Þjóðviljinn - 11.02.1962, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 11.02.1962, Qupperneq 4
fcQ,, Sunnudagur 11. íebrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (J voru marg- ir, sem lærðu og lögðu s-tund á beykisiðn hér á landi, en með breyttum tímum og atvinnuhátt- um hefur þeim sífellt farið fækk- andi og nú er svo komið, að hér í Reykjavík er aðeins eftir einn maður, sem enn stundar beykis- iðn, Bjarni Jónsson beykir, Háa- leitisvegi 40. Síðasti beykirinn Þegar blaðamaður og Ijós- myndari írá Þjóðviljanum heimsóttu Bjarna í síðustu viku á verkstæðið, til þess að Jeita frétta hjá honum um starf hans, lét hann lítið yfir því, sem hann hefði að segja: Lítið var en iokið er, sagði Bjarni. Hann varð þó góðfús- Jega við því að svara nokkr- um spurningum biaðamanns- ins. — Ert þú ekki eini beyJdr- inn, sem nú er starfandi hér í Reykjavík? — Jú, það er víst svo og hefur verið um nokkurt skeið. Ég hef verið að gaufa við þetta. Maður kann illa við að hætta við það, sem maður er einu sinni byrjaður á. — Hvað hefurðu stundað þessa iðn lengi? — Síðan 1911. Þá byrjaði ég að læra hjá Jóni heitnum Jónssyni beyki og Jauk nómi hjá honum eftir þrjú ár. Ég byrjaði að relia verlcstæði 1918 og rak það um tíma þá. Svo var ekkert að -gera og ég fór norður til Akureyrar. Það gekk skrykkjótt á þeim árum. Ég var líka 11 sumur á Siglu- firði hjá Sören Guuse, en hann byggði síldarverksmiðj- una Rauðku sem nú er kölluð, kom með hana frá Noregi, og var Jfka með síldarplan. Ég var hjá honum írá byrjun. Ég ■held það hafi verið 1913 frefh- ur en 1914. Þá var lýsið í trétunnum og þurfti að endur- bæta þær. Þá var gert meira en nú að því að gera við tunn- ur sem brotnuðu. — Smíðuðuð þið ekki líka tunnur? — Nei, þetta voru venju- Ieg oJíuföt. — Hvað hefurðu rekið þetta verítstæði Jengi? — Ég var 16 ár niðurfrá hjá Geir Zoéga og svo er ég búinn að vera 15 ár hér. Það eru komin 31 ár. Það var lít- ið hjá mér að gera eins og fJeirum á milli 1927 og 1937. Já, þá var lítið að gera. Skrúfudagur í Vélskólanum „Skrúfudagur" er í Vclskólan- um á morgun, mánudag, hinn lyrsti, sem cfnt er til { skólanum, en ákveðið er að halda hann há- tíðlegan 12. febrúar ár hvert. Tilgangur dagsins er að kynna starfsemi skólans út á við og jafnframt að tengja saman eldri og yngri nemendur um velferðar- mál hans. „Skrúfudagurinn" er í umsjá nemenda, sem kjósa fulltrúa í svonéfnt skrúfuráð, tvo menn hver bekkjardeild, auk formanns skólafélagsins. Dagskrá verður sem hér segir: Kl. 10 árdegis verður skólinn sýndur boðsgestum, þ.e. fulltrú- um ýmissa fyrirtækja og stofn- ana, en milli kl. 1.30 og 4 síð- degis verður skólastarfsemin kynnt vélstjórum og öðrum, sem áhuga hafa. KJ 5 síðd. hefst svo hátíðafundur í samkomusal skól- ans. Þar flytur formaður skrúfu- ráðs ávarp og áfhendir skrúfuna (áletraða) einum kennaranna til eignar. Vélstjóri flytur síðan er- indi, gestir ávarpa samkomuna og Joks flytur skólastjórinn, Gunnar Bjarnason, ávarp. Vél- stjórum og konum þeirra er sér- staklega boðið á þennan fund. Drakk tréspíritus af kompásflum Vestmannacyjum, 10/2. — 1 nótt var brotizt hér inn í bát cg brotinn kompásinn og tekinn vökvinn af honum. Var það um lV2 pottur af tréspíritus. Einn maður mun hafa veikzt af því að drekka spíritusinn og var hann í skyndi fluttur í sjúkra- hús í nótt og dælt upp úr hon- um. Mun hann nú vera að jafna sig. Dönsk kynnirigardagskrá í Félagsheimili ÆFR í kvöld Síðasta tækifæri 1 dag, sunnudag, er síðasti dagur bókamarkaðarins í Þing- hóJ. Góðar og ódýrar bækur í miklu úrvali á boðstólum. í dag eru síðustu tækifæri að gert góð kaup. ÆFK. 1 kvöld er dagskrá um Dan- mörku og danskar listir í Fé- lagsheimili ÆFR í ' Tjarnargötu 20. Er það upphaf á nýjum lið í félagsstarfinu, og er ætlunin, að sJíkar kynningar á ýmsum þjóðum verði hálfsmánaðarlega. 