Þjóðviljinn - 11.02.1962, Page 5
Rœtt viS nemqndq utan af fqndi
Félagslíf, ndms-
anum
Svavar Gestsson er bónda-
sonur frá Grund á Fellsströnd
og stundar nám á vetrum í
Menntaskólanum í Reykjavík.
Menntaskólanemar hafa látið
allmikið að sér kveða á þess-
um vetri, m.a. gert samþykktir
í þýðingarmiklum þjóðmálum,
er stjórnmálamennii’nir hafa
síðan hampað í málgögnum sín-
um. Er það vel því skoðanir og
afstaða ungs fólks til daglegra
mála skiptir sízt minna máli en
þeirra, sem eldri eru. Mér
fannst því ekki úr vegi að hitta
einn úr hópi hinna ungu og
væntanlegu upprennandi
menntamanna, og er hér kom-
inn Svavar Gestsson bóndason-
ur frá Grund á Fellsströnd.
— Hvernig líkar þér við
Menntaskólann Svavar?
— Illa. Ekki þó kannski nám-
ið sjálft, heldur fólkið. Það er
svo leiðinlegur mórall ríkjandi.
Nemendurnir eru margir faríse-
ar og sportidíótar.
— En kennararnir?
— Þeir eru misjafnir. Sumir
nokkuð góðir, aðrir lakari.
— Er mikið félagslíf hjá ykk-
ur?
— Já, það er talsvert. Það
eru aðallega þrjú félög, sem
halda því uppi: Málfundafélag-
ið Framtíðin, Listafélagið og
íþróttafélagið.
— Og þau starfa liðugt?
— Já. Listafélagið gengst fyr-
ir ýmiskonar listkynningum,
svo sem bókmenntakvöldum,
kvikmyndasýningum og til
stendur að halda sýningu á
myndlistarafrekum nemenda.
Þá hafa einnig verið tónlistar-
kynningar og svo mun ætlun-
in að efna til listaviku, þar sem
eitthvað verður um að vera á
hverjum degi.
— Hvernig eru þessar list-
kynningar sóttar.
— Fremur illa, því miður.
Fólk heldur að það verði kallað
snobbað ef það lætur sjá sig
þar, en snobb er skammaryrði,
sem margir hræðast. Ég verð
þó að segja að mér finnst það
öllu skárra en antisnobb.
-<*>
Lokið smíði 40 ibuðar
húsa á Akureyri sl. ár
Akurcyri. Samkv. upplýsing-
nm byggingarfujltrúans á Ak-
ureyri, var á sl. ári lokið við
byggingu 40 íbúðarhúsa með
samt. 59 íbúðum. Alls er rúm-
mál þessara íbúða 25.83? rúm-
metrar, eða meðalstærð hverrar
íbúðar 438 rúmmetrar. Þá voru
um áramót í byggingu 33 íbúð-
arhús, þar sem gert er ráð fyrir
42 íbúðum, þar af voru hús
með 33 íbúðum komin undir þak,
en hin skemmra á veg komin.
Aðzlfundur Akur-
eyrardeildar
MFlK ’
AKUREYRI 7/2 — Aðalfundur
Akurpyi^rdeildar Menriingar- og
friðarsamtaka íslenzkra kvenna
var haldinn að Hótel KEA 24.
janúar sl. Fór þar fram stjórnar-
kjör og er stjórnin þannig skip-
uð: Sigríður Þorsteinsdóttir for-
maður, Soffía Guðmundsdóttir
varaformaður, Steinunn Bjarm-
an ritari, Ragnheiður Dóra
Árnadóttir gjaldkeri, Guðbjörg
Bjarman, Guðrún Kristjánsdótt-
ir og Gunnur Júlíusdóttir með-
stjórnendur.
Frú Sigríður Þorsteinsdóttir
íhefur gegnt formennsku í Akur-
eyrardeild Menningar- og friðar-
samtaka íslenzkra kvenna frá
etofnun hennar 8. marz 1956.
Til samapburðar má geta þess,
að á árinu 1960 var lokið við
43 íbúðarhús með 77 íbúðum og
á árinu 1959 var lokið við 50
íbúðarhús með 89 íbúðum.
Af öðrum byggingum, sem lok-
ið var við á síðasta ári eru þess-
ar helztar: Verksmiðjuhús Súkku-
laðiverksmiðjunnar Lindu h.f.,
1. áfangi verzlunarhúss Bygg-
ingarvöruverzlunar Akureyrar
h.f. og flugstöðin á Akureyrar-
flugvelli
Af stærri húsum sem nú eru
í smíðum og nú eru orðin fok-
held má nefna: Elliheimilið,
skrifstofubygging bæjarins, hús
Fataverksmiðjunnar Heklu, verzl-
unar- og skrifstofuhús Amaro
h.f., skrifstofuhús Útvegsbankans
og skíðaskálann í Hlíðarfjalli.
Af þessum húsum er hús Heklu
stærst 10.828 rúmmetrar og hús
Amayo _þ,f,írt sem er 9.139 rúm-
metrar.
Síðasti dzgur
sýningar fsleifs
1 dag eru síðustu forvöð að
skoða hina umtöluðu málverka-
sýningu ísleifs Konráðssonar í
bogasal Þjóðminjasafnsins.
Sýningin verður opin frá kl.
2 síðdegis í dag til kl. 10 í kvöld
og er þá lokið. 17 myndir af 28
sem á sýningunni eru, hafa selzt,
og aðsókn verið sæmileg.
— Eru íþróttir mikið stund-
aðar?
— Iþróttafélagið gengst fyrir
ýmiskonar íþróttaæfingum og
keppnum. Skíðaferðir eru marg-
ar á vetrinum og talsverð þátt-
taka í öllu slíku.
