Þjóðviljinn - 11.02.1962, Blaðsíða 6
Hálfgrotnuð dagbók kom
mold
Einstæð heimild um píslarvætti pólskra gyðinga
VARSJÁ — Vatnsósa blaSa-
strangi hefur verið grafinn
úr jörðu nærri Líkbrennslu-
ofni III þar sem útrýming-
arfangabúðirnar stóðu 1
Auschwitz. Á blöðin er letr-
uð dagbók gyðings, eins af
hundruðum þúsunda sem
þarna létu lífið á stríðsár-
unum.
Blaðastranganum hefur verið
troðið niður í matarskrínu þýzks
hermanns og hún grafin í jörðu.
Skrínan er ryðguð í gegn og
mikið af blöðunum grotnað sund-
ur, en pólskir fræð.'menn sem
kannað hafa það af dagbók-
inni sem læsilegt er telja að
hún sé einstæð heimild um písl-
arvætti pólskra gyðinga. Helzt
líkja þeir henni við ,,Minnis-
greinar úr gyðingahverfinu í
Varsjá“ eftir Emanuel Ringel-
blum, en handritið að þeim
fannst einn.'g grafið í jörðu.
Ilöfundur ókunnur
•
Af því sem tekizt hefur að
lesa af dagbókinni, sem skráð er
á 354 blöð, verður ekki ráðið
hver höfundurinn er. í bráða-
birgðaskýrslu Rannsóknarnefnd-
ar á iglæpum nazista, sem hefur
dagbókina undir höndum, segir
hjartoð um stund
NEW YORK — Um aldir hafa
jógarnir á Indlandi stært sig af
að Iöng og flókin þjálfun gefi
þcim svo mikið vald yfiir Iíkama
sínum að þeir séu færir um að
stöðva sjálfan hjartsláttinn. Nú
hafa þrír læknar gengið úr
skugga um að það er dálítið' til
í því sem jógarnir segja, þó ekki
sé bókstaflega rétt að þeir geti
Iátið hjarta sitt hætta að slá að
vild.
Læknarnir tóku síg saman og
rannsökuðu fjóra jóga. Þrír full-
yrtu að þeir gætu stöðvað hjart-
sláttinn, en sá fjórði tók ekki
dýpra í árinni en svo að hann
kvaðst geta hægt á hjartanu. Það
Uhlmsnn hefur
nú tekiS forustuna
Lokjð er nú öllum þiðskákum
nema einni úr 7. og 8. umferð
skákmótsins í Stokkhólmi og
urðu úrslit þeirra þessi: f 7.
umferð vann Uhlmann Friðrik,
Techner Cueller, Benkö Cher-
mann, Portisch Sehweber, Bjlek
Gligoric, Barcza Pomar og Fisch-
er Bisguier en Geller og Filip
gerðu jafntefli. í 8. umferð vann
Kortsnoj Fil.’p, Gligoric Barcza,
Uhlmann Stein, Portisch Yan-
owsky og Bilek Schweber en
skák Gellers og Bolbochans var
frestað
Eftir 8 umferðir er staðan þá
þessi: 1. Uhlmann 6V2 v., 2.
Fischer 6 (úr 7 skákum), 3.—4.
Filip og Benkö 5V2, 5. Portjsch
5, 6. BoJþochan. 4IV pg,, þifekúk..
7. Petrosjan 4V2 (úr 7), 8.—9.
Gligorie og Pomar 4V2, 10.
Kortsnoj 4 (úr 7), 11,—12. Bil-
ek og Barcza 3V> (úr 7), 13.—14.
Friðrik og Yanowsky 3V2, 15.
Geller 3 og biðskák (úr 7), 16.
—18. Bertok, Schweber og
Teschner 3, 19—20. Stein og
Bisguier 216 (úr 7), 21. Cher-
mann 216, 22 Cuellar 2, 23.
Aron 1.
Biðskák Bolbochans og Gell-
ers lauk með s:gri hins siðar-
nefnda.
Niunda umferð var tefld í
gær og tefldi þá Friðrik við
Benkö.
kom á daginn að hann hafði mest
vaild yíir hjartastarfseminni.
