Vinnutíminn hefur undanfarin
ár verið 30 stundir á viku eða
sex stundir á dag fimm daga
vikunnar. Auk þess hefur þeim
verið tryggð einnar stundar
eftirvinna hvern vinnudag, svo
að í reynd var vinnutíminn 35
stundir á viku.
Krafa iim fjögurra stunda
vinnudag
Á síðasta ári sagði rafvirkja-
félagið upp samningum. Aðal-
kraía þess var um styttingu
vinnuvikunnar niður í 20 stund-
ir án þess að vikukaup lækk-
aði. Hefði vinnudagur þá orðlð
fjórar stundir.
Atvinnurekendur höfnuðu
þessari kröfu og kom til verk-
falls. Lögðu 9000 rafvirkjar nið-
ur vinnu, bæði þeir sem vinna
við nýbyggingar og þeir sem
annast viðhald og eftirlit í
húsum. . .
Hótað verkbanni
Þegar verkfallið hafði staðið
í fimm daga, lýstu atvinnurek-
endur verkbanni í byggingar-
iðnaðinum, Náði það til 100.000
manna í öllum byggingariðn-
greinum. Var verkbannið rök-
stutt með því að öryggiskröfum
yrði ekki fullnægt vegna raf-
virkjaverkfallsins. Rafvirkjar
mótmæltu því, og bentu á að
félag þeirra hefði veitt undan-
þágu fyrir rafvirkja sem ann-
ast um vinnuljós í nýbygging-
Eftir að atvinnurekendur
höfðu sett verkbann var búizt
við löngu og hörðu verkfalli,
en það fór á aðra leið. Samn-
ingar tókust fimmtudaginn í
fyrri viku milli rafvirkjafélags-
ins og hóps atvinnurekenda.
Aðrir atvinnurekendur komu
svo á eftir og gerðu samskonar
samninga.
Dagvinnukaup 213 krónur
Meginatriði nýju samning-
anna er um styttan vinnutíma
og hækkað kaup. Vinnuvika
rafvirkjanna styttist í 25 stund-
ir úr 30 eða um klukkustund
á dag þá fimm daga vikunnar
sem unnið er. Tímakaup í dag-
vinnu hækkar úr 4.40 dollurum
á klukkustund í 4.96. Rafvirkj-
um er tryggð að minnsta kosti
ein stund í eftirvinnu hvem
vinnudag og verður álag á eft-
irvinnukaup óbreytt eða 50° '0.
Samkvæmt þessum samning-
um er tímakaup rafvirkjanna í
New York kr. 213.58 í íslenzk-
um peningum og útborgað viku-
kaup kr. 6941.27.
Samningurinn gengur í gildi
1. júlí í sumar og gildir hálft
þriðja ár.
Vélvæðing ástæðan
Harry Van Arsdaie, formaður
rafvirkjafélagsins, og samstarfs-
menn hans rökstuddu kröfu
sína um styttingu vinnutíma
með vaxandi vélvæðingu í iðn-
greininni. Bentu rafvirkjar á að
það færist stöðugt í vöxt að raf-
magnstöflur og rafborð séu
framleidd í verksmiðjum, og
notkun margskonar véla og
tækja sem spara vinnu og tíma
fer ört vaxandi við lagningu
rafleiðsla í nýbyggingum.
Blöð í New York segja að at-
vinurekendur búist við að
kjarabæturnar sem rafvirkjar
fengu verði til þess að félög
annarra byggingariðnaðarmanna
beri fram kröfur um styttan
vinnutíma og hækkað kaup.
10.000 krónur á viku
ekki óalgengt
Einnig er skýrt frá því í blöð-
unum að hinir nýju samningar
segi ekki alla söguna um tekj-
ur rafvirkjanna. Svo mikið
hefur verið að gera í bygging-
ariðnaði New York undanfarið
að fjöldi rafvirkja hefur unnið
verulega eftir\'innu. Ef rafvirki
vinnur átta stundir á dag fimm
daga vikunnar eða 40 stunda
vinnuviku fer viku.kaup hans
samkvæmt nýju samningunum
udd í kr. 10.621.16.
Til samanburöar má geta
þess að vikukaup íslenzkra raf-
virkja fyrir 46 stunda vinnu-
viku er nú kr. 1310.
"»r
m
Fimmtudagur 1. febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN
(71