— Svo haldið þið málfundi?
— Framtíðin gengst fyrir
þeim og einnig spilakvöldum og
fyrirlestrum. Þá koma ýmsir
merkir menn og flytja erindi.
Nemendur geta svo gert fyrir-
spurnir til þeirra á eftir.
— Hefur margt merkra
manna komið?
— Prófessor Jóhann Hannes-
son ræddi um kristindóm og
1 ommúnisma, dr. Broddi Jó-
hannesson um sálfræði, Brynj-
ólfur Bjarnason ræddi um efn-
ið: ,.Hví er kommúnisminn
framtíðarstefnan?“. Var það
erindi sérlega vel heppnað og
gaf ýmsum, sem litla þekkingu
höfðu aukinn skilning á þessum
málum. Eyjólfur K. Jónsson
ritstjóri nefndi erindi sitt: „Hví
er kommúnisminn úreltur?“. Má
segja að honum tækist prýði-
leg í einu: Að fara í kringum
efnið. Hann tifaði mikið á svo-
kölluðu frelsi, en virtist lítinn
skilning hafa á eðii þess og af-
leiðingu.m. Var helzt á honum
að heyra að hver einstaklingur
ætti að hafa ótakmarkað frelsi!
Margar fyrirspurnir voru gerð-
ar til hans og gekk honum
heldur illa að svara þeim flest-
u.m. Hann var m.a. spurður að
því hvað væri kreppa sam-
kvæmt hans skilningi. Átti
hann erfitt með svör við því.
Taldi hann ekkert því til fyr-
irstöðu að menn tækju á sig
afleiðingar kreppu í nokkur ár,
öðru hvoru, ef beir fengju að
halda frelsinu. En fremur lítill
rómur var gerður að erindi
þessu og var sérstaklega áber-
andi hvernig ritstjórinn reyndi
að stvðiast við Heimdaliarliðið
í skólanum, sem framieiddi
skvald.ur ýmiskonar og hávaða
þegar bví fannst við eiga.
— Er mikil harka í pólitík-
inni hiá ykkur?
— Já, það má segja, og þessi
Svavar Gestsson.
fundur með Eyjólfi sýndi
glöggt að sósíalistar eiga traust
fylgi í skólanum, og áberandi
betri málsvara en andstæðing-
arnir.
— Þið hafið rætt þjóðfélags-
mál á málfundunum?
— Já, m.a. um þátttöku ís-
lendinga í Efnahagsbandalagi
Evrópu og um stækkun sjón-
varpsstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli.
— Þið gerðuð fræga samþykkt
í sjónvarpsmálinu?
— Fyrst var haldinn skóla-
fundur um málið á sal og þar
var samþykkt að vísa málinu til
málfundafélagsins. Þar var mál-
ið tekið fyrir og hóf Ólafur
Grímsson umræðurnar. Ræða
hans var sú bezta, sem heyrzt
hefur í skólanum lengi. Mót-
mælatillagan gegn stækkun
sjónvarpsstöðvarinnar var sam-
þykkt svo til einróma eins og
frægt er. Til marks um það
hve fordæmingin á kanasjón-
varpinu. var almenn, má geta
þess að tveir af flutningsmönn-
um fyrrnefndrar tillögu eru
yfirlýstir stuðningsmenn „vest-
rænnar samvinnu"
— Ritstjóri Mánudagsblaðsins
sendi ykkur menningarlegan
tón í blaði sínu?
— Já, bað má nú segia, en
Mánudagsblaði.ð var á umrædd-
um fundi einmitt tekið sem
dæmi um lélegustu tegund sorp-
rita.
— Við megum ekki alveg
gleyma sjálfu náminu. Heldurðu
að Menntaskólanemar hafi yf-
irleitt 'gaman af að læra?
— Nei, námsleiði er mikill
og þykir fínt að nenna ekki að
lesa. „Kúristar" eru hataðir
manna mest. Sumir leggja það
á sig að hanga hálían daginn
á sioppu til að sýna að þeir
þurfi ekkert fyrir náminu að
hafa.
— En kennslubækurnar,
hvernig eru þær?
— Þær eru margar mjög leið-
inlegar, svo að jafnvel kennar-
arnir hafa haft orð á því. Þá
er kennsla í sumum greinum
miög ófullnæg.iandi, t.d. er
bókfærsla kennd aðeins einn
vetu.r (í 3. bekkj og kemur það
eðlilega fáu.m að gaeni.
— Er mikið um gleðskap hjá
ykkur?
— .Já, bað er mikið um gleð-
skan. og hverskonar ómenning
brífst vel, en nú er ,.Selið“
komið úr eigu skólans, enda
orð'ð hu.rðalaust o.g óhæft til
notku.nar. Er bá einu. ómenn-
íngarbælinu færra, og mætti
þei.m enn fækka.
Við kveðinm Svavar Gestsson»
bóndason frá Grund á Fells-
strönd. Margi.r af beztu mennta-
og embættismönnum þióðarinn-
ar hafa komið úr sveitunum,
og vonandi bera sveitirnar enr»
gíu<n til að fósti-a u.pp mörg
góð menntamannaefni.
Eldhúsið má oftas't nýta betur en gert er, með því að hafa í því
. fyrirferðarlítið borð og sófasett. SÓLÓ eldhúsin skara fram-úr um .
flest: Sóló settin eru smíðuð úr vönduðu stáli, sem er þakið slit-
sterkri Chrome húð. Sóló settin eru með Arborite plötu á borðinu
sem þolir allt. Sóló stólarnir eru ýmist með teak
bökum eða bólstr. bökum og klæddir undirlímdu
plastáklæði.
ELDHljSSETTIN STANDA STðDIIG Á SIÁLFÚIUM
))'%) ~ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 1J. febrúar 1962