Þjóðviljinn - 11.02.1962, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 11.02.1962, Blaðsíða 14
 Ein af hinum fimm flugvélum Loftieiða af gerðinni Douglas DCGB. JlJÓÐVIUINN Sunnudagur 11. febrúar 1962 — 27. árgangur — 35. tölublað fimmtu. sexun Loftleiðir hafa nú fest kaup á fimmtu Cloudmaster- flugvélinni, sem einkum er ætluð að verða til taks ef hlaupa þarf í skörð til þess að firra töfum. Nýja flugvélin er sömu gerðar Og hinar DC6B-flugvélar félags- ins: Leifur Eiríksson, Þorfinnur karlseíni, Snorri Sturluson og Eiríkur rauði, og seljandinn sá sami, bandaríska flugfélagið Pan American World Airways. Kaupverð flugvélarinnar er lítið eitt lægra en á fyrri Cloud- masterflugvélunum og greiðslu- skilmálar hagstæðir. Tveir hreyflar og nokkrir varahlutir fylgja með í kaupunum. Ríkisábyrgðar vegna kaup- anna var ekki óskað af hálfu seljenda, en Loftleiðir greiddu þriðjung kaupverðsins við undir- skrift samninganna. Leiðin austur yfir Fjall lokuð Þjóðviljinn átti í gær tal við Kristján Guðmundsson birgða- vörð hjá vegamálastjórninni og spurðist fyrir um vegi og færð hér í nágrenninu. Sagði Kristján að Krýsuvíkurleiðin mætti heita snjólaus, hefði skafið af vegin- um í hvassviðrinu. Sama væri að segja um Reykjanesbrautina og eins væri Hvalfjarðarvegurinn greiðfær, þar væri aðeins; dá- lítill snjór í stóru brekkunni hjá Þyrli. Þá sagði Kristján að uppí Skíðaskála væri fært en Fjallið algerlega lokað og var þar bylur í gærmorgun. Ekki kVaðst Krist- ján vita til þess að nein sérstök óhöpp hefðu komið fyrir á veg- um úti, en þó hefði það komið fyrir að bílar hefðu fokið út af vegunum í rokinu. Verið er nú að búa flugvélina undir afhendingu til Loftleiða sem væntanlega verður eftir rúman mánuð. Ný gerð af sætum verður sett í flugvélina áður en félagið tekur við henni, en á- kveðið hefur verið að fá ný og þægilegri sæti í allar flugvélar félagsins fyrir 1. apríl n.k. er sumaráæjlunin hefst og farnar verða 11 ferðir fram og aftur milli Evrópu og Ameríku í viku hverri. Nýju sætin eru léttari og rýmri en hin fyrri, en svo hag- anlega er þeim fyrir komið að auðvelt er að fjölga um nokkra stóla í farþegarýmunum frá því sem nú er, en þó fer betur um farþega en áður. Þegar hin nýja flugvél kemur til landsins eftir rúman mánuð munu vélar Loftleiða geta flutt samtals 425 farþega í einu. krötum ofbýður i París París 10 2. — Óánægjan í París vegna hrottaskapar lögreglunnar gagnvart andfasistum, fer stöðugt vaxandi. Nú hafa verkalýðssam- tök sósíaldemókrata og katólskra hvatt félaga sína til að gcra hálfrar stundar verkfall n.k. mánudag. Kennarasambandið hefur lýst yfir klukkustundar verkfalli sama dag. Þá hefur flokkur sósíaldemó- krata hvatt fólk til að efna til þögulla fjöldafunda fyrir fram- an stríðsminnismerki • um allt landið á mánudagskvöldið. 1 gær var háð víðtækt allsherj- arverkfall að írumkvæði verka- lýðssambandsins C.G.T. en hin verkalýðssamtökin stóðu einnig að því. Allar þessar kröfugöngur og fjöldafundir eru haldnir til þess að mótmæla ofsalegri árás lögreglunnar á kröfugöngufólk s.l. fimmtud, en, sú ganga var farin til að mótmæla morðárásum ■ fas- istasamtaka OAS. Voru 8 manns þá drepnir og 200 særðir. Komm- únistaflokkur Frakklands gaf út yfirlýsingu í gær og lýsir yfir á- byrgð lögreglustjórans í París og innanríkisráðherrans á átökunum og manndrápunum s.l. fimmtu- dag. Hryðjuverkum var haldið áfram í Alsír í gær, og voru 13 menn vegnir. Minningarathöfn um 315 námamenn V OELKLIHGEN 10/2 — ÖUum kirkjuklukkum í Saarhéraðinu var hringt í 10 mínútur og öll umferð stanzaði í eina mínútu á slaginu klukkan 11 í morgun til minningar um hina 315 námu- menn sem létu lífið í slysinu mikla við Luisenthal. DANSARARí MY FAIR LADY MÓTMÆLA STÆKKUN HERNÁMSLIÐSINS Stöðugt f.iölgar úeim félöRum um land allt os félöRum íslenzkra náms- manna erlendis, sem gert hafa ályktanir þar sem