Við rannsóknina var notaður
hjartarafriti, sem skráir raf-
straumana í hjartanu, og er
næmara tæki en hlustunarpípa
sem notuð er til að nerna hjarta-
hljóðin.
í nokkrar sekúndur
„Það má orða það svo að hann
hafi „stöðvað hjartað" í nokkrar
sekúndur," segja læknarnir þrír
um jógann sem minnst gerði úr
leikni sinni. Þeir vilja þó held-
ur komast svo að oi'ði, að mann-
inum hafi á einhvern hátt tekizt
að raska reglulegri hringrás
hjartastarfsins, breyta miðdepli
rafstraumanna í hjartanu og gera
hjai'tsláttinn mjög hægan örstutta
stund.
Skýrslan um rannsóknina á jóg-
unum fjórum birtist í Circulation,
tímariti félags bandaríska hjarta-
lækna. Höfundar eru Wenger, sál-
fræðiprófessor við Kaliforníuhá-
skóla, Bagchi prófessor í heila-
rafritun við Michiganháskóla og
dr. Anand, yfirmaður lífeðlis-
fræðideildar Læknavísindastofn-
unarinnar í Nýju Delhi.
Ósjálfráða taugakerfið
Læknarnir þrír töldu illa far-
ið að ekki væri gerð óyggjandi
rannsókn með fullkomnum tækj-
um á jógunum sem segjast geta
stöðvað hjartað. Starfi hjarta-
vöðvans er stjórnað frá ósjálf-
ráða taugakerfinu, og að öllu
eðlilegu er mönnum engin leið
að hafa bein áhrif að geðþótta
sínum á lífsstörf sem þannig er
-• C* ,1 JUöííþVci
Þegar jógamir þrír, sem þótt-
ust eiga auðvelt með að stöðva
hjartað, voru teknir til rannsókn-
ar, kom í Ijós að þeir voru ein-
ungis færir um að blekkja hlust-
unarpípuna á þann hátt að þagga
niður hjartahljóðin með því að
halda niðri í sér andanum og
spenna vöðva.
öðru máli gegndi um þann
fjórða, sem ekki sagðist geta
meira en hægt á hjarta sínu.
H.iartarafritinn sýndi að stutta
stund varð hrynjandin í hjarta-
starfi hans óeðlileg. Jafnframt
varð hjartslátturinn óeðlilega
hægur.
að ljóst sé að höfundur hafi ver-
ið gyðingur frá Lodz.
Dagbókin ber með sér að höf-
undur hefur verið menntamaður
og átt barn, líklega telpu. Áð-
ur en hann var fluttur í útrým-
ingarbúðirnar bjó hann í gyð-
ingahverfinu í Lodz. Hann lýsir
nákvæmlega lífinu þar, en skrá-
ir jafnframt hugleiðingar sínar
og athugasemdir, sem bera vott
tilf’nninganæmum manni sem lét
ekki múgmorðin allt í kringum
sig drepa trú sína á .lífið.
Árið 1942
Fyrstu blöðin sem tekizt hef-
ur að lesa eru frá 18. maí 1942
en hin síðustu frá nýársdegi
1943: Stjórnendur safnsins í Os-
wiecim, en svo nefnist Ausch-
witz á pólsku, telja að dagbókin
öll hafi náð yfir mun lengra
tímab:l. Hún er rituð á jiddish,
máli gyðinga í Mið- og Austur-
Evrópu.
Dagbókin virðist skráð á blöð
skorin úr bókhaldsbók og klofin
niður eftir endilöngu. Fimmtíu
blöð hafa drafnað sundur af
rakanum í jörðinni, og á 174 hef
ur ekki tekizt að lesa til þessa
nema einstöku orð.
Bréf til Willy
Dagbókin er skrifuð í formi
bréfa til manns sem höfundur
ávarpar „Kæri Willy“. Ljóst er
að aldrei hefur verið ætlunin að
senda þessi bréf, en þó gengur
fræðimönnunum illa að gera sér
gre'n fyrir einu þeirra, þar sem
,,Willy‘‘ er beðinn að létta Þján-
ingar fólksins í gyðingahverfinu.
