Þjóðviljinn - 14.02.1962, Síða 10
Á vinnustaðnum er launþeginn
meira en þríðjung starfsævinnar
Framhald af 4. síðu.
margir bíða þess, að tylla sér í
kaffitímum inn í vistlega kaffi-
stofu, fá „fatageymslu í sér-
klefa utan vinnurúms, eða í
lokuðum skápurn", eiris og segir
í heilbrigðissamþykktinni, fá
„góða hreinlætisaðstöðu'1, að
ræsting fari fram „daglega utan
vinnutíma". og gólf séu þvegin
„ekki sópuð“, — því Sören seg-
ir: „Ef ekki er t.d. kaffistofa
þar eða viðunandi aðstaða til
þess að þvo sér, þá reyni ég
að fá slíkt lagfært. Ég hefi síð-
an nánar gætur á, að bætt sé
úr því, sem ég hef gert athuga-
semdir við“. Og ef menn skvldu
halda, að hér sé um einhver
vettlingatök að ræða hjá Sör-
en og hann láti það nægja ,,að
reyna“ að fá lagfæringar, þá
gfrðir hann fyrir allan slíkari
rriisskilning, því blaðamaðurinn
spyr: — „En ef forráðamenn
vinnustaða skella skollaeyrum
við fyrirmælum þínum?“ — Þá
svarar Sören: ,,Þá gef ég við-
komandi stuttan frest til þess
að bæta úr því, sem aflaga fer.
Ef ekki er skipazt við. innan
frestsins. þá legg ég málið fyr-
ir borgarlækni og hann tekur
ákvörðun um, hvort ástæða sé
til þess að leggja málið fyrir
heilbrigðisnefnd borgarinnar. —
Nefndin getur síðan samþykkt
að loka vinnustaðnum með at-
beina lögreglustjóra“.
Hér virðist því allt vera á
hreinu frá hendi eftirlitsmanns-
ins. Þó er ástandið í heilbrigð-
ismáli'.m vinnustaðanna í Reykja
vík yfirleitt þannig f dag víð-
asthvar, að um meiri og minni
brot á heilbrigðissamþykktinni
er að ræða. Það er því fýsilegt
að fá úr því skorið eftir hvaða
reglum eftirlitsmaðurinn vinnur.
Það er augljóst mál, að hér er
mikið undir honum komið. Að
sjálfsögðu ber honum að fara
eftir fyrirmælum laga og heil-
brigðissamþykktar, en mat hans
sjálfs og hvað háar kröfur hann
gerir ræður líka miklu um ár-
angurinn af starfi hans. Hafi
röggsemi hans hins vegar verið
slík, sem hann lætur Morgun-
blaðið hafa eftir sér, þá hljóta
aðfinnslur hans og tillögur til
úrbóta oft að hafa strandað
annarsstaðar.
Um síðustu helgi hófst heims- menn eru með nýja menn,
meistarakeppnin í bridge. Spil- Coon, Murray, Key, Nail, Port-
að er í Barbison Plaza hótelinu en og Mathe, sá eini með heims-
í New York og e'ga fjögur meistaramótsreynslu. Lið Arg-
lönd þátttakendur. Það eru ítal- entínumanna er sv.'pað og á
ir, núverandi heimsmeistarar, síðasta ári, Attaguille, Jaques,
Englendingar, núverandi Evr- Calvente, Rocchi, Berisso og
ópumeistarar, Bandaríkjamenn Cabanne.
og Argentínumenn, núverandi Hætt er við að þessi keppni
Suður-Ameríkumeistarar. ítalir fari á sömu leið og fjórar und-
stjlla upp „bLáa liðinu‘‘ — anfarándi, þ.e. að ítalir vinni
D’Alelio, Chiaradia, Avarelli, með nokkrum yfirburðum. Eng-
Belladonna, Forquet, Garozzo. lendingar verða að öllum lík-
Fyrirliði er A. Perroux. Eng- indum í öðru sæti og Banda-
lendingar mæta með Evrópu- ríkjamenn í þriðja.
meistarana frá Torquay, Rose, Hér er spil úr leik ítala við
Gardener, Konstam, Rodrique, Bandaríkjamenn úr síðustu
Truscott. Prjday. Fyrirliðinn er heimsmejstarakeppni. Staðan er
einnig sá sami og á Evrópu- n-s á hættu og norður gefur.
mótinu, L. Tarlo. Bandaríkja-
BORÐ I.
