Þjóðviljinn - 11.02.1962, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 11.02.1962, Blaðsíða 11
flTÍlflíTÍTTTlTj Ritst}.: Sveinn Kristinsson SKÁKÞING REYKJAVÍKUR 1962 Það fór svo sem til var getið hér í þættinum á dögunum, að Benóný Benediktsson varð skákmeistari Reykjavíkur að þessu sinni og það með yfir- burðum, hlaut 8 vinninga af 9 mögulegum, tapaði aðeins einni skák. Þessi sigur Benónýs bygg- ist auðvitað að verulegu ieyti á því, að hann teflir þarna við mun reynsluminni andstæðínga, en þó ber á það að líta að ekki ná allir sama styrkleika, þótt þeir hafi heyjað sér svipaða reynslu, heldur byggist hagnýt- ing reynslunnar á ýmsum eðlis- þáttum viðkomandi manns. Menn hafa sem sé misjafnlega mikla „skákhæfileika“. Þó held égað menn geri ofmikið úr því að telja, að þessi eða hinn skák- maðurinn hafi beina hæfileika tjl að tefla skák. Ég álít, að sá hæfileiki sé ekki sérstaklega fráskilinn öðrum eigindum svipaðs eðlis. Á hinn bóginn eru menn fæddir með ákaflega mismunandi skapgerð, burt séð írá hinum almennu gáfum, og sennilega er það skapgerðin sem orkar mest á getu manna til að verða góðir skákmenn. Þolinmæði, kjarkur, viljafesta og hæfilegur skapþungi eru á- reiðanlega einhverjir drýgstu eiginleikar fyrir skákmenn, er gefa sig við kappteflum. Þessir eiginleikar ásamt góðum al- mennum gáfum, miklu hug- myndaflugi, listfengi og geysi- legri keppnisreynslu hefur allt í senn stuðlað að hinum glæsi- lega sigri Benónýs að þessu sinni. Þátturinn samfagnar skák- meistara Reykjavíkur og óskar honum langlífis og sigursældar. Annars Varð röðin í meistara- ílokki þessi: 1. Benóný Benediktsson 8 vinninga, 2—4. Sigurður Jónss- son 6, Bragi Kristjánsson 6 Bjöm Þorsteinsson 6, 5—6 Bragi Björnsson 5V2, Jón Kristinsson 5V2, 7—8. Egill Valgeirsson 5, Gylfi Magnússon 5, 9—14. Her- mann Ragnarsson 4V2. Kári Sólmundarson 4*/2, Þorsteinn Skúlason 4V2, Haukur Angan- týsson 4V2, Bjarni Magnússon 4 V2, Halldór Karlsson 4V2, 15—16. Jón Hálfdánarson 4, Helgi Jónsson 4, 17. Ólafur Ein- arsson 3, 18—19 Karl Þorleifs- son 2V2, Anton Sigurðsson 2V2, 20. Benedikt Halldórsson 0. Sérstaka athygli vakti þarna hin ágæta frammistaða Braga Kristjánssonar, unglingameist- ara Norðurlanda, og er þar mj.kið efni á ferð. Hann var sá eini sem lagði Benóný. Haukur Angantýsson frá Keflavík vakti einnig mikla athygli. 1 fyrsta flokki urðu úrslit þessi: 1. Bjöm V. Þórðarson 8 vinn- inga, 2. Guðmundur Þórarins- son 7V2, 3. Baldur Pálmason 7, 4. Haukur Hlöðver 4V2, 5—6 Jón P.. Emils 4, Vilhjálmur Sigur- jónsson 4, 7—8 Guðmundur Júl- íusson 3V2, Þorsteinn Þórðarson 3V2, 9—10. Hafsteinn Sölvason IV2. Heiðar Þórðarson V/->. Þeir Bjöm Þórðarson og Guðmundur Þórarinsson flytj- ast upp í meistaraflokk. í öðrum flokki íóru leikar svo: 1. Þorsteinn Bjarnar 7 vinn- iúga 2. —3. Vilmundur Gylfason, Benóný Benediktsson Geirlaugur Magnússon 6% 4. Jón Þorgeirsson 6 5. Egill Egilsson 5V2 6. —7. Andrés