Dagbókin lýsir daglegu lífi í
gyð'ngahverfinu, viðskiptum,
hlutskipti barnanna og einsfökum
atburðum. Höfundur gagnrýnir
harðlega Rumkowski þann sem
nazistar settu til að stjórna gyð-
ingahverfinu. Rumkowski var í
síðasta g'yðingahópnum sem
fluttur var frá: Lodz í útrýming-
arbúðirnar. Þegar flest var
„Vinnan göfgar manninn“ letruðu nazistar yfir hlið útrýmingar-
fangahúðanna |í Auschwitz.
-
Fangaskálar í fangabúðunum, hluti af safninu sem þar er nú til
minningar um þá sem létu lífið á þessum stað. ! J
bjuggu 200.000 manns í þessu
gyðingahverfi. Síðustu sjötíu
þúsundih voru flutt til Ausch-
wltz sumarið 1944 og líflátin
þar.
Fleiri skjalahirzlur?
Stjórn Oswiecim-safnsins lét
hefja leit þar sem dagbókin
fannst eftir tdvísun manns sem
var i ,,sonderkommando“ í
fangabúðunum, en svo nefndu
nazistar sveitir þær sem látnar
voru brenna líkin eftir að fang-
arnir höfðu verið drepnir í gas-
klefunum. í fyrra skýrð: maður
þessi frá því að málmhylki með
skjölum hefði ver.ið grafið nærrl
líkbrennsluofni III árið 1944.
Hann telur að þarna geti ver;ð
allt að 30 hylki á víð og dreif
í jörðinni.
„Get ég bjargað henni?“
Á tveim síðum sem búið er
að lesa skráir dagbókarhöfund-
Framhald á 10. síðu.
210mil1ió
mu
NÝJU DELHI — Indverjar ganga
í þriðja skipti til almennra þing-
kbsnihgá aTöstudágfnri/ óg kosn-
ingabaráttan hefur nú náð há-
marki. Þjóðþingsflokkur Nehrus
er talinn viss um sigur, en í
mörgum kjördæmum er baráttan
hörð. Hvergi er þó önnur eins
rimma háð og í Norður-Bombay.
Þar hafa allir stjórnarandstöðu-
flokkarnir nema kommúnistav
tekið höndum saman til að fella
Krishna Menon, landvarnaráð-
herra í stjórn Nehrus og trúnað-
arvin hans. Gegn Menon er teflt
Ki'ipalani, foringja sósíaldemó-
krata og kunnum forustumanni í
sjálfstæðisbaráttunhi gegn Bret-
um, en það er landvarnaráðherr-
ann líka.
Indverskir embættismenn telja
að nú séu um 210.000.000 manna
á kjörskrá og að minhsta kósti
þrír fjórðu þeii'ra hvorki læsir
né skrifandi. Til að gera þeim ó-
læsu fært að greina milli fram-
bjóðenda hefur hver flokkur sitt
tákn, Þjóðþingsflokkurinn tvo
dráttaruxa, kommúnistar kornöx
og sigð, sógíaldemókratar leirkofa
o. s. frv.
Kosning hefst 16. febrúar og
verður ekki lokið fyrr en eftir
níu daga, 25. febrúar. Þá hefst
talning, og er ekki gert ráð fyr-
ir að skýr mynd verði komin af
kosningaúrslitum fyrr en um
mánaðamótin. 1 afskekktustu
fjallahéruðum verður ekki kosið
fyrr en méð vorinu.
Nú hefur Þjóðþingsflokkurinn
371 þingsæti af 494. Kommúnist-
ar koma'-næstir með 27 þingsæti,
sósíaldemókratar hafa 19 og
hægri flokkurinn Jan Sangb
fjögur.
í fyrstu þingkosningunum á
Indlandi 1952 kaus 51% þeirra
sem á kjörskrá vorur Þá voru
kjósendur 173.000.000. Að fimra
árum liðnum 1957 hafði þeiirk
fjölgað upp í 193.000.000 og þá
kusu 47,5%. Nú er búizt viðs
stóraukinni kosningaþátttöku, allt
að 60%. Kjörstaðir eru mun fleiri
en áður, 240.000 talsins.
Því er spáð að þingmeirihlutE
Þjóðþingsflokksins minnki eitt4
hvað.
Sunnudagur 11. febrúar 1962 — ÞJÓÐVÍLJINN — (|^|[ í