því er eindregið mótmælt að bandaríska hernáms- liðinu skuli leyft að stækka sjónvarpsstöö sína á Keflavíkurflugvelli. Auk þeirra mótmælasam- þykkta, sem birtar hafa verið hér í blaðinu hafa Þjóðviljan- um nú borizt tvær nýlegar til viðbótar, önnur frá íslending- um í Múnchen í Vestur-Þýzka- landi, hin gerð á fundi Menn- ingar- og friðarsamtaka ís- lenzkra kvenna á Akureyri. Svofelld áiyktun var sam- þykkt á fundi í Félagi íslend- inga í Múnchen hinn 19. jan- úar sl.: „íslendingar, staddir í Mún- chen, vilja eindregið lýsa and- úð sinni á því að láta banda- ríska sjónvarpsstöð senda and- leysi sitt yfir landslýð. Ættu sem flest félagssambönd að láta í Ijós andstöðu sína á þeim ósóma og reyna að koma í veg fyrir að hann nái fram að ganga.“ Þá var eftirfarandi sam- þykkt gerð einróma á aðal- fundi Menningar- og friðar- samtaka íslenzkra kvenna á Akureyri 24. fyrra mánaðar: „Aðalfundur Akureyrar- deildar Menningar- og friðar- samtaka íslenzkra kvenna, haldinn 24. janúar 1962, mót- mælir því ákveðið, að leyít sé eða látið viðgangast, að setulið Bandaríkjanna, sem dvelst hér á íslandi, reki sjón- varpsstöð, sem nái augum og eyrum mikil-s hluta íslenzku þjóðarinnar. Greinargerð: Það er sannfæring okkar, að svo mjög sem dvöl hersins hér á landi og samskipti hans við íslenzkt félk, . hefur haft ó- heillavænleg áhrif á tungu þjóðarinnar og menningarerfð og ýmist beint eða óbeint ver- ið undirrót og uppspretta margskonar afbrota og spill- ingar, iþá margfaldist þau skaðlegu áhrif, ef það verður látið viðgangast, að herinn fái að láta erlent sjónvarpsefni flæða yfir landið. Á það ber að líta, að sjón- varpsefnið verður valið af er- lendum mönnum og miðað við áhugamál og hugðarefni út- lendra hermanna. Þá verður allt efnið á erlendu máli, og getur hver og einn sagt sér sjálfur hver áhrif það hafi á tungu þjóðarinnar, ef mikill hluti hennar hlustar á það daglega. Erlend reynsla af sjónvarpsefni segir og sína sögu. Loks viljum við sérstaklega leggja á það áherzlu, að okk- ur virðist með öllu óþolandi, að fáir menn eða jafnvel að- eins einn, geti haf.t úrslitaá- hrif í máli sem þessu og ráð- ið því til lykta án samráðs við Alþingi, sem eitt ætti að geta tekið ákvarðanir í málum sem þessum." Samningsuppkasf fellt af sjómönnum í Grafarnes! GRAFARNESI 10/2 — Á mánu- daginn var haldinn fundur samn- inganefnda sjómanna og útvegs- manna um fiskverðið að Vega- mótum í Miklholtshreppi. Tókust samningar, sem í grundvallarat- riðum voru þeir sömu og áður, 1 % í styrktarsjóð og 13% hækk- un á alla kauptryggingu og alla Komnir eru til landsins lirír listdansarar á vegum Þjóðleik- hússins, ráðnir til að dansa i söngleiknum „My Fair Lady“, en sem kunnugt er standa nú yfir æfingar á leiknum í Þjóð- leikhúsinu. Einn af þessum dönsurum er Jón Valgeir, en hann hei'úr starfað í Dan- mörku að undanförnu. Aðrir þrír dansarar eru væntarilegir frá vítlöndum á næstunni til að dansa í Þjóð- - leikliúsinu. Erik Bidsted ballettmeistari kom til landsins fyrir rúmri viku, en hann æfir alla dans- ana í „My Falr Lady“. útborgunarliði. I gær var svo haldinn fundur um samningana í Grafarnesi og voru þeir felldir með samhljóða atkvæðum. Má búast við verk- falli innan skamms. Fundur um samningana var í Ólafsvík í gær, en ekki hefur frétzt um úrslit.. Á morgun verður svo haldinn fundur í Stykkishólmi. Hinn rœndi kominn fram PARÍS 10/2 — 19 ára gamall frændi Debré, forsætisráðherra Frakklands, Marc Schwarzt að nafni, kom fram í dag. Hann hafði horfið. s,l. miðvikudag. For- eldrar piltsins héldu því fram að OAS-menn hefðu rænt piltinum. Marc skýrði sjálfur svo frá, að tveir menn hafi setið fyrir sér á fimmtudagskvöldið. Þeir hafi neytt sig til að aka bíl sínum út fyrir boígina. Síðari háfi' þeir hafzt þar við í sólarhring úti í skógi, en þá hafi ræningjarnir flúið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.