Fjeldsted, Helgi Hauksson 5 8. —9. Björgvin Víglundsson, Frið'þjófur Karlsson 4V2 10. Jón Ólafsson 4 11. Aðalsteinn Stefánsson ZVz 12. Haukur Pálsson 2 13. —14. Björn Sigurjónsson, Pálmi Eyþórsson IV2. Vilmundur vinnur Geirlaug á stigum og flytzt ásamt Þor- steini Bjamar upp í fyrsta flokk. Skákstjóri á Reykjavíkur- þinginu var Jóhann Þórir Jóns- son, formaður Taflfélags Rvík- ur, og var mótinu yfirleitt stjórnað af röggsemi. Hér kemur ein af vinnings- skákum Rey k j avíkurme: star- ans: Hvítt: Sigurður Jónsson Svart: Benóný Benediktsson SPÁNSKUR LEIKUR 1. e4, e5; 2. Rf3, Rc6; 3. Bb5, a6; 4. Ba4, Rf6; 5. 0-0, b5; 6. Bb3, Be7; 7. Hel, d6; 8. c3, Bg4. (Benóní hefur mikið dálæti á biskupsleiknum í þessari stöðu. Sannleikurinn er þó sá, að Bg4 er þá fyrst góður leik- ur, ef hvítur er bú:nn að leika d4). 9. d3, Ra5; 10. Bc2, c5; 11. Rb-d2, 0-0; 12. Rfl, Rc6; 13. h3. (Sigurður er sóknarskákmaður og hefur nú beinar árásarað- gerðir á kóngsarmi, en senni- lega voru þær ekki tímabærar. 13. Ke3 er áferðafallegri leikur og traustari). 13. — Be6; 14. g4, h5; 15. Rh2 (Ekki væri hagstætt fyrir hvít- an að leika 15. g5, Rh7 16. h4, g6, og síðar sprengir svartur upp peðastöðuna með f6). 15. — hxg4; 16. hxg4, Dd7, 17. Re3, g6; 18. Df3, Rh7; 19. Rd5, Ha7; 20. Bh6, Hb8; 21. Dg3, Bf8; 22. Dh4 (Þessi peðsfórn reynist miður vel. Betra var að drepa á f8). 22. — Bxh6; 23. DxB, Bxg4 24. Khl, Be6; 25. He3 (Betra virðist 25. Re3). 25. — Re7 (Nú verður Sigurður að láta sinn góða riddara). 26. Rxe7t, Dxe7, 27. Hgl, Dfg. (Með hn:tmiðuðum varnarað- gerðum hefur Benóný tekizt að hrinda sókna hvíts, sem var nú raunar aldre: sérlega hættu-1 leg. en krafðist þó varfærni af svarts hálfu). 28. Dh4 (Hróksfóm á g6 mundi ekki gagna hvítum, enda þótt hann fengi tvö peð og biskup fyrir hrókjnn). 28. — Kg 7; 29. f4, exf4; 30. Dxf4, Be7. (Staðan er ekki hættulaus enn. Ef svrtur gæfi upp varðgæzl- una á h3 (Bxa2) þá gæti hvít- ur fengið skaðvænleg sóknar- færi; Hh3). 31. e5? (Afleitur leikur, sem leiðir til peðstapa og skyndílegs hruns fyrir hvítan. Flestir aðrir hugsanlegir leikir eru betri.) 31. — Bd5t; 32. RÍ3, dxe5; 3fS. Dg3 (Svarta peðið var vitanlega ó- hæft t:l neyzlu: 33. Hxe5? t.d.: — Bxf3f o.s.frv.) Svart: Benóný Benediktsson ABCDKFQH Hvítt: Sigurður Jónsson. 33. — Rg5! (Benóný er nú í ess'nu sínu og óspar á eitrið. Riddarinn er banvænt agn, því eftir 34. Dxg5, Hh8t fellur hvíta drottningin). '34. Bdl, Hh8t 35. Kg2, Hh3 (Kostuleg staða eins og þær gerast titt hjá Benóný. Ef hvíta drottning.'n fer til g4, þá fell- ur hún eftir — f5). 36. Df2, Bxf3t; 37. Rxf3, Hxf3; 38. Hxf3, Rxf3; 39. Dxf3 Db7. Og Sigurður gafst upp því eftir drottningakaupin er staða svarts létt unnin. Hraðskákmót Skákþings Reykjavíkur hefst í dag í Breiðfirðingabúð (uppi) kl. 13.30. Væntanlegir þátttakendur hafi með sér skákklukkur. öllum heimil þátttaka. T. R. V0 Rfton~t/iHsu4fét *« 6?»“ fí :> . ... 