Gerber
S: K-7
H: D-G-10-6
T: K-10-5
L: 9-8-5-2
D’Alelio
S: D-10-9-5-4
H: 7
T: G-3-2
Chiaradia
S: A-8-3
H: 9-4-2
T: A-D-8
Hodge S: G-6-2 H: A-K-8-5-3 T: 9-7-6-4 L: G
jy«rður Austur Suður Vestur
pass 1 grand pass 2 spaðar
pass 3 spaðar pass 4 spaðar
pass pass pass
* BORÐ H.
Forquet Schenken Garozzo Leventritt
pass 1 hjárta pass 1 spaði
pass 1 grand pass 2 lauf
pass 3 grönd pass pass
pass
Á borði 1 korriast ítalimir í hjarta og fer síðan í þrjú
fjóra spaða, sem er ágætur grönd. En Garozzo lætur ekki
samningur. D’Alelío. reymist líka blekkjast, ítalimir taka fimrn
auðvelt að vinna sp.’lið, fyrstu slagina á hjarta og fá
Á borði 2 ópnar Schenken á svo spaðakóng að auki.
j]0) - ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. febrúar 1962
HlaSið undir gróðraféfög
! '-i
Tillaga Guðmundar
er stórt skref í
rétta átt
Allt ástand þessara mála
sannar nau.ðsyn þess, að tillaga
Guðmundar J. Guðmundssonar
verði samþykkt í borgarstjórn
svo öll kurl komi til grafar og
enginn aðili verði grunaður að
ósekiu um að hafa vanrækt
skyldu sína. Hins vegar verði
gert nauðsvnlegt átak til þess
að bæta úr mikilli vanrækslu
og hættulegri sem allra fyrst.
Um fiárskort er alveg þarflaust
að tala í þessu sambandi. Það
er sem sé hægurinn hjá að taka
fé til þessa nauðsynlega þáttar
heilbr’gðismálanna af 750 þús-
undum loftvarnanefndar, með
því móti gæti það fé þó orðið
lifandi mönnum að gagni.
Það er svo annar báttur bessa
máls. sem að verkalýðsfélögun-
um snýr. Þau þurfa öll að láta
sig þau meiru varða en hingað
til og knýja enn fastar á hið
opinbera um að gera skyldu
sína í því að framfylgja lög-
um og samþykktum, sem snerta
rétt lau.nþeganna til þess að
njóta verndar lífs og heilsu þar
sem þeir eru að störfum.
Allir aðilar þurfa að vera
minnugir þess, að á vinnu-
staðnum dvelur launþeginn
meira en þriðjung starfsævi
sinnar og því eru heilbrigðis-
hættir vinnustaðarins ekki þýð-
ingarminni fyrir heilsu hans og
öryggi en heimilið sjálft. —
St.
Framhald af 12. síðu.
hækkaður úr 8% í 10° j„ félags-
gjöld til atvinnurekendasamtaka
eru gerð frádráttarhæf og reglur
um frádráttarhæf varasjóðstillög
eru gerðar langtum víðtækari en
verið hefur.
3. Eignarskattsstiganum er
breytt þannig að skatturinn er
lækkaður á stóreignum, en hækk-
aður á lægri eignum yfir 100
þús. króna.
4. Fleiri nýmæli eru sem miða
í þá átt að lækka skatta á félög-
um og fyrirtækjum, t. d. að
flytja megi tap á milli fimm ára
í stað tveggja.
Auk þessa er svo boðað að á
eftir muni fylgja útsvarsívilnanir
til gróðafélaganna.
