Þjóðviljinn - 11.02.1962, Qupperneq 13
Ein af hinum fimm flugvélum Loftlciða af gerðinni Doligias DC6B.
þJÓÐVIUINN
Sunnudagur 11. febrúar 1962 — 27. árgangur — 35. tölublað
Powers Iqus
BERLÍN 10/2 — Bandaríski njósnaflugmaðurinn Franeis
Powers var látinn laus í Berlín í morgun. Njósnaflug-
véiin U-2, sem hann stjórnaði, var skotin niður yfir
Sovétríkjunum 1. maí 1960.
fimmtu „sexuna
//
Loftleiðir hafa nú fest kaup á fimmtu Cloudmaster-
flugvélinni, sem einkum er ætluð aö verða til taks ef
•hlaupa þarf í skörð til þess aö firra töfum.
Nýja flugvélin er sömu gerðar
og hinar DC6B-flugvélar félags-
ins: Leiíur Eiríksson, Þorfinnur
karlsefni, Snorri Sturluson og
Eiríkur rauði, og seljandinn sá
sami, bandaríska flugfélagið Pan
American World Airways.
Kaupverð flugvélarinnar er
lítið eitt lægra en á fyrri Cloud-
masterflugvélunum og greiðslu-
skilmálar hagstæðir. Tveir
hreyflar og nokkrir varahlutir
fylgja með í kaupunum.
Ríkisábyrgðar vegna kaup-
anna var ekki óskað af hálfu
seljenda, en Loftleiðir greiddu
þriðjung kaupverðsins við undir-
skrift samninganna.
Leiðin austur
yfir Fjall lokuð
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Kristján Guðmundsson birgða-
Vörð hjá vegamálastjórninni og
spurðist fyrir um vegi og færð
hér í nágrenninu. Sagði Kristján
að Krýsuvíkurleiðin mætti heita
snjólaus, hefði skafið af vegin-
um í hvassviðrinu. Sama væri að
segja um Reykjanesbrautina og
eins væri Hvalfjarðarvegurinn
greiðfær, þar væri aðeins dá-
lítill snjór í stóru brekkunni hjá
Þyrli. Þá sagði Kristján að uppí
Skíðaskála væri fært en Fjallið
algerlega lokað og var þar bylur
í gærmorgun. Ekki kvaðst Krist-
ján vita til þess að nein sérstök
óhöpp hefðu komið fyrir á veg-
um' úti, en þó hefði það komið
fyrir að bílar hefðu fokið út af
vegunum í rokinu.
Verið er nú að búa flugvélina
undir afhendingu til Loftleiða
sem væntanlega verður eftir
rúman mánuð. Ný gerð af sætum
verður sett í flugvélina áður en
félagið tekur við henni, en á-
kveðið hefur verið að fá ný og
þægilegri sæti í allar flugvélar
félagsins fyrir 1. apríl n.k. er
sumaráætlunin hefst og farnar
verða 11 ferðir fram og aftur
milli Evrópu og Ameríku í viku
hverri. Nýju sætin eru léttari og
rýmri en hin fyrri, en svo hag-
anlega er þeim fyrir komið að
auðvelt er að fjölga um nokkra
stóla í farþegarýmunum frá því
sem nú er, en þó fer betur um
farþega en áður.
Þegar hin nýja flugvél kemur
til landsins eftir rúman mánuð
munu vélar Loftleiða geta flutt
samtals 425 farþega í einu.
Jafnvel krötum
ofbýður í París
París 10/2. — Öánægjan í París
vegna hrottaskapar lögreglunnar
gagnvart andfasistum, fcr stöðugt
vaxandi. Nú hafa verkalýðssam-
tök sósíaldemókrata og katólskra
hvatt félaga sína til að gera
hálfrar stundar verkfall n.k.
mánudag. Kennarasambandið
hefur lýst yfir ,klukkustundar
verkfalli sama dag.
Þá hefur flokkur sósíaldemó-
krata hvatt fólk til að efna til
þögulla fjöldafunda fyrir fram-
an stríðsminnismerki um allt
landið á mánudagskvöldið.
1 gær var háð víðtækt allsherj-
arverkfall að frumkvæði verka-
lýðssambandsins C.G.T. en hin
verkalýðssamtökin stóðu einnig
að því. Allar þessar kröfugöngur
og fjöldafundir eru haldnir til
þess að mótmæla ofsalegri árás
lögreglunnar á kröfugöngufólk s.l.
fimmtud, en sú ganga var farin
til að mótmæla morðárásum fas-
istasamtaka OAS. Voru 8 manns
þá drepnir og 200 særðir. Komm-
únistaflokkur Frakklands gaf út
yfirlýsingu í gær og lýsir yfir á-
byrgð lögreglustjórans í París og
innanríkisráðherrans á átökunum
og manndrúpunum s.l. fimmtu-
dag.
Hryðjuverkum var haldið áfram
í Alsír í gær, og voru 13 menn
vegnir.