'r - ;• i / ' '' ' ' ! ' ' ' '■ ' v í • 1 UQ) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 11. febrúar 1962 Reykjavík — Hafnarfjörður STRÆTISVAGNAFERÐIR AÐ SJÚKRAHUSINU SÓLVANGI. Frá og með laugardeginum 10. febrúar verða teknar upp ferðir að Sólvangi í sambandi við sérleyfisferðir milli Hafnarfjarðar og Reykjavikur. Ferð að Sólvangi í byrjun miðdegis heimsóknartíma: Vagn sem fer frá Reykjavík kl. 14:30, á laugardögum kl. 14:20, ekið suður Strandgötu að endastöð á Hvaleyrar- holti þaðan kl. 14:57 um Þúfuþarð og Reykjanesveg ofan Haínarfjayðar að Sóivangi, síðan um Tjarnarbraut, Arn- arhraun og til Reykjavíkur. Ferð frá Sólvangi í lok miðdegis heimsóknartima: Vagn sem fer frá Reykjavík virka daga kl. 15:45, á laug- ardögum kl. 15:40. ekur fyrst um Arnarhraun og Tjarn- arbraut að Sólvangi síðan um Reykjanesveg og Þúfubarð að endastöð á Hvaleyrarholti og þaðan kl. 16:12 venju- lega leið um Strandgötu til Reykjavíkur. Á helgum dögum ekur þessa ferð vagn sem fer frá Reykjavík kl. 16:15 vegna þess að heimsóknartámi á Sólvangi er tii kl. 16:30 þá daga. Ferþegar sem fara með vögnum okkar á áðumefndum tímum eru vinsamlega beðnir að athuga þessar breytingar. H Einkum vekjum við athygli á að vagn frá Hafnar- firði kl. 15:00 fer framvegis efri leiðina og farþegar sem ætla með bonum Irá viðkomustöðum við Strandgötu verða þá að fara í vagninn á leið bans suður. LANDLEIÐIR H.F. Mótorvélstjórafélag Islands heldur aðalfund að Bárugötu 11 í dag, sunnudaginn 11. febrúar klukkan 14. Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. u BÚRFELLSBJÚGU bragðast bezt. Kjötverzhuiin Búrfell SlMI 19750. Dagbók grafin úr Framhald aí 7. síðu. ur'nn hugsanir sínar, þegar dótt- ir hans er að verða hungurmorða í gyðingahverfinu. Orðin innan, sviga hefur pólski útgefandinn sett þar sem handrit:'ð er ólæsi- legt. Kaflinn hljóðar svo.: „Mig langar til að iifa áfram. Ég er reiðubúinn að selja allt, það síðasta sem ég á i eigu minni. En (verð ég) samt fær um (að bjarga henni?) Það ve.'t ég ekki. Nú strax fyrir bádegi gerði ég allt sem í minu valdi stendnr — sprautur. (Ég er hræddur um) að hún deyi á þessári stundu í höndunum á mér. Ég ætia aftur til hennar. Én hvað geta þessir skussar gert til hjálpar? >egar ekki er um jörð í Auschwitz nema eina hjálp að ræða — að borða! Og það er ósköp (lítið um það). Og að fara og kaupa eitthvað hjá (ólæsilegt orð) — hver hef- ur pen'nga til þess? Heill fjár- sjóður nægði ekki. Brauð — 600, mjöl — 500, kartöflur — 300, smjörlíki — 900, sakkarín — ekkert verð! í einu orði sagt, svo til ómögulegt að bjárga neinum. Og sem fyrrverandi unnandi Biblíunnar hrópa ég samt öllu bræðralagi verkamanna (gyðinga- hveríisins) — „og vaðandi í þínu eigin blóði muntu lifa“.“ Verðið á matvælunum sem höf- undur nefnir mun vera tilgreint í gýðingahverfamörkum, en nafn- verð þeirra var níu krónur mið- að við núverandi gengi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.