1 kvöld verður lesið úr verkum þriggja danskra skálda, þeirra Lófóten- verSið er kr. 4.82 1 Martin Andersen Nexö, Hans Kirk og Hans Scherfig. Hörður Bergmann flytur erindi um rót- tæk, dönsk skáld, einnig þau sem þarna verða kynnt. Guðmundur Magnússon fJytur erindi um Danmörku og islenzka Hafnarstúdenta. Á undan og eítir hinu talaða orði verður ílutt dönsk tónlist. öllum er heimill aðgangur að kynningarkvöldinu og veitingar verða á boðstólum. Villa var í fyrirsögn í blað- inu í gær þar sem skýrt var frá fiskverði í Noregi. Verðið á Lófótsvæðinu fyrir kíló af þorski samsvarar kr. 4.82 ís- lenzkum, eins og kom fram í fréttinni sjálfri. Fiskverðið hér er kr. 3.21 og 2.89, svo noi-ska verðið er 50 til 67°/d Jiærra en það sem ís- Jenzkir sjómenn og útgerðar- menn fá, eins og bent var á í fréttinni í gær. Bjarni sker til tunnubotn með ‘rétthnif, en það áhald er lík- ast hófjárni að iögun. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). — Voru það ekki margir, sem stunduðu beykisiðn hér áður? — Jú, þá var svo mikið not- að tré í busáhöld. Nú er kom- ið aluminium og plast og alls konar í staðinn. Þó eru ennþá notuð tréilát undir skyr. Það verkast svo illa í blikki býst ég við. Ég veit ekki um plast- ið. | — Hvað smíðuðuð þið fleira en búsáhöld? — 1 gamla daga var það allt mögulegt, svo sem bræðslutrog í togara og bræðslukeröld í landi fyrir lýsi. Nú er komið annað betra í staðinn. Eins var það ým- islegt fyrir verksmiðjur. Þess- ar stóru trommur og fleira. Nú smíða ég aðallega þvotta- kör, blómapotta úr teak og mahogny undir þessa stóru pálma, smákúta undir kjöt. Annars er þetta orðið lítið. Ég vil lítið taka, svo að ég verði ekki svikari við fólkið. — Ertu einn á verkstæðinu? Ég hef verið einn i mörg ár. Með þeim áhöldum, sem ég hef, er það ekki hægt öðru- vísi. Það voru hjá mér menn fyrir nokkuð mörgum árum, sem höfðu lært þetta. Nú eru ekki eftir nema þrír lærðir beykirar hér í Reykjavík, að ég held, og þeir eru löngu hættir að stunda þetta. Svo hugsa ég, að það sé einn á Siglufirði. — Er langt síðan einhver hefur lært beykisiðn? — Það byrjaði að læra hjá mér maður, ég held 1927, og lærði í ein tvö ár. Þá hætti hann og fór í annað. Seinast var hann brunavörður. Það er sá síðasti, sem hefur byrjað á þessu námi. Það er svo lítið upp úr þessari handavinnu að hafa. Annars gæti ungur mað- ur haft nóg að gera í þessu, ef hann hefði lært. Það má ýmislegt fleira gera en ég er með. — Er þetta mest unnið i ■höndunum? ( — Hér um bil. Þó er það stórum skárra en var í gamla daga. Nú hef ég orðið vélsög, afréttara, rennibel-ck o. fl. Það er hægt að hafa fleiri áhöld, en ég fer ekki út í það. Það er ekki hægt fyrir gamlan mann að setja upp verkstæði. ^ Það þýðir ekkert. Svo er mað- 1 ur dauður næstu daga. Ef ég | væri um fertugt myndi ég end- | urvekja þetta en ég er nú á [ áttræðisaldri, kominn á sjöt- , ugasta og annað árið. 1 Bjarni sýndi okkur að lok- um verkstæðið og þá gripi, sem hann er nú að vinna við, ( en meðal þeirra eru tunnustól- 1 ar, vatnskútar í lífbáta fyrir | togara og millilandaskip, kör til að skola þvott í og ýmis- legt fleira. Við sjáum m. a. að í glugganum stendur lítil og haglega gerð víntunna á stokkum. — Smíðarðu mikið af svona ] vínkútum? — Nei, einstöku sinnum tilj afmælisgjaf a. Það eru eldri! menn sem hafa gaman afl þeim. Þeir fá þá tunnuna) gefna fulla af einhverju góðu. Þessi tekur fjóra potta. — Hvað selurðu svona grip? — Ég sel þær víst alltof ó- dýrt, hef látið þær á 800 krón- ur. Þetta er svoddan óra vinna. Það er ekki tímakaup upp úr því að hafa. Kraninn einn kostar líka 75—80 krónur. — Smíðarðu ekki líka krús- ir með tunnunum? — Ég gerði iþað eihu sinni, en núna vil ég vera laus við það. Það er ekki hægt nema úr homi. Það er ekkert varið Bjarni segir okkur, að í tunnurnar noti hann eikar- stafi úr tunnum undan ame- rísku koníaki. Er koníakið lát- ið liggja í tunnunum og sjúga í sig safann úr trénu og þess vegna er hver tunna ekki notuð nema einu sinni. Martin Andersen Nexö.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.