Minningarathöfn
um 315 námamenn
VOELKLIHGEN 10/2 — öllum
kirkjuklukkum í Saarhéraðinu
var hringt í 10 mínútur og öll
umferð stanzaði í eina mínútu ó
slaginu klukkan 11 í morgun til
minningar um hina 315 námu-
menn sem létu lífið í slysinu
mikla við Luisenthal.
DANSARARí
MY FAIR LADY
Komnir eru til landsins þrír
listdansarar á vegum Þjóðleik-
hússins, ráðnir til að dansa i
sönglciknum „My Fair Lady“,
cn sem kunnugt er standa nú
yfir æfingar á Iciknum í Þjóð-
leikhúsinu. Einn af þessum
dönsurum er Jón Valgeir, en
hann hcfulr starfað í Dan-
mörku að undanförnu. -
Aörir þrír dansarar eru
væntanlegir frá útlöndum á
næstunni til að dansa í Þjóð-
leikhúsinu.
Erik Bidsted ballettmeistari
kom til landsins fyrir rúmri
viku, cn hann æfir alla dans-
ana í „My Falr Lady“.
Þegar U-2 flugvélin var skotin
niður og Powers tekinn höndum,
voru sönnur færðar á kerfis-
bundna njósnastarfsemi Banda-
ríkjamanna með ólöglegu flugi
yfir Sovétríkjunum. Þessi atburð-
ur vakti ekki síður mikla athygli
fyrir það, að njósnaflugið hafði
afgerandi áhrif á heimsmálin.
Fyrirhuguðum fundi Krústjoffs
og Eisenhowers Bandaríkjafor-
seta var aflýst, og ekkert varð úr
fyrirhugaðri heimsókn Eisenhow-
ers til Sovétríkjanna. Kalda
stríðið kólnaði til muna, og enn
frekar þegar önnur bandarísk
könnunarflugvél var skotin nið-
ur yfir norðausturströnd Sovét-
ríkjanna í júlímánuði sama ár.
Tveim flugmönnum, sem björg-
uðust úr þeirri vél, var sleppt
í fyrra án réttarhalda.
Powers hafði verið fluttur t;l
Berlínar, en ekki er vitað hvenær.
Ljóst er að undanfarið hafa far-
ið fram leynilegar samningavið-
ræður fulltrúa sovézkra og
bandarískra stjórnarvalda. Pow-
ers var afhentur bandarískum
yfirvöldum á mörkum hernáms-
svæðanna m.'lli Potsdam og
Wannsee í morgun. Um leið var
sovézkum yfirvöldum afhentur
Rudolf Abel, sem dæmdur var í
30 ára fangelsi fyrir njósnir í
Bandaríkjunum 1957.
Hegning Powers var í því
fólgin, að hann átti að sitja í
fangelsi í þrjú ár, en síðan að
dvelja í v'nnubúðum í 7 ár.
Þegar eiginkonu og foreldrum
Powers var sagt frá því að hanrí
væri laus úr haldi, urðu þau
mjög hrærð, segir í Reuters-frétt.
Powers fær að dvelja með fjöl-
skyldu sinni fyrstu klukkustund-
irnar áður en hann ræðir við
bandarísk yfirvöld.
Powers í njósnaflugbúningi og borgararlegum klæðum.
r.i-_________________ -
Samningsuppkast fellt af
sjómönnum í Grafarnesi
GRAFARNESI 10/2 — A mánu-
daginn var haldinn fundur samn-
inganefnda sjómanna og útvegs-
manna um fiskverðið að Vega-
mótum í Miklholtshreppi. Tókust
samningar, sem í grundvallarat-
riðum voru þeir sömu og áður,
1% í styrktarsjóð og 13% hækk-
un á alla kauptryggingu og alla
útborgunarliði.
I gær var svo haldinn fundur
um samningana í Grafarnesi og
voru þeir felldir með samhljóða
atkvæðum. Má búast við verk-
falli innan skamms. Fundur um
samningana var í Ólafsvík í gær,
en ekki hefur frétzt um úrslit.
Togarinn ELLIÐI
Framhald af 1. síðu
borð, þeir hásetarnir Friðrik og
Hjalti Björnssynir. Þá eru í
hópi skipverjanna feðgar, Matt-
hías Jóhannsson kyndarj og son-
ur hans Jóhann Örn háset).
Langflestir skipverjanna á Ell-
iða eru Siglfirðingar. Auk Jens
Pálssonar vélstjóra munu einn
eða tveir hásetanna vera héðan
frá Reykjavík.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
Kl. 1,05 tilkynnti Esja að hún
hefði farið framhjá björgunarbáti
ljóslausum 330 gráður réttvís-
andi frá Öndverðarnesi, 10 míl-
ur undan landi. Virtist í fyrstu
að Ijós væri á bátnum en síðan
hvarf það. Esju-menn misstu
aftur af bátnum í öldurótinu
enda þótt hann væri aðeins
nokkra metra frá skipinu.