Ofsagróði og skattafarg-
an á almenning
Alfreð tók til athugunar all-
mörg atriði frumvarpsins og
gagnrýndi þau. Ræðu sinni lauk
hann með þessum orðum:
Fjármálaráðherra virtist í ræðu
sinni leggja á það mikla áherziu
að félög og fyrirtæki hlytu sem
mestan gróða allra og að þar ættu
helzt engin takmörk að vera á.
Því meiri gróði félaga, því betra!
Er þetta skoðun ráðherrans? Ef
svo er þá gengur hann feti lengra
en auðvaldshagfræðingar, sem þó
viðurkenna, að gróði fyrirtækja
geti orðið það mikill, að nauð-
synlegt verði að draga úr hon-
um, m. a. með skattlagningu.
Ráðherrann talaði um
SKATTAFARGAN. Hvað átti
hann við með því? Er það
skattafargan, að hátekjumenn
eða gróðafélög greiði hærri
hundraðshluta af hreðnuni
tekjum í skatt en láglauna-
fólk? Ef ráðherrann telur það,
þá er ég honum ósammála. Ef
hann hins vegar með skatta-
fargan á við háa skatta al-
mennt talað, þá hefur hann
I gær nefnt snöru í hengds
manns húsi. Alðrei hefur það
skattafargan orðið jafnmikið
og í tíð núv^randi ríkisstjórn-
ar, eins og svo rækilega hefur
verið sýnt fram á í umræð-
unum.
Hlaðið undir gróða-
félögin
Ráðherrann gerir sér ljóst og-
viðurkenndi í gær, að með þeim
meginbreytingum sem í þessu
frumvarpi felast, er verið að
hlaða undir gróðafélög, ég held
að hann hafi notað þau orð. Já,
það er rétt, það er verið að hlaða
undir gróðafélög, eins og ráð-
herrann sagði. En mér fannst slá
út í fyrir honum. þegar hann gaf
bað í skyn að það væri ekki fyr-
ir félögin gert, heldur fyrir al-
menning. „Það er til hagsbóta
fyrir öll landsins börn,“ sagði
ráðherrann í föðurlegum tón. Ég
vil nú meina að þetta sé álíka
mikið tiil hagsbóta fyrir landsins
börn eins og kaunílækkunin 1959,
dýrtíðarskriðan 1960 og 1961,
gengislækkanirnar og viðreisnar-
fargan stjórnarflokkanna síðustu
þrjú árin.
★
f stuttri ræðu er Gunnar Thór-
oddsen hélt, revndi hann ekki, að
svara neinum þetm meginádeilum
sem þin.smenn st.jórnarandstöð-
unnar höÆðu flutt. — taldi það
óþarft á þessu stigi!
MÚRARAFÉLAGIÐ
Framhald af 3. síðu.
es Ögmundsson. Jón B. Guðjóns-
son. Jón G. S. Jónsson. Kristján
Haraldsson. Ólafur Bjarnason.
Varamenn: Þórir Guðnason. Þor-
steinn Einarsson. Sigurður G. Sig-
urðsson.
Víðtœkt samstarf til aS fram-
kvœma áœtlunarbúskap
Framh. af 7. síðu.
enn fengu þeir launabætur á
árinu 1961.
Árið 1958 samþykkti Alþingi
skipun nefndar til þess að fylgj-
ast með launabreytingum á
frjálsum vinnumarkaði og gera
.tillögur um launabreytingar
hjá opinberum starfsmönnum,
þegar nefndinni þætti ástæða
til. í þessari nefnd eiga sæti
fimm menn, tveir tilnefndir af
B.S.R.B. og þrír tilnefndir af
ríkisstjórninni.
Tilgangurinn með þessu fyr-
komulagi er að koma í veg
fyrir, að opinberir starfsmenn
dragist aftur úr öðrum stéttum
í launakjörum, eins og oft hef-
ur átt sér stað.
Á sl. hausti var skipuð sam-
starfsnefnd ríkisins og B.S.R.B.
um launa- og kjaramál, með
tveimur fulltrúum frá hvorum
aðila.
Nefnd þessari er ætlað að
fjaila um þau mál, sem hvor
aðili um sig telur æskilegt að
leggja fyrir hana.
B.S.R.B. hefur unnið að því
að fá leiðrétt það misrétti, sem
ríkt hefur í sambandi við
launakjör kvenna.
í lög frá 1954 um réttindi og
skyldur starfmanna ríkisins var
sett ákvæði um, að konur og
karlar skuli hafa jafnan rétt
til opinberra starfa og til sömu
launa fyrir sömu störf. Áður
hafði fengizt ákvæði í launalög-
in frá 1945 um, að við skipun
í starfsflokka og flutning milli
launaflokka skuli konur
öðru jöfnu hafa sama rétt og
karlar.
Síðan 1957 hefur starfað
nefnd fulltrúa bandalagsins og
fjármálaráðuneytisins, sem at-
hugar kvartanir um misrétti í
sambandi við skipun kvenna
í launaflokka og gerir tillögur
um leiðréttingar, ef ástæða
þykir til. Hafa tugir kvenna,
er starfa hjá ríkinu, fengið
leiðréttingu á launakjörum sín-
um vegna starfs þessarar
nefndar.
Auk þess, sem hér hefur
verið talið, hafa samtökin með
starfi sínu fengið framgengt
fjölmörgum hagsmunamálum
stétta og einstaklinga, sem of
langt yrði að telja.
Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja bíða mörg viðfangs-
efni, en sem stendur leggja
samtökin höfuðáherzlu á að fá
viðurkenndan fullan samnings-
rétt til handa opinberum
starfsmönnum, um kaup og
kjör, og að gagngerðar breyt-
ingar verði framkvæmdar á
launakerfi ríkisins og bæjarfé-
laganna. Telja samtökin, að
heildarendurskoðun á launa-
kjörum opinberra starfsmanna
iþoli enga bið.
Bandalag starfsmanna' ríkis
og bæja hefur gefið út sitt eig-
ið málgagn síðan 1944, og er
ætlun’n að út komi síðar í þess- *>
um mánuði afmælisblað í tilefni
20 ára afmælis samtakanna.
í fyrstu stjóm Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja áttu
sæti: Sigurður Thoriacius, skóla-
stjóri, formaður, Lárus Sigur-
björnsson, skjalavörður, vara-
formaöur, Guðjón B. Baldvins-
son, deildarstjóri, ritari, Þor-
valdur Ámason, skattstjóri,
gjaldkeri, dr. Ásmundur Guð-
mundsson, biskup, Guðmundur
Pétursson, símritari og Sigurð-
ur Guðmundsson, skólameistari.
Varamenn: Ingimar Jóhannes-
son, skólastjóri, Kristinn Ár-
mannsson rektor, Nikulás Frið-
ríksson, umsjónarmaður, Sveinn
G. Björnsson, póstfulltrúi.
Þessir menn hafa verið for-
menn bandalagsins:
Sigurður Thorlacius, skóla-
stjóri,
Lárus Sigurbjömsson, skjala-
vörður,
Guðjón B. Baldvinsson, deild-
arstjóri,
Ólafur Bjömsson, prófessor,
Sigurður Ingimundarson, al-
þingismaður,
Kristján Thorlacius, deildar-
stjóri.
í núverandi stjóm eiga sæti:
Kristján Thorlacius, deildar-
stjóri, formaður, Júlíus Björns-
son, deildarstjóri, varaformað-
ur, Magnús Eggertsson, lög-
regluvarðstjóri, ritari, Guðjón
B. Baldvinsson, deildarstjóri,
gjaldkeri, Andrés G. Þormar,
aðalféhirðir, Eyjólfur Jónsson,
lögfræðingur, Gunnar Ámason,
scknarprestur, Sigurður Ingi-
mundarson, alþm., Teitur Þor-
leifsson, kennari. Varamenn:
Einar Ólafsson, verzlunarstjóri,
fHaraldur Steinþórsson, kenn-
ari, Jón Kárason, fulltrúi og
Þorsteinn Óskarsson, símvirki.
Nýtízku kiísgögn
FJölbreytt úrval
Póstsendum.
Axel Eyjólfsson,
Bklpboltl. 